Morgunblaðið - 31.12.2005, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Þökkumlandsmönnum
frábærarviðtökur
HJÓNIN Björgvin Gunnarsson, skipstjóri úr
Grindavík, og Inga Bjarney Óladóttir eru í hópi
þeirra Íslendinga sem verja jólunum og áramót-
um í ár á Tenerife á Kanaríeyjum. Björgvin og
Inga Bjarney héldu þó ekki ein af stað í jólaferð-
ina, heldur buðu þau stórfjölskyldunni með sér.
„Við buðum fjölskyldunni, en þetta er í annað
sinn sem við gerum það. Við fórum í svona ferð
fyrir nokkuð mörgum árum og þá vorum við 27
talsins en nú erum við orðin 36,“ segir Björgvin,
en þetta er í fyrsta sinn sem fjölskyldan dvelst á
Tenerife. Fjögur börn hjónanna, makar þeirra,
barnabörn og barnabarnabörn, sem eru þrjú tals-
ins, eru öll með í ferðinni, en yngsta barnið er sjö
mánaða gamalt. Þá eru tengdaforeldrar yngri
sonar hjónanna einnig með hópnum.
Björgvin segir að fjölskyldunni hafi liðið af-
skaplega vel á Tenerife yfir hátíðarnar og ým-
islegt hafi verið gert til skemmtunar. „Það er fín
stemning í hópnum og allt hefur gengið af-
skaplega vel. Það hefur verið gríðarlega mikið að
gera hjá börnunum og afar skemmtilegt en á hót-
elinu sem við dveljumst á eru haldin böll fyrir
þau á hverju einasta kvöldi,“ segir Björgvin.
Björgvin segir að fjölskyldan sé mjög sam-
heldin en öllum sé frjálst að gera það sem þeim
dettur í hug á meðan á dvölinni stendur. Björgvin
segir að ekki sé enn búið að skipuleggja áramóta-
gleði fjölskyldunnar á Tenerife en þar hyggst
hún dveljast fram til 5. janúar.
Í góðu yfirlæti á Kanarí: Inga Bjarney Óladóttir og
Björgvin Gunnarsson ásamt yngstu barnabörn-
unum: Ingu Bjarney og Ólöfu Rún Óladætrum.
Buðu 34
afkomendum
til Kanarí
GEIR H. Haarde utanríkisráð-
herra segir að reynslan af sölu
Símans og áður ríkisbankanna
sýni hversu tímabært það hafi
verið að innleysa þær eignir al-
mennings sem voru bundnar í
þessum fyrirtækjum og nýta
fjármunina til annarra verkefna.
Eftir nokkur ár kunni með sama
hætti að verða tímabært að losa
um eignir þjóðarinnar í Lands-
virkjun og ef til vill Flugstöð
Leifs Eiríkssonar ef tryggt verði
eðlilegt tillit til samkeppnissjón-
armiða.
„Hagnað af slíkri sölu má hag-
nýta með ýmsu móti í almanna-
þágu. Hinn góði árangur í ríkis-
fjármálum mun gera okkur kleift
að ganga enn lengra í umbótum á
skattkerfinu á næstu árum,“ seg-
ir Geir í miðopnugrein í Morg-
unblaðinu í dag.
Ráðherrar verði 9–10
Geir segir ennfremur að tíma-
bært sé að huga að breytingum á
skipulagi stjórnarráðsins. „Ég
hef velt því fyrir mér hvort rétt
væri að auka svigrúm ríkis-
stjórnar á hverjum tíma til að
skipta verkum milli ráðuneyta í
samræmi við sínar pólitísku
áherslur líkt og gert er í ná-
grannalöndunum. Með slíkri
breytingu yrði horfið frá þeirri
föstu skipan sem einkennir lögin
frá 1969 og því mikilvægt að búa
þannig um hnúta að ekki skapist
neitt los. Finnst mér í þessu sam-
bandi einnig koma til greina að
binda fjölda ráðherra við 9 eða
10.“
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra segir m.a. í sinni grein
að markmið stjórnvalda sé að
leita allra leiða til að aldraðir geti
dvalist sem lengst heima og að
þeim sem eru fullfrískir verði
gert kleift að vera sem lengst
þátttakendur í atvinnulífinu.
Formenn stjórnarandstöðu-
flokkanna fjalla allir í greinum
sínum um vaxandi misskiptingu í
samfélaginu. Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, segir að margt
venjulegt fólk sé á svo lágum
launum að ekkert megi út af bera
án þess að fjárhagurinn sligist.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingar, segir
flokk sinn staðráðinn í að vinna
góðan sigur í sveitarstjórnar-
kosningum í vor og búa sig undir
að leiða næstu ríkisstjórn. Hún
segist vænta góðs samstarfs við
jafnaðarmenn, hvar svo sem þeir
hafi skipað sér. Hún minnir á að
Samfylkingin sé eini jafnaðar-
mannaflokkur landsins.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, segist vilja að stjórn-
arandstaðan sameinist um að
stefna að því að mynda græna
velferðarstjórn hér á landi. Sam-
fylkingin sé hins vegar enn þá
hikandi í því máli.
Geir H. Haarde telur að losa eigi um eignir þjóðarinnar í ríkisfyrirtækjum
Kann að verða tímabært
að selja Landsvirkjun
Um áramót | Miðopna og 34
FISKARNIR í fiskabúrinu á
Barnaspítala Hringsins tóku
kveðju Önnu Sigrúnar vel þegar
hún heilsaði upp á þá fyrir
skemmstu. Anna Sigrún er hress
og spræk sex ára stúlka, nýbúin
að missa sína fyrstu barnatönn
og önnur er að losna til að skapa
pláss fyrir fullorðinstennurnar
sem óðum eru að gægjast fram.
Fyrir tæpu ári féll þessi litla
stúlka af fjórðu hæð í fjölbýlis-
húsi þar sem hún lenti á
steyptri stétt. Við fallið
mjaðmagrindarbrotnaði hún,
spjaldhryggurinn í bakinu
brotnaði og vinstri lærleggur,
lungun mörðust og gat kom á
annað lungað auk þess sem hún
brákaði kinnbein. Bati Önnu
Sigrúnar hefur, að sögn Stein-
unnar I. Stefánsdóttur, móður
hennar, verið kraftaverki lík-
astur.
„Þegar ég hugsa til baka er
mér efst í huga hvað við eigum
frábært heilbrigðisstarfsfólk,
því við eigum þeim svo mikið að
þakka,“ segir Steinunn og tek-
ur fram að einnig hafi sér þótt
afar vænt um að heyra um allan
þann fjölda bænahópa um land
allt sem beðið hafa fyrir Önnu
Sigrúnu síðustu mánuði í kjöl-
far slyssins. Í jólavikunni litu
þær mæðgur inn á bæði gjör-
gæsludeild og barnaskurðdeild
LSH með ávaxtakörfu handa
starfsfólkinu sem þakklætisvott
fyrir það góða atlæti sem mætti
þeim fyrr á árinu, en Anna Sig-
rún dvaldist á Barnaspítala
Hringsins í um sex vikur. | Ára-
mót
Morgunblaðið/RAX
Önnu Sigrúnu heilsast velMORGUNBLAÐIÐ kemur næst út mánu-
daginn 2. janúar. Um áramótin verður frétta-
þjónusta á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is.
Hægt er að senda ábendingar um fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is.
Á gamlársdag verður áskriftardeildin opin
frá kl. 6.00–15.00 en deildin verður lokuð á ný-
ársdag.
Auglýsingadeildin verður opin á gamlárs-
dag frá kl. 9.00–12.00 en lokuð á nýársdag.
Skiptiborð Morgunblaðsins verður opið á
gamlársdag frá 9.00–12.00 og á nýársdag frá
13.00–20.00.
Fréttavakt á mbl.is
yfir áramótin
UM tíu aðilar, innlendir og erlendir,
brugðust við umræðuskjali Póst- og
fjarskiptastofnunar (PFS) um fram-
tíðarnotkun NMT-450 tíðnisviðsins á
Íslandi. Skjalið var gefið út til að
kanna áhuga markaðarins og sjón-
armið hagsmunaaðila á framtíðar-
notkun þessa tíðnisviðs. Fyrir liggur
að starfrækslu langdræga NMT-far-
símakerfisins verður hætt á næstu
árum.
Búið er að fara yfir umsagnir sem
bárust og verður útdráttur úr nið-
urstöðum birtur fljótlega eftir ára-
mótin, að sögn Hrafnkels V. Gísla-
sonar, forstjóra PFS. Síðan mun
PFS leggja fram tillögur um notkun
tíðnisviðsins, bjóða það upp eða út
eða úthluta því, allt eftir eðli athuga-
semda og ábendinga. Varðandi val á
framtíðar langdrægu farsímakerfi
skiptir útbreiðsla þess á heimsvísu
máli. Hún ræður miklu um hvort
hægt verður að fá handtæki fyrir
notendur á viðráðanlegu verði.
Margir sýndu áhuga á
langdrægu farsímakerfi
Sími sjómanna | 8