Fréttablaðið - 20.02.2003, Side 8

Fréttablaðið - 20.02.2003, Side 8
8 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR Kennarar í Eyjum: Lofti hleypt úr dekkjum LÖGREGLUMÁL Lofti var hleypt úr dekkjum bíla í eigu sex kennara við Framhaldsskólann í Vest- mannaeyjum. Urðu kennararnir varir við þetta þegar þeir hugð- ust fara til vinnu. Ekki var nóg með að hleypt hafi verið úr einu dekki heldur minnst tveimur. Óþarfi er að taka fram að mikil óþægindi hlutust af þessu og seg- ir á heimasíðu nemendafélagsins að kennararnir hafi komið seint til vinnu. Þá segir að félagið sjálft sé að athuga hverjir áttu sök að máli. Málið hefur verið kært til lög- reglunnar. ■ FERÐAKOSTNAÐUR „Ég hef enga sér- staka ástæðu til að ætla að það sé eitthvað óeðlilegt við ferðakostn- að ráðherranna sem neita að gefa upplýsingarnar. En ég trúi því ekki að upplýsingalögin geti hamlað því að fjölmiðlar geti leit- að eftir upplýsingum sem þess- um,“ sagði Jóhanna Sigurðardótt- ir, þingmaður Samfylkingarinnar. Í fyrirspurn til fjármálaráð- herra óskar hún eftir upplýsing- um um árlegan ferðakostnað ráð- herra erlendis, sundurliðað eftir ráðuneytum, heildarkostnaði, dagpeningum, risnu og öðrum kostnaði, árin 1999 til 2002. Enn fremur spyr Jóhanna hver skoðun ráðherra sé á því að upplýsingarn- ar séu sundurliðaðar og aðgengi- legar í ríkisreikningi og hvort rétt sé að neita þeim sem sinna upp- lýsingaskyldu til almennings, eins og fjölmiðlum og Alþingi, um upp- lýsingar um kostnað tengdan starfi æðstu embættismanna og stjórnvaldshafa. „Það á auðvitað að vera lykil- atriði að aðgengi að upplýsingum um meðferð opinberra fjármuna sé gegnsætt og opið. Það sem ég er fyrst og fremst að draga fram er hvort ástæða sé til að skerpa á upplýsingalögunum,“ sagði Jó- hanna. Hún spyr líka hvort fjármála- ráðherra telji ástæðu til að endur- skoða reglur um ferða- og dagpen- ingagreiðslur hjá ráðuneytum og stofnunum. „Ég tel að það megi spara þarna verulega fjármuni, hugsan- lega 10% til 15%, og þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram tillögur í þeim efnum við fjárlagagerðina undanfarin ár,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir. ■ LYFJAKAUP „Þegar ég fékk þetta lyf fyrst kostuðu 200 töflur innan við þúsund krónur. Á síðasta ári var mér sagt að lyfið væri ekki til lengur en annað komið í þess stað. Sama magn af því lyfi kostar yfir tvö þúsund krónur,“ segir André Bachmann stræt- isvagnabílstjóri, sem hefur í tæp tuttugu ár notaði sama lyfið við skjaldkirtilssjúk- dómi sem hann þjáist af. Lyfið sem Andri notaði heitir Tyroxin Natrium en nýja lyfið Eouthyrox, inniheldur sömu efni en framleiðandinn er annar. André segist hafa kynnt sér að það væri alls ekki hætt að fram- leiða eldra lyfið því það væri til á hinum Norðurlöndunum og kost- aði þar innan við þúsund krónur. „Ég þurfti líka að fara í blóðmæl- ingu vegna lyfjaskiptanna og það kostaði mig peninga auk þess sem kostnaður ríkisins við að allir sem eru á lyfinu fari í blóðrannsókn hlýtur að vera einhver. Ég spyr því hver sé að græða,“ spyr Andri. ParmaNor flutti inn Tyroxin. Guðbjörg Alfreðsdóttir, fram- kvæmdastjóri lyfjasviðs, segir að í árslok 2001 hafi framleiðendur tilkynnt að þeir gætu ekki lengur selt ParmaNor lyfið þar sem framleiðendur virka efnisins í lyf- inu gætu ekki útvegað það. „Það kom okkur alveg í opna skjöldu og við sögðum þeim að annað sam- bærilegt lyf væri ekki til. Þrátt fyrir það vildu þeir fá lyfið út af skrá og við björguðum okkur með því að kaupa lyfið af heildsala á Norðurlöndunum um tíma. Síðan gerðist það að N.M Farma flutti inn nýtt lyf með sömu virku efn- unum, sem kom í stað þessa lyfs.“ N.M Farma flytur inn Eouthyr- ox, sem kom í stað Tyroxin. Þóra Jónsdóttir deildarstjóri segir verðið ekki vera óeðlilega hátt. Sótt hafi verið um ákveðið verð til lyfjaverðsnefndar og þar hafi það verið samþykkt. „Það er í sam- ræmi við það verð sem er á hinum Norðurlöndunum. Ég býst við að ástæða þessa verðmunar á gamla og nýja lyfinu sé fyrst og fremst hvað hitt var búið að vera lengi á markaði og líklega hefur ekki ver- ið sótt um verðhækkun á því.“ Nú hefur Tyroxin verið skráð að nýju hjá Gróco og er væntan- legt á markað þann 1. mars. Ari Sæmundsen framkvæmdastjóri segir Gróco hafa tekið við um- boði á lyfinu. Hann segir heild- söluverð hafa verið samþykkt liðlega 500 krónur fyrir 100 töfl- ur og ef miðað sé við sambæri- legt lyf á svipuðu verði ætti út- söluverð úr apóteki að vera lið- lega 1.100 krónur. ■ Lyfin nú tvöfalt dýrari en áður SAMA LYFIÐ EN HELMINGS VERÐMUNUR Tyroxin er væntanlegt aftur á markað þann 1. mars. Heildsöluverð á því verður 532 krónur en síðan á apótekið eftir að leggja á það auk þess sem ofan á bætist 24,5% virðisaukaskattur. André Bachmann hefur um árabil notað sama lyfið við skjaldkirtilssjúk- dómi. Hann segir nýlega hafa verið skipt um lyf og það nýja reynst meira en helmingi dýrara. Eðlilegar skýringar, segja lyfjainnflytjendur. Þarf að taka þrjár töflur í stað tveggja áður af nýja lyfinu. Jóhanna Sigurðardóttir spyr um ferðakostnað ráðherra: Má spara allt að 15% JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Vill ekki trúa því að upplýsingalögin komi í veg fyrir að upplýsingar um ferðakostnað séu aðgengilegar og spyr hvort ekki þurfi að skerpa á upplýsingalögunum. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM Mansal í Austur-Evrópu: Ráðskonu- starf reyndist kynlífs- þrælkun RÚMENÍA, AP Serbi og fjórir Rúmen- ar hafa verið ákærðir fyrir að smygla yfir 100 konum frá Rúmen- íu og Moldóvu til Vestur-Evrópu og hneppa þær þar í kynlífsþrælkun. Að sögn lögreglu voru margar kvennanna frá fátækum héruðum í norðvesturhluta Rúmeníu og voru þær oft lokkaðar með fölskum blaðaauglýsingum þar sem óskað var eftir ráðskonum í Vestur-Evr- ópu. Konurnar voru seldar hórumöngurum fyrir allt að 2000 evrur. Yfirvöld í Rúmeníu hafa sett aukinn kraft í baráttuna gegn man- sali á undanförnum árum, ekki síst vegna fyrirhugaðrar inngöngu landsins í Evrópusambandið. ■ Blaðamenn dæmdir: Bannhelgi á kynlífi spámannsins JÓRDANÍA, AP Dómstólar í Jórdaníu hafa dæmt þrjá blaðamenn í tveg- gja til sex mánaða fangelsi fyrir ærumeiðandi ummæli um Mú- hameð spámann. Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa vegið að heiðri spámannsins með því að fjalla um kynlíf hans. Dómarar álitu enn fremur að þeir hefðu raskað jafnvægi þjóðfélagsins og breitt út siðspillingu. Blaðamennirnir héldu fram sakleysi sínu og sögðu að umrædd grein hefði verið byggð á köflum úr sagnfræði- og trúarritum. Þeir munu ekki geta áfrýjað dómnum en eiga möguleika á því að kaupa sér frelsi. ■ Ökufantur í fangelsi: Ók á hjólandi Spánverja DÓMSMÁL Rúmlega hálfþrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að aka á spænskan hjólreiðamann á Kringlumýrarbrautinni við Ný- býlaveg í Kópavogi sumarið 2001. Ökumaðurinn var einnig dæmdur fyrir innbrot í úraverslun og fyrir að aka hvað eftir annað án ökuréttinda og stundum undir áhrifum fíkniefna. Hann þótti hafa sýnt gáleysi þegar hann ók á Spán- verjann sem hlaut stóran skurð á hnakka og nefbrotnaði en slasaðist þó ekki alvarlega. Hann hafði kom- ið til landsins sama dag og var á leið til höfuðborgarinnar. ■ Su m ar Pl ús Ver›dæmi SpariPlús Krít Portúgal Mallorca Benidorm 53.980 kr. 47.267 kr. 43.140 kr. 44.340 kr. * á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. * * * * Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Bóka›u strax - fla› margborgar sig! 2003 ver›læk kun8-15% Ef tveir ferðast saman, 67.970 kr. á mann. Ef tveir ferðast saman, 69.355 kr. á mann. Ef tveir ferðast saman, 54.530 kr. á mann. Ef tveir ferðast saman, 63.730 kr. á mann. Ráðstefna um málefni Afríku: Komu Mugabe mótmælt PARÍS, AP Frönsk-afrísk ráðstefna um þróunarmál í Afríku og óróa í nokkrum fyrrum nýlendum Frakk- lands féll í skuggann af mótmælum gegn komu Robert Mugabe, for- seta Simbabve, til fundarins. Mót- mælendur héldu uppi spjöldum með slagorðum og kröfðust þess að tekið væri á mannréttindabrotum Mugabe og stjórnar hans. Einn baráttumaður fyrir mann- réttindum lagði fram kæru gegn Mugabe og krafðist þess að hann yrði sóttur til saka fyrir pyntingar. „Pyntingar eru glæpur samkvæmt frönskum lögum, sama hvar þær fara fram og hverjir framkvæma þær,“ sagði Peter Thatchell eftir að hafa lagt kæruna fram. Litlar líkur eru þó á því að eitthvað verði að- hafst þar sem Frakkar hafa aldrei saksótt sitjandi þjóðhöfðingja. Koma Mugabe til Parísar hefur líka valdið reiði annarra ríkja. Evrópusambandið hafði meinað Mugabe og öðrum forsprökkum stjórnvalda í Simbabve að koma til aðildarríkja þess. Frakkar fengu undanþágu frá þessu ákvæði í krafti þess að þeir hótuðu að stöðva framlengingu þvingunar- aðgerða gegn Simbabve ef Mug- abe fengi ekki að koma til ráð- stefnunnar. ■ MÓTMÆLT Í PARÍS Nokkrir tugir mótmælenda komu saman frammi fyrir dómsmálaráðuneytinu og kröfðust aðgerða gegn Mugabe. AP /M YN D

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.