Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2003, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 20.02.2003, Qupperneq 12
12 20. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR Aldagamalt særingamót: Særingamenn í hlutverki geðlækna INDLAND, AP Tugir þúsunda Indverja mættu á árlegt særingamót í hofi gúrúsins Deoji Maharaj í miðju Ind- landi. Á mótinu, sem hefst við fyrstu tunglfyllingu í janúar og stendur í einn mánuð, var boðið upp á meðferð handa fólki sem haldið er illum öndum. Um 70.000 gestir mættu á mótið að þessu sinni. Algengt er að karlmenn mæti með eiginkonur sínar sem eiga við vandamál að stríða í kjölfar barns- burðar og vonast þeir til þess að særingamenn geti hjálpað konun- um. Einnig er nokkuð um að fjöl- skyldur leiti til særingamannanna vegna karlmanna sem eiga við geð- ræn vandamál að stríða. Geðlæknar segja að oft sé um að ræða fólk með geðsjúkdóma sem mögulegt er að lækna en vegna fáfræði aðstand- endanna sé hegðun þess rakin til illra anda sem hafi tekið sér ból- festu í líkamanum. Einnig hafa ver- ið uppi getgátur um það að konur sem lifa tilbreytingalausu og óspennandi lífi láti eins og óhemjur til þess að fá athygli fjölskyldumeð- limana. ■ Prestur og læknir sekir um þjóðarmorð Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Tansaníu hefur dæmt feðga fyrir að hvetja til og skipuleggja fjöldamorð á tútsum. Morðin voru framin í og nálægt kirkjunni þar sem faðirinn var prestur. TANSANÍA Feðgar frá Rúanda hafa verið dæmdir fyrir að hvetja til og taka þátt í þjóðar- morðum á tútsum árið 1994. Þá féll um hálf milljón tútsa fyrir hendi hútúa í þjóðar- morðum sem stjórnvöld hvöttu til og gengu að mestu yfir á þrem- ur mánuðum. Feðgarnir voru fundnir sekir um að hafa skipulagt morð á tútsum sem höfðu flúið óöldina og héldu til í kirkju í Kibuye í Rú- anda. Það vekur athygli að faðirinn, Elizaphan Ntakirutimana, var prestur í kirkjunni þar sem fjöldamorðin fóru fram og sonur hans, Gerald Ntakirutimana, starf- aði sem læknir í héraðinu. Það stöðvaði þá þó ekki í að taka að sér forystuhlutverk við að hvetja til, skipuleggja og framkvæma morð- in á fólkinu sem hafði leitað skjóls í kirkjunni. Faðirinn var dæmdur til tíu ára fangelsisvistar en sonurinn fékk 25 ára dóm. Norski dómarinn sem kvað upp dóminn sagði lækninn hafa brugðist trausti sem fólk bar til hans sem læknis og væri það metið honum til refsiþyngingar. Þyngsti leyfilegi dómur er ævi- langt fangelsi. Dómstólnum þótti sýnt að presturinn hefði flutt vígamenn til staða í kringum kirkjuna og fyrir- skipað að þak kirkjunnar yrði rifið af henni svo flóttamenn gætu ekki skýlt sér í henni. Auk þess að hafa skipulagt morðin var læknirinn fundinn sekur um að hafa sjálfur skotið einn mann til bana úti fyrir spítalanum þar sem hann starfaði. Fyrir þjóðarmorðin bjuggu rúmlega 50.000 tútsar í héraðinu í kringum kirkjuna í Kibuye. Aðeins um eitt þúsund þeirra lifði óöldina af. Bandaríski blaðamaðurinn Philip Gourevitch fjallar meðal annars um brot feðganna í bók sem hann skrifaði um morðöldina í Rúanda. Þar segir hann frá því að fólk sem leitaði skjóls í kirkj- unni reyndi að fá prestinn til að hjálpa sér. Í bréfi sem fólkið skrifaði honum stóð meðal ann- ars: „Við viljum upplýsa þig um að á morgun verðum við drepin með fjölskyldum okkar.“ Litla hjálp var hins vegar að hafa frá prestinum. ■ Vinsældakönnun Frjálsrar verslunar: Bónus vinsælasta fyrirtækið SKOÐANAKÖNNUN Bónus er aftur orðið vinsælasta fyrirtæki lands- ins samkvæmt könnun tímaritsins Frjálsrar verslunar. Bónus endur- heimtir titilinn eftir þriggja ára fjarveru. Íslensk erfðagreining hélt forystunni síðastliðin þrjú ár en fellur nú niður í sjöunda sæti. Bónus fær 18 prósent atkvæða í könnuninni og í öðru sæti kemur annað fyrirtæki Baugs, Hagkaup, með 8,5%. Í þriðja sæti lendir Ís- landsbanki, sem fær 7,3% at- kvæða í könnuninni. Þrjú næstu fyrirtæki í vinsældakönnun Frjálsrar verslunar eru Össur, Flugleiðir og Eimskip. Könnun Frjálsrar verslunar rímar vel við könnun Frétta- blaðsins, sem birtist 8. febrúar, um traust á kaupsýslumönnum í íslensku viðskiptalífi. Þar varð Jóhannes Jónsson í Bónus efst- ur. Á eftir honum komu Jón Ás- geir Jóhannesson, forstjóri Baugs, og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka. Stjórn- endur Baugs, Björgólfsfeðgar og forstjórar Íslandsbanka nutu mests trausts samkvæmt könn- un Fréttablaðsins. Könnun Frjálsrar verslunar var gerð 20. til 22. janúar. ■ HALLGRÍMUR ÓSKARSSON Tók mið af töxtum FÍH þegar hann greiddi Birgittu Haukdal fyrir sönginn. Birgitta Haukdal og Eurovision: Fékk ekki hálfa milljón SÖNGUR Birgitta Haukdal fékk ekki 500 þúsund krónur fyrir að syngja sigurlagið í Eurovision. Hallgrímur Óskarsson, höfund- ur lagsins, segir það af og frá. Birgitta hafi aðeins fengið brot af þeirri upphæð fyrir sönginn: „Ég tók mið af töxtum Félags íslenskra hljómlistarmanna þegar ég greiddi Birgittu. Þetta var eins og hver önnur vinna hjá henni og auðvitað þarf hún að fá eitthvað fyrir æfingar og að mæta í stúdíó í upptökur,“ segir Hallgrímur. „Það var mikil vinna á bak við þetta en upp- hæðin er trúnaðarmál eins og í öðrum samningum.“ Hallgrímur vinnur nú að skipulagningu framhalds sig- ursins í Háskólabíói um síðustu helgi og þar er í mörg horn að líta. En Hallgrímur er vanur slíkri vinnu: „Ég starfa sjálf- stætt sem verkfræðingur, bæði fyrir innlend og erlend fyrir- tæki. Þetta er bara eitt verkefn- ið til viðbótar,“ segir hann. ■ DÝRKEYPT VÆTUTÍÐ Ættingjar syrgja þrjú börn og unga konu sem öll létust þegar húsþak gaf sig vegna viðstöðulauss regns sem dundi á því. Úrhellisrigning í Pakistan: Flóð og fárviðri PAKISTAN, AP Yfir 20 manns hafa látist og tugir slasast í kjölfar mikilla rigninga í Pakistan að undanförnu. Hundruð hafa misst heimili sín en rignt hefur við- stöðulaust í sumum héruðum landsins svo dögum skiptir. Flóð hafa rifið sundur vegi og skolað burt húsum víða um land- ið. Rigningunni hefur einnig fylgt mikill og snarpur vindur og víða hafa tré verið rifin upp með rótum og rafmagnslínur slitnað. Sums staðar í norðurhluta lands- ins hefur snjóað og myndast allt að eins og hálfs metra þykkt snjólag. Flóðin hafa komið harðast nið- ur á íbúum í fátækrahverfum borganna en í landbúnaðarhéruð- um landsins er vætunni fagnað ákaft þar sem þar hefur varla komið dropi úr lofti í fimm ár. ■ Grínistinn Jesperson: Brenndi fánann NOREGUR Norski grínistinn Otto Jesperson vakti mikla athygli á dög- unum þegar hann brenndi banda- ríska þjóðfánann undir lok sjón- varpsþáttarins Torsdagsklubben. Vildi hann með þessum hætti mótmæla hugsanlegu stríði gegn Írak. „Ég vil kveikja á kerti fyrir löngu og blóðugu stríði. Megi loginn verða til þess að Bandaríkin breyti Bagdad í stærstu bálstofu heims- ins,“ sagði Jesperson. Jesperson hefur áður vakið deilur með „gam- ansemi“ sinni. Á síðasta ári fékk hann m.a. morðhótanir eftir að hann gerði grín að forsætisráðherra Nor- egs. ■ Afhöfðaði Thatcher: Dæmdur til fangavistar LONDON Breskur karlmaður á fer- tugsaldri hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að afhöfða styttu af lafði Margréti Thatcher, fyrrum forsætisráð- herra Bretlands. Hinn 37 ára gamli Paul Kelleher sagðist hafa notað krikketkylfu og járnstöng til að berja höfðuðið af styttunni. Það sagðist hann hafa gert til að mót- mæla alþjóðlegu auðvaldskerfi. Kelleher lýsti sig saklausan af ákæru um skemmdarverk og sagðist hafa verið að mótmæla of nánu sambandi Bandaríkjanna og Bretlands. ■ Á VALDI ILLRA AFLA Særingamenn hofsins Deoji Maharaj nota meðal annars vandarhögg til þess að reka illa anda úr líkömum viðskiptavina sinna. FEÐGAR SAKFELLDIR Hinn 78 ára gamli prestur Elizaphan Ntakirutimana og læknirinn sonur hans, Gerald Ntakirutimana, voru fundnir sekir um að hafa tekið sér forystuhlutverk í fjöldamorðum á tútsum í Rúanda. Auk þess að hafa skipulagt morðin var læknirinn fundinn sekur um að hafa sjálfur skotið einn mann til bana úti fyrir spítalanum þar sem hann starfaði. ENDURHEIMTIR TOPPSÆTIÐ Bónus er aftur vinsælasta fyrirtækið hér á landi samkvæmt könnun Frjálsrar verslunar. Ís- lensk erfðagreining vermdi sætið í þrjú ár, en fellur nú niður listann. VINSÆLUSTU FYRIRTÆKIN Í KÖNNUN FRJÁLSRAR VERSLUNAR Bónus 18,0% Hagkaup 8,5% Íslandsbanki 7,3% Össur 6,6% Flugleiðir 6,0% Er Framsóknarflokkurinn grænn flokkur? Opinn fundur um umhverfismál Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður mun halda opinn fund um umhverfismál í dag, 20. febrúar, klukkan 20:30 í bíósal Loftleiða. Dagskrá: 1. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra kynnir úrskurð um mat á um- hverfisáhrifum Norðlingaölduveitu. 2. Kolbeinn Proppé, efsti maður á lista Vinstri grænna í Suðurkjör- dæmi, og Einar Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður umhverfisráð- herra, svara því í stuttum erindum hvort Framsóknarflokkurinn sé umhverfisvænn flokkur. 3. Pallborðsumræður þar sem fundarmönnum gefst kostur á að spyrja spurninga varðandi efni fundarins. Fundarstjóri verður Haukur Logi Karlsson, formaður FUF RS Allir velkomnir Stjórn Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M KÆRÐIR VEGNA ÓEIRÐA Ind- verska lögreglan hefur ákært 131 múslíma fyrir að eiga upptökin að trúarlegum átökum múslíma og hindúa í Gujarat-fylki sem kostuðu á annað þúsund manns lífið. Enginn hindúi hefur verið ákærður í fylkinu, sem er stjórn- að af hindúum. ASÍA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.