Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 10
Ég náði í skottið á mörgum afgullaldarkempunum svoköll-
uðu,“ segir Guðmundur Haralds-
son, fyrrverandi knattspyrnu-
dómari, þegar hann rifjar upp
ferilinn en hann var margsinnis
valinn dómari ársins af Knatt-
spyrnusambandi Íslands. Guð-
mundur varð milliríkjadómari 23
ára og dæmdi marga skemmti-
lega leiki, bæði hjá félagsliðum
og landsliðum. Hann dæmdi með-
al annars leik hjá Liverpool með
Kenny Dalglish innanborðs.
Guðmundur segir fótboltann
hafa breyst mikið frá þeim tíma
þegar hann dæmdi.
„Leikmenn eru til dæmis í
miklu betri þjálfun nú en áður og
miklu meira lagt í æfingar. Fót-
boltinn er líka orðinn mun hrað-
ari og ég held að það séu grimm-
ari návígi í dag en áður. Við sjá-
um oft leiki fara úr böndunum og
leikirnir eru orðnir miklu harð-
ari.“
Guðmundur segir dómara
einnig vera farna að æfa af kappi
en það þótti saga til næsta bæjar
áður fyrr. „Það þótt broslegt þeg-
ar menn voru að byrja en það
þykir sjálfsagt í dag.“
Guðmundur segir að dómara-
starfið sé skemmtilegt fyrir þá
sem hafa gaman af knattspyrnu
og þá sérstaklega ef menn leggi
sig fram.
„Hér áður fyrr þótti það ekki
góður pappír að vera dómari.
Fólk var að furða sig á því að
menn legðu á sig að stunda þetta.
En þetta hefur breyst mikið og
fleiri sem sýna því áhuga að ger-
ast knattspyrnudómari. Álit fólks
hefur líka breyst hins betra,“
segir Guðmundur.
Ólíkt því sem gerist í dag
þurfti Guðmundur oft að borga
með sér þegar hann dæmdi leiki.
„Í dag er þetta ágætlega borgað
en ég missti af þeim tíma. Ég
náði nokkrum árum á launum en
það voru smápeningar, bara
brotabrot af því sem er í dag.
Þetta var ólaunað starf megnið af
mínum ferli.“
Umræður stór hluti af
fótbolta
Guðmundur segist hafa verið
heppinn sem dómari þar sem
hann varð ekki oft fyrir háðsglós-
um áhorfenda eða leikmanna.
„Svona eftir á að hyggja var erfið-
ast þegar ég var að dæma í út-
löndum. Ég þótti svo unglegur í
útliti. Þó ég væri kominn á fimm-
tugs aldurinn fannst þeim alltaf
sem einhver krakki væri kominn
til að dæma. Það var mjög skrýtin
tilfinning en engu að síður
skemmtilegt þegar leik lauk og
menn sáu að ég gat valdið þessu
starfi,“ segir Guðmundur og
kennir þar um frísklegu útliti Ís-
lendinga „Ég fann samt oft að fólk
hefði ekki trú á þessum unga
manni.“
Síðustu ár hefur oft verið rætt
um að taka upp myndbandsupp-
tökubúnað við dómgæslu í knatt-
spyrnu til að skera úr um vafa-
atriði. Guðmundur segist alfarið á
móti því.
„Stærsti hlutinn af knattspyrn-
unni er að diskútera hlutina á eft-
ir. Það yrði skelfilegt til þess að
vita ef þetta yrði vélrænt. Ég
myndi aldrei vilja sjá þetta ger-
ast. Auðvitað getur það verið
ósanngjarnt ef tekið er mark af
liði á rangan hátt. Það er vissulega
sárt en það er hluti af leiknum.
Það hefur aldrei verið sanngirni í
knattspyrnunni. Knattspyrnan er
íhaldssöm íþróttagrein og það
hafa orðið fáar en góðar breyting-
ar í henni.“
Eftirminnilegur lokaleikur
Síðasti leikurinn sem Guð-
mundur dæmdi endaði með því
að hann gaf afar prúðum leik-
manni bæði gult og rautt spjald
án þess að leikmaðurinn hefði
gert nokkuð af sér.
„Þetta var síðasti leikurinn
sem ég dæmdi og mig langaði að
hætta á eftirminnilegan og góðan
hátt,“ útskýrir Guðmundur hlæj-
andi. Hann áritaði bæði gula og
rauða spjaldið, sem hann geymdi
jafnan í vasanum, áður en hann
hóf að dæma leik FH og ÍA sem
var síðasti leikur Íslandsmótsins.
Guðmundur ákvað að grínast
svolítið í Skagamanninum og
prúðmenninu Karli Þórðarsyni,
sem hafði aldrei fengið að líta
spjald á ferli sínum. Guðmundur
brá því á leik þegar skammt var
eftir af leiknum.
„Leiktíminn var liðinn og ann-
að liðið hafði afgerandi forystu.
Ég ákvað því að framlengja að-
eins og bætti við nokkrum mínút-
um,“ segir Guðmundur. Hann
beið síðan eftir að Karl fengi
boltann og þegar það gerðist loks
flautaði hann til merkis um að
stöðva ætti leikinn.
„Karl stóð einn með boltann og
það var ekkert að gerast í kring-
um hann. Ég hljóp til hans og
sýndi honum gula spjaldið og
sagði: „Þetta gengur nú ekki
Kalli minn“. Síðan sýndi ég hon-
um rauða spjaldið. Hann missti
alveg andlitið og sömu sögu var
að segja af miklum skapmönnum
sem voru með honum í liði. Þeir
komu ekki upp orði.“
Þegar Karl áttaði sig loks á
gríninu rétti Guðmundur honum
spjöldin til eignar. Þar hafði hann
skrifað „Loksins náði ég þér
Kalli“ og á rauða spjaldið „Takk
fyrir drengilegan og góðan leik í
gegnum tíðina“.
Þegar Guðmundur hitti síðan
Skagamennina eftir leikinn voru
þeir búnir að skoða kortin og
búnir að fyrirgefa honum synd-
ina stóru.
„Ég minnist þess ekki að hafa
nokkurn tímann sýnt Karli Þórð-
arsyni spjald á ferlinum. Það
kom því vel á vondan,“ segir
Guðmundur hlæjandi.
Heragi á
knattspyrnuvellinum
Prúðmenni sem Karl var eru
vel þekkt. Hinn brasilíski Pele
fékk aldrei spjald á ferlinum og
sömu sögu er að segja af Gary
Lineker, fyrrverandi landsliðs-
fyrirliða Englands. Bobby
Charlton var einnig í þessum
hópi en Guðmund minnir að hann
hafi einu sinni fengið spjald fyrir
slysni.
„Ég man nú ekki eftir mörgum
svona prúðmennum. En einu
sinni dæmdi ég leik Ísraela og
Skota í forkeppni heimsmeistara-
mótsins. Ég hef aldrei kynnst
eins öguðu liði og Ísraelsmönn-
um. Það var sama á hverju gekk,
þeir mótmæltu aldrei. Þeir voru
undir svo miklum heraga að ég
hef aldrei séð annað eins á knatt-
spyrnuvellinum. Þeir höfðu ekki
einu sinni rænu á að mótmæla.
Ég er ekki viss um að þeir hafi
alltaf verið sáttir en þeir létu
aldrei styggðarorð falla.“
Guðmundur segir skemmti-
legra að dæma leiki með lífi og
fjöri í, þótt prúðmannalega leikn-
ir leikir geti einnig verið
skemmtilegir. „Skemmtilegustu
leikirnir eru samt þegar mikið líf
er í áhorfendum og leikmönnum.
Ég fékk mest út úr þeim leikjum
og þá fer adrenalínið af stað.“
kristjan@frettabladid.is
10 1. mars 2003 LAUGARDAGUR
ÍÞRÓTTIR Í DAG
LAUGARDAGUR
12.15 Sýn
Newcastle og Chelsea eigast
við í enska boltanum. Bæði lið
eru í toppbaráttunni.
13.55 RÚV
Fyrsti þátturinn af tíu um Ís-
landsmótið í snjókross er sýnd-
ur í Sjónvarpinu.
14.25 RÚV
Bein útsending frá þýska fót-
boltanum.
16.00 KA-heimilið
KA tekur á móti FH í karla
handboltanum. FH á í harðri
baráttu um að tryggja sér sæti í
átta liða úrslitum.
16.00 DHL-höllin
KR og ÍS mætast í 1. deild
kvenna í körfu. KR-stúlkur eru í
öðru sæti en ÍS í því fimmta.
16.20 RÚV
Bein útsending frá leik Hauka
og Þórs á Íslandsmótinu í
handbolta.
16.30 Íþróttahús Seltjarnarness
Grótta/KR tekur á móti Víkings-
stúlkum í handbolta kvenna.
Víkingur er í fjórða sæti deild-
arinnar en Grótta/KR í því sjö-
unda.
16.30 Ásvellir
Haukar taka á móti Þórsurum í
karlahandboltanum. Haukar
eru í öðru sæti deildarinnar en
Þór í því fimmta.
19.45 Sýn
Alaves og Real Madrid eigast
við í spænska boltanum.
00.00 Sýn
Bardagi Mike
Tyson og Clif-
ford Etienne
verður endur-
sýndur.
SUNNUDAGUR
11.45 Sýn
Ensku meistararnir í Arsenal
taka á móti Charlton.
13.55 Sýn
Bein útsending frá úrslitaleik
Liverpool og Manchester
United í deildarbikarnum.
14.00 Vestmannaeyjar
Eyjastúlkur eru ósigraðar á Ís-
landsmótinu í handbolta. Þær
taka á móti botnliði Fram.
17.00 Ásvellir
Haukastúlkur mæta Keflavík í
1. deild kvenna í körfu. Haukar
eru neðstir í deildinni en Kefla-
víkurstúlkur efstar.
19.15 Borgarnes
Skallagrímur og Hamar, tvö
neðstu lið úrvalsdeildar karla í
körfu, mætast.
19.15 DHL-höllin
Stórleikur í úrvalsdeild karla
þegar KR og Njarðvík mætast.
19.15 Sauðárkrókur
Tindastóll tekur á móti Val,
neðsta liðið úrvalsdeildar
karla, á Sauðárkróki.
19.15 Smárinn
Breiðablik á í harðri baráttu
um að tryggja sæti sitt í 8-liða
úrslitum. Kópavogsbúar taka á
móti Keflvíkingum.
19.15 Stykkishólmur
Snæfell og ÍR eru á svipuðu róli
í deildinni og mætast í dag.
Stigin skipta miklu máli fyrir
úrslitakeppnina.
20.00 Ásvellir
Nýkrýndir bikarmeistarar kven-
na í handbolta, Haukar, taka á
móti sameinuðu liði Fylkis/ÍR.
20.00 Víkin
Neðsta lið karladeildarinnar í
handbolta, Víkingur, tekur á
móti Stjörnunni sem er í ellefta
sæti.
22.05 RÚV
Í Helgarsportinu verður sýnt frá
helstu íþróttaviðburðum helg-
arinnar.
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
v
e
rð
i.
..
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
VIÐ RÝMUM FYRIR NÝJUM GERÐUM OG BJÓÐUM
BAÐINNRÉTTINGAR Á BOTNVERÐI
120 cm innrétting
(5 skápar, höldur, ljósakappi
með 3 halogenljósum,
borðplata og spegill)
Botnverð 59.900,-
90 cm innrétting
(3 skápar, höldur, ljósakappi
með 3 halogenljósum,
vaskborðplata og spegill)
Botnverð 65.900,-
150 cm innrétting
(4 skápar, 2 hillur, höldur,
ljósakappi með 3 halogen-
ljósum, borðplata og spegill)
Botnverð 72.900,-
Við þökkum viðskiptavinum frábærar viðtökur við tilboði okkar
og höfum þá ánægju að tilkynna, að við getum framlengt það
um örfáa daga, en nú eru síðustu forvöð.
TILBOÐINU LÝKUR 8. MARS (og verður ekki framlengt aftur)
Þakkaði fyrir drengilegan
leik með rauðu spjaldi
Guðmundur Haraldsson, fyrrverandi knattspyrnudómari úr KR, hóf að blása í flautuna árið
1960 og lagði hana ekki frá sér fyrr en 30 árum seinna. Síðasti leikurinn sem Guðmundur
dæmdi endaði með því að hann gaf afar prúðum leikmanni bæði gult og rautt spjald án þess
að leikmaðurinn hefði gert nokkuð af sér.
GUÐMUNDUR HARALDSSON
Starfar nú í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann segist hafa tekið lítinn hvítan bolta fram yfir
fótboltann og hefur verið formaður Golfklúbbs Bakkakots í fjögur ár. „Nú horfi ég bara á
fótboltann úr fjarlægð,“ segir Guðmundur.