Fréttablaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 1
LANDBÚNAÐUR „Margir efuðust en ég trúði á það sem ég var að gera þá og ég fagna nú,“ sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, um niðurstöður könnunar Sam- keppnisstofnunnar á verðþróun á grænmeti og ávöxtum. Hann lýsti yfir ánægju sinni með þá umtals- verðu verðlækkun sem orðið hefur á þessum markaði á síðastliðnum tólf mánuðum en árangurinn þakk- aði hann afnámi verðtolla á ýmsum algengum grænmetistegundum. Guðni benti enn fremur á að meðalverð á ávöxtum hefði lækk- að töluvert á sama tíma, en afnám tolla náði aðeins til nokkurra grænmetistegunda. Aðspurður hvort gengisbreytingar erlendra gjaldmiðla gætu hafa haft áhrif á verðþróunina sagðist Guðni ekki geta útilokað að svo hefði verið þar sem engar tölur lægju fyrir í því sambandi. ■ LÍKAMSRÆKT Hagfræðingur grennist um 40 kíló bls. 6 Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 20. febrúar 2003 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 22 Íþróttir 18 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD FUNDUR Anna Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, fjallar um reynslu Svía af ver- unni í Evrópusam- bandinu, framtíð sambandsins og hlut- verk norrænu ríkjanna innan þess á opnum fundi í stofu 101 í Odda í Háskóla Íslands. Fundurinn hefst klukkan 12. Svíar og Evrópu- sambandið KÖRFUBOLTI Liðin í öðru og þriðja sæti úrvalsdeildar karla eigast við þegar KR- ingar fá Keflvíkinga í heimsókn. Liðið í fjórða sæti tekur á móti liðinu í fimmta sæti þegar Haukar sækja Tindastól heim. Snæfell og Hamar mætast í þriðja leiks kvöldsins. Allir leikirnir hefj- ast klukkan 19.15. Toppslagur í Frostaskjóli VIÐRÆÐUR Samningamenn Evrópu- sambandsins og EFTA-ríkjanna funda um hvernig haga skuli stækkun evrópska efnahagssvæðis- ins samhliða stækkun Evrópusam- bandsins. Gert er ráð fyrir að starfshópar verði skipaðir en stærri tíðindi bíði síðari tíma. Fundað um EES BORGARSTJÓRN Sjálfstæðismenn í borgarstjórn svara gagnrýni Þór- ólfs Árnasonar borgarstjóra á fjár- málastjórn borgarinnar í stjórnar- tíð Sjálfstæðisflokksins á borgar- stjórnarfundi í dag. Búast má við að málið verði rætt í þaula. Svara fyrir sig MYNDLIST Þjóðarhjartað í skafrenningnum FIMMTUDAGUR 43. tölublað – 3. árgangur bls. 30 AFMÆLI Ný reynsla að baki hverri hrukku bls. 21 ALMANNAVARNIR „Undirrituð dreg- ur í efa að fulltrúi dómsmálaráðu- neytisins hafi rétt til þess að gefa undirmönnum for- stöðumanns fyrir- mæli án samráðs við hann. Í öllu falli eru það afleit vinnubrögð og ekki í samræmi við góða stjórnunarhætti,“ segir Sólveig Þor- valdsdóttir, fram- kvæmdastjóri Almannavarna rík- isins, í bréfi sem hún sendi Sól- veigu Pétursdóttur dómsmálaráð- herra á dögunum. Grunnt hefur verið á því góða með þeim nöfnum og hefur fram- kvæmdastjóri Almannavarna deilt hart á fyrirhugaðan flutning verkefna Almannavarna til ríkis- lögreglustjóra. Sólveig Þorvalds- dóttir segir meðal annars að hún sem forstöðumaður Almanna- varna eigi enga aðkomu að undir- búningsstarfi því sem standi yfir vegna flutnings verkefna Al- mannavarna heldur fái hún upp- lýsingar um það eftir á í fundar- gerðum frá starfsmönnum sínum. Ljóst sé að verið sé að ræða annað og meira en það sem tengist fyrir- huguðum flutningi. „Þá er fulltrúi dómsmálaráðu- neytisins farinn að gefa starfs- mönnum Almannavarna ríkisins fyrirskipanir á þessum fundum,“ segir Sólveig Þorvaldsdóttir í bréfi sínu og bætir við að fram- koma ráðuneytisins ýti undir klofning og geri framkvæmda- stjóra erfitt fyrir að halda utan um starf stofnunarinnar og þar með erfitt að bera ábyrgð á starf- seminni. Framkvæmdastjórinn fer fram á það við ráðuneytið að það fari í framtíðinni eftir réttum boðleiðum þar til annað verður ákveðið með formlegum hætti. „Þetta er auðvitað fráleitt og við áttum okkur ekki á því hvað hún á nákvæmlega við því hún nefnir engin dæmi um meint óeðlileg afskipti. Við erum ein- göngu að undirbúa þennan flutn- ing starfseminnar til embættis Ríkislögreglustjóra sem Alþingi hefur nú til meðferðar. Það er að okkar mati fullkomlega eðlilegt að menn reyni að undirbúa hann sem best. Það er ekki verið að gefa þessum fjórum starfsmönn- um sem færast yfir til ríkislög- reglustjóra nein fyrirmæli um eitt né neitt, enda dómsmálaráðu- neytinu algjörlega kunnugt um það með hvaða hætti eigi að stýra ríkisstofnunum og hverjir bera þar ábyrgð. Bréfið er þess eðlis að ég mun ræða það við formann Almannavarnaráðs í vikunni,“ sagði Stefán Eiríksson, skrif- stofustjóri í dómsmálaráðuneyt- inu. the@frettabladid.is Verðþróun á grænmeti: Ágæti aðgerðanna sannaðist „Bréfið er þess eðlis að ég mun ræða það við formann Almanna- varnaráðs.“ REYKJAVÍK Austan 5-10 m/s nálægt hádegi en suðaustan 8-13 m/s og snjókoma undir kvöld. Hiti um frostmark. VEÐRIÐ Í DAG VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 3-5 Skýjað 2 Akureyri 5-10 Snjókoma 4 Egilsstaðir 5-10 Slydda 1 Vestmannaeyjar 5-10 Skýjað 1 ➜ ➜ ➜ ➜ – + – – Segir ráðherra ekki virða réttar boðleiðir Framkvæmdastjóri Almannavarna gagnrýnir dómsmálaráðuneytið í bréfi til ráðherra. Hún segir afskipti af daglegum rekstri óeðlileg og ekki í samræmi við góða stjórnunarhætti. Fráleitar fullyrðingar, segir fulltrúi ráðuneytisins og hyggst ræða bréfið við formann Almannavarnaráðs. TVÆR FYRIR EINA Sem dæmi um augljós áhrif af afnámi tolla á ýmsar grænmetistegundir benti Guðni Ágústsson á að í dag fengjust tvær gúrkur fyrir sömu upphæð og ein gúrka fyrir ári síðan. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M VEÐUR Fyrr í vikunni var hitastigið í Reykjavík hærra en á Malaga á suðurodda Spánar. Er það fátítt: „Það er hæð yfir Evrópu sem dælir köldu lofti niður á sólar- strendurnar. Um daginn var 9 stiga hiti í Reykjavík en 8 stiga hiti á Malaga. Munurinn er þó sá að það eru minni læti í veðrinu þar,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræð- ingur, sem spáir þó ekki vel um helgarveðrið: „Það er gróðrarstía fyrir lægðir suður af landinu og þar fjölga þær sér ört. Þetta eru smá- lægðir en þær geta verið erfiðar og færa okkur að öllum líkindum rok og rigningu um helgina. Föstudag- urinn verður verstur, sunnudagur- inn næstverstur en laugardagurinn skástur en þó alls ekki góður,“ seg- ir Sigurður. Frostlaust verður. ■ Rok og rigning um helgina en... Hlýrra í Reykjavík en á Malaga NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá október 2002 28% D V 80.000 eintök 70% fólks les blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á fimmtu- dögum? 53% 72%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.