Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 34

Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Formenn stjórnmálaflokkanna við áramót Góðir Íslendingar.Við áramót lítum viðyfir farinn veg og hvertog eitt okkar vegur og metur hvernig árið 2005 hefur ver- ið fyrir okkur og okkar nánustu. Fyrir suma hefur þetta verið ár vaxtar og gæfu, framfara, velmeg- unar og góðra minninga. Fyrir aðra ár sársauka og trega. Á árinu vorum við óvenju oft minnt á hin óblíðu náttúruöfl. Fyrir ári síðan var það hin mikla flóðbylgja sem grandaði lífi þúsunda og skildi eft- ir sig eyðileggingu og auðn í Asíu. Heimilislausir voru ekki færri eftir að jarðskjálftar riðu yfir í október og tugir þúsunda féllu í Pakistan. Enn er ástandið þar slæmt og kaldur vetur og harðindi bæta ekki úr skák. Við Íslendingar höfum vissulega lagt okkar af mörkum með framlögum til alþjóðlegra hjálparstofnana og annarri aðstoð en betur má ef duga skal. Þá vorum við óþyrmilega minnt á að okkur öllum stafar ógn af níð- ingsverkum hryðjuverkamanna þegar tugir óbreyttra borgara féllu í sjálfsmorðsárásum í Lund- únum 7. júlí sl. Hryðjuverkamenn eira engu og kæra sig kollótta um saklaus fórnarlömbin. Baráttan gegn þessari vá hefur sameinað ríki heims en mikilvægt er að í þeirri baráttu verði hvergi vikið frá þeim grundvallarreglum um frelsi og mannréttindi sem lýðræð- isþjóðfélög okkar byggja á. Meint fangaflug bandarísku leyniþjónust- unnar um lofthelgi og flugvelli Ís- lands var til umræðu eins og í flestum grannríkjum okkar. Fjar- stæða er að láta í það skína að ís- lensk stjórnvöld líti málið ekki nógu alvarlegum augum þegar grunur leikur á að gróf mannrétt- indabrot hafi verið framin. Evr- ópuráðið vinnur nú að könnun á málinu fyrir hönd aðildarríkjanna 46 og taka íslensk stjórnvöld þátt í henni eins og stjórnvöld annarra ríkja álfunnar. II Efnahagslíf hér á landi stendur í miklum blóma. Hagvöxtur er hér meiri en í flestum nágrannaríkjum og staðan á vinnumarkaði einkenn- ist frekar af skorti á vinnuafli en atvinnuleysi, öfugt við það sem er í flestum öðrum löndum. Þetta gild- ir ekki einungis um árið í ár held- ur hefur þróunin undanfarinn ára- tug einkennst af stöðugt batnandi kjörum heimilanna í landinu þar sem hvert kaupmáttarmetið af öðru hefur verið slegið. Nýsköpun er sem fyrr mikilvægur þáttur at- vinnulífsins og sú framtíðarsýn sem þar birtist skiptir miklu. En nýsköpun snýst ekki alltaf bara um framleiðslu hluta, heldur getur mannlegi þátturinn þar verið höfuðatriði. Þannig tók ég sér- staklega eftir verkefninu „Hugur og heilsa“ sem vann fyrstu verð- laun í samkeppni á vegum Háskóla Íslands nýverið. Tilgangur þess er að þróa heildrænt kerfi sem auð- veldar starfsfólki í heilbrigðis-, fé- lags- og skólageiranum að veita ungu fólki aðstoð til að koma í veg fyrir þunglyndi. Þetta er gott dæmi um nýsköpun sem bætir ekki aðeins mannlífið, heldur enn fremur atvinnulífið. Mér finnst ástæða til að nefna sérstaklega mikilvægi þess að samkomulag tókst í þríhliða við- ræðum milli ríkisstjórnarinnar, Al- þýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um áframhaldandi gildi kjarasamninga. Þetta sam- komulag er afar mikilvægt fyrir efnahagslegan stöðugleika hér á landi. Allt síðasta ár hefur hugs- anleg uppsögn kjarasamninga hangið yfir efnahagslegri umræðu. Það hefur skapað óvissu og óróa sem hefur haft óæskileg áhrif, ekki bara í stöðunni í dag heldur ekki síður á framtíðarhorfur. Með þessu samkomulagi milli rík- isstjórnarinnar og aðila vinnu- markaðarins er óvissu í efnahags- málum á næstu misserum eytt, sérstaklega hvað varðar þróun verðbólgu og kaupmátt heim- ilanna. Því ber að fagna. III Á þessu ári lauk farsællega stærstu einkavæðingu Íslandssög- unnar þegar íslenska ríkið seldi eftirstandandi hlut sinn í Lands- síma Íslands hf. fyrir 66,7 millj- arða króna. Söluferlið þótti til fyr- irmyndar og hefur verið lýst sem skólabókardæmi um góða fram- kvæmd einkavæðingar. Gegnsæi þess og trúverðugleiki endurspegl- aðist í þeim mikla áhuga sem fjár- festar sýndu fyrirtækinu. Með sölu á Símanum hefur ríkisvaldið dreg- ið sig að öllu leyti út úr samkeppn- isrekstri á fjarskiptamarkaði. Af söluandvirði Símans verður meðal annars 18 milljörðum varið til uppbyggingar Landspítala – há- skólasjúkrahúss og 15 milljörðum til framkvæmda í vegamálum. Ber þar hæst veglegt framlag til bygg- ingar Sundabrautar sem að mínu viti er ein nauðsynlegasta vega- framkvæmd sem við stöndum frammi fyrir. Einnig verður áður óþekktum fjármunum varið til ný- sköpunar í atvinnulífi, til kaupa á fjölnota varðskipi fyrir Landhelg- isgæslu Íslands, til framkvæmda í þágu fatlaðra og til stofnunar fjar- skiptasjóðs. Þá voru eignir og skuldir Lánasjóðs landbúnaðarins seldar á árinu og rennur sölu- andvirðið til lífeyrissjóðs bænda. IV Nokkrar ríkisstofnanir hafa um langt skeið óskað eftir því að fá meira svigrúm til athafna en regl- ur um ríkisrekstur gera ráð fyrir. Vaxandi kröfur eru í samfélaginu um árangur og aðlögunarhæfni, breytingar á tækni og aðstæðum eru hraðar og samkeppni er um gott starfsfólk. Stjórnendur rík- isstofnana eru háðir meiri tak- mörkunum í rekstri en stjórn- endur fyrirtækja með annað rekstrarform enda ber ríkið ótak- markaða ábyrgð á rekstri sem það stendur fyrir. Þá er innra stjórn- kerfi flestra eða allra ríkisstofnana bundið í lögum, reglugerðum eða háð samþykki ráðherra. Hlutafélagsformið gefur færi á meiri sveigjanleika í fjárfestingum, rekstri og samvinnu við aðra aðila en ríkisrekstrarformið. Þetta á ekki síst við um rekstur þar sem breytingar eru mjög örar og rík áhersla er lögð á góða þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki. Rík- isstjórnin hefur því ákveðið að breyta rekstrarformi nokkurra ríkisstofnana yfir í hlutafélag. Um er að ræða Ríkisútvarpið, Raf- magnsveitur ríkisins og þrjár rannsóknastofur á sviði matvæla. Jafnframt hefur ríkisstjórnin lagt til breytingu á hlutafélagalögum og bætt við sérstökum ákvæðum sem eiga að gera almenningi hæg- ara um vik að fá upplýsingar um tiltekna starfsþætti í hlutafélögum sem eru alfarið í eigu ríkisins. V Við síðustu áramót varð mér tíð- rætt um málefni fjölskyldunnar og sagði þá meðal annars: „Það er bjargföst trú mín að samheldin og ástrík fjölskylda sé kjarninn í hverju þjóðfélagi. Þann kjarna þarf að styrkja og treysta og við höfum komið til móts við breyttar kröfur með fæðingarorlofi fyrir báða foreldra sem var mikið jafnréttismál. Að sama skapi höf- um við lagt áherslu á að allir geti eignast sitt eigið húsnæði. En bet- ur má ef duga skal. Ég hef því ákveðið að setja af stað vinnu við að meta stöðu íslensku fjölskyld- unnar.“ Sú nefnd var skipuð strax í jan- úar og á að starfa í ár til viðbótar. Nefndin hefur á þessum tíma unn- ið mikilvægt starf, meðal annars við að kortleggja hvernig málefni fjölskyldunnar hafa þróast í lögum og reglugerðum á síðustu árum og fara yfir fjölskyldustefnur fyr- irtækja, fæðingarorlofsmál og dag- gæslumál svo dæmi séu tekin. Ljóst er að samráðsvettvangur á borð við fjölskyldunefndina er nauðsynlegur og vænti ég mikils af störfum nefndarinnar á kom- andi ári. Jafnframt hófst í árs- byrjun samstarf forsætisráðuneyt- isins, þjóðkirkjunnar, umboðsmanns barna, Velferð- arsjóðs barna og Heimila og skóla undir heitinu Verndum bernskuna. Átakinu er ætlað að vekja alla til umhugsunar um þau verðmæti sem falin eru í börnum þessa lands og var bæklingi með 10 heilræðum fyrir foreldra og uppalendur dreift í öll hús, málþing og ráðstefnur hafa verið haldnar, kynningar í skólum og félagsmiðstöðvum og hjá ýmsum samtökum. Ég veit að þetta átak hefur mælst vel fyrir og ég vona að það muni vekja marga uppalendur til umhugsunar um stöðu sína og stöðu fjölskyldunnar almennt. VI Málefni aldraðra eru mörgum ofarlega í huga sem eðlilegt er. Ríkisstjórnin hefur ávallt verið reiðubúin til að skoða hvernig bæta megi kjör aldraðra og hefur af því tilefni verið fundað reglu- lega með fulltrúum þeirra, nú síð- ast rétt fyrir jól. Okkur sem erum í blóma lífsins á að vera bæði ljúft og skylt að tryggja öldruðum örugga og góða afkomu enda eiga þeir stóran þátt í að skapa það þjóðfélag og þá velsæld sem við búum við. Mér finnst þess vegna mikilvægt að halda því til haga að sú ákvörðun ríkisstjórnar að af- nema eignaskatt frá og með árinu 2005 kemur sér ekki síst vel fyrir aldraða enda hefur sá hópur greitt um þriðjung alls eignaskatts í landinu. Jafnframt vil ég ítreka þau markmið stjórnvalda og að- standenda aldraðra um mikilvægi þess að leita leiða til að aldraðir megi dvelja sem lengst á heimili sínu og gera þeim sem fullfrískir eru kleift að vera þátttakendur í atvinnulífinu sem lengst. VII Góðir landsmenn. Fram undan er nýtt ár og öll bindum við vonir við að það verði landi og þjóð hagstætt og hverjum og einum gæfuríkt í sem flestu til- liti. Um leið og ég þakka ykkur fyrir samstarfið á árinu sem er að líða, bið ég þess að árið 2006 verði ykk- ur ár farsældar og friðar. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins Stöðugt batnandi kjör heimilanna Morgunblaðið/Brynjar Gauti Undanfarinn áratug hefur hvert kaupmáttarmetið af öðru verið slegið, segir Halldór Ásgrímsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.