Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.03.2003, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 01.03.2003, Qupperneq 14
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-anna var frá upphafi hugsað sem valdamesta stofnun alþjóða- samfélagsins, stofnun sem ætti að tryggja friðsamleg samskipti eft- ir að heimurinn hafði gengið í gegnum tvær heimsstyrjaldir á 30 árum. Lengst af stóð ráðið ekki undir þeim væntingum. Á tímum kalda stríðsins leiddi stórvelda- slagur Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna til þess að öryggisráðið var máttlítil stofnun þar sem neit- unarvald fimm varanlegra aðila að ráðinu kom í veg fyrir sam- þykkt fjölda ályktana sem hent- uðu ekki öðrum hvorum deiluaðil- anum. Eftir áratug þar sem vegur ör- yggisráðsins fór vaxandi virðist bakslag hlaupið í vöxt þess. Deil- urnar um Írak hafa sýnt veikleika sérhverrar yfirstjórnar í alþjóða- málum. Völd öryggisráðsins Öryggisráðið getur með álykt- unum sínum krafist þess að þjóðir leysi deilur sínar með friðsamleg- um hætti og fari að alþjóðalögum. Þá getur það samþykkt með sama hætti að beita ríki viðskiptaþving- unum eða heimilað hernaðaríhlut- un til að tryggja að fyrirmælum sem birtast í ályktunum þess sé framfylgt. Öryggisráðið getur samþykkt að senda friðargæslu- sveitir á óróasvæði til að tryggja frið og stöðugleika. Öryggisráðið getur lagt til við þing Sameinuðu þjóðanna að nýj- ar þjóðir fái aðild að samtökunum. Gerist ríki ítrekað sekt um að brjóta gegn samþykktum ráðsins getur það lagt til við þing Samein- uðu þjóðanna að ríkið verði svipt réttindum sínum sem aðildarríkis eða vikið úr Sameinuðu þjóðun- um. Tíu sæti til skiptanna Valdið er sem fyrr mest hjá þeim ríkjum sem eru varanlegir aðilar að öryggisráðinu, Banda- ríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Kína og Rússlandi. Auk þeirra sitja tíu ríki í ráðinu og er kjör- tímabil hvers og eins tvö ár. Skipt er um aðildarríki á hverju ári, fimm í einu. Til að samþykkja ályktanir þarf atkvæði níu aðild- arríkja, að því gefnu að enginn varanlegu aðilanna beiti neitunar- valdi til að stöðva ályktunina. Aðildarríkin skiptast á um að stýra fundum öryggisráðsins. Hvert um sig stýrir fundum ráðs- ins í mánuð í senn og ræðst upp- röðunin af röðun ríkjanna í staf- rófsröð samkvæmt ensku heiti þeirra. Þjóðverjar stýrðu fundum ráðsins í febrúar en Afríkuríkið Gínea stýrir fundum þess í mars þegar búast má við átakafundum um hvort hervaldi skuli beitt nú eða vopnaeftirlitsmönnum og Íraksstjórn gefinn lengri frestur. Þó höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna séu í New York hefur það gerst að öryggisráðið hafi fundað annars staðar. 1972 fund- aði það í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, og ári síðar var fundur þess haldinn í Panama. Ályktanir Sameinuðu þjóð- anna Á 57 árum hefur öryggisráðið samþykkt 1465 ályktanir. Meðal þeirra helstu má nefna ályktun 83 frá 27. júlí 1950 þar sem aðildar- ríki Sameinuðu þjóðanna voru hvött til að veita Suður-Kóreu alla nauðsynlega árás til að hrinda innrás Norður-Kóreumanna og ályktun 678 frá 29. nóvember 1990 þar sem heimilað var að beita öll- um leiðum til að framfylgja fyrri ályktun ráðsins um að Írakar skyldu hverfa frá Írak. Íslendingar kunna að hafa áhuga á 8. ályktun öryggisráðsins sem samþykkt var á 55. fundi þess, 28. ágúst 1946. Þar var samþykkt að mæla með því við þing Sameinuðu þjóð- anna að Ísland, auk Svíþjóðar og Afganistan, fengi aðild að félags- skapnum. Tíu þjóð- ir voru þessu sam- þykkar en sú ell- efta, Ástralía, sat hjá. Albanía, Írland, Mongólía, Portúgal, Síam og Transjó- rdanía höfðu líka sótt um aðild en þurftu að bíða leng- ur eftir að fá inni. Aldrei virkara en nú Öryggisráðið hefur aldrei ver- ið virkara en núna, segir Stefán Skjaldarson, skrifstofustjóri al- þjóðaskrifstofu utanríkisráðu- neytisins. Þrátt fyrir að aðildar- ríki þess deili um hvort beita eigi hervaldi nú eða gefa meiri tíma til vopnaeftirlits segir hann þær deilur ekkert í líkingu við ástand- ið eins og það var á tímum kalda stríðsins. „Þá voru öll mál í raun og veru stoppuð ýmist af Sovét- ríkjunum, Kína eða Bandaríkjun- um með neitunarvaldi. Það var meira og minna lamað allt kalda stríðið.“ Á þessum tíma snerust flest mál upp í baráttu stórveldanna, austurs og vesturs. Eftir lok kalda stríðsins segir Stefán að áhrif minni ríkja hafi aukist mjög og jafnframt þörf þeirra fyrir að berjast af auknum krafti fyrir eigin málum. Þetta spili meðal annars inn í að Ísland sæk- ist nú eftir sæti í öryggisráðinu. brynjolfur@frettabladid.is 14 1. mars 2003 LAUGARDAGUR aðeins tveir dagar eftir! milli kl. 10 og 19 og á morgun Aðeins í dag Kópavogi: Smáralind, sími 562 9701. Akureyri: Hafnarstræti 91-93, 2. hæð, sími 663 1224. Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda h in n e in i s an ni bók amarkaður S ÍÐ U S T U fo rvö ð ótrúlegt verð Íslensk stjórnvöld undirbúa núframboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í fyrsta skipti og stefna að því að eiga sæti í ráð- inu árin 2009 og 2010. Kosið verður um fimm sæti í ráðinu haustið 2008 og verður Ís- land frambjóðandi Norður- landa. Óvíst er hvort kjósa þurfi á milli ríkja um sætin sem þá verða í boði. Eins og staðan er í dag verða fram- boð jafn mörg og sætin sem eru í boði. Stefán Skjaldar- son, skrifstofustjóri al- þjóðaskrifstofu utanríkis- ráðuneytisins, segir að samt verði unnið út frá því að um fleiri framboð kunni að vera að ræða og reynt að tryggja sem besta kosningu. Eins hafi fasta- nefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóð- unum verið efld og hún verði efld enn frekar til að takast á við verk- efni sem fylgja setu í öryggisráðinu. Halldór Ás- grímsson utanríkis- ráðherra lýsti ástæðunum að baki framboði til örygg- isráðsins í þing- ræðu á fimmtudag. „Full þátttaka er forsenda áhrifa. Ekki gengur lengur að standa utan við og fylgjast aðeins með,“ sagði Hall- dór og bætti við: „Við höldum hvorki áhrifum né virðingu um- heimsins án virkrar þátttöku. Smæð og fámenni ríkja eru ekki lengur brúkleg rök til hjásetu eða til að halda sig til hlés í ölduróti alþjóðamála.“ Það hefur stundum komið til umræðu að Ísland taki sæti í öryggisráðinu þó ekki hafi verið reynt á það fyrr en nú. Það var helst í utanríkisráðherratíð Geirs Hallgrímssonar á áttunda áratugnum að það var rætt af einhverri al- vöru. Það var í þeirri ríkis- stjórn sem Halldórs Ás- grímsson gegndi fyrst ráð- herradómi. ■ VOPNAEFTIRLITIÐ Í ÍRAK Vopnaeftirlitssveitir Sameinuðu þjóðanna, UNMOVIC, voru sett- ar á fót með samþykkt öryggisráðsins númer 1284 17. desem- ber 1999. Sveitirnar komu í stað sérstakrar sendinefndar Sam- einuðu þjóðanna með það að markmiði að sjá til þess að farið yrði að kröfum um afvopnun Íraka. AÐILDARRÍKI ÖRYGGISRÁÐSINS Ríki Lok kjörtímabils Angóla 31. desember 2004 Bandaríkin Varanlegur aðili Bretland Varanlegur aðili Búlgaría 31. desember 2003 Chile 31. desember 2004 Frakkland Varanlegur aðili Gínea 31. desember 2003 Kamerún 31. desember 2003 Kína Varanlegur aðili Mexíkó 31. desember 2003 Pakistan 31. desember 2004 Rússland Varanlegur aðili Spánn 31. desember 2004 Sýrland 31. desember 2003 Þýskaland 31. desember 2004 Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna var sett á fót til að tryggja frið og öryggi í heiminum. Stofnunin sem átti að virka þrátt fyrir deilur ríkja heims var lömuð um áratugaskeið á tímum kalda stríðsins áður en hún átti blómaskeið sitt undir lok 20. aldar. Völd og vandamál öryggisráðsins GEIR HALL- GRÍMSSON Aðild Íslands að öryggisráðinu var fyrst rædd af al- vöru í utanríkisráð- herratíð Geirs. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Íslendingar sækj- ast í fyrsta skipti eftir sæti í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna. Ísland sækist eftir sæti í öryggisráðinu: Full þátttaka forsenda áhrifa FUNDAÐ Í ÖRYGGISRÁÐINU Þó bekkurinn sé stundum þétt setinn á fundum öryggisráðsins þegar mikið liggur við er algengara að ófá sæti séu auð meðan rætt er um mál sem þykja ekki jafn mikilvæg.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.