Fréttablaðið - 18.09.2002, Síða 24
Stundum gerist það að því meirifréttir sem manni eru sagðar
þeim mun minna skilur maður í því
sem er raunverulega að gerast. Til
dæmis skil ég ekki bofs í þessu Ás-
landsskólamáli sem alltaf er verið
að tala um: Skólastjórinn hættir.
Kennarar leggja fram kröfur. Geng-
ið er að öllum kröfum. Kennarar
halda áfram að stræka. Skólastarf í
uppnámi. Bæjarstjórn riftir samn-
ingi við Íslensku menntasamtökin.
Málaferli í aðsigi.
HELST skilst manni að allt þetta
vesen stafi af því að þarna sé á krei-
ki útlendingur eins og jóker í spila-
stokki eða fimmta hjól undir vagni
og kunni ekki það vandaverk að um-
gangast eða starfa með Íslendingum
- sem samkvæmt sömu rökum
kunna þá ekki heldur að umgangast
eða starfa með útlendingum.
NÝJASTA TEÓRÍAN í íslenskum
fréttaskýringum er „Kenningin um
Bláu höndina“, það er að segja að
hægri höndin á Davíð Oddssyni sé á
bak við allt sem gerist hér á landi
og líka það sem ekki gerist. Þetta er
til marks um einlægan vilja frétta-
skýrenda til að skilja alla hluti á
himni og jörðu djúpum skilningi.
Enginn hefur séð Bláu hendinni
bregða fyrir við Áslandsskóla en á
skyggnilýsingafundum hafa þó kom-
ið fram aðilar sem telja sig hafa séð
bregða fyrir Bleikri hendi vinstra
megin á svæðinu haldandi af alefli í
þá íslensku reglu að íslenskir skólar
séu reknir af íslenskum sveitarfé-
lögum samkvæmt íslenskum grunn-
skólalögum sem enginn skilur nema
ef vera kynni Björn Bjarnason fyrr-
verandi menntamálaráðherra -
blessuð sé pólitísk minning hans.
SAMKVÆMT Íslensku handa-
kenningunni hefur Davíð bláa hönd,
Halldór græna, Össur bleika og
Steingrímur fölgræna með eldrauð-
um útbrotum, Sverrir Hermannson
er blár á handarbakinu en lófarnir
eru loðnir og laxableikir. Það verða
margar hendur á lofti þegar líður að
kosningum á vori komanda og snör
handtök við að greina og túlka hin
ýmsu litbrigði handanna að handan
og þá mun reyna á skilning okkar
sem eigum að skilja fréttir ekki síð-
ur en skilning þeirra sem eiga að út-
skýra þær. Góð æfing fyrir alla
væri að byrja á því að reyna að skil-
ja þetta Áslandsskólamál.
7,35%
8,75%
frá
til
Engin lágmarksupphæð
Engin úttektar-þóknun
Enginn kostnaður
Innlánsvextir* Enginn binditími
Komdu í heimsókn á sölusta› okkar í Kringlunni…
…hringdu í síma 533 2424
…e›a kanna›u máli› á www.s24.is
Færð þú tölvu?
Einn heppinn einstaklingur sem byrjar að spara
fyrir 1. nóvember 2002 fær að launum glæsilega
Compaq tölvu og prentara í boði Opinna Kerfa og
Pennans að verðmæti 219.700 kr.
*m.v. vaxtatöflu 11.9.2002
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Íslenska handa-
kenningin
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Grensásvegi 12 • Sími: 533 2200
FRÁBÆR PIZZA Á FRÁBÆRU VERÐI!