Fréttablaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 2
2 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
SKOÐANAKÖNNUN
Í skýrslu OECD er talað um að banaslys séu fleiri í
umferðinni á Íslandi en flestum öðrum Evrópu-
löndum. Sigurður Helgason hefur hins vegar talað
um að sé miðað við árin 1995-1999 þá standi Ís-
land alls ekki illa gagnvart öðrum löndum. Sveifla
hafi orðið upp á við 2000-2001.
„Þeim hefur fjölgað, en þess ber að geta að
næstu fimm á undan voru banaslys í sögu-
legu lágmarki á Íslandi. En menn verða að
snúa slæmri þróun við og það er hægt.“
SPURNING DAGSINS
Sigurður, hefur banaslysum
fjölgað eða fækkað síðustu ár?
Dagskrá
8:30
8:40
8:50
9:20
9:30
Morgunverðarfundur föstudaginn 21. febrúar
í Víkingasal Hótel Loftleiða.
Mæting – LFK býður upp á kaffi
Ávarp
Bryndís Bjarnason, varaformaður LFK
Aðild að Evrópusambandinu
frá sjónarmiði heimilanna
Andrés Pétursson, sérfræðingur í mál-
efnum ESB
Umræður
Magnús Stefánsson alþingismaður
stjórnar umræðum
Fundi slitið
Fundarstjóri:
Helga S. Harðardóttir, verkefnisstjóri og frambjóðandi
Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi
Allir velkomnir
Stjórn Landssambands framsóknarkvenna
Aðild að Evrópusambandinu
frá sjónarmiði heimila
og fjölskyldna í landinu.
Skiptir aðild máli fyrir heimilisbókhaldið?
SUÐUR-KÓREA, AP Íkveikjan í lest-
arvagni í Suður-Kóreu var
mislukkuð sjálfsmorðstilraun,
að sögn lögreglumanna sem yfir-
heyrt hafa manninn sem stóð á
bak við ódæðið. Maðurinn, sem
hefur átt við geðræn vandamál
að stríða, sagði við yfirheyrslur
að hann hefði ekki getað hugsað
sér að deyja einn og því ákveðið
að svipta sig lífi á fjölmennum
stað og taka aðra með sér í dauð-
ann.
Þessi yfirlýsing er aðstand-
endum fórnarlamba mannsins
lítil huggun en þeir hafa gagnrýnt
yfirvöld harðlega fyrir það hve
treglega hefur gengið að bera
kennsl á hina látnu. Einnig hafa
heyrst raddir um það að öryggi sé
stórlega ábótavant í neðanjarðar-
lestakerfi borgarinnar. ■
ÞJÓÐARSORG
Margir lögðu blóm við lestarstöðina
til að minnast þeirra sem létust í
eldsvoðanum. Tala látinna er komin
upp í 125 en enn er verið að leita
að líkamsleifum í flaki lestarinnar.
Eldsvoði í neðanjarðarlest:
Mislukkuð en dýrkeypt
sjálfsmorðstilraun
11. september:
Dæmdur
fyrir aðild
HAMBORG, AP Marokkóskur nemi í
Þýskalandi hefur verið fundinn
sekur um að hafa átt þátt í hryðju-
verkunum í New York og Wash-
ington 11. september árið 2001.
Maðurinn er sá fyrsti til að vera
fundinn sekur í slíku sakamáli.
Hann var dæmdur til 15 ára fang-
elsisvistar eftir að hafa verið
fundinn sekur um 3.045 ákæruat-
riði vegna aðildar að morðum og
morðtilraunum.
Mounir el Motassadeq var fund-
inn sekur um að vera í hryðju-
verkasamtökum sem hefðu skipu-
lagt hryðjuverkaárasirnar. Hann
neitaði öllum sakargiftum. ■
FRAMKVÆMDIR Ríki og borg hyggj-
ast samanlagt veita um níu millj-
örðum króna í auknar fram-
kvæmdir á næstu tveimur árum.
Aðgerðirnar eru hugsaðar til þess
að sporna gegn auknu atvinnu-
leysi í landinu og þeim slaka sem
kominn er í efnahagslífið.
Ríkisstjórnin tilkynnti í síðustu
viku að hún hygðist setja 6,3 millj-
arða króna í ýmsar framkvæmdir
á næstu 18 mánuðum. Borgin
hyggst nú flýta framkvæmdum
fyrir um þrjá milljarða á næstu
tveimur árum. Ekki er um varan-
legar efnahagslegar aðgerðir að
ræða heldur eru þær hugsaðar til
þess að brúa bilið þar til megin-
þungi stóriðjuframkvæmdanna
leggst á, en það verður ekki fyrr
en árin 2005 til 2007.
Á stjórnarfundi Orkuveitunnar
í næstu viku verður tekin ákvörð-
un um það hvaða framkvæmdum
Orkuveitan mun flýta, en hún
hyggst flýta framkvæmdum fyrir
1,2 til 1,7 milljarða króna. Í næstu
viku verður einnig kynnt hvaða
framkvæmdum borgarverkfræð-
ingur telur að hægt sé að flýta. ■
AUKNAR FRAM-
KVÆMDIR FRAM UNDAN
Ríkisstjórnin tilkynnti í síðustu viku að
hún hygðist setja 6,3 milljarða króna í
ýmsar framkvæmdir á næstu 18 mán-
uðum. Borgin hyggst nú flýta fram-
kvæmdum fyrir um þrjá milljarða.
Borgaryfirvöld fylgja fordæmi ríkisins og flýta
framkvæmdum fyrir þrjá milljarða:
Níu milljarðar til
eflingar atvinnulífs
LITLAR BREYTINGAR Þingmanna-
tala Norðausturkjördæmis yrði
óbreytt ef kosið yrði nú sam-
kvæmt skoðanakönnun sem
Rannsóknarstofnun Háskólans á
Akureyri gerði um fylgi flokka í
kjördæminu. Samkvæmt könnun-
inni vinnur Samfylking á en aðrir
tapa. Framsókn tapar mestu.
Breytingarnar raska þó ekki
þingsætum í kjördæminu.
Samræmd próf:
Seltirningar
hæstir
SKÓLAMÁL Nemendur 7. bekkjar á
Seltjarnarnesi sýndu góðan ár-
angur í samræmdum könnunar-
prófum í haust. Voru nemendur
með 6,2 í meðaleinkunn í íslensku
en sú einkunn var sú hæsta yfir
landið. Þá voru nemendur með
næsthæstu meðaleinkunn í stærð-
fræði, eða 5,9. Samanlögð einkunn
7. bekkjar var sú hæsta á höfuð-
borgarsvæðinu.
Jónmundur Guðmarsson, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi, segir
hina mikla áherslu sem bærinn
hafi lagt á öfluga skóla í gegnum
tíðina vera að skila sér í góðum
árangri nemenda. Árangur 7.
bekkjar nú sé sá besti frá því sam-
ræmd könnunarpróf hófust í 4. og
7. bekk árið 1997. ■
Brotist inn í fimm bíla:
Tveir menn
handteknir
LÖGREGLUMÁL Tveir menn um tví-
tugt voru handteknir í Reykjavík
grunaðir um að hafa brotist inn í
fimm bíla. Höfðu mennirnir brotið
rúðu í bíl bæði í Skipholti og Sunda-
höfn og stolið hljómflutningstækj-
um. Þá bárust fleiri tilkynningar í
gærmorgun um innbrot. Farið var
inn í tvo bíla á bílastæði Heklu á
Laugavegi og eins var brotist inn í
bíl við Vatnagarða. Þaðan var stolið
sjónvarpsskjá og síma.
Lögregla kannar nú hvort
mennirnir hafi komið við sögu í
öllum innbrotunum. ■
SKATTAMÁL Símon Á. Gunnarsson,
endurskoðandi hjá KPMG, segir
fjarri öllum sanni að hann sitji á
sakabekk skattrannsóknarstjóra
eins og skilja megi af umfjöllun
Morgunblaðsins um skattamál
Jóns Ólafssonar.
Símon segir
ásakanir á hendur
sér eingöngu í
þeirri skýrslu sem
snúist aðeins um
sölu Jóns Ólafs-
sonar & Co. sf.
(JOCO) á hluta-
bréfum í Fjölmiðl-
un hf., sem nú
heitir Norðurljós,
á árinu 1998.
„Ásakanir SRS eru þær að sala
hlutabréfanna hafi í reynd átt sér
stað á árinu 1999 og að ég hafi
rangfært bókhald og ársreikninga
JOCO með því að færa sölu hluta-
bréfanna á árið 1998 en ekki árið
1999. Auk þess gerir skattrann-
sóknarstjóri athugasemdir við
verðlagningu hlutabréfanna,“
segir Símon.
Símon segist hafa tilgreint við
ríkisskattstjóra sjö atriði sem
studd séu skjölum sem sýni glögg-
lega fram á að sala hlutabréfanna
átti sér stað á árinu 1998. „Þrjú af
þessum sjö skjölum voru í vörslu
skattrannsóknarstjóra við vinnslu
rannsóknarinnar og var starfs-
mönnum embættisins í lófa lagið
að ganga úr skugga um innihald
þeirra,“ segir hann.
Að sögn Símonar er það ekki í
verkahring endurskoðenda að
koma að hugsanlegum athuga-
semdum um verðlagningu í við-
skiptum milli aðila í áritun eða í
ársreikningi viðkomandi fyrir-
tækis.
Símon telur að sýnt hafi verið
fram á með óyggjandi hætti að
ásakanir SRS á hendur sér eigi
ekki við rök að styðjast.
„Það er óásættanlegt að með
þessum hætti sé vegið að starfs-
heiðri mínum sem löggilts endur-
skoðanda og um leið sé rýrð kast-
að á trausta ásjónu endurskoðun-
arskrifstofunnar KPMG,“ segir
Símon að endingu í yfirlýsingu
sem hann sendi frá sér í gær.
Stjórn KPMG sagðist jafn-
framt hafa farið yfir gögn málsins
og komist að þeirri niðurstöðu að
ávirðingar skattrannsóknarstjóra
ættu ekki við rök að styðjast.
gar@frettabladid.is
NORÐURLJÓS
„Það er óásættanlegt að með þessum hætti sé vegið að starfsheiðri mínum sem löggilts
endurskoðanda og um leið sé rýrð kastað á trausta ásjónu endurskoðunarskrifstofunnar
KPMG,“ segir Símon Á. Gunnarsson um ávirðingar á hendur sér í tengslum við Jón Ólafs-
son, aðaleiganda Norðurljósa. Símon segir að innan tíðar sé von á sérstakri skýrslu skatt-
rannsóknarstjóra um skattamálefni Norðurljósa.
Endurskoðandi
segist saklaus
Símon Á. Gunnarsson, endurskoðandi hjá KPMG, segir að sýnt hafi
verið fram á að ásakanir skattrannsóknarstjóra á hendur sér eigi ekki við
rök að styðjast. Stjórn KPMG segist hafa komist að sömu niðurstöðu.
Ekki í verka-
hring endur-
skoðenda að
koma að
hugsanlegum
athugasemd-
um um verð-
lagningu í við-
skiptum.
LILJA MÓSESDÓTTIR
Brautryðjandi í Borgarfirði.
Bifröst í Borgarfirði:
Fyrsti kven-
prófessorinn
HÁSKÓLAR Doktor Lilja Mósesdótt-
ir hefur verið ráðin prófessor við
Viðskiptaháskólann á Bifröst en
Lilja er fyrsta konan til að gegna
stöðu prófessors í viðskipta- og
hagfræðigreinum við íslenskan
háskóla. Stjórnarnefnd Viðskipta-
háskólans í Bifröst ákvað að skipa
Lilju í prófessorsstöðuna á grund-
velli mats sérstakrar dómnefndar.
Lilja Mósesdóttir varði á sínum
tíma doktorsritgerð sína við há-
skólann í Manchester en hafði
áður lokið MA-gráðu í hagfræði
við háskólann í Sussex. Þá er Lilja
með BA-gráðu í viðskiptum og
hagfræði frá háskólanum í Iowa.
Undanfarin ár hefur Lilja starfað
sem sérfræðingur og kennari við
háskóla hér á landi, í Svíþjóð og á
Grænlandi. Nýlega var gefin út í
Bretlandi bók eftir doktor Lilju
sem ber heitið The Interplay
Between Gender, Markets and the
State in Sweden, Germany and the
United States. ■
AFRÍKA
LEYNISKYTTUR VERJA ÍÞRÓTTA-
MENN Mikill öryggisviðbúnaður
er í kringum heimsmeistaramótið
í krikket sem hefst í Kenýa í
næstu viku. Suður-Afríka hefur
lagt fram leyniskyttur, sprengju-
sérfræðinga og eftirlitsflugvél til
að tryggja öryggi.