Morgunblaðið - 31.12.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 31.12.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 11 FRÉTTIR ÚR VERINU SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Einar K. Guðfinnsson hefur, í sam- ræmi við tillögu Hafrannsóknastofn- unar, ákveðið að heildaraflamark út- hafsrækju á fiskveiðiárinu 2005–2006 verði 10 þúsund tonn, en það er sama og lagt var til til bráðabirgða í upp- hafi sumars. Hafrannsóknastofnun hefur nú lokið úrvinnslu gagna um úthafsrækju á árinu 2005 og farið yf- ir niðurstöður stofnmælingar rækju fyrir norðan og austan land. Niður- stöður benda til að stofn úthafsrækju sé nú í lágmarki eða svipaður að stærð og hann var metinn árið 2004. Léleg nýliðun og mikil þorsk- gengd á rækjuslóð benda jafnframt til þess að rækjustofninn minnki enn frekar á næstu árum. Úthafsrækju- aflinn minnkaði úr 16 þúsund tonn- um árið 2004 í 4 þúsund tonn árið 2005. Undanfarin fjögur ár hefur rækjuaflinn verið minni en leyfilegur hámarksafli. Vísitala í stofnmælingu úthafsrækju lækkaði verulega á ár- unum 2002-2004 en hækkaði um tæp 20% á árinu 2005. Vístalan er þó enn mjög lág. Í stofnmælingunni var lítið um ungrækju og vísitala eins og tveggja ára rækju mældist mjög lág. Stofnmæling úthafsrækju bendir til mikillar þorskgengdar á rækjumið- unum árin 2003–2005 eða svipaðrar og á árunum 1996–1998 þegar rækju- stofninn minnkaði verulega. Sam- kvæmt útreikningum hefur dánar- tala rækju undanfarin ár ráðist meira af þorskgengd á Norður- og Austurmiðum en aflanum sem tekinn er úr veiðistofninum á hverju ári. Afli á togtíma árið 2005 var um 100 kg/ klst., sem er nálægt lægstu gildum sem mælst hafa. Sókn í úthafsrækju hefur dregist verulega saman á undanförnum árum og var aðeins 40 þúsund togtímar árið 2005 saman- borið við 200–400 þúsund togtíma á árunum 1987–2001. Hafrannsókna- stofnun telur óvarlegt að veiða rækju í kappi við þorskinn og telur rétt að sókn sé væg þegar náttúruleg afföll eru mikil. Í ljósi ofangreindra upp- lýsinga um ástand úthafsrækju- stofnsins telur Hafrannsóknastofnun að ekki séu forsendur til að breyta aflamarkinu sem lagt var til í upphafi vertíðar. Heildaraflamark á fisk- veiðiárinu 2005–2006 verði því eftir sem áður 10 þúsund tonn. Sjávarút- vegsráðherra fer að þeim tilmælum og verður heimilt að veiða 10 þúsund tonn af úthafsrækju á yfirstandandi fiskveiðiári. Heimilt að veiða 10.000 tonn af úthafsrækju Stofninn í lágmarki og líkur á að hann minnki enn meira Morgunblaðið/Ómar Aflaheimildir Engin veiði á innfjarðarrækju er leyfð á þessu ári og aðeins 10.000 tonna kvóti er á úthafsrækjunni, sá minnsti um langt árabil. SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKIÐ Gjögur hefur skrifað undir samning um nýsmíði á fiskiskipi við Nautic ehf. Skipið verður smíðað í Póllandi. Skipið sem mun heita Gjögur EA er 29 metra langur ísfisktogari. Mesta breidd er 10,40 metrar. Fiskilest er 235 rúmmetrar og tekur annað hvort 165 660 lítra kör eða 220 460 lítra kör. Fiskimóttaka er 17 rúm- metrar og rúmar um 10 tonn af afla. Vinnslurými er um 87 fermetrar og gert er ráð ískrapavél um borð. Togbúnaður verður frá Bratt- waag, aðalvél er af gerðinni Yan- mar, 1.300 hestöfl og er aflvísir und- ir 1.600. Í skipinu er 7 klefar sem hýsa allt að 13 manns. Fyrir á Gjögur togbátana Vörð og Oddgeir. Guðmundur Þorbjörnsson, einn eigenda Gjögurs, segir að bát- arnir séu komnir til ára sinna, komnir fast að fertugu. Þrátt fyrir gott viðhald sé kominn tími á endur- nýjun. Líklegast sé að að minnsta kosti öðrum bátnum verði lagt. Auk þess gerir Gjögur út uppsjávarveiði- skipin Hákon og Áskel. Skip Teikning af hinum nýja ísfisktogara, sem verður 29 metra langur. Gjögur lætur smíða fyrir sig ísfisktogara NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Íslands telja að með höfnun um- hverfisráðherra á tillögu Sam- vinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendisins fyrir svæðið sunnan Hofsjökul sem lýtur að Norðlinga- ölduveitu sé málið aftur komið á upphafsreit. Árni Finnsson, for- maður samtakanna, segir að nið- urstaða ráðherra hafi verið viðbúin. Af úrskurði umhverfisráðherra megi ráða að hann telji að sam- vinnunefnd sé heimilt að taka Norðlingaölduveitu út af skipulagi sunnan Hofsjökuls og þetta sé fagnaðarefni. „Framkvæmdaraðilinn [Lands- virkjun] getur nú farið fram á end- urskipulagningu á þessu svæði til þess að fá inn þá framkvæmd sem Jón Kristjánsson leyfði í umhverf- ismati árið 2003. Sveitarfélagið getur farið fram á annars konar skipulag og nefndin getur auglýst annars konar skipulag þannig að málið er opið að okkar mati,“ segir Árni. Eini mögu- leikinn sem ekki virðist fyrir hendi samkvæmt úrskurði ráðherra frá í fyrradag sé að taka inn hluta Norðlingaöldu- veitu eins og settur umhverfisráð- herra úrskurðaði um 2003. Taka þurfi inn annaðhvort „allt eða ekk- ert“. Mögulegt að stækka friðlandið Árni bendir á að samþykkt hafi verið sérlög um Norðlingaölduveitu á Alþingi í febrúar 2003. „Með því var umhverfismatið lögfest sem er mjög sérstakt,“ segir hann. „Þetta þýðir að ef Norðlingaölduveita er inni í skipulaginu verður hún að vera eins og Jón Kristjánsson ætl- aðist til,“ segir hann. „Á hinn bóg- inn er ekkert sem skyldar sam- vinnunefndina til þess að hafa Norðlingaölduveitu inni í skipulag- inu. Þetta þýðir með öðrum orðum að það er líka mögulegt að stækka friðlandið og það er það sem við viljum vinna að,“ segir Árni. Stuðningur meðal almennings Hann segir ekki hægt að segja til um á þessari stundu hver nið- urstaða málsins verði. Fyrst þurfi framkvæmdaraðili að koma með beiðni um breytingu á skipulagi, svo kunni sveitarfélagið að hafa eitthvað um það að segja og síðast en ekki síst almenningur. Meðal al- mennings sé mikill stuðningur við stækkun friðlandsins í Þjórsárver- um. Í skoðanakönnun Gallup sem gerð var fyrir Náttúruverndarsam- tökin haustið 2004 hafi um 2/3 að- spurðra stutt stækkun friðlandsins í Þjórsárverum. Þá hafi verið al- gjör samstaða meðal umhverfis- verndarsamtaka um að friðlandið eigi að stækka. Verið sé að skipu- leggja fund sem halda eigi 7. jan- úar til stuðnings verndun Þjórs- árvera. Árni Finnsson um niðurstöðu umhverfisráðherra um skipulag miðhálendisins Málið komið á upphafsreit                                                 %   : !  #% 99"03            Árni Finnsson Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is BJÖRGÓLFUR Thorsteinsson, formaður Landverndar, segir að ekki hafi komið á óvart sú ákvörð- un umhverfisráð- herra að synja staðfestingu á þeim hluta svæð- isskipulagstil- lögu samvinnu- nefndar miðhálendisins sem lýtur að Norðlingaöldu- veitu. Landvernd líti svo á að vinnubrögð sam- vinnunefndarinnar hafi verið vönd- uð þótt ekki hafi Landvernd alltaf verið sammála nefndinni. „Við hjá Landvernd viljum helst engar framkvæmdir í Þjórsárver- um og bendum á að mörk frið- landsins vernda ekki Þjórsárverin nema að hluta,“ segir Björgólfur. „Mörk friðlandsins voru ákveðin fyrir aldarfjórðungi og síðan hefur bæst við geysimikil þekking á þessu svæði. Íslenskir vísindamenn hafa komist að því að þetta er með verðmætustu svæðum miðhálend- isins og erlendir vísindamenn hafa bent á að svæðið hafi mjög mikið verndargildi á alþjóðavísu,“ segir hann. „Með Norðlingaölduveitu sýnist okkur þá að muni fást tiltölulega lítil orka miðað við raskið. Og það eru engir brýnir þjóðhagslegir hagsmunir sem krefjast þess að farið verði inn á þetta verðmæta svæði og framkvæmdir myndu hafa veruleg áhrif á ásýnd svæðisins, vatnafar og landslag. Allt bendir því til að það sé landi og þjóð fyrir bestu að ekki verði virkjað þarna. Ég legg því til að Þjórsárver verði friðuð og Norðlingaölduveita tekin af dagskrá til ársins 2020. Verndun útilokar ekki virkjun síðar meir, en virkjun myndi hins vegar útiloka verndun.“ „Verndun Þjórsár- vera úti- lokar ekki virkjun“ Björgólfur Thorsteinsson FRÁBÆRT skíðafæri er á skíða- svæði Siglfirðinga þessa dagana og hefur verið opið í brekkunum á hverjum degi frá því um miðjan desember. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína í brekkurnar og hefur talsvert verið um gesti annars staðar af landinu sem verja jólafríinu á skíðum á Siglufirði. Þrjár lyftur eru í gangi og flóð- lýsing eykur stemninguna til muna. Gott veður að undanförnu hefur svo sett punktinn yfir i-ið fyrir skíðafólkið. Talið er að svo mikill snjór hafi safnast fyrir í fjallinu í vetur að hann muni end- ast skíðafólki út næstu mánuðina. Frábært skíðafæri á Siglu- firði Morgunblaðið/Kristján L. Möller
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.