Fréttablaðið - 06.01.2003, Blaðsíða 23
23MÁNUDAGUR 6. janúar 2003
V i l t u v e r ð a M i c r o s o f t s é r f r æ ð i n g u r ?
Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · Fax 581 2420 · skoli@raf.is · www.raf.is
Nánari upplýsingar í síma 568 5010 og á www.raf.is/ctec
Rafiðnaðarskólinn er framsækinn skóli með alþjóðlegar vottanir sem
býður fjölbreytt og vandað nám og fyrsta flokks kennslu.
Fyrir þá sem vilja ná árangri
Settu stefnuna á
alþjóðlega prófgráðu
Nú er einnig hægt að stunda nám um helgar.
Hentar m.a. þeim sem búa utan Reykjavíkur.
Margskonar möguleikar á samsetningu náms
allt eftir tíma og efnahag.
Í boði eru hefðbundnar námsbrautir, stök
námskeið eða sérhannað nám eftir þörfum
hvers og eins.
A+ - PC Technician
Network+ - Network Technician
MCP - Microsoft Certified Professional
MCSA - Microsoft Certified Systems Administrator
MCSE - Microsoft Certified Systems Engineer
MCDBA - Microsoft Certified Database Administrator
Þáttur um kínverska öfgalist vekur viðbrögð:
Mannát og afskornir
limir í víni
ÓHUGNAÐUR Heimildarþáttur um
öfgakennda kínverska list, sem var
sýndur á Channel 4 í Bretlandi á
fimmtudag, hefur vakið hörð við-
brögð í landinu. Fjöldi áhorfenda
hringdi á sjónvarpsstöðina og lýsti
hneykslan sinni, en allmargir höfðu
látið í sér heyra strax og þátturinn
var auglýstur í kynningu.
Í þættinum sést meðal annars
hvar kínverskur listamaður drekk-
ur vín, sem í er afskorinn limur. Þá
sést listamaðurinn Zhu Yu narta í
andvana fætt barn. Zhu Yu brást illa
við kvörtununum og sagði engin
trúarbrögð banna mannát. „Ég er
kristinn, en ég notfæri mér tóma-
rúmið milli siðferðis og lagabók-
stafs og byggi list mína á því,“ sagði
listamaðurinn.
Talsmaður sjónvarpsstöðvarinn-
ar sagði að kvartanir yrðu skoðaðar,
en stöðin stæði fast á því að rétt
hefði verið að sýna þáttinn Hann
sagði líka ástæðu til að skoða hver-
ju það sætti að svartasta list heims-
ins kæmi frá Kína.
Kínverska sendiráðið í London
fordæmdi sýninguna, en 900.000
manns stilltu á þáttinn. ■
Plötusala í Bandaríkjunum árið 2002:
Rapp og kántrí
seldist best
TÓNLIST Sala á rapp- og kántríplöt-
um gekk vel á síðasta ári í Banda-
ríkjunum. Eminem var langsölu-
hæsti tónlistarmaður landsins.
Hann seldi 7,6 milljónir eintaka af
plötunni „The Eminem Show“ auk
þess sem hann seldi tæplega 3,5
milljónir eintaka af plötunni „8
Mile“ sem hafði að geyma lög úr
samnefndri bíómynd með
Eminem í aðalhlutverki.
Af tíu söluhæstu plötunum
voru flestar í rapp- og kántrígeir-
anum. Kántrítónlistin var samt
sem áður sú eina sem náði að auka
plötusölu sína frá því árið á und-
an, eða um 12%.
Rapparinn Nelly var næstsölu-
hæstur með 4,9 milljónir eintaka
af plötunni „Nellyville.“ Popp-
söngkonan Avril Lavigne lenti í
þriðja sæti með plötuna „Let Go“
með 4,1 milljón eintaka. Kántrí-
sveitin Dixie Chicks endaði í
fjórða sæti með 3,7 milljón eintök
seld af plötunni „Home“.
Ef litið er yfir almenna plötu-
sölu í Bandaríkjunum á síðasta ári
þá dróst hún saman um 8,7%, sem
gera tæplega 650 milljónir ein-
taka. Þetta er annað árið í röð sem
dregur úr plötusölu í landinu.
Plötuframleiðendur hafa kennt
versnandi efnahag og auknum
þjófnaði laga af Netinu um hina
dræmu sölu. ■
11 MILLJÓNIR
Plötur Eminem seldust eins og heitar
lummur í Bandaríkjunum á síðasta ári, alls
í rúmum 11 milljónum eintaka.
Breska barnastjarnan
Charlotte Church:
Reykir og
gæti misst
röddina
BARNASTJARNA Breska söngkonan
Charlotte Church gæti verið að
missa röddina, að því er fram
kemur í pistli Michael White, tón-
listargagnrýnanda dagblaðsins
Daily Express. Charlotte, sem
vann hug og hjörtu milljóna þeg-
ar hún var uppgötvuð fyrir ótrú-
lega rödd sína tólf ára gömul, er
nú á sextánda ári og hefur átt við
erfiðleika að stríða undanfarið ár.
Hún hefur deilt við foreldra sína
vegna kærastans, sem foreldrun-
um líkar ekki við, og ekki vegnað
sem best í söngheiminum. „Hún
er farin að reykja og fer engan
veginn nógu vel með sig,“ segir
White. „Það er dapurlegt að
stjarna hennar sé nú þegar farin
að hníga, en sakleysið og tærleik-
inn sem einkenndu rödd hennar
eru þar ekki lengur og ekkert víst
að hún eigi frekara erindi í óperu-
heiminum.“ ■
CHARLOTTE
CHURCH
Hefur með
ótrúlegri rödd
heillað áheyr-
endur upp úr
skónum und-
anfarin þrjú
ár.