Fréttablaðið - 20.02.2003, Page 6

Fréttablaðið - 20.02.2003, Page 6
6 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGURVEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Bæjarstjórinn í Stykkishólmi er uggandi um hag bæjarbúa vegna hrun skelfiskstofnsins í Breiðarfirði. Hvað heitir bæjarstjórinn? Hvað heitir höfundur Euro- vision-lagsins Segðu mér allt? Æskuheimili látins tónlistar- manns frá Liverpool verður opnað almenningi í næsta mánuði. Hvaða tónlistarmaður var þetta? GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 79.3 -0.14% Sterlingspund 126.34 -0.49% Dönsk króna 11.44 -0.22% Evra 84.99 -0.22% Gengisvístala krónu 123,47 -0,13% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 663 Velta 2.091 m ICEX-15 1.367 0,58% Mestu viðskipti Fjárfestingarf. Straumur hf. 121.735.759 Pharmaco hf. 115.123.032 Opin kerfi hf. 87.766.000 Mesta hækkun Skýrr hf. 9,78% Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. 9,09% Líf hf. 2,75% Mesta lækkun ACO-Tæknival hf. -11,96% Opin kerfi hf. -9,13% Tryggingamiðstöðin hf. -1,73% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 7974,7 -0,8% Nasdaq*: 1333,9 -0,9% FTSE: 3658,3 -1,9% DAX: 2647,3 -3,4% Nikkei: 8678,4 -0,2% S&P*: 844,2 -0,8% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 ÓVEÐUR Starfsmenn tryggingarfé- laga eru komnir til Seyðisfjarðar til að meta tjónið sem varð í hvass- viðrinu aðfaranótt þriðjudags. Um þrjátíu hús urðu fyrir skemmdum. Einnig varð mikið um tjón á bílum og rúður brotnuðu. Tryggvi Harð- arson bæjarstjóri segir tilkynning- ar um tjón enn að berast. Erfitt sé að meta á þessari stundu hversu mikið það sé, sumir hafi farið verr út úr óveðrinu en aðrir. Ljóst sé að sumir einstaklingar þurfi að bera tjónið sjálfir. Húseigendatrygging bætir þó að mestu það tjón sem varð. Bíleigendur þurfa flestir að bera tjón sitt sjálfir, nema þeir sem hafa kaskótryggingu. Mikið hreinsunarstarf fer nú fram á Seyðisfirði. Tryggvi segir að þegar sé búið að hreinsa upp heilu bílhlössin af drasli sem fokið hafði út um víðan völl. „Menn muna varla eftir öðru eins hvass- viðri. Það hreinlega nötraði allt hérna í mestu hviðunum.“ Ekki er langt um liðið síðan Seyðfirðingar urðu fyrir stórfelld- um aurskriðum. Tryggvi var spurður út í hug manna í ljósi und- anfarinna náttúruhamfara. „Menn vita að náttúruöflin geta látið að sér kveða. Aðalatriðið er að menn séu almennt viðbúnir því sem hægt er að bregðast við. Seyðfirð- ingar láta ekki deigan síga heldur taka upp þráðinn. Það er engin uppgjöf í mönnum.“ ■ OFFITA Guðmundur Ólafsson hag- fræðingur hefur grennst um 40 kíló á tiltölulega skömmum tíma. Hann gefur öllum megrunarkúr- um langt nef og segir þá í raun og veru fitandi. Að auki sé einhæft fæði sem fylgi þeim aðeins ávísun á sjúkdóma: „Lykillinn að þessu og galdur- inn er sá að verða aldrei svangur. Hungrið er óvinur númer eitt,“ segir Guðmundur, sem allur er léttari í spori nú en áður. Vill reyndar ekki gefa upp þyngd sína í dag en er feginn að 40 kíló séu farin. „Stór maður eins og ég brennir um þrjú þúsund hitaein- ingum á dag. Þess vegna gæti ég þess vel að taka ekki inn nema tvö þúsund hitaeiningar og með því móti getur maður ekki annað en grennst,“ segir hann og líkir við einfalt reiknisdæmi. „Inntakan verður bara að vera minni en það sem fer út.“ Til að halda hungrinu og helsta óvini sínum í skefjum gætir Guð- mundur þess að borða reglulega. Og hann gætir þess einnig vel hvað hann setur ofan í sig. Litlu bitarnir á milli mála mega ekki vera fitandi og mælir hann helst með alls kyns ávöxtum og græn- meti. Svo er það hreyfingin: „Maður verður að hreyfa sig í svo sem klukkustund á dag. Þá skiptir ekki öllu hvort þú gengur eða hleypur. Orkubrennslan er sú sama þegar farið er frá stað A til staðar B. Ferðin tekur bara lengri tíma ef maður gengur,“ segir Guð- mundur, sem kennir megrunarað- ferð sína við heilbrigða skynsemi. Segir vísindamenn um heim allan vera að vakna til vitundar um að eina ráðið gegn offitu sé það sem hann beiti sjálfur. Annað sé bull því sá sem píni sig í skipulögðum megr- unarkúr bæti öllu því sem af fór á sig aftur þegar kúrnum lýkur: „Ekki vera svangur, hafa inn- töku hitaeininga minni en brennslu og hreyfa sig,“ segir hagfræðingurinn, sem unir hag sínum vel þó minna sé af honum nú en áður var. eir@frettabladid.is GAZA-STRÖNDIN, AP Ísraelskar her- sveitir réðust inn í tvö hverfi í Gaza-borg í gær á 40 skriðdrek- um og lentu þar í átökum við vopnaða Palestínumenn. Ellefu týndu lífi úr liði hinna síðar- nefndu, þar á meðal maður sem, að sögn Palestínumannanna, hafði ætlað að sprengja upp einn skriðdrekanna og sjálfan sig í leiðinni. Áhlaup ísraelska herliðsins stóð í um sex klukkustundir en töluverð eyðilegging blasti við að því loknu. Talsmenn ísraelska hersins segja að árásinni hafi verið beint gegn innviðum hryðjuverkastarfsemi í borginni og að húsin sem eyðilögð voru hafi verið vopnaverkstæði. Palestínumenn eru á öðru máli og segja að um óbreytta atvinnu- starfsemi hafi verið að ræða. Þetta er önnur árás Ísraels- manna á Gaza-borg síðan Ham- as-samtökin lýstu ábyrgð á sprengjutilræði gegn ísraelsk- um skriðdreka á hendur sér. Leiddar hafa verið að því getgát- ur að baráttan gegn samtökun- um muni fela í sér ítrekaðar inn- rásir í Gaza-borg en ísraelski herinn hefur hingað til forðast slíkar aðgerðir. ■ Árni Johnsen: Afplánar dóminn á Kvíabryggju FANGELSI Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, hefur hafið afplán- un á Kvíabryggju samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins. Árni var dæmdur af Hæstarétti fyrr í þess- um mánuði til tveggja ára fangels- isvistar fyrir ýmis auðgunarbrot í opinberu starfi. Árni mun að minnsta kosti sitja í fangelsi í eitt ár en þá er líklegt að hann verði lát- in laus til reynslu, óski hann eftir því. Fangelsið Kvíabryggja er á Snæfellsnesi við Grundarfjörð. ■ Ísraelski herinn gerir áhlaup: Blóðug átök í Gaza-borg BEÐIÐ ÁTEKTA Hópur vopnaðra Palestínumanna beið átekta eftir því að ísraelska herliðið léti til skarar skríða. Ljóst var þó að við ofurefli væri að etja þar sem fjölmennt lið Ísraels- manna notaðist bæði við skriðdreka og þyrlur í árásinni. Hagfræðingur grennist um 40 kíló Guðmundur Ólafsson segir megrunarkúra fitandi og einhæft fæði ávísun á sjúkdóma. Gætir þess að vera aldrei svangur og leggur gönguferð til jafns við hlaup. Munurinn sé aðeins spurning um tíma. GUÐMUNDUR ÓLAFSSON Hagfræðingurinn sem sagði offitunni stríð á hendur. Eignatjón metið á Seyðisfirði: Heilu bílhlössin af drasli keyrð í burtu ÓVEÐUR Á SEYÐISFIRÐI Til allrar lukku var búið að binda þennan litla skúr við tré, en að öðrum kosti hefði farið illa. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T HREPPURINN FÆR SÆLINGSDAL Dalabyggð fær að neyta for- kaupsréttar að jörðinni Sælings- dal samkvæmt dómi Hæstaréttar. Hjón sem höfðu gert samning um kaup á Sælingsdal verða því frá að hverfa. Tveir dómarar af fimm töldu þó að hjónunum bæri jörðin. DÓMUR Sameining SÍF og SH: Fulltrúar funda um sameiningu SAMEINING Viðræður eru í fullum gangi milli fulltrúa Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna og Sölusambands íslenskra fisk- framleiðenda. Að sögn Friðriks Pálssonar, stjórnarformanns SÍF, hafa fulltrúar fyrirtækj- anna setið á fundum og unnið að málinu að undanförnu. Hann vildi að öðru leyti ekkert gefa upp um gang viðræðna né hvort von væri á niðurstöðu á næst- unni. „Við erum bara að vinna að þessu og ekkert meira um það að segja á þessu stigi.“ ■ Vísitala smásölu: Meira keypt inn SMÁSALA Smásala dagvöru jókst um sjö prósent milli janúar nú og janúar í fyrra, samkvæmt smásöluvísitölu Samtaka versl- unar og þjónustu. Mesta aukn- ingin var á sölu áfengis en áfengissala í janúar var níu pró- sent meiri en í sama mánuði í fyrra. Lítil breyting hefur orðið á veltu lyfjaverslana síðustu fimm mánuði. Samkvæmt þessu eru neyt- endur að kaupa mun meiri dag- vöru en í sama mánuði í fyrra. Milli þessara mánaða hefur verð dagvörunnar lækkað um 4,5 pró- sent. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.