Fréttablaðið - 01.03.2003, Síða 12
12 1. mars 2003 LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTI Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra vissi um tilvist Jóns
Geralds Sullenberger, forráða-
manns Nordica, í ársbyrjun 2002,
sjö mánuðum áður en lögreglu-
innrás var gerð í Baug þann 28.
ágúst síðastliðinn. Þetta kom
fram í samtölum Hreins Lofts-
sonar, þáverandi formanns einka-
væðingarnefndar og stjórnarfor-
manns Baugs, við aðra stjórnar-
menn í Baugi og tölvupóstum og
bréfi sem Hreinn sendi frá sér
eftir fund sem hann átti með for-
sætisráðherra í London 26. janú-
ar 2002. Hreinn lýsti því fyrir
stjórnendum Baugs og helstu
samstarfsmönnum sínum í stjórn
félagsins að forsætisráðherra
hefði í London haft uppi stór orð
um þá spillingu sem ráðherrann
taldi eiga sér stað innan Baugs í
kringum feðgana Jón Ásgeir Jó-
hannesson, forstjóra Baugs, og
Jóhannes Jónsson stjórnarmann.
Hreinn sagði að Davíð hefði þar
nafngreint Jón „Gerhard“ og fyr-
irtækið Nordica, sem ætti í
vafasömum viðskiptum við Baug.
Hreinn taldi að aðgerða gegn
Baugi af hendi yfirvalda gæti
verið að vænta. Þetta gengur
þvert á yfirlýsingar forsætisráð-
herra ári síðar þegar hann kveðst
ekki hafa heyrt minnst á Jón Ger-
ald Sullenberger fyrr en eftir að
lögreglurannsókn á Baugi hófst
þann 28. ágúst 2002 með innrás
lögreglu vegna kæru Jóns Ger-
alds. Í þeim aðgerðum var
Tryggvi Jónsson, aðstoðarfor-
stjóri Baugs, handtekinn.
Afsögn Hreins
Lundúnafundur Davíðs og
Hreins var að frumkvæði þess
síðarnefnda í framhaldi af þing-
ræðu Davíðs þar sem hann í utan-
dagskrárumræðum um horfur í
efnhagsmálum þann 22. janúar
2002 fór óvægnum orðum um
fyrirtæki sem ráðherrann taldi
að misnotaði sér markaðsráðandi
stöðu sína. Davíð tók þar undir
með Össuri Skarphéðinssyni, for-
manni Samfylkingarinnar, sem
sagði meðal annars: „Stóru keðj-
urnar hafa í skjóli einokunar
keyrt upp matarverð“.
Össur hélt síðan áfram og
brýndi Davíð Oddsson á því að
það ættu að vera hæg heimatökin
hjá ríkisstjórninni að knýja fram
breytingar þar sem Hreinn Lofts-
son, stjórnarformaður Baugs,
væri einn helsti trúnaðarmaður
ríkisstjórnarinnar. Davíð kom þá
í ræðustól og svaraði Össuri á al-
mennum nótum en vék ekki orði
að Baugi. Össur kom öðru sinni í
ræðustól og spurði þá af hverju
ríkisstjórnin færi ekki sömu
leið og verkalýðshreyf-
ingin og „talaði niður
þessa einokun“.
Davíð kom þá öðru
sinni upp og þar
féll sprengjan.
Hann lýsti því að 60 prósenta
eignaraðild að matvælakeðjum á
markaði væri „alltof há hlut-
deild“. Þá lýsti forsætisráðherra
því að sú staða væri uggvænleg
og „sérstaklega þegar menn beita
ekki því mikla valdi sem þeir
hafa þar af skynsemi. Auðvitað
hlýtur að koma til greina af hálfu
ríkisins að skipta upp slíkum
eignum ef þær eru misnotaðar“.
Hreinn Loftsson svaraði Dav-
íð Oddssyni í Morgunblaðinu
daginn eftir og sagðist trúa því
„að við búum í réttarríki“. Jafn-
framt sagði hann að með tilliti til
þess væri ekki hægt að ganga að
Baugi „á grundvelli órökstuddra
sögusagna um misnotkun að-
stöðu“.
Hreinn óskaði þá eftir fundi
og vildi fá skýringar forsætisráð-
herra og jafnframt að segja af
sér í einkavæðingarnefnd
vegna ummælanna.
Davíð féllst á að
hitta hann á hót-
eli í London
l a u g a r d a g -
inn 26. janú-
ar, viku eftir
að ummælin
féllu, þar
sem Davíð
féllst á af-
sögn Hreins
en bað hann
að sitja um
tíma áfram. Strax á mánudegin-
um við heimkomuna hélt Hreinn
fund í einkavæðingarnefnd þar
sem hann tilkynnti nefndinni af-
sögn sína og
lagði fram
b r é f
þ a r
að lútandi.
Á þriðjudeginum 29.
janúar átti Hreinn fundi
með helstu stjórnendum
Baugs þar sem hann
spurðist fyrir um Nor-
dica og Jón „Gerhard“ og
sagðist hafa „fengið
sjokk“ þegar Davíð hóf
að reifa álit sitt á Baugs-
mönnum, siðferði þeirra
og tengslum við Nordica.
Jafnframt lýsti Hreinn
því að hann teldi aðeins
vera tímaspursmál
hvenær lögregla, skatta-
yfirvöld eða samkeppnis-
yfirvöld legðu til atlögu við
Baug. Á þeim fundi sátu Jón Ás-
geir Jóhannesson, Tryggvi Jóns-
son og Hreinn. Jón Ásgeir sagði
við Fréttablaðið að hann gæti
staðfest það eitt að Hreinn hefði
gert stjórn Baugs grein fyrir
fundinum með Davíð þar
sem Jón Gerald Sullen-
berger hefði borið á
góma.
Sama dag sendi
Hreinn tölvupóst til
helstu stjórnenda
Baugs þar sem hann
lýsti því að „mikil
harka væri í umhverf-
inu“ . Þá varaði hann
við því að vænta mætti
aðgerða yfirvalda
gagnvart fyrirtækinu
og lagði að mönnum að
gæta þess vel að aðhafast
ekkert það í rekstrin-
um sem gæfi
höggstað á félaginu. „Það er ver-
ið að brýna samkeppnisyfirvöld
til einhvers konar aðgerða gagn-
vart félaginu,“ segir í tölvupóst-
inum. Þá sendi Hreinn fyrir-
spurnir sínar til endurskoðanda
Baugs þar sem hann spurði um
samskipti fyrirtækisins við aðila
innanlands og erlendis .
Stjórnarfundur
ræddi Davíð
Hreinn Loftsson, sem um ára-
bil var náinn samstarfsmaður
Davíðs og meðal annars aðstoðar-
maður hans frá árinu 1991, ræddi
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins opinskátt við stjórnar-
menn í Baugi um fundinn með
forsætisráðherra. Á þeim tíma
lýsti Hreinn því að hann hefði
aldrei fyrr heyrt minnst á Nor-
dica eða Jón Gerhard. Óttinn við
aðgerðir forsætisráðherra var
ræddur innan stjórnar Baugs
þann 14. febrúar 2002 og færður
til bókar. Þar lýstu stjórnarmenn
áhyggjum sínum vegna þeirrar
andúðar sem Davíð var sagður
hafa á fyrirtækinu.
Þorgeir Baldursson, stjórnar-
maður og formaður fjáröflunar-
nefndar Sjálfstæðisflokksins,
sagði á fundinum að „valdamiklir
aðilar í viðskiptalífinu hefðu
miklar áhyggjur af framgöngu
Davíðs“. Tryggvi Jónsson aðstoð-
arframkvæmdastjóri sagði að
vegna þess að Nordica hefði ver-
ið nefnt í tengslum við Baug gæti
hann upplýst að Baugur ætti ekki
í miklum viðskiptum við það fyr-
irtæki. Reyndar væri Nordica á
fallanda fæti. Á sama fundi sagði
Guðfinna S. Bjarnadóttir, stjórn-
armaður og rektor Háskólans í
Reykjavík, að þrátt fyrir að for-
sætisráðherra væri valdamikill
stæði almenningur í landinu með
Baugi.
Hreinn Loftsson lét eftir
Lundúnafundinn fara fram ítar-
lega úttekt á rekstri Baugs til
þess að fyrirtækið yrði viðbúið
hvers konar rannsókn yfirvalda.
Innan fyrirtækja Baugs var
kallað eftir skýrslum um það
Hreinn Loftsson hitti Davíð Oddsson í London átta mánuðum fyrir „lögregluinnrásina“ í Baug, til að segja af sér í einkavæðingarnefnd.
Hreinn lýsti því við heimkomuna að forsætisráðherra hefði talað um Jón „Gerhard“ Sullenberger en ári síðar þrætti Davíð fyrir vit-
neskju um Sullenberger. Stjórnarformaður sendi samherjum í Baugi aðvörun eftir fundinn með Davíð.
Forsætisráðherra sagður
hafa vitað af Sullenberger
DAVÍÐ ODDSSON
Nefndi Jón Gerald Sullen-
berger á fundinum með
Hreini en þrætti ári síðar fyrir
að hafa heyrt minnst á hann.
FUNDARGERÐ Í FEBRÚAR
Á stjórnarfundi í febrúar sveif ótti við aðgerðir forsætisráðherra yfir vötnum. Hreinn Loftsson ræddi þar
um yfirvofandi aðgerðir sem hann taldi eftir fundinn með Davíð að mætti vænta af hendi yfirvalda.