Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 31

Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 31
uppáhaldsréttina sína enda er taí- lenskur matur mjög vinsæll hjá mörgum Vesturlandabúum.“ Þær koma úr ýmsum störfum Þegar Daglegt líf forvitnast um veru verslunareigendanna þriggja á Íslandi kemur í ljós að Rung Ar- un hefur búið hér í tólf ár. Hún var gift íslenskum manni, en er nú fráskilin og á tvo syni, 8 og 11 ára. Lengst af hefur hún starfað hjá B. Magnússyni og á Hrafnistu. Rúm þrjú ár eru síðan Rattanawadee fluttist til Íslands. Hún á íslenskan eiginmann og hefur starfað við sal- atgerð hjá Pastó í Kópavogi, við súkkulaðigerð hjá Góu og staðið um helgar í Kolaportinu við að selja taílenskt skart. Ellefu ár eru liðin síðan Prapasiri, sem er ein- stæð, fluttist til Íslands ásamt tveimur dætrum sínum sem nú eru 26 og 23 ára gamlar. Hún er í eng- um vafa um að hægt sé að lifa góðu lífi á Íslandi með því að fara vel með aurana sína og hugsa svo- lítið rökrétt og fram í tímann. Hún vann hjá Myllunni fyrstu fimm ár- in og síðan við umönnun á Drop- laugarstöðum næstu tvö árin. „Svo var ég alveg bundin heima með nýrnaveika dóttur mína í tvö ár og svo fór að hin dóttir mín gaf systur sinni nýra. Ég var orðin mjög þunglynd af öllum þessum veikindum og einangrun svo ég ráðfærði mig við lækni sem sagði að ég yrði að taka mér eitthvað skemmtilegt fyrir hendur. Ég fór að kaupa íbúðir, gera upp og selja og ég keypti líka verslun í Hamra- borg sem ég er líka nýbúin að selja. Ég hef eignast pening með þessum fasteignaviðskiptum sem ég er núna að nota í Thai City,“ segir Prapasiri hvergi bangin. Áramótagleði í miðstöðinni Það verður mikið um dýrðir hjá athafnakonunum þremur í dag, gamlársdag, og langt fram á nótt því þær ætla að efna til áramóta- fagnaðar með vinum og kunn- ingjum í nýju Asíu-miðstöðinni. „Við ætlum að halda tónleika, borða mikið, drekka smá og dansa mikið. Gleðin byrjar klukkan 11.00 á gamlársdag og stendur allan daginn og langt fram á nótt. Það verður voða gaman,“ segja þær og brosa um leið og útsendarar Dag- legs lífs kveðja og óska þessum austurlensku athafnkonum góðs gengis. join@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 31 Útsalan hefst mánudaginn 2. janúar kl. 10.00 v/Laugalæk • sími 553 3755 Blómaveggvasar prýddir litríkum blómum. Spilað á hljóðfæri í Thai City. Í verslunarmiðstöðinni er til húsa tónlistar- kennarinn Sekson Kompamong sem kennir börnum að leika á hljóðfæri. RÓBERT Schmidt er einn fjölmargra íslenskra veiði- manna sem ræða málin á spjallrásinni www.hlad.is. Hann gefur lesendum spennandi uppskrift sem hann segir að sé ósköp einföld. Hann varar við því að gæsabringur séu ofsteiktar, því þá verði kjötið bæði þurrt og vont. Róbert mælir með því að bringurnar séu látnar standa í 2–3 mínútur eftir steik- ingu áður en þær eru bornar fram. „Stundum lítur út fyrir að þær séu blóðugar þegar skorið er í þær, en oftast er um að ræða vökva sem rennur út við skurðinn.“ Róbert leggur til að bringurnar séu skornar í þunnar sneiðar þegar þær eru bornar fram og að skorið sé þvert á vöðvann. Athugið að huga að sósugerðinni áður en gæsabring- urnar eru steiktar. Gæsabringur Fyrir 6 3 gæsabringur salt og nýmalaður pipar olía til steikingar Aðferðin: Takið bringurnar af beinum og snyrtið þær vel. Fjarlægið himnur, fitu og sjáanlegar sinar. Kryddið með salti og pipar og steikið í olíu á pönnu í 2–3 mínútur á hvorri hlið við fremur háan hita, þannig að kjötið lokist vel. Setjið í 160°C heitan ofn með blæstri og steikið áfram í 8–10 mínútur eftir þykkt vöðvanna. Villisveppasósa 1 dós þurrkaðir villisveppir (um 1 lófafylli) 1–2 lófafylli ferskir sveppir (má sleppa) ½ bolli ristaðar furuhnetur ½ bolli rúsínur 1 tsk. kjötkraftur (nauta- eða villibráðarkraftur) 1–2 dl púrtvín ½–1 dl brandy eða koníak ½–1 l rjómi olía til steikingar salt og pipar 2 tsk. villisveppagrunnur frá Hafmeyjunni ef vill gráðostur ef vill Aðferðin: Setjið þurrkaða villisveppina í volgt vatn í 15–20 mínútur og síið vökvann frá. Stundum liggja sand- korn á þurrkuðum sveppum sem best er að losna við strax í upphafi. Skerið fersku sveppina niður og steikið í olíu ásamt þurrkuðu sveppunum. Kryddið með salti og nýmöluðum pipar. Bætið púrtvíni og koníaki saman við og sjóðið niður við vægan hita þar til síróp hefur mynd- ast. Færið yfir í pott og bætið rjómanum út í. Látið suðuna koma upp og sjóðið áfram í 15–20 mínútur við mjög vægan hita. Bætið kjötkrafti út í og smakkið til. Saltið ef á þarf að halda. Hægt er að bæta vökva af villisveppunum út í ef vill, eða 2 tsk. af villisveppagrunni frá Hafmeyjunni, sem fæst í matvöruverslunum. Þeir sem kjósa geta bætt klípu af gráðosti út í sósuna á þessu stigi. Rétt áður en sósan er borin fram er ristuðum furu- hnetum og rúsínum bætt út í hana. Hugmyndir að meðlæti: Sykurgljáðar kartöflur Strengjabaunir og annað snöggsoðið grænmeti Fersk bláber Rifsberjasulta  MATUR | Villibráð að hætti veiðimanna Gæsabringur með villisveppa- sósu og ristuðum furuhnetum Morgunblaðið/Róbert Schmidt NEYSLA ávaxta og grænmetis sem ríkt er af sinki er talin geta haft fyrirbyggjandi áhrif á augnsjúkdóm sem valdið getur blindu. Um er að ræða sjúkdóm sem kallast AMD og einkennist af gulum blettum á nethimnu augans hjá eldra fólki. Í Svenska Dagbladet er greint frá því að vís- indamenn við Erasmus háskólann í Rotterdam hafi komist að því að eldra fólk sem fékk mikið af betakarótíni eða A-vítamíni, C- og E-vítamíni og sinki úr fæðunni átti 35% síður á hættu að fá sjúk- dóminn en aðrir. Besta vörn veita E-vítamín og sink samkvæmt rannsókninni. Niðurstöðurnar eru úr rannsóknum á 6.000 ein- staklingum, 55 ára og eldri. Mataræði þeirra var skoðað og þeim fylgt eftir í átta ár. 560 af þeim fengu AMD. Niðurstöðurnar voru birtar í vísinda- tímaritinu Jama. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að andoxunarefni í pilluformi veiti vörn gegn AMD en það var ekki staðfest í þessari rannsókn sem fyrst og fremst bendir á mikilvægi sink- og vítam- ínríkrar fæðu. Í niðurstöðunum kemur fram að frekari rannsókna sé þörf. Ávextir og græn- meti gegn blindu  HEILSA Tilbúið soð í sósuna Villibráð er víða að finna á veisluborðum landsmanna á gaml- árskvöld, ekki leggja þó allir í, eða hafa tíma til, að búa til soð- ið sjálfir fyrir sósuna. Nóatún býður þessa dagana upp á tilbúið kjötsoð, m.a. villibráð- arsoð, frá Oscar í fernum. Fimm teg- undir eru í boði, lambasoð, nautasoð, kjúklingasoð, villibráðarsoð og skeldýrasoð og þykja þessir svonefndu sósugrunnar tilvaldir fyrir sælkera sem hafa ekki tök að sjóða niður soð til sósu- eða súpu- gerðar. Soðið er einfaldlega sett í pott, suða látin koma upp og svo sósan svo búin til skv. smekk. Þannig má bæta við rjóma, salti, pipar og öðrum kryddtegundum að vild sem og sveppum svo dæmi séu tekin. Skel- dýrasoðið þykir þá líka tilvalið í humarsúpu og dugar raunar að bæta rjóma og humar út í soðið til að búa til góða súpu með lítilli fyrirhöfn.  NÝTT DAGLEGT LÍF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.