Fréttablaðið - 05.10.2002, Qupperneq 11
11LAUGARDAGUR 5. október 2002
FJÁRLÖG „Sú væga niðursveifla sem
við höfum gengið í gegnum sýndi
að það eru breyttir tímar í hag-
stjórn á Íslandi,“ sagði Geir H.
Haarde, fjármálaráðherra, þegar
hann mælti fyrir fjárlagafrum-
varpi sínu. Hann sagði mörg dæmi
þess að óðagot og slæm efnahags-
stjórn hefði leitt til samdráttar á
fyrri áratugum. Það væri liðin tíð.
„Mikilvægt er að halda áfram
að lækka skatta og auka þar með
samkeppnishæfni íslensks at-
vinnulífs,“ sagði Geir. Þess yrði þó
áfram gætt að skattalækkunum
yrði mætt með aðhaldi í útgjöld-
um.
Jón Bjarnason, Vinstri-græn-
um, gagnrýndi að skattbyrðin
hefði færst á almennar launatekj-
ur og lágtekjufólk. Hann vildi að
fjármálaráðherra beitti sér fyrir
því að skattleysismörk yrðu hækk-
uð. Það taldi fjármálaráðherra
óráðlegt. Þúsund króna hækkun
skattleysismarka skilaði hverjum
einstaklingi einungis 380 krónum
en kostaði ríkissjóð milljarð.
„Sjálfumgleði hæstvirts ráð-
herra leyndi sér ekki,“ sagði Einar
Már Sigurðarson, Samfylkingunni,
og taldi ríkisstjórnina eigna sér ár-
angur aðila vinnumarkaðarins í
efnahagsmálum. Hann sagði fjár-
lög hafa gengið illa eftir á undan-
förnum árum. 50 milljörðum hefði
skakkað undanfarin fjögur ár þeg-
ar lífeyrisskuldbindingar væru
ekki teknar með í reikninginn.
Fjárlögin væru annað hvort ekki
nógu vönduð eða illa fylgt eftir.
Búið hefur verið í haginn fyrir
nýtt hagvaxtarskeið sagði Ólafur
Örn Haraldsson, formaður fjár-
laganefndar.
Skiptar skoðanir við fyrstu umræðu um fjárlögin:
Breyttir tímar
að mati fjármálaráðherra
MÆLT FYRIR
FJÁRLAGAFRUMVARPINU
Hagvöxtur minni á næsta ári en æskilegt
væri. Stefnir þó í rétta átt.
ÓGNAÐ MEÐ HNÍFI Vörslusvipt-
ingamönnum var ógnað með
hnífi í gærkvöldi. Þeir voru að
sækja bíl til Grindavíkur þegar
eigandi bílsins og bróðir hans
reyndu að hindrað það með því
að taka upp hníf. Kallað var á
aðstoð lögreglunnar og skakkaði
hún leikinn.
ÁTTA Í ÁREKSTRI Harður árekst-
ur varð um rúmlega tvö í fyrr-
inótt á Fossvegi á Selfossi. Báðir
bílarnir skemmdust mikið og
þurfti að draga þá báða af vett-
vangi. Í bílunum voru átta
manns og sluppu allir ómeiddir.
Áreksturinn varð þegar annar
ökumaðurinn hugðist beygja og
hinn að taka fram úr.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Öryggi á NATÓ-fundi:
20 milljónir
umfram
áætlun
FJÁRAUKALÖG Kostnaður við örygg-
isgæslu vegna ráðherrafundar
NATÓ í vor fór tæpar 20 milljónir
króna fram úr áætlun. Á fjárlögum
hafði verið veitt 50 milljóna króna
fjárveiting til að standa straum af
kostnaði við öryggisgæslu. Þegar
upp var staðið nam öryggiskostn-
aður 69,4 milljónum króna.
Kostnaður á Keflavíkurflug-
velli var mun hærri en gert hafði
verið ráð fyrir, launakostnaður var
hærri en búist hafði verið við hjá
nærri öllum embættum sem tóku
þátt í öryggisgæslunni.
Útflutningur lambakjöts:
Ítalíu-
markaður
kannaður
LANDBÚNAÐUR „Það er alveg nýr
markaður að opnast sýnist okkur.
Við erum að þreifa fyrir okkur á
Ítalíu núna í haust. Þangað er verið
að flytja ferskt lambakjöt með
skipi, í kæligámum. Það lækkar
kostnað að þurfa ekki að flytja með
flugi,“ segir Özur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka sauð-
fjárbænda.
Það eru Kjötframleiðendur ehf.
sem kanna nú möguleika á útflutn-
ingi til Ítalíu. Óvíst er hvert magnið
verður en nokkur von er til þess að
allt að 200 tonn verði flutt í haust og
vetur til Ítalíu. Verðið sem rætt er
um er alveg viðunandi og stað-
greitt.
REKIN AÐ HEIMAN Um 100 þús-
und íbúum í Úganda hefur verið
gert að yfirgefa heimili sín og
færa sig nær svæðum sem vernd-
uð eru af her landsins. Um er að
ræða verndaraðgerðir vegna deil-
na sem staðið hafa yfir á milli upp-
reisnarmanna og hers landsins.
ERLENT
FJÁRAUKALAGAFRUMVARP Uppsafn-
aður halli Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins og biðlaun til fyrr-
verandi starfsmanna vegna end-
urskipulagningar á starfseminni
kosta ríkissjóð 54 milljónir króna
samkvæmt fjáraukalagafrum-
varpi fjármálaráðherra. Þar af er
gert ráð fyrir að 16 milljónir þurfi
til að greiða biðlaunakostnað.
Í frumvarpinu segir að gert sé
ráð fyrir að þessi aukafjárveiting
dugi til að greiða upp hallann. Eft-
irleiðis verði rekstur stofnunar-
innar innan fjárheimilda.
Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins:
Rekstrar-
vandi gerð-
ur upp
„Það kom ekkert annað til greina.“
Ég keypti minn fyrsta bíl frá Toyota 1979 og hef
því langa reynslu af þjónustu þeirra, hvort sem um
hefur verið að ræða hina árlegu skoðun eða þegar
ég hef verið að skipta upp í nýjan bíl. Í þau örfáu
skipti sem ég hef þurft með bíl inn á verkstæði er
það sama upp á teningnum; hreint út sagt frábær
þjónusta í hvívetna.
Þess vegna kom ekkert annað til greina en að eiga
áfram viðskipti við Toyota. Nýr Corolla er mjög
skemmtilegur í akstri og ótrúlega sparneytinn,
maður situr hátt og finnur sig öruggan í umferðinni.
Rúnar Björnsson
Skrifstofumaður
…og þú finnur af hverju!
Bíll ársins 2002
REYNSLU
AKSTUR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
18
80
9
1
0/
20
02
COROLLA - TILFINNINGIN ER GÓÐ Það hefur
aldrei verið hagkvæmara en nú að eignast nýjan Corolla, bíl ársins 2002.
Komdu strax og reynsluaktu vinsælasta bíl á Íslandi, fyrr og síðar, og þú finnur
hver ástæðan er. Verð frá 1.599.000. www.toyota.is.
Stórsýning á Akureyri laugardag
og sunnudag frá kl. 13 – 17
og í Vestmannaeyjum
laugardag frá kl. 13 – 17.