Fréttablaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 30
30 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR Ný reynsla á bak við hverja hrukku 65 ÁRA „Það er yndislegt að eldast og hver ný hrukka sem bætist í andlitið ber auknum þroska vitni,“ segir Brynja Benedikts- dóttir leikstjóri, sem verður 65 ára í dag. Brynja fæddist í Mýr- dalnum í Vestur-Skaftafellssýslu en fluttist í húsnæðisleysið í Reykjavík sex ára gömul 1944. „Ég gekk í Laugarnesskóla, tók stúdentspróf frá MR og var svo eitt ár í verkfræði við Háskólann en þá heltók leiklistarbakterían mig og ég fór í Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og lærði svo eitt ár í París. Seinna á ferlinum bætti ég svo við mig leikstjórnar- námi í London og Berlín.“ Brynja hefur búið við Laufás- veginn ásamt eiginmanni sínum, Erlingi Gíslasyni leikara, frá ár- inu 1973. „Ég ætla ekki að halda upp á afmælið mitt núna þar sem mér finnst of mikið lagt á vini, vandamenn og samstarfsfólk að bjóða þeim svo aftur til veislu í mars. Þá verður Erlingur sjötug- ur og við ætlum að vera með uppákomur í tveimur húsum hér á Laufásveginum, á heimili okk- ar og í Skemmtihúsinu.“ „Við reistum sjálft húsið árið 1996. Það átti að vera elliheimilið okkar og við getum enn rennt okkur þangað á hjólastólum. Þörfin fyrir leikhús var hins vegar svo mikil að við stofnuðum Skemmtihúsið. Það starfar aðal- lega á sumrin og byggir mest á íslenskri arfleifð og þá ekki síst Íslendingasögunum, sem fjöl- skyldan öll er mjög niðursokkin í.“ Einleikur Brynju, Ferðir Guð- ríðar, hefur gengið í Skemmti- húsinu frá árinu 1998 en hefur aðallega verið sýndur erlendis síðustu ár. Brynja segist þegar hafa fengið þá góðu afmælisgjöf að verkið var frumsýnt við frá- bærar undirtektir í Aktéon-leik- húsinu í París þann áttunda þessa mánaðar og fransk-íslenska leik- konan Solveig Simha mun túlka Guðríði á fjölunum í París næstu tvo mánuði. „Ég hef fengið Súsönnu Svav- arsdóttur til liðs við mig í Skemmtihúsinu og við erum á fullu að undirbúa sýningar á verkinu hér heima á þýsku, frönsku og ensku í sumar.“ Þá hyggjast þær stöllur einnig setja upp tvö glæný íslensk verk í Skemmtihúsinu í sumar og hafa hug á að virkja krafta Erlings „þegar hann losnar úr viðjum Þjóðleikhússins, en hingað til hefur hann bara fengið að vera sviðsmaður í hjáverkum“. thorarinn@frettabladid.is AFMÆLI FRAMBJÓÐANDI „Við teljum kerfið ekki vera að virka og það kemur Vöku og Röskvu ekkert sérstak- lega við,“ segir Auður Lilja Er- lingsdóttir, frambjóðandi Há- skólalistans til formennsku í stúd- entaráði. Hópurinn sem stendur að nýja framboðinu vill auðvelda stúdentum og hagsmunaaðilum að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi og telja breytingu á kosn- ingakerfinu frá listakosningu yfir í einstaklingskosningar heppileg- ustu leiðina til þess. Auður er 23 ára gömul. Hún ólst upp í Borgarnesi en er nú sest að í Reykjavík. Hún hóf nám í HÍ eftir að hún útskrifaðist frá Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra og er að ljúka námi í stjórnmála- og atvinnulífsfræði og útskrifast um helgina. „Ég byrjaði í félags- fræði, sem mér fannst voðalega spennandi, en færði mig svo yfir í stjórnmálafræðina.“ Auður segist ekki vera búin að ákveða hvað taki við hjá sér en segir það ljóst að hún muni halda áfram í námi. „Ég verð í Háskólanum næsta vet- ur og tek hugsanlega einhver fög í hagfræði og viðskiptafræði og svo er spennandi mastersnám í boði.“ Auður starfaði með Röskvu á tímabili og fannst starfið einkenn- ast af miklum klíkuskap. „Fyrr- verandi og núverandi stúdenta- ráðsliðar tóku flestar ákvarðanir og almennir félagsmenn hafa allt of lítið að segja.“ Háskólalistafólk telur skiptingu í hægri og vinstri ekki viðeigandi þegar um hags- munamál stúdenta er að ræða og vill að bókhald nemendafélaganna verði gert opinbert þannig að tengsl þeirra við stjórnmálaflokk- anna verði ljós. „Ég hef alltaf haft rosalegan áhuga á pólitík en er óbundin og hef ekki fundið mig innan neins flokks og þvertek alfarið fyrir það að hér sé um eitthvert vinstri grænt framboð að ræða. Það er kominn á kreik einhver orðrómur um það en ég hef aldrei starfað með VG.“ ■ Auður Lilja Erlingsdóttir býður sig fram til formennsku í stúdentaráði á vegum Há- skólalistans. Aðstandendur listans telja skiptingu háskólanema í hægri og vinstri ekki eiga rétt á sér og vilja auka vægi ein- staklingsins í háskólapólitíkinni. Persónan Óháð öllum flokkum BRYNJA BENEDIKTSDÓTTIR Hefur búið við Laufásveginn ásamt Erlingi Gíslasyni í þrjá áratugi. Hús þeirra er gegnt sendiráði Bandaríkjanna og Brynja ber nágrönnunum vel söguna. „Þetta hefur alltaf verið ákaflega vingjarnlegt fólk og við þurfum ekki að kvarta yfir þeim þó að við séum ósammála þeim í pólitíkinni, en við erum bæði herstöðvaandstæðingar og þurfum því ekki að fara langt til að mótmæla.“ MEÐ SÚRMJÓLKINNI TÍMAMÓT Mamman gengur upp stigann tilað vekja son sinn. Hann styn- ur og segist ekki vilja fara í skól- ann. Hún biður hann að nefna tvær ástæður fyrir því að hann ætti að sleppa því að fara í skólann? „Allir kennararnir í skólanum hata mig, og krakkarnir hata mig líka.“ Mamman segir þetta tóma vit- leysu: „Svona, vakna og fram úr.“ Sonurinn nöldrar: „Nefndu mér tvær ástæður, af hverju ég ætti að fara?“ „Sko, í fyrsta lagi ertu fimmtíu og þriggja ára,“ segir mamman. „Og í öðru lagi ertu skólastjórinn. Svona nú, á fætur.“ Óli Jón Gunnarsson. Hallgrímur Óskarsson. John Lennon. 1. 2.. Svör við spurningum á bls. 6 3. Veistu svarið? Brynja Benediktsdóttir leikstjóri er 65 ára í dag. Hún og Erlingur Gíslason eiga 34 ára brúðkaupsafmæli á morgun. Hún íhugar að bjóða eldhressri móður sinni, sem verður 92 ára á morgun, í leikhús. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Í tilefni af fimmtugsafmæli Hannesar Hólmsteins skal tekið fram að Margaret Thatcher er að heiman. Leiðrétting AUÐUR LILJA ERLINGSDÓTTIR Hóf afskipti af Háskólalistanum þegar hún hitti tvo menn í Stúdentakjallaranum. Þeir ræddu galla á kosningakerfinu og hún hugðist telja þeim hughvarf. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M JARÐARFARIR 10.30 Vilborg Andrésdóttir, dvalarheim- ilinu Höfða, Akranesi, verður jarð- sungin frá Akraneskirkju. 13.30 Hrefna Svanlaugsdóttir, dvalar- heimilinu Hlíð, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju. 13.30 Jón Kaldal, Laugarásvegi 18, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju. 13.30 Margrét Sigurjónsdóttir, frá Fífl- holtum, Mýrasýslu, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju. 13.30 Lára I. Sigurðardóttir, Fellsmúla 9, verður jarðsungin frá Bústaða- kirkju. ANDLÁT Skúli Þorkelsson, rakarameistari frá Vestmannaeyjum, er látinn. Útförin hefur farið fram. Anna Sigríður Sigurmundsdóttir, frá Svínahólum í Lóni, lést laugardaginn 15. febrúar síðastliðinn. Imbakassinn eftir Frode Øverli Einu sinni komst hann út úr búrinu og flaug beint niður í miðbæ! Guð, veistu hvað? Þetta gerðist líka með minn!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.