Fréttablaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 22
Kvikmyndin „Nói Albinói“ verðurfrumsýnd í Háskólabíói á föstu- daginn í næstu viku, 28. febrúar. Myndin hefur rakað að sér verðlaun- um á hátíðum um allan heim. Mynd- in er framleidd af ZikZak. Sjónvarpsmaðurinn MartinBashir er sá sem Bretar „elska mest að hata“ samkvæmt nýrri skoðanakönnun Channel 4. Í öðru sæti var Tony Blair forsætisráð- herra. Bashir hef- ur greinilega bak- að sér miklar óvin- sældir með túlkun sinni á Michael Jackson í marg- umdeildri heimildarmynd sinni. Ásama tíma og kvikmynda-áhugamenn hafa ákveðið að mótmæla háu bíógjaldi með því að sniðganga kvikmyndahúsin virðist hljóðkerfið í Regnboganum vera að gefa sig. Bassaboxin eiga það til að detta út af og til á meðan á sýningum stendur, gestum til mik- illar óánægju. Salurinn var nýlega gerður upp og aðstaða orðin mun betri í eina bíói miðbæjarins, fyrir utan hljóðkerfið auðvitað. Samtök leigubílafyrirtækja í NewYork hafa ákveðið að fjarlægja hljóðupptökur úr bílum sínum þar sem frægir ein- staklingar á borð við Chris Rock og Joan Rivers hvetja farþega til að spenna beltin. Þetta var ákveðið eftir að skoðana- könnun sýndi að langflestir þeirra sem ferðast í leigubílum borgarinn- ar taka lítið sem ekkert mark á þeim. Mikill meirihluti aðspurða sagðist ekki þola upptökurnar. Réttarhöldum yfir Phil Spectorverður líklega frestað þar sem saksóknari hefur beðið um meiri tíma til að undir- búa mál sitt. Spect- or var handtekinn fyrir tveimur árum og áttu rétt- arhöldin að hefjast 3. mars. Spector hefur ekki verið kærður opinber- lega fyrir morðið á leikkonunni Lönu Clarkson en talið er að um formsatriði sé að ræða. 22 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR I SPY 3.45, 5.50, 8, 10.10 bi 12 JAMES BOND b.i. 12 ára kl. 10.10 LORD OF THE RINGS 8 4 í lúxus SPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50 KALLI Á ÞAKINU m/ísl.tali kl. 4 og 6 DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN JUWANNA MANN kl. 4, 6 og 8 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 4 og 6 JACKASS b.i.14.ára kl. 6, 8 og 10 ANALYZE THAT kl. 8 og 10.15 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 - bi 16 Sýnd í lúxus kl. 8 og 10.30. bi. 12 ára kl. 10.15THE BUNKER 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN kl. 8TIME IN THE MIDLANDS kl. 8 og 10IRREVERSIBLE e. texti b. 16 ára Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 6, 8 og 10 kl. 6 STELLA Í FRAMBOÐI Sýnd kl. 8 og 10 FRÉTTIR AF FÓLKI Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15 Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.15 4, 6 KVIKMYNDIR Leikstjórinn Martin Scorsese hefur gengið með mynd- ina „Gangs of New York“ í mag- anum í aldarfjórðung. Hann las samnefnda bók Herbert J. Ash- bury árið 1970 og fékk strax þá flugu í höfuðið að gera mynd sem gerðist í New York á þarsíðustu öld, svipað og bókin. Hann fékk félaga sinn Joe Cocks til þess að skrifa fyrstu drög að handriti. Þó svo að sagan sé ekki sú sama og í bók Ashbury eiga þær margt sameiginlegt. Eftir sjö ára þreif- ingar fékk hann loks byr undir báða vængi og myndin var sett inn á framleiðsludagskrá stórs kvikmyndavers. Vegna fjárskorts var verkefninu seinkað út í óend- anleikann sem endaði með því að myndinni var ýtt út af teikniborð- inu. Í lok síðustu aldar fóru hjólin svo að snúast að nýju. Nafn Mart- in Scorsese orðið gulls ígildi og því auðveldara fyrir hann að sannfæra stóru kvikmyndaverin um að punga út seðlum fyrir verkefninu. Verkefnið fór því aft- ur af stað í byrjun árs 1999 og tveir nýir handritshöfundar, Steven Zailian og Kenneth Lonergan, fengnir til þess að end- urbæta hið upphaflega handrit Cocks. Sagan gerist á Manhattan-eyju um 1860. Innflytjendur eru að reyna að fóta sig í draumalandinu og mikill rígur er á milli ítalskra og írskra glæpahópa. Amsterdam Vallon (Leonardo DiCaprio) snýr aftur til borgarinnar staðráðinn í því að hefna dauða föður síns. Sá féll fyrir hendi slátrarans Bill (Daniel Day-Lewis), sem ræður ríkjum í sínum bæjarhluta og nýt- ir völd sín til þess að hrekja ný- búa svæðisins á brott. Með aðstoð vasaþjófsins Jenny Everdeane (Cameron Diaz) reynir Amster- dam að vingast við Bill og bíður eftir tækifæri sínu til þess að snú- ast gegn honum. Góðar líkur eru taldar á því að Scorsese hreppi Óskarinn í ár fyr- ir leikstjórn. Hann hefur fjórum sinnum áður verið tilnefndur. Fyrir „Raging Bull“ (1981), „The Last Tempation of Christ“ (1989), „Goodfellas“ (1990) og „The Age of Innocence“ (1993). Hingað til hefur hann alltaf farið tómhentur heim og þykir mörgum kvik- myndaáhugamönnum vera kom- inn tími á eina verðlaunastyttu á arinhilluna. biggi@frettabladid.is Draumaverkefni Scorsese Á morgun verður kvikmyndin „Gangs of New York“ frumsýnd. Um er að ræða umtalaða mynd Martin Scorsese og er hún tilnefnd til 10 Óskarsverðlauna í ár. Í aðalhlutverkum eru Leonardo DiCaprio, Daniel Day-Lewis og Cameron Diaz. DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM Internet Movie Database - 7.4 / 10 Rottentomatoes.com - 77% = Fresh Ebert & Roeper - Tveir þumlar upp Los Angeles Times - 2 stjörnur (af 5) AÐRAR FRUMSÝNINGAR UM HELGINA The Ring The Jungle Book 2 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA Besta myndin Karl í aðalhlutverki - Daniel Day-Lewis Leikstjóri - Martin Scorsese Lag - U2/„The Hands that Built America“ Handrit Kvikmyndataka Búningahönnun Klipping Hljóð Listræn stjórnun GANGS OF NEW YORK Slátrarinn Bill og Amsterdam. Sá yngri á harma að hefna þar sem sá eldri myrti föður hans. Daniel Day-Lewis er tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni. DiCaprio þykir einnig eiga góða endurkomu á hvíta tjaldið. TÓNLIST Ms. Dynamite, Coldplay og Robbie Williams eru talin líklegust til að hreppa verðlaun á Bresku tónlist- arverðlaununum, sem afhent verða í vikunni, samkvæmt nýrri könnun. Rúmlega 600 plötukaupendur voru spurðir hvaða tónlistarmenn þeir teldu líklegasta til að vinna til verðlauna. Flestir nefndu Ms. Dynamite, sem vann Mercury-verð- launin í fyrra, og er búist við að hún hreppi þrenn verðlaun. Ms. Dynamite mun koma fram á hátíðinni og flytja lagið „Faith“ eftir George Michael. Plötukaupendur töldu líklegast að Robbie Williams myndi krækja í verðlaun sem besti breski karllista- maðurinn og Coldplay sem besta breska sveitin. Foo Fighters voru taldir líklegast- ir sem besta alþjóðlega sveitin, Eminem sem besti alþjóðlegi karllistamaðurinn og Pink og Missy Elliott munu berjast um titilinn besti kvenlistamaðurinn ef spá plötukaup- enda rætist. ■ Spá plötukaupenda fyrir Bresku tónlistarverðlaunin: Ms. Dynamite sú vinsælasta MS. DYNAMITE Er talin líklegust til að hreppa hnossið á Bresku tónlistarverðlaununum. Ljósmyndarinn í Mjódd er fluttur að Langarima 21 (áður Ljósmyndastofan Grafarvogi ) Fermingarmyndatökur Nokkrir tímar lausir Sími 557 9550 GSM 663 2070

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.