Fréttablaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 20.02.2003, Blaðsíða 14
14 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS Mig langar að skrifa aðeinsmeira um persónur í pólitík. Það getur verið snúið fyrir stjórn- málaflokka að fóstra leiðtoga sína. Flokkarnir þurfa að byggja þá upp svo þeim tak- ist að fylla upp í hlutverkið og halda jafnvæginu milli flokks og leiðtoga svo flokknum líði vel í leiðtoganum og leiðtoganum í flokknum. Flokksleiðtogi þarf að vera viss um stuðning flokksins til að geta verið sannfærandi tals- maður hans út á við. Flokksmenn eiga að fylgja leiðtoganum – en þó aðeins að leiðtoginn fylgi flokkn- um. Hann á ekki að stýra flokkn- um heldur drekka í sig mismun- andi sjónarmið flokksmanna og mæla fyrir stefnu sem breiðust samstaða er um. En þetta vita svo sem allir. Í keppni flokkanna um hylli kjósenda eiga þeir til að blása út verðleika leiðtoga sinna og hylma yfir bresti þeirra. Eins og þetta er eðlileg ráðstöfun þá getur hún orðið dálítið hættuleg – einkum þegar barátan er hörð og leiðtog- inn góður. Það er freistandi að beita enn frekar fyrir sig leiðtoga sem aflar atkvæða. Ef þetta er hins vegar gert æ ofan í æ hverf- ur flokkurinn að baki leiðtogans og persóna hans verður smátt og smátt það sem kallað er í Ameríku „Bigger than life“. Menn verða stærri en lífið þeg- ar þeim eru eignuð afrek annarra í stórum stíl. Kjarval var til dæm- is kostulegur karakter og fyndinn. En hann var aldrei svo kostulegur eða fyndinn að hann hafi afrekað eða sagt allt það sem er eignað honum. Sá Kjarval sem við þekkj- um er verk fjölda manna. Kjarval skaðast ekki svo af þessu þar sem hann er látinn. Það er hins vegar vonlaus staða að vera stærri en lífið á meðan menn eru enn a lífi. Og ef menn trúa því sjálfir eru þeir í virkilega vondum málum. Churchill var sameiningartákn Breta í seinni heimstyrjöld og tal- aði kjark í þjóðina. Hann stóð sig vel í þessu hlutverki. Það er hins vegar spurning hvort þjóðin hafi ekki skipað hann í þetta hlutverk og gefið orðum hans merkingu með viðbrögðum sínum. Churchill var fremstur meðal jafningja einmitt vegna þess að hann kom fram við þjóð sína sem slíkur – jafningi. Flokksmönnum, sem finnst þeir heppnir með fengsælan for- ingja, ættu því að varast að blása um of út mikilvægi hans. Það er flokknum, fólkinu og foringjan- um hollast að ímynd foringjans sé með útblásið brjóst og sperrtan hnakka – en báða fætur á jörð- inni. ■ Það er hins vegar vonlaus staða að vera stærri en lífið á meðan menn eru enn á lífi. Miklir – en ekki of miklir – leiðtogar heldur áfram að skrifa um menn og málefni í íslenskum stjórnmálum. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.isOD DI H F J 37 55 /1 Með skírskotun til hinnar mikluþýðingar, sem útgerðin hefir fyrir þjóðarbúskapinn, hafa mörg útgerðarfyrirtæki verið rekin með tapi ár eftir ár, án þess að um væri breytt. Og bankarnir hafa lánað fé til þeirra, - þ.e.a.s. þeir hafa haldið uppi þeirri starfsvenju, að lána út fé til skuldunauta, sem ekki hafa átt kröfu á lánstrausti, jafnvel ekki átt fyrir skuldum, og þar með sleg- ið af kröfum heilbrigðs banka- reksturs. Með skírskotun til þjóð- arhagsmunanna hefir hin sjálf- sagða grundvallarregla heilbrigðs auðvaldsbúskapar, að þeir, sem duglausir eru eða illa hafa reynzt, víki fyrir nýjum kröftum, verið gerð að engu, og aðgerðir þær, sem yfirlýst stefna í peningamálum þjóðarinnar hefir krafizt, orðið að víkja. ... Skipan bankastjórnar Landsbankans á áreiðanlega sinn þátt í þessu. ... Mennirnir, sem stjórna eiga slíkum banka, mega ekki undir neinum kringumstæðum vera full- trúar sérhagsmunanna.“ Hljómar þetta kunnuglega? Þessi orð voru skrifuð og birt í bók árið 1938. Höfundur hennar er dr. Benjamín Eiríksson. Orð hans hafa átt við fram á allra síðustu daga að minnsta kosti, svo sem ráða má meðal annars af áfram- haldandi skuldasöfnun útvegsfyr- irtækja. Skuldir útvegsins hafa aukizt hröðum skrefum síðan 1995: það ár námu þær innan við 100 milljörðum króna, en nú nema þær næstum 200 milljörðum, enda þótt fiskafli hafi farið minnkandi á Ís- landsmiðum. Til að tryggja hags- muni útvegsfyrirtækjanna og aðra skylda hagsmuni þurfti auðvitað að vanda mannvalið í bönkunum. Þess vegna meðal annars dróst sala ríkisbankanna svo mjög á langinn, miklu lengur en víðast hvar í Austur-Evrópu. Og því þarf engum í rauninni að koma það á óvart, hvers vegna stjórnvöld hafa ekki treyst sér til að virða hvort heldur þjóðareign- arákvæði fiskveiðistjórnarlaganna frá 1988 eða jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar skv. úrskurði Hæstaréttar frá 1998. Bankarnir hafa haldið áfram að veita lánsfé til útvegsfyrirtækja með veði í aflakvótum, sem eru þó sameign þjóðarinnar samkvæmt lögum. Fróðlegt verður að fylgjast með því, hvort nýir eigendur Lands- bankans muni leyfa stjórnendum bankans að halda uppteknum hætti. En nú er Landsbankinn þó loks- ins kominn í hendur nýrra eig- enda. Og þá gerist það, að hinir nýju eigendur ákveða að bjóða framkvæmdastjóra og helzta fjár- aflamanni Sjálfstæðisflokksins að sitja áfram í bankaráðinu. Og hann þiggur boðið! Honum bar að hafna þessu boði af velsæmis- ástæðum, til dæmis til að vekja ekki grunsemdir um það, að kaup- endur bankans hafi fengið mynd- arlegan afslátt af kaupverðinu á kostnað almennings gegn því að tryggja honum, flokkserindrekan- um, sætið í bankaráðinu. Nýr formaður bankaráðsins, oddviti hinna nýju eigenda, segist með þessari skipan vilja tryggja tengslin við fortíðina. Fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins sat og situr enn í bankaráði Landsbankans á einni og aðeins einni forsendu – sömu forsendu og skilaði Kristni Finnbogasyni, Lúðvík Jósepssyni og mörgum fleiri stjórnmálamönnum inn í bankaráðið fáeinum árum fyrr. Enginn þessara manna sat í bankaráðinu í krafti þekkingar á efnahags- og atvinnumálum þjóð- arinnar. Þeim var þar ætlað annað hlutverk. Mér er ekki kunnugt um nokk- urt dæmi þess frá nálægu landi, ekki heldur frá Rússlandi, að stjórnvöld selji ríkisbanka í hend- ur einkaaðila gegn því, að fram- kvæmdastjóri leiðandi flokks í rík- isstjórninni sitji áfram í bankaráð- inu – og tryggi flokki sínum þar með áfram aðgang að upplýsing- um um öll helztu málefni bankans og viðskiptavina hans, en einmitt það hefur verið einn höfuðtilgang- ur ríkisbankarekstrar á Íslandi frá árdögum bankakerfisins. Flokkarnir hafa misnotað bankakerfið miskunnarlaust í eig- in þágu og umbjóðenda sinna frá fyrstu tíð. Þess vegna bar – og ber enn – brýna nauðsyn til að rjúfa tengsl bankanna við stjórnmála- flokkana og fortíðina, til að „þeir, sem duglausir eru eða illa hafa reynzt, víki fyrir nýjum kröft- um“. Einkavæðingu Landsbankans er bersýnilega ekki lokið. ■ Samkeppnisstofnun svarar Sauðárkróksbakaríi: Hækkun raforku- verðs skekkir ekki samkeppni SAMKEPPNISMÁL Hækkun á raf- orkuverði til Sauðárkróksbakarís skekkir ekki samkeppnisstöðu þess að mati samkeppnisráðs. Sauðárkróksbakarí sendi Sam- keppnisstofnun erindi síðastliðið sumar þar sem kvartað var yfir raforkuverðshækkunum í Skaga- firði í kjölfar yfirtöku RARIK á Rafveitu Sauðárkróks um áramót- in 2001 til 2002. Í erindinu segir að raforkuverðið hafi hækkað um 55% til 116%. Kveður bakaríið það skekkja samkeppnisstöðuna, þar sem inn á markaðssvæði þessi streymi brauð og kökur víða að, til að mynda frá Reykjavík og Akur- eyri. Í niðurstöðum samkeppnisráðs segir að öll bakarí á veitusvæði RARIK njóti sams konar kjara. Ekki sé hægt að bera saman orku- verð á milli mismunandi orku- veitna, þar sem dreifingar- og um- sýslukostnaður sé mismunandi. Þá bendir ráðið á að þær vörur sem bakarí framleiði hafi tak- markað geymsluþol og því sé landfræðilegur markaður afar takmarkaður. Í ljósi þessa telur samkeppnis- ráð að Sauðárkróksbakarí sé á öðrum markaði en bakarí á Reykjavíkursvæðinu og því skekki það ekki markaðsstöðu þess í skilningi samkeppnislaga að mismunur sé á raforkutöxtum til bakaría hjá RARIK annars veg- ar og Orkuveitu Reykjavíkur hins vegar. ■ Banvæn mistök: Fékk vitlaus líffæri BANDARÍKIN, AP Líf mexíkóskrar unglingsstúlku hangir á bláþræði eftir að grædd voru í hana hjarta og lungu úr mann- eskju sem ekki var í réttum b l ó ð f l o k k i . Sjúkrahúsyfir- völd telja engar líkur á því að nýr líffæra- gjafi finnist í tæka tíð til að bjarga stúlkunni. Löng bið er eftir aðgerðum að þessu tagi í Mexíkó og því hafði móðir stúlkunnar smyglað henni yfir landamærin til Banda- ríkjanna til þess að hún gæti komist í aðgerð þar. Sú ákvörðun reyndist fjölskyldunni dýrkeypt. Fljótlega eftir aðgerðina tóku náttúruleg mótefni í líkama stúlkunnar að ráð- ast gegn líffærunum. Við nánari at- hugun kom í ljós að líffæragjafinn hafði verið í blóðflokki O en stúlkan er í A. ■ prófessor í Háskóla Íslands skrifar um bankaráð Lands- bankans. ÞORVALDUR GYLFASON Um daginn og veginn Tengslin við fortíðina TAKMARKAÐ GEYMSLUÞOL Samkeppnisráð bendir á að þær vörur sem bakarí framleiði hafi takmarkað geymsluþol og því sé landfræðilegur markaður afar takmarkaður. BEÐIÐ Fjölskyldan getur fátt gert annað en að bíða. Vegið að starfsheiðri Kjartan Kristjánsson sjóntækjafræðingur skrifar: Eins og kunnugt er stendur núyfir deila milli augnlækna og sjóntækjafræðinga um löggjöf er veitir þeim fyrrnefndu einkarétt til þess að stunda sjónmælingar. Af þessu tilefni óskaði Fréttablaðið eftir sjónarmiðum þessara fagað- ila. Þau birtust svo í fimmtudags- blaðinu þann 13. febrúar síðastlið- inn. Ekki verður hjá því komist að gera alvarlegar athugasemdir við það sem fram kom í grein Elínborg- ar Guðmundsdóttur, formanns fé- lags augnlækna. Elínborg segir í grein sinni: „Fyrir nokkrum árum fengu sjón- tækjafræðingar til sín mann að utan sem hélt námskeið í sjónmæl- ingum. Við teljum að það geti tæp- lega talist til jafns við fullgilt nám.“ Sjóntækjafræðingar með viðbótar- menntun í sjónfræði eru allflestir með eins menntun, það er að segja frá sama skóla í Noregi. Þannig hef- ur íslenskum sjóntækjafræðingum gefist kostur á að læra sjónmæling- ar í tveggja ára námi í áföngum. Hingað til lands komu lektorar frá Högskolen í Buskerud (norski opti- keraskólinn), en þeir sáu um kennsluna. Ábyrgðaraðili námsins er Nordisk Optiker Råd. Norski skólinn fékk prófessor Robert Fletcher frá City University í London til þess að hafa yfirumsjón með náminu og Árna Finnsson pró- fessor til að hafa eftirlit með próf- um. Þess skal sérstaklega getið að menntamálaráðuneytið veitti styrk til námsins, sem er á há- skólastigi. Eins og sjá má af ofan- rituðu er lýsing Elínborgar á námi sjóntækjafræðinga í hæsta máta villandi. Veldur það mér sérstökum áhyggjum að hún skuli kjósa að vega að starfsheiðri þess ágæta fagfólks sem staðið hefur fyrir námi í sjónmælingum og gera lítið úr norrænu samstarfi, styrktu af menntamálaráðuneytinu. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.