Fréttablaðið - 06.01.2003, Page 27
27MÁNUDAGUR 6. janúar 2003
Vandaður 80 gr fjölnotapappír / 500 blöð í búnti
298.-
Á tilboði núna
Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00.
SKRIFSTOFUVÖRUR
Kaffitár óttast
ekki Starbucks
Bandaríski kaffirisinn ráðgerir innreið í Norður-Evrópu árið 2005.
Hefur einbeitt sér að Asíu undanfarin ár. Reykjavík gæti borið einn til
tvo Starbucks-staði að mati framkvæmdastjóra Kaffitárs. Óttast þó
ekki samkeppnina.
KAFFIHÚS „Samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem ég hef þá hyggst Star-
bucks ekki ráðast í markaðssetn-
ingu og opnum kaffihúsa í Norð-
ur-Evrópu fyrr en árið 2005. Við
höfum ekki leitað eftir samstarfi
við þá en ég óttast þá ekki ef þeir
koma. Við höfum okkar sérstöðu,“
segir Aðalheiður Héðinsdóttir,
framkvæmdastjóri Kaffitárs, um
útþenslu bandaríska kaffirisans
Starbucks sem leggur nú hvert
landið af öðru að fótum sér með
snjallri markaðssetningu og
nýstárlegum kaffihúsum:
„Starbucks hefur verið að opna
kaffihús á Ítalíu og í Þýskalandi á
síðasta ári en helst hafa þeir þó
herjað á Asíumarkað á síðust
árum og verið að opna grimmt í
Japan sem er mikið tedrykkju-
land og því óplægður akur þegar
kemur að kaffinu,“ segir Aðal-
heiður, sem hefur tekist vel
upp við rekstur þriggja
kaffihúsa í Reykja-
vík auk reksturs
kaffibrennslu í
Njarðvík. Áætl-
ar hún að velta
fyrirtækisins á
síðasta ári hafi
verið um hund-
rað milljónir
króna og er það
um 20 prósent
aukning frá árinu
á undan:
„Ég ber hins vegar mikla virð-
ingu fyrir Starbucks. Mark-
aðssetning þeirra er
frábær og það finna
allir fyrir þeim þar
sem þeir koma,“
segir Aðalheiður.
„Þeir hafa hins
vegar þróast út í
að verða
McDonalds í
kaffinu og góðir
k a f f i d r y k k i r
veða aldrei gerðir
í sjálfvirkum vél-
um. Sumt verður að
gera í höndunum.“
Starbucks rekur nú um
þrjú þúsund kaffihús og verslanir
víða um heim. Þeir gera nákvæm-
ar markaðsrannsóknir áður en
farið er inn á ný svæði og taka þá
helst mið af menntunarstigi íbú-
anna og tekjum. Starbucks ein-
beitir sér að því að ná til vel
menntaðs fólks með tekjur yfir
meðallagi. Þess vegna ætti
Reykjavík að vera álitlegur kost-
ur fyrir fyrirtækið:
„Ég gæti vel trúað að Reykja-
vík gæti borið einn eða tvo Star-
bucks-staði. En ég býst við að þeir
opni fyrst í Stokkhólmi, Osló og
Kaupmannahöfn. Það eru borgir
fyrir Starbucks,“ segir Aðalheið-
ur í Kaffitári.
eir@frettabladid.is
Georgle Clooney:
Framinn ofar ástinni
KVIKMYNDIR Hjartaknúsarinn
George Clooney á mikilli vel-
gengni að fagna í kvikmynda-
bransanum þessa dagana en
minna hefur farið fyrir ástamál-
unum hjá honum. Í viðtali við
tímaritið Sunday Mirror nú á
dögunum lýsti leikarinn því yfir
að hann hefði kosið að setja
framann ofar ástinni. Clooney
sagði að erfitt væri að leggja
rækt við ástarsamband samhliða
erilsamri vinnu við kvikmynda-
gerð. „Ég finn fyrir drifkraftin-
um til að vinna en þegar kemur
að ástarsamböndum er ekkert
sem drífur mig áfram.“
Clooney er rúmlega ferturgur
en lengsta samband hans hingað
til varði aðeins í 3 ár. Upp á
síðkastið hefur hann verið orð-
aður við ýmsar þokkadísir en
engin sambönd hafa staðið yfir
lengur en nokkra mánuði. Leik-
arinn frægi undirstrikar þó að
hann sjái ekki eftir neinu og sé
sáttur við það lífsmynstur sem
hann hefur valið sér. „Ég geri
mér ekki miklar væntingar um
að ég muni nokkurn tímann vera
með sömu konunni í langan
tíma.“ ■
GEORGE CLOONEY
Leikarinn baðar sig í sviðsljósinu á frum-
sýningu myndarinnar „Confessions of a
Dangerous Mind“ en kærir sig kollóttan þó
engin kona sé honum við hlið.
STARBUCKS-KAFFIHÚS
Einn helsti viðkomustaður Bandaríkjamanna sem leita sér hressingar.
STARBUCKS
Eitt mesta viðskiptaundur
Bandaríkjanna á síðustu árum.
Vilt þú auka
athygli, styrk
og úthald?
Þá er Taekwondo bardagaí-
þróttin eitthvað sem þú
ættir að kynna þér nánar.
Í byrjun september hefjast
námskeið fyrir alla aldurs-
hópa hjá Taekwondo deild ÍR.
Upplýsingar eru í síma 587-7080
eða á heimasíðu ÍR www.irsida.is.
SJÓBÖÐ Í BELGÍU
Yfir 1200 manns tóku þátt í árlegu nýárs-
sundi við bæinn Ostend í Belgíu í gærdag.
Sundmennirnir létu það lítið á sig fá þó
sjórinn væri ískaldur og hitastig loftsins vel
undir frostmarki. Margir brugðu á leik eins
og maðurinn á myndinni sem mætti á
svæðið klæddur sundfötum í anda
Chaplins.
MEXÍKÓ Hópur manna í Mexíkó bak-
aði á dögunum risastóra jólaköku
sem vegur um það bil 13.400 kíló-
grömm og vonast bakararnir til
þess að komast í Heimsmetabók
Guinness fyrir framtakið. Kakan
er hefðbundin mexíkósk ávaxta-
kaka og áætlað er að bera hann
fram í dag, 6. janúar, í tilefni af
lokum jólahátíðarinnar. Íbúar í
Nuevo Leon-fylki í Mexíkó munu
fá að njóta góðs af kökunni og er
áætlað að hægt verði að deila
henni í a.m.k. 34.000 sneiðar. ■
Stórtækir bakarar:
Stefnt á heimsmet í bakstri
NEW YORK, AP Mynd Roman Pol-
anski, Píanóleikarinn, var valin
besta myndin á verðlaunahátíð
Samtaka kvikmyndagagnrýnenda
í Bandaríkjunum sem haldin var í
New York síðastliðinn laugardag.
Myndin hlaut einnig þrenn önnur
stór verðlaun á hátíðinni og Pol-
anski var ótvíræður sigurvegari
kvöldsins. Næstar Píanóleikaran-
um að stigum voru myndirnar „Y
Tu Mama Tambien“ eftir mexíkós-
ka leikstjórann Alfonso Cuaron og
„Habla con ella“, nýjasta mynd
Spánverjans Pedro Almodovar.
Adrien Brody fékk verðlaun
sem besti aðalleikari fyrir titil-
hlutverkið í mynd Polanskis og
Diane Lane var kosin besta leik-
konan fyrir túlkun sína á ótrúrri
eiginkonu í myndinni „Unfaith-
ful“.
Verðlaun Samtaka kvikmynda-
gagnrýnenda njóta mikillar virð-
ingar í kvikmyndaheiminum en
þykja þó ekki gefa mikið til kynna
um tilnefningar til Óskarsverð-
launanna eftirsóttu. Samtökin eru
þekkt fyrir að veita listrænum
kvikmyndum viðurkenningu
fremur en stórmyndum á borð við
þær sem oftast hljóta náð fyrir
augum Akademíunnar. ■
PÍANÓLEIKARINN
Mynd Roman Polanski sópaði að sér
verðlaunum á nýafstaðinni hátíð Sam-
taka kvikmyndagagnrýnenda. Aðalleik-
arinn Adrien Brody hlaut meðal annars
viðurkenningu fyrir sína framistöðu.
Verðlaunahátíð Samtaka kvikmyndagagnrýnenda:
Polanski sigur-
vegari kvöldsins