Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.02.2003, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 20.02.2003, Qupperneq 15
15FIMMTUDAGUR 20. febrúar 2003 FRÁBÆRT fornbókahorn Opið alla daga frá 10 til 19 – líka um helgar! Opið alla daga frá kl. 10 til 19 – líka um helgar Kópavogi: Smáralind, sími 562 9701. Akureyri: Hafnarstræti 91-93, 2. hæð, sími 663 1224. Á bókamarkaði 2003 finnur þú meðal annars: ferðabækur barnabækur handbækur ljóð hestabækur spennusögur ævisögur myndabækur ættfræðirit fræðsluefni spennuefni afþreyingarefni skáldverk skemmtun útivist dulspeki tækni landkynningarefni ferðalög íþróttir matreiðslubækur og margt fleira. Þú hefur 10 daga til að nýta þér þetta einstaka tækifæri! BESTU bókakaupin 20. febrúar til 2. mars OPNAR í d g!Nú er bara að drífa sig. Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda h in n e in i s an ni bók amarkaður 90 SAKSÓTTIR FYRIR AL KAÍDA- TENGSL 90 Sádi-Arabar verða ákærðir fyrir tengsl við al Kaída- hryðjuverkahreyfinguna. Innan- ríkisráðherra landsins sagði að 250 grunaðir menn væru enn í haldi og yrðu yfirheyrðir. 150 hefur verið sleppt þar sem talið var að þeir tengdust al Kaída ekki. REYKJAVÍK Ímynduð lína sem skiptir borginni í tvö kjördæmi hefur nú verið dregin um Hring- braut, Miklubraut og Vesturlandsveg. Kjördæmaskipting: Grafarholt í Reykjavík norður KOSNINGAR 2003 Landskjörstjórn leggur til að Grafarholtshverfi til- heyri Reykjavíkurkjördæmi norð- ur. Að öðru leyti miðist skipting borgarinnar milli kjördæmanna við Hringbraut, Miklubraut og Vesturlandsveg. Þá verður Kjal- arnes í norðurkjördæminu. Með því að færa Grafarholtshverfi úr suðurkjördæmi í norðurkjördæmi verða kjördæmin nánast jafnstór, rúmlega 42 þúsund kjósendur í hvoru kjördæmi. Endanleg kjör- dæmamörk verða ákveðin fimm vikum fyrir kjördag og miðast við íbúaskrá. Þá hefur landskjörstjórn ákveðið að íslenskum ríkisborgur- um sem eiga lögheimili erlendis verði skipt milli kjördæmanna miðað við fæðingardag. Þeir sem fæddir eru 1. til 15. dag hvers mánaðar kjósa í suðurkjördæm- inu og þeir sem fæddir eru 16. dag hvers mánaðar eða síðar kjósa í norðurkjördæminu. Þetta á við um íslenska ríkisborgara með lög- heimili erlendis ef innan við átta ár eru liðin frá því að þeir fluttu lögheimili sitt frá Íslandi. ■ Útimarkaðir í Kaliforníu: Byssur ekki leyfðar SAN FRANCISCO, AP Útlit er fyrir að innan skamms verði sett lög um bann við skotvopnasýningum á al- mennum sýningarsvæðum og úti- mörkuðum í Kaliforníu. Áfrýjunar- dómur í Bandaríkjunum hefur stað- fest úrskurð yfirvalda í Alameda- sýslu í Kaliforníu um að banna byssusýningar á slíkum stöðum og nú er búist við því að aðrar sýslur muni fylgja fast á eftir. Ástæðan að baki banninu er sú að yfirvöld og dómstólar telja að sýningar af þessu tagi stuðli að of- beldisverkum. Dæmi eru um skotárásir á mörkuðum í Kaliforníu í tengslum við byssusýningar. ■ MIÐAUSTURLÖND MEGA SAKSÆKJA FYRRUM FOR- SETA Líkur hafa vaxið á því að Frederick Chiluba, fyrrum for- seti Sambíu, verði sóttur til saka fyrir að stela um 180 milljónum króna úr ríkissjóði. Hann hafði reynt að fá Hæstarétt Sambíu til að banna saksókn en því var hafnað. FÍLL BANAR KONU OG BARNI Fíll banaði þrítugri konu og eins árs gömlu barni hennar í Kruger- þjóðgarðinum norðarlega í Suður- Afríku. Talið er að móðir og barn hafi verið nýlega komin ólöglega yfir landamærin frá Mósambík þegar fíllinn réðist að þeim. AFRÍKA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.