Fréttablaðið - 20.02.2003, Síða 31
31FIMMTUDAGUR 20. febrúar 2003
MÓTMÆLI
Andstæðingar fyrirhugaðra árása á Írak í
Danmörku útbjuggu nýstárlegt kröfuspjald.
Á því má sjá Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sem Anakin Skywalker og -
George W. Bush, forseta Bandaríkjanna,
sem Obi-Wan Kenobi úr Stjörnustríðs-
myndunum. Tugir þúsunda manna mót-
mæltu stríði á götum Kaupmannahafnar.
Nú er ljóst að Kolbrún Berg-þórsdóttir mun skrifa annað
bindið af ævisögu Jóns Baldvins
Hannibalssonar
en ekki hann
sjálfur. Kolbrún
skrifaði sem
kunnugt er fyrra
bindið, sem kom
út fyrir síðustu
jól, en í kjölfarið
kom upp misklíð
vegna skiptingar
höfundarlauna og stefndi allt í að
Jón Baldvin tæki einn og alfarið
að sér framhaldið. Nú hafa sættir
tekist, útgefendum hjá Eddu –
miðlun til mikils léttis, því fyrra
bindið varð alger sölusmellur
með tilheyrandi bjölluóm í pen-
ingakössum útgáfunnar.
Skáldsagan Gæludýrin eftirBraga Ólafsson sló rækilega í
gegn fyrir rúmu ári, hlaut meðal
annars tilnefningu til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna og var
að margra mati ein skemmtileg-
asta bók ársins 2001. Bókin kom
nýlega út í Danmörku undir nafn-
inu Kæledyrene og eins og allur
alvöru skáldskapur hefur hún
vakið blendnar tilfinningar gagn-
rýnenda. Bókmenntaspekingur
Berlingske Tidende heldur vart
vatni yfir snilldinni á meðan fé-
lagi hans á Ekstrablaðinu þoldi
ekki bókina, sem er að hans mati
„eins og annað sem kemur frá
þessu landi ofmetinna lista-
manna“.
Prófessor Hannes HólmsteinnGissurarson fagnaði 50 ára
afmæli sínu í gær og hlotnaðist
þá meðal annars
sá heiður að
hægri vefritið
Vefþjóðviljinn
birti um hann
heilmikla afmæl-
isgrein. Þar er
farið yfir afrek
Hannesar í löngu
máli enda frá
mörgu að segja og er greinin sú
lengsta sem sést hefur á Þjóð-
viljanum í háa herrans tíð. Höf-
undi verður tíðrætt um andúð
vinstri manna á þessum höfuð-
páfa kapítalismans á Íslandi á
síðari hluta nýliðinnar aldar og
grípur til skemmtilegra myndlík-
inga þegar hann lýsir tilfinninga-
þrungnu sambandi vinstri manna
við Hannes en þeir fyrrnefndu
eru sagðir hegða sér líkt og ána-
maðkar þegar laxveiðimaður
nálgast. „Íslenskir vinstri menn
þola hvorki Hannes Hólmstein
né það að nokkur virði hann og
lífsstarf hans, og þeir sem brjóta
gegn því banni, vei þeim!“
FRÉTTIR AF FÓLKI
Elísabet Ólafsdóttir, betur þekktsem Betarokk, bloggaði af
miklum móð í fyrra og varð al-
ræmd fyrir vikið. Hún var um tíma
einn mest lesni bloggari landsins
en þeirri upphefð fylgdi sá hvim-
leiði annmarki að þeir sem felldu
sig ekki við opinská skrif hennar
notuðu bloggsíðu hennar til að
svara henni fullum hálsi og gott
betur en það. Betu leiddist þófið og
fúkyrðaflaumurinn og hætti því að
blogga á Þorláksmessu. Aðdáendur
hennar geta nú tekið gleði sína á ný
þar sem daman hefur snúið aftur á
gamlar slóðir og er byrjuð að velta
vöngum á vefnum. Hún fer þó var-
lega og er ekki viss um að sér sé
óhætt og telur vissara að gefa gest-
um ekki kost á að tjá sig á síðunni.
FRÉTTIR AF FÓLKI