Fréttablaðið - 01.03.2003, Page 4
4 1. mars 2003 LAUGARDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Hvað ferðu
oft til útlanda á ári að jafnaði?
Spurning dagsins í dag:
Hver verður næsti forsætisráðherra?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
10,2%
10,2%ÞrisvarNei
Oftar
16,1%
SJALDAN ÚT
Tæpur þriðjungur
fer sjaldnar en
einu sinni á ári til
útlanda.
Tvisvar
34,6%Einu sinni
28,8%Aldrei
Misjöfn ávöxtun Kaupþings:
Ávaxtar eigið fé langbest
ÁVÖXTUN Gengishagnaður af verð-
bréfaeign Kaupþings var rúmir
fjórir milljarðar á síðasta ári. Yfir
90 prósent þess hagnaðar eru til-
komin innanlands. Kaupþing náði
mjög góðum árangri í skulda-
bréfaviðskiptum á árinu. Gengis-
hagnaður af veltuskuldabréfum
er 3,2 milljarðar. Árangur Kaup-
þings er yfir árangri þess í
skuldabréfasjóðum í vörslu fé-
lagsins að mati sérfræðinga.
Sama gildir um lífeyrissjóði í
vörslu félagsins.
Sérfræðingar sem rætt var við
telja að ástæða þess liggi fyrst og
fremst í því að eigin sjóðir fyrir-
tækisins geta tekið meiri áhættu
en vörslusjóðum og lífeyrissjóð-
um er heimilt.
Kaupþing á stór skuldabréf,
svo sem breytileg skuldabréf
Bakkavarar. Það gæti breyst í
hlutabréf. Lífeyrissjóði væri al-
gjörlega óheimilt að taka stórar
stöður í skuldabréfum og hluta-
bréfum, eins og Kaupþing hefur
hagnast á.
Áhættan gefur hærri ávöxtun
þegar vel gengur. Fari hlutirnir
hins vegar úrskeiðis getur tapið
orðið mikið. ■
Guðmundur Snorrason, formaður
Félags löggiltra endurskoðenda:
Þróunin hraðari
en lögin
Kjarni málsins er að þróun í reikningsskilumhefur verið mjög hröð. Viðskiptaumhverfið
hefur verið að breytast mjög mikið,“ segir Guð-
mundur Snorrason, formaður Félags löggiltra end-
urskoðenda. „Þá er það nú svo að lagasetningin
fylgir ekki eftir þeirri þróun. Bókhaldsmál sem
upp hafa komið í Bandaríkjunum hafa hert á þess-
ari þróun. Við í Félagi
löggiltra endurskoð-
enda höfum hvatt
stjórnvöld til að
hraða þeirri vinnu
sem þessi þróun kall-
ar á. Við höfum boðið
fram krafta okkar til
þeirrar vinnu. Ég skil
Stefán afskaplega
vel. Hann hefur verið
að ræða það í langan
tíma að þarna þurfi
að gera bragarbót á. Í
ljósi þess að hann er
formaður stjórnar
Fjármálaeftirlitsins,
þá skil ég vel afstöðu
hans vel. Hann hefur
verið óþreytandi í því
að benda á hversu seint þetta gangi.
Hins vegar verður að hafa það í huga að ég
held ekki að við séum einhverjum áratugum á
eftir öðrum í þessum efnum. Þetta þarf að ganga
hraðar fyrir sig, þannig að það sé samræmi á
milli þess sem menn kalla góðar reikningsskila-
venjur og góða viðskiptahætti annars vegar og
hins vegar þeirra laga sem við vinnum eftir. Ég
tek heils hugar undir með Stefáni að það þurfi að
hraða þessari vinnu þannig að sem mest sam-
ræmi sé þarna á milli.“ ■
Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra:
Markmið að verða
samferða öðrum
Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir Stef-án Svavarsson taka of djúpt í árinni. „Það
hefur verið unnið að því hér að undanförnu að
leiða í lög tilskipanir frá Evrópusambandinu.
Meðal annars vegna umkvartana eftirlitsstofn-
unar EFTA. Það er frumvarp í þinginu sem
verður vonandi að lögum á næstu vikum, þar
sem gengið er í þá
hluti. Næsta skref
að mínum dómi er
að gera áhlaup að
stöðlum Alþjóða
reikningsskilaráðs-
ins. Evrópulöndin
munu flest ekki taka
upp þá staðla fyrr
en 2005. Okkar
markmið er að taka
staðlana upp þá.
Þetta er hins veg-
ar mikil vinna og
flókið mál. Ég tel
óhjákvæmilegt að
klára fyrst það mál
sem nú liggur fyrir.
Varðandi það að
þessum málum hafi
verið sýnt tómlæti af stjórnvöldum þá tel ég það
nú ekki. Ég harma afsögn Stefáns Svavarssonar
og tel hans skarð vandfyllt. Málið er í áfram-
haldandi vinnslu og við munum auðvitað til-
einka okkur það sem best gerist í þessum efn-
um. Það er eðlileg krafa. Í því felst ákveðin
neytendavernd hér innanlands fyrir þá sem
fjárfesta í hlutafélögum. Að þeir geti treyst því
að ársreikningar fyrirtækja séu sambærilegir.
Það er líka nauðsynlegt vegna þess alþjóðlega
umhverfis sem við störfum í.“ ■
Komdu í dag!ekkertbrudl-
LOKAÐ verður í öllum Bónusverslununum á morgun
vegna vörutalningar
Lokað sunnudag
Fíkniefnavandi
í Mið-Asíu:
Eiturlyf
flæða frá
Afganistan
ÚSBEKISTAN, AP Óheft flæði ólög-
legra eiturlyfja frá Afganistan
hefur haldið áfram þrátt fyrir
stjórnarskiptin í landinu og til-
raunir friðargæslusveita til
þess að stöðva framleiðsluna.
Að sama skapi hefur neysla
fíkniefna í nágrannalöndunum í
Mið-Asíu aukist jafnt og þétt og
alnæmisveiran breiðst hratt út
meðal íbúa.
Það eru einkum heróín og óp-
íum sem valda mönnum áhyggj-
um en þessi lyf fara í gegnum
fyrrum Sovétlýðveldin á svæð-
inu á leið sinni til Evrópu. Nú er
svo komið að þessi lönd íhuga að
ýta ágreiningsefnum sínum til
hliðar og vinna saman að því að
sporna við þessari þróun. ■
Fíkniefni á Ísafirði:
Tveir
teknir með
kannabis
FÍKNIEFNI Tveir karlmenn um þrí-
tugt voru handteknir eftir að
fíkniefni fundust við húsleit
sem gerð var á Ísafirði um há-
degisbilið á fimmtudag. Við hús-
leitina fundust 76 grömm af
kannabisefnum og hafa menn-
irnir viðurkennt að hafa átt efn-
in. Sögðu þeir efnin vera til eig-
in neyslu þrátt fyrir að búið
væri að skipta því upp í litlar
einingar líkt og gert er við sölu-
efni.
Lögreglan á Ísafirði hafði
mennina tvo grunaða um fíkni-
efnaneyslu og dreifingu fíkni-
efna. Var því ákveðið að fram-
kvæmda húsleitina í ljósi þessa.
Auk fíkniefna fundust einnig
tæki og tól til neyslu.
Búið er að sleppa báðum
mönnunum og eiga þeir viðeig-
andi refsingu yfir höfði sér. ■
REIÐUBÚNIR AÐ BEITA NEITUN-
ARVALDI Igor Ivanov, utanríkis-
ráðherra Rúss-
lands, segir Rússa
reiðubúna að beita
neitunarvaldi í ör-
yggisráðinu gegn
tillögum Bandaríkj-
anna og Bretlands
um að heimila inn-
rás í Írak.
PAKISTANAR SEGJA LÍKLEGA JÁ
Pakistanar munu líklega greiða
atkvæði með tillögu Breta og
Bandaríkjamanna um að Írakar
hafi ekki nýtt tækifæri sín til að
afvopnast eins og þeim ber að
gera.
EYÐA ELDFLAUGUM Írakar hefj-
ast í dag handa við að eyða al
Samoud 2 flugskeytum sínum að
kröfu Sameinuðu þjóðanna.
GAGNRÝNA LOFTÁRÁSIR Rússar
gagnrýna Bandaríkjamenn og
Breta fyrir loftárásir sem þeir
hafa gert á flugbannsvæðinu í
Írak. Rússar segja enga ástæðu
fyrir árásunum meðan alþjóða-
samfélagið reynir að leysa Íraks-
deiluna með friðsamlegum hætti.
KOSTNAÐUR ÓLJÓS Það er engin
leið að áætla kostnað við stríð í
Írak sagði Donald
Rumsfeld, varnar-
málaráðherra
Bandaríkjanna,
bandarískum þing-
mönnum. Rumsfeld
segir of mörg atriði
sem geta breyst
hafa mikil áhrif á
útgjöld vegna stríðsins.
LÍTIÐ SAFNAST Hjálparstofnanir
kvarta undan því að illa gangi að
safna fé til að undirbúa aðstoð
við erlenda verkamenn sem flýja
stríð í Írak. Bretland og Banda-
ríkin eru einu ríkin sem hafa lagt
fram fé.
ÍRAKSDEILAN
ÓLÍK SJÓNAMIÐ
Uppgjörsreglur fyr-
irtækja á eftir þróun
Stefán Svavarsson, dósent í viðskiptafræðum, sagði af sér sem
formaður Reikningsskilaráðs. Hann telur hægt ganga að laga reglur
að markmiðum Alþjóða reikningsskilaráðsins.
GÓÐ ARÐSEMI
Kaupþing hefur tekið áhættu í fjárfesting-
um og uppskorið góða ávöxtun. Sjóðum
sem eru í umsjá fyrirtækisins er óheimilt
að taka slíka áhættu.
KAUPÞING OG ÁVÖXTUNIN
FYRIR ÁRIÐ 2002
Hlutabréf í Kaupþingi 2,36%
Arðsemi eigin fjár 32,4%
Ávöxtun skuldabréfasjóða Kaupþings
Einingabréf 7 10,56%
Einingabréf 2 12,82%
Einingabréf 8 11,25%
Einingabréf 11 10,68%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T