Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 47

Morgunblaðið - 31.12.2005, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 47 MINNINGAR Að heilsa og kveðja er lífsins gangur. Ein- hvern veginn er þó eins og að þeir, sem hafa verið hluti af lífi manns alla tíð, eigi að vera ei- lífir. Tilhugsunin um að eiga ekki eftir að eiga fleiri stundir með ömmu í litla eldhúsinu hennar við Öldugöt- una er skrýtin og óraunveruleg. Amma Hulda var kjarnakona, alin upp á Kirkjubæ á Rangárvöllum og vön að vinna hörðum höndum frá barnæsku. Hún ljómaði alltaf þegar hún sagði sögurnar úr sveitinni. Ég veit að hún hefði kosið að búa í sveit með sína fjölskyldu, en kannski má segja að Selásinn hafi komist nálægt því að kallast sveit í þá daga; örfá hús á stangli, umhverfið ævintýri eitt fyrir okkur elstu barnabörnin og vini. Berjamór í bakgarðinum, gam- all bíll á felgunum sem flutti okkur krakkana heimshornanna á milli og hænsnabúið hennar ömmu, sem hún rak af miklum rausnarskap. Hún seldi eggin og keyrði þau út um bæ- inn á rússajeppanum sínum – honum „Huldubrandi“. Sennilega ekki margar ömmur sem þeystu um á svo flottum jeppa. Lífið var ömmu ekki alltaf auðvelt, en hún hafði einstaka lund og var ekki að láta erfiðleika eða mótlæti beygja sig – hvað þá brjóta. Hún mætti lífinu með góða skapinu sínu og var sátt við allt og alla. Alltaf kröfulaus á þá sem í kringum hana voru og duglegri en nokkur sem ég þekki. HULDA ÞORBJÖRNSDÓTTIR ✝ Hulda Þor-björnsdóttir fæddist í Hafnar- firði 14. mars 1910. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnu- daginn 18. desem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Þjóðkirkj- unni í Hafnarfirði 28. desember. Síðasti kaffibollinn hefur verið drukkinn í ömmuhúsi og við eig- um öll eftir að sakna hennar sárt, en meg- um ekki vera eigin- gjörn – hún var hvíld- inni fegin og það er gott að vita að nú líður henni vel. Ég þakka ömmu minni samfylgdina og er svo miklu ríkari að hafa átt hana að. Hulda Ellertsdóttir. Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga. Og nú kveðjum við Huldu ömmu eins og við kölluðum hana alltaf. Andlátsfregnin kom ekki að óvörum, langur ævidagur var að kveldi kom- inn og hún án efa farin að þrá hvíld- ina eftir lýjandi síðustu stundirnar. Og þessa jóladaga leita á hugann minningarnar sem henni eru tengd- ar. Kærar minningar sem geymast með okkur sem hana þekktum. Bros, hannyrðir, söngur, dans, margmenni – nokkuð sem í okkar hugum verður órjúfanlega tengt minningunni um Huldu ömmu, um hennar ævidaga sem við þekktum til og um hennar yngri daga, af af- spurn. Amma var mikil söngmann- eskja, eins og margt hennar fólk. Minnisstæðar eru stundir af kirkju- bekkjum við hlið ömmu, þar sem óm- uðu raddir úr tveimur áttum; kirkju- kórsins og ömmu. Vön söngmanneskja á ferð eftir áratuga söng í kirkjukór Kálfatjarnarkirkju, og kunni sálmana utanbókar. Hún var músíkölsk og hafði yndi af tónlist og söng, einnig dansi, a.m.k. meðan heilsan leyfði. Við minnumst eftirvæntingar yfir því að fá ömmu, og afa meðan hann lifði, í heimsókn vestur til Grund- arfjarðar. Ómetanlegar eru minn- ingar um kleinusteikingar í Stiga- hlíðinni í Reykjavík, flatkökubakst- ur á eldavélarhellu í Grundarfirði og aðrar álíka kræsingar, sem hún reiddi fram og fórst það einstaklega vel úr hendi. Það var hún sem kenndi okkur að spila rommý, sem var sérlega vinsæl iðja í Stigahlíð- inni og með í liði var ósjaldan hún Rúna á móti. Þá var nú oft glatt á hjalla. Hulda amma var mikil hannyrða- kona, saumaði út, heklaði og féll sjaldnast verk úr hendi. Ófá skiptin veitti hún aðstoð og leiðbeiningar (sérstaklega þeirri okkar sem ríkari skerf hlaut af hannyrðahæfileikum!). Afkomendur og fleiri geyma ýmsar hannyrðir hennar; hekluð barna- teppi, útsaumaða dúka og margt annað fallegt sem hún gaf okkur. Amma var dugleg að sækja mannamót, alveg fram í háa elli, enda félagslind og iðulega verið mannmargt í kringum hana. Um miðjan nóvember fyrir sex árum lét hún sig hafa það að stíga upp á kassa og príla upp í háan fjallajeppa, sem flutti hana til Grundarfjarðar í brúð- kaup Bjargar og Hemma. Konuna vantaði þá fjóra mánuði í nírætt! Af vilja og dugnaði hafði hún lúmskt nóg og víst er að hugurinn bar hana hálfa leið, oft lengra en þrek og kraftar í raun leyfðu. Það lýsir henni vel, að á allra síðustu árum, eftir að hún fór að eiga erfitt með að klæða sig sjálf upp á, fannst henni hún ómöguleg til fara ef hún fór á mannamót og það ekki á upphlut- num. Honum var hún enda vön að skarta, glæsileg svo af bar. Ekki spillti að hún hafði sítt hár sem hún fléttaði, lagði fallega og setti í hnút. Það er okkur minnisstætt, úr heimsóknum til Huldu ömmu, eftir að hún flutti á Hrafnistu í Hafnar- firði, hve þakklát hún var fyrir heim- sóknir og innlit. Brosið var einlægt, og gleðin yfir að fá að hitta ættingja og vini. Amma fylgdist vel með sínu fólki og spurði frétta af hverjum og einum, jafnvel síðustu misserin er minninu hafði tekið að hraka. Hún hafði líka metnað fyrir hönd síns fólks, hvatti til dáða og hrósaði. Með þessum minningarbrotum kveðjum við Huldu ömmu, þökkum samfylgdina og góðar stundir og gerum orð Jónasar Hallgrímssonar að okkar: Dýrðlegt er að sjá eftir dag liðinn haustsól brosandi í hafið renna; Hnígur hún hóglega og hauður kveður friðarkossi, og á fjöllum sest. ... Sofnar ei og sofnar ei, þótt sígi til viðar sælust dagstjarna, sést hún enn að morgni. ... Stríð er starf vort í stundarheimi, berjumst því og búumst við betri dögum. Sefur ei og sefur ei í sortanum grafar sálin – í sælu sést hún enn að morgni. Guð blessi minningu Huldu D. Þorbjörnsdóttur. Björg, Steinþóra og Dagný Ágústsdætur. Elsku amma. Það eru engin orð sem geta lýst því hversu mikið við eigum eftir að sakna þín, þú sem varst yndislegasta manneskjan í öll- um heiminum. Þú varst alltaf svo glöð þegar við komum í heimsókn til þín og þurftir alltaf að fá nýjustu fréttir af okkur öllum. Langar okkur að minnast þín með nokkrum af mörgum minningum sem við eigum um þig. Það sem okkur finnst hafa einkennt þig mest í gegnum árin okkar er hárgreiðslan, þú passaði alltaf upp á að vera vel greidd og lést okkur alveg vita af því ef þér líkaði eða líkaði ekki hárið eða greiðslan hjá okkur. Svo eru það kleinurnar þínar, þær eru og verða bestu klein- ur í heimi, það var alltaf jafngaman að koma til þín og fá að hjálpa til við að snúa kleinunum þegar þú varst að steikja þær – nú svo að borða þær heitar. Spilin, já, spilin, það voru ófá- ar vistirnar, mannarnir og kanarnir sem við spiluðum saman í gegnum árin. Á undanförnum jólum, þegar þú varst hjá okkur, var slagur um það hver fengi að spila við þig. Nú svo voru það sunnudagsbíltúrarnir og ísinn, alltaf fannst okkur jafn- gaman að fara með þig í bíltúr og sýna þér breytingarnar sem höfðu átt sér stað í Hafnarfirði. Þú áttir aldrei til orð yfir það hvað bærinn stækkaði mikið og ört. Svo enduðum við bíltúrinn á því að koma við í ís- búð, því þér fannst ísinn alltaf svo góður. Árið 1984 fórum við, ég (Soffía) og þú, til Ameríku og dvöldum þar sum- arlangt. Mér fannst þetta yndislegur tími og við náðum mjög vel saman í þessari ferð. Ég get nú ekki annað en minnst á pilsið sem þér líkaði ekki neitt voðalega vel en ég elskaði. Minningin um þessa ferð er mér enn ljóslifandi. Á annan tug jóla hefur þú verið með okkur yfir jólin og fannst Gunnu það alltaf jafnyndislegt, því þá fenguð þið að sofa saman í hjóna- rúminu. Elsku amma, þetta eru bara brot af þeim minningum sem við eigum í hjarta okkar og munum varðveita um ókomin ár. Þá vissı́ ég fyrst, hvað tregi er og tár, sem tungu heftir, – brjósti veitir sár – er flutt mér var sú feigðarsaga hörð, að framar ei þig sæı́ ég á jörð. Er flutt mér var hin sára sorgarfregn, – er sálu mína og hjarta nístı́ í gegn – að þú hefðir háð þitt hinzta stríð svo harla fjarri þeim, sem þú varst blíð. Ég veit hver var þín hinzta hjartans þrá, hugljúf móðir, – börnin þín að sjá; ég veit þau orð, er síðast sagðir þú, sem sorgleg mér í eyrum hljóma nú. Hvíl þig, móðir, hvíl þig, þú varst þreytt; þinni hvíld ei raskar framar neitt. Á þína gröf um mörg ókomin ár, ótal munu falla þakkartár. (Jóhann M. Bjarnason.) Elsku amma, þú áttir 95 góð og gæfurík ár. Þeir sem kynntust þér minnast þín með hlýju og þakklæti. Helgustu minningar um þig, elsku amma, geymum við innra með okkur um aldur og ævi. Soffía og Guðrún. Steingrímur föður- bróðir minn varð bráðkvaddur að morgni 16. desember. Hann var að koma frá því að ganga frá bátnum sínum, vildi vera búinn að koma honum fyrir í Maðkavík áður en hann héldi til Svíþjóðar þar sem hann ætlaði að halda jólin með dóttur sinni og fjölskyldu hennar í Gautaborg. Einnig ætlaði hann að vera þar fram yfir 85 ára afmælið sitt 12. janúar og síðan að koma aftur heim í Stykkishólm 15. janúar. Steingrímur fæddist í Stykkis- hólmi 12. janúar 1921 og var fimmta barn foreldra sinna. Hann var tæpra 6 mánaða þegar Kristján fað- ir hans lést, úr lungnabólgu, vestur á Flateyri, fjarri fjölskyldu. Krist- ján, sem var sjómaður, var settur þar í land veikur. Þá var enginn sími og samgöngur strjálar og það leið hálfur mánuður frá dauðsfallinu þar til fjölskyldan frétti um látið. Það fóru erfiðir tímar í hönd hjá Súsönnu móður hans, með fimm munaðarlaus börn. Yfirvöld vildu leysa upp heimilið, en ekkjan barð- ist gegn því að svo yrði og vilji hennar varð ofan á. Kristján hafði reist hús í Stykkishólmi sem stóð þar sem öldrunarheimilið er nú norðanmegin, en við fráfall fjöl- STEINGRÍMUR KRISTJÁNSSON ✝ Steingrímurfæddist í Stykk- ishólmi 12. janúar 1921. Hann lést í Stykkishólmi 16. desember síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Stykkishólmskirkju 29. desember. skylduföðurins varð að selja það. Ári seinna dó móðir Sú- sönnu, Jóhanna Jóns- dóttir, og lét hún eftir sig hús við Silfurgötu og þangað flutti ekkj- an með börnin sín. Hún giftist síðan aft- ur Magnúsi Stein- þórssyni og eignuðust þau saman þrjú börn. Þau fluttu 1933 úr Stykkishólmi að Dag- verðarnesseli í Klofn- ingshreppi í Dala- sýslu. Þá voru alsystkini hans öll farin að heiman og Steingrímur var sá eini af þeim sem fylgdi þeim þangað og dvaldi hjá þeim fram yfir fermingu og var þá að miklu liði við búskapinn. Eftir það var hann á sjálf síns vegum og vistaðist sem vinnumaður að Ósi á Skógarströnd og dvaldi þar eitthvað á annað ár. Síðan lá leið hans suður og vann hann á Álafossi og þar lærði hann að synda og náði mjög góðum tökum á sundíþrótt- inni. Á Álafossi aflaði hann sér fjár til að geta farið í nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni 1938–1939 og 1939–1940. Seinna lauk hann prófi frá Sjómannaskóla Íslands. Meðan hann bjó á Íslandi var sjó- mennska hans aðalstarf bæði á fiskibátum og flutningaskipum og þá tíðkaðist ekki að sjómenn væru í landi á milli túra. Á þeim árum hafði hann oft aðsetur annaðhvort hjá Hönnu systur sinni eða hjá Gesti bróður sínum og konu hans Björgu. Rétt fyrir jólin 1954 var Stein- grímur á bát nálægt ströndum Sví- þjóðar, er vélin í bátnum bilaði og þeir komu að landi í Öckerö og áhöfnin dvaldi þar yfir jólin. Þá kynntist hann Maju konu sinni sem skaut skjólshúsi yfir íslensku sjó- mennina. Sumarið 1955 flutti hann alfarinn til Svíþjóðar. Maja og hann eignuðust eina dóttur, Brittu, og auk þess ól hann upp Móníku dótt- ur Maju af fyrra hjónabandi. Sjó- mennskan var sem fyrr hans að- alstarf í Svíþjóð. Mínar fyrstu minningar um Steingrím eru þegar hann kom í heimsókn til foreldra minna fyrst í Reykjavík og síðar í Hafnarfirði. Hann og pabbi höfðu alltaf um svo margt að ræða og þá fyrst og fremst um sjóinn, útgerð og afla- brögð. Þau hjónin Maja og hann komu alloft í heimsókn til Íslands og dvöldu yfirleitt lengi í einu og þá naut hann þess að hitta systkini sín og skyldmenni, fylgjast með ís- lensku fréttunum, lesa blöð og bæk- ur, draga að sér íslenska loftið og njóta landsins sem hann gjörþekkti og hafði fyrrum kynnst svo vel sem sjómaður við Íslandsstrendur. Mér fannst alltaf að þeim elstu systkinum hans þætti einstaklega vænt um hann og bæru hag hans sérstaklega fyrir brjósti, einna helst í ætt við foreldratilfinningar, sem átti ef til vill rætur sínar að rekja til þess að hann var aðeins á fyrsta ári þegar faðir hans lést og þau hafi fundið sárt til þess að hann naut aldrei föður síns. Steingrímur var hógvær, tranaði sér aldrei fram, var þó viðræðugóð- ur. Hann var afar traustur, vand- aður til orðs og æðis og vel látinn af öllum. Hann var hávaxinn og það var eftir því tekið hversu mynd- arlegur hann var á velli. Kristján faðir hans var mikill glímumaður og hafði unnið til verðlauna sem glímu- kóngur. Steingrímur þótti líkastur þeirra systkina föður sínum bæði að líkamlegu atgervi og einnig í skap- höfn. Þegar Steingrímur var á Laugarvatni, þótti hann mikið hreystimenni, góður í leikfimi, ágætur sundmaður eins og áður er nefnt, sterkur og í kefladrætti dró hann alla uppi. Bræður hans Ólafur og Gestur voru miklir æringjar, en ég sé hann ekki fyrir mér hafa tekið þátt í þeirra galgopahætti. Pabbi og hann voru líkari meiri alvörunnar menn og náðu einstaklega vel sam- an og með þeim voru miklir kær- leikar. Maja konan hans lést árið 2002. Þá ákvað hann að venda sínu kvæði í kross eftir 48 ára búsetu í Svíþjóð og flytja aftur til Íslands og þá til Stykkishólms þar sem hann steig fyrstu sporin. Hann keypti sér hús að Árnatúni 3 og bjó sér þar nota- legt heimili. Hann naut þess að vera kominn heim, þó að segja mætti að hann væri svo til öllum ókunnugur og margir gömlu vinanna fluttir burtu eða horfnir á vit feðra sinna. Hann hitti þó einhverja af gömlu vinunum, stofnaði til nýrra kynna og tók þátt í spilamennskunni hjá eldri borgurum. Hann var mikill göngugarpur og gekk alltaf einn til tvo tíma á hverjum degi og ef ekki viðraði til þess þá synti hann. Fólk- ið hans frá Svíþjóð kom í heimsókn. Systkini hans dvöldu hjá honum í lengri og skemmri tíma og þá voru rifjaðar upp minningar frá gömlu dögunum, bæði ljúfar og sárar. Við hjónin fórum nokkrum sinnum til hans og gistum hjá honum þrisvar sinnum. Hann var sérstaklega gest- risinn, tók vel á móti fólki, dúkaði borð og bar fram ríkulegar veit- ingar. Síðasta heimsóknin okkar til hans var 2. desember síðastliðinn og þá hittum við hann fyrir hressan eins og endranær. Okkur grunaði ekki að dauðinn væri á næsta leiti, en þar sannaðist að síðasta skrefið er oft fljótfarið. Ég er þakklát fyrir að hann skyldi fá að njóta sinna síð- ustu ára í Stykkishólmi og að hon- um skyldi auðnast að búa þar frísk- ur og hljóta þar sitt hinsta leg sem vagga hans stóð forðum. Véný Lúðvíksdóttir. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN JÓNASSON frá Öxney, Sveinskoti, Álftanesi, lést á Vífilsstöðum föstudaginn 30. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Sigurðardóttir, Elín Jóhannsdóttir, Jón B. Höskuldsson, Snorri Jóhannsson, Hrönn Sveinsdóttir, Sturla Jóhannsson, Sólborg Pétursdóttir, Jónas Jóhannsson, Sigrún Jóhannsdóttir, Sigríður Tryggvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.