Morgunblaðið - 31.12.2005, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 31.12.2005, Blaðsíða 50
Hann sem kunni svo vel að hjálpa öðrum að syrgja er nú sjálfur skyndilega fallinn frá. Missir fjölskyldunnar er mikill. Ólaf- ur Oddur var traustur frændi og gott að leita til hans um þjónustu, ráð eða samræður. Honum var hlýtt til síns fólks og til átthaganna í Borgarfirði. Hann átti bjartar og hlýjar minningar frá dvölinni og fólkinu í Hlöðutúni, sem hann deildi oft með okkur. Ólafur Oddur var víð- sýnn maður og opinn í hugsun. Þess vegna var gott að tala við hann, með- al annars um trú. Hann vissi að efa- semdir eru förunautar leitandi huga. Hann hafði ástríðufullan áhuga á siðfræði og hafði óvenjudjúpa þekk- ingu á því sviði. Kom þar til að hann bjó yfir mikilli reynslu úr starfi sínu sem prestur, ríkri hneigð til fræði- legrar yfirvegunar, auk þess sem hann var víðlesinn með afbrigðum. Hann var ennfremur opinn í afstöðu sinni til ólíkra fræðigreina og leitaði sjálfur óspart fanga í heimspeki, sál- fræði og bókmenntum, auk guðfræð- innar. Ólafur unni málefnalegum, gagnkvæmum samræðum og hafði glöggt auga fyrir því að mæta hverj- um og einum þar sem hann eða hún var stödd í skilningi og þroska. Hann hafði mikla ánægju af kennslu og sem kennari var hann gagnvart nemendum fremstur meðal jafn- ingja í sameiginlegri leit að þekk- ingu. Á tímum þegar magn er haft í meiri hávegum en merking, skamm- tíma hagnýti í meiri hávegum en skilningur, er fordæmi Ólafs Odds ómetanlegt. Hann kenndi okkur sem samferða honum voru að hafa trú á áhugamálum okkar og því að innra lífinu, hugsunum okkar, tilfinning- um, efasemdum og trú er sannarlega þess vert að gefa gaum og rækta. Eitt sinn kom hann til okkar hjóna og færði okkur bækur sem hann hafði mætur á úr eigin bókasafni. Sú gjöf sýndi ekki aðeins örlæti heldur ekki síður samstöðu hans og hvatn- ingu. Í hugann kemur upp æsku- minning um veiðiferð sem farin var frá Kalmanstungu upp á Arnar- vatnsheiði sumar eitt fyrir tæpum 30 árum. Þar voru meðal annars þeir feðgar Ólafur Oddur og Jón Ásgeir. Um kvöldið gengum við austur fyrir vatnið og upp með ánni sem í það fellur. Sól skein í vestri og gyllti hvel Eiríksjökuls. Fuglarnir sungu og feðgarnir fetuðu sig upp með ánni, horfnir inn í þetta sjónarspil náttúr- unnar og lífsins. Ólafur Oddur kunni að meta gildi slíkra stunda og slíkra minninga fyrir líf okkar. Og senni- lega var hann hvergi meira heima hjá sér en í litla bústaðnum sínum upp við Varmaland, mitt í því undri sem er sköpunarverk íslenskrar náttúru. Sonum Ólafs Odds og fjöl- skyldum þeirra vottum við innilega samúð. Jón Ásgeir og Ástríður. Elsku frændi. Ég átti erfitt með að trúa því þegar ég fékk fréttirnar um fráfall þitt sem bar svo snöggt að. Það eru margar spurningar sem vakna þegar maður fær slæmar fréttir sem þessa en því miður er fátt um svör. Þú hefur alltaf verið í miklum metum hjá mér og ósjaldan montað ég mig yfir að sr. Ólafur Oddur væri frændi minn. Þú sást um allar mínar kirkjulegar athafnir, að skírn minni undanskilinni. Þú fermdir mig, skírðir börnin mín, þau Tinnu Björgu og Ólaf Þór og nú síðast fyrir rétt tæpum tveimur árum giftir þú mig og Björgu Maríu. Það kom aldr- ÓLAFUR ODDUR JÓNSSON ✝ Ólafur OddurJónsson, sóknar- prestur í Keflavík, fæddist í Reykjavík 1. nóvember 1943. Hann lést 21. des- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Keflavíkur- kirkju 30. desem- ber. ei neinn annar prestur til greina af okkar hálfu til þess að sjá um þessar athafnir sem allar voru virkilega hátíðlegar og minnis- stæðar. Á dögum sem þess- um rifjast upp ótal minningar frá upp- vaxtarárum mínum. Ég var oft á tíðum sem „heimalningur“ á heimili ykkar á Skóla- veginum í Keflavík, þar sem ég og Birgir Örn vorum miklir félagar. Það sem kemur fyrst upp í hugann frá þess- um árum eru heimsins bestu brún- tertur, fótbolti á lóðinni, þegar ég lærði að hjóla án hjálpardekkja í garðinum og síðast en ekki síst kvöld eitt þegar ég var kominn hálfa leið heim og sá lögguna! Ég hljóp eins og fætur toguðu aftur heim til þín og bað þig að hringja í pabba og láta hann ná í mig, því ég þorði ekki heim vegna hræðslu við lögguna. Þessa skemmtilegu sögu rifjuðum við einmitt upp í brúðkaupsveislu minni við mikla kátínu. Þá rennur mér einnig seint úr minni fyrsti áreksturinn. Hann átti sér stað 13 dögum eftir að ég fékk bílprófið, föstudaginn 13. september 1985. Ég og Birgir Örn vorum á leiðinni á busaball á bílnum hans pabba, þegar ekið var á mig á horninu við húsið ykkar. Eins og gefur að skilja var mér mjög brugðið, en þú með þinni stóísku ró talaðir til mín og gerðir mér ljóst að þetta væri allt í góðu lagi og fyrir mestu var að enginn slasaðist. Það var heldur ekki verra að hafa þig sér við hlið þegar eigandi bílsins mætti á staðinn. Knattspyrnan var þér alltaf hug- leikin og kom hún nánast alltaf til tals þegar við hittumst. Ég man sér- staklega eftir því þegar þú sást mig og Kristin spila saman leik með Víði í Garði. Þér fannst virkilega mikið til þess koma og þótti mjög vænt um að sjá okkur frændurna sem samherja inni á vellinum. Virðing mín gagnvart þér var gríðarleg. Það var alltaf gott að koma til þín og varst þú í huga mín- um klettur sem svo sannarlega var hægt að treysta á og leita til. Ég kveð þig með miklum söknuði. Góðar minningar um góðan frænda munu lifa í brjósti mér um ókomna tíð. Gunnar Magnús Jónsson. „Gott að sjá þig,“ voru hans síð- ustu orð í þessu lífi. Ég hafði tekið í hönd hans þar sem hann lá umgirtur þeim búnaði og mannskap sem kall- aður er til er alvarlegustu bráðatil- fellin ber að. Allir gerðu sitt besta og voru tilbúnir til að berjast við sláttu- manninn mikla sem hér hafði kveðið dyra svo óvænt. Ekkert gat ég gert betra en að taka í höndina á þessum samferðamanni mínum sem rist hafði djúp spor í mitt hugarlíf. Aðrir voru mér miklu fremri í baráttunni við sláttumanninn sjálfan. Hann hélt hátíðarræðuna í Rótaryklúbbnum á jólafundinum í fyrri viku og sat við hliðina á mér. Eins og alltaf skildi hann eftir fræ með orðum sínum sem vöktu mann til íhugunar. Hann hafði lagt af, en mér fannst það fara honum vel, taldi hann vera í átaki eins og helmingur þjóðarinnar er. Við vorum tveir læknarnir sem fylgdum honum í sjúkrabílnum til Reykjavíkur í þeirri von að snúa mætti baráttunni við, þessu lífi í hag. Svo reyndist ekki vera. Þannig kvaddi þessi maður og tók með sér svör við ótal spurningum sem nú leita á hugann. Fagmaðurinn, sem hann kallaði mig oft þegar við tókumst á um sið- ferðileg álitamál eða sinntum sam- eiginlegum skjólstæðingum, situr uppi með spurninguna af hverju ekki var hægt að brjóta þetta ferli langt- um fyrr og bregðast við í stað þess að horfa fram hjá því og láta sem ekkert væri. Svarið felst kannski í 50 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Hann var ekki bara tengdapabbi, heldur miklu, miklu meira. Þetta voru þau orð sem mér fannst hæfa honum, þegar nánustu ættingjar voru beðnir um að lýsa honum í einni setningu, þegar hann var áttræður. Ég kom frekar óvænt inn í hans fjölskyldu fyrir allmörgum árum. Fyrst í stað læddist ég með veggjum, þar til eitt kvöld að ég mætti stórum manni sem stoppaði mig. „Hvert ert þú að fara, kallinn minn?“ sagði hann. Ég svaraði strax: „Ég er að fara að hitta dóttur þína.“ „Nei, kall- inn minn, þá þurfum við að ræða saman, og fara yfir lífsins gildi.“ Ó, nei, hugsaði ég með mér, nú er ég í vondum málum. Hann fór með mig inn í eldhús og þar settumst við niður og hann las fyrir mig pistilinn, um lífsins gildi, og í lokin sagði hann að ÞORLÁKUR SIGURÐSSON ✝ Þorlákur Sig-urðsson fæddist í Hafnarfirði 29. ágúst 1923. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut 9. desember síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Hafn- arfjarðarkirkju 21. desember. ég mætti ráða hvað ég gerði, hann mundi verða sáttur, hvora leið ég veldi. Það var auðvelt val, og ég sagði honum það strax. Ó, nei, þá kom stóra ræð- an frá honum. Að lok- um sagði hann að þetta samtal okkar væri bara á milli hans og mín, þetta væri bara á milli okkar. Eftir þetta samtal skoðaði ég lífið á allt öðrum nótum. Og er ég ævinlega þakklátur honum. Elsku Lalli minn, ég á þér svo margt að þakka, þú sagðir mér svo margt og kenndir mér margt. Í mín- um augum varst þú mikilmenni, jöfn- uður, samheldni og kærleiki var þér allt. Þú gerðir allt sem Jesús sagði. Elsku Lalli minn, ég mun leitast við, eftir minni bestu getu, að fara eftir þínum lífsins reglum. Það er svo margs að minnast á kveðjustund; minnstu atriði eins og að eiga brjóstsykur í vasanum handa barnabörnunum þegar þau komu í heimsókn. Það gat enginn gefið brjóstsykur eins og þú. Þessi fátæk- legu orð mín segja kannski ekki margt, en þú kenndir svo mörgum margt gott. Elsku Lalli minn, þá er komið að leiðarlokum í bili, og ég segi takk fyr- ir allt saman, þú varst mér og öllum mínum fjórum börnum sannur lífsins geisli. Elsku Beta mín, megi Guð vera með þér á þessari stundu. Öðrum ættingjum votta ég mína dýpstu samúð. Rafn Arnar Guðjónsson. Elsku afi. Þú varst besti afi í heimi. Ég vona að þér líði vel þarna uppi, hjá honum Guði Jesú og öllum engl- unum. Þegar ég frétti að þú værir dáinn táraðist ég og grét ofan í kodd- ann minn. En ég veit að þér líður bet- ur núna því þú varst svo mikið veik- ur, og Guð tekur vel á móti þér, því þú varst svo góður maður. Ég elska þig og gleymi þér aldrei. Þín afastelpa. Hrafnhildur. Góði afi. Nú ertu farinn frá mér, og mér finnst það svo erfitt að kveðja þig og sjá þig ekki aftur hér á jörð. Ég veit að þér leið stundum illa en nú veit ég að þér líður vel. Ég mun aldr- ei gleyma þér. Þinn nafni Þorlákur. Elsku afi. Þú varst besti afi í heimi. Ég vona að þér líði vel þarna uppi, hjá honum Guð Jesú og öllum engl- unum. Þegar ég frétti að þú værir dáinn táraðist ég og grét ofan í kodd- ann minn. En ég veit að þér líður bet- ur núna því þú varst svo mikið veik- ur, og Guð tekur vel á móti þér, því þú varst svo góður maður. Ég elska þig og gleymi þér aldrei. Þín afastelpa. Hrafnhildur. Góði afi. Nú ertu farinn frá mér, og mér finnst svo erfitt að kveðja þig og sjá þig ekki aftur hér á jörð. Ég veit að þér leið stundum illa en nú veit ég að þér líður vel. Ég mun aldrei gleyma þér. Þinn nafni Þorlákur. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.350 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj, s. 691 0919 Minningarathöfn um okkar ástkæru KRISTÍNU SIGURÐARDÓTTUR GJØE verður í Dómkirkjunni mánudaginn 2. janúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent á Krabbameinsfélagið. Ragna og Sigurður Haukur Ludvigsson og fjölskylda. Elskuleg eiginkona mín, móðir, fósturmóðir og tengdamóðir, INGUNN JÓNSDÓTTIR frá Vagnsstöðum, Hólabraut 6, Höfn, Hornafirði, Verður jarðsungin frá Hafnarkirkju miðvikudaginn 4. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjúkrunarheimilið Skjólgarð. Þórarinn Gunnarsson, Sigríður Lucia Þórarinsdóttir, Eina Hjalti Steinþórsson, Hafdís Huld Björgvins, Rúnar Þór Snorrason. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, systur og fósturdóttur, ÓLAFAR GUÐJÓNSDÓTTUR, F.h. annarra vandamanna, Marvin Ingólfsson, Þóra Björk Ingólfsdóttir, Ingi Guðjónsson, Margrét Ólafsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.