Fréttablaðið - 01.03.2003, Síða 22

Fréttablaðið - 01.03.2003, Síða 22
Móðir mín var mikið á fjöllumog ég fékk þetta nafn út af tengslum hennar við náttúruna,“ segir Jökull Bergmann fjallaleið- sögumaður. Jökull hefur þrátt fyrir ungan aldur starfað við fjallamennsku um árabil. Hann er 27 ára gamall sveitastrákur upp- alinn á bænum Klængshóli í Skíðadal á Tröllaskaga. Fjalla- mennska er hans líf og yndi þrátt fyrir að hann hafi í tvígang verið nær dauða en lífi við fjalla- mennskuna. Jökull byrjaði að stunda fjalla- mennsku og klifur fyrir rúmum tíu árum. Hann steig sín fyrstu skref á fjöllum þegar hann gekk til liðs við Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur árið 1992. Fljótlega upp úr því fór Jökull að reyna fyrir sér í erfiðari leiðum. Hann hefur klifið fjöll um víða veröld; í Evrópu, Afríku, Amer- íku og Asíu. Jökull segist þó ekki leitast við að komast sem hæst. Þess í stað vill hann klifra eins erfiðar leiðir og kostur er. „Í tæknilegri klifurmennsku ertu að fást við erfiðleika og þá eru það leiðirnar sem skipta máli ekki tindarnir sem þú kemst á. Sama hvort það er kletta- eða ísklifur reyni ég að finna eins erfiða leið og ég treysti mér til að klifra. Það geta verið mislangar leiðir, allt frá 50 metrum upp í 1500 metra,“ segir Jökull. Jökull segir að fjallamennska reyni ekki síður á andlegu hliðina en þá líkamlegu. „Þetta er spurn- ing um ákveðni og að þora, treysta sjálfum sér og þekkja tak- mörk sín. Allt sem kemur með reynslunni. Þegar fólk byrjar að fara á fjöll reynir það bara á lík- amlegu hliðina. Síðan byggir það upp reynslu og þá koma meiri pælingar. Þá er fólk orðið reynd- ara og minni líkur á að það slasi sig. Ég er að vísu undantekningin sem sannar regluna.“ Nær dauða en lífi Jökull hefur tvisvar verið nær dauða en lífi eftir slys við klifuriðkun sína. Fyrra slysið átti sér stað þegar hann var 17 ára. Þá mölbraut hann á sér annan fótinn eftir að hafa hrapað tæpa 40 metra í ísfossi í Blikadal í Esjunni, þar sem hann var að klifra ásamt fé- laga sínum. Blikadalur er í ellefu kílómetra loftlínu frá Borgarspítalanum. Það tók engu að síður tólf klukkutíma að koma Jökli á spítalann. „Félagi minn fór að sækja hjálp en áður en hann fór grófum við snjóhús í jörðina sem ég beið í. Þeg- ar ég var búinn að bíða í sex tíma var ég hættur að vera dofinn í fæt- inum og farinn að ofkælast. Síðan ágerðist ofkælingin og ég var við það að kveðja þennan heim. Þá átt- aði ég mig á því að það var ekki góð hugmynd að hanga ofan í holunni.“ Jökull ákvað því að skríða af stað og reyna að ná upp hita. Átök- in voru mikil og fljótlega fór lík- amshitinn hækkandi. Ferðin tók nokkrar klukkustundir áður en björgunarsveitin fann hann. „Það var kannski það erfiðasta við þetta allt saman að draga sig niður dalinn. Ég var hættur að vera dofinn í fætinum. Þegar þarna var komið sögu var ég kominn á svo al- varlegt stig ofkælingar að ég hugs- aði ekki heila hugsun. Ég var með gríðarlegar ofskynjanir, sá alls konar fólk í kringum mig, lifandi og dáið, þyrlur, bíla, flugvélar og ég veit ekki hvað og hvað. Svo heyrði ég líka alls konar furðuleg hljóð. Sársaukinn í fætinum var orðinn það mikill að það leið yfir mig reglulega. Ég rankaði við mér annað slagið með andlitið á kafi í snjó. Þá hafði ég rekið fótinn í og leið út af vegna sársaukans. Í raun skreið ég í mig líf. Ef ég hefði ekki farið af stað hefði líkamshitinn verið kominn langt niður fyrir hættumörk og heilastarfsemin hefði verið orðin biluð.“ Björgunarsveitarmenn komu loks á staðinn og var Jökull fluttur með hraði á Borgarspítalann. Jök- ull segist búa yfir undarlegri lík- amsstarfsemi og virðist vera fljót- ari að jafna sig en aðrir. Það fór ekki nema eitt ár í endurhæfingu. Áhugamálið verður að atvinnu Jökull segir lífsreynsluna í Blikadal hafa opnað augu hans. Ólíkt því sem margir héldu hætti hann ekki klifrinu heldur fann til- ganginn með því. „Þetta hafði þveröfug áhrif á mig. Ég varð enn einbeittari og ákveðnari. Frá þeim tíma hefur markið alltaf verið upp á við í fjallamennsku. Þá ákvað ég líka að fjallamennska væri lífið og ég vildi hætta að stunda hana sem áhuga- mál.“ Jökull ákvað því að reyna að vinna fyrir sér með fjallamennskunni og segir tvær leiðir til þess. Annars vegar sem fjalla- l e i ð s ö g u m a ð u r, eins og hann gerir nú, eða sem at- vinnufjallamaður sem fær borgað fyrir að klífa fjöll. „Þá þarf maður að vera rosalega góður og sterkur í því sem maður ger- ir og hafa aðstæður til að afla sér peninga. Það er hins vegar ákaflega erfitt hér heima þar sem fjallamennska er ekki mjög stórt mál. Í Frakklandi aftur á móti eru fjórar milljónir manna í Franska alpaklúbbnum og þar vita allir hvað klifur gengur út á. Fólk fær meira að segja einingar í menntaskóla eftir því hvað það get- ur klifrað mikið.“ Jökull hefur flakkað á milli Ís- lands og Frakklands síðustu ár. Hann starfar sem leiðsögumaður hér en stundar fjallaklifur og skíði ytra. „Þannig náði ég takmarkinu mínu að einhverju leyti með því að hafa atvinnu af fjöllunum.“ Hálsbrotnaði í snjóflóði Jökull lenti í öðru slysi í janúar í fyrra. Þá lenti hann í snjóflóði í Skíðadal þar sem hann hugðist fara í ísklifur ásamt tveimur félögum sínum. „Það hafa margir gert grín að því að ég sé eini maðurinn sem lendi í snjóflóði á algjörlega snjó- lausum vetri,“ segir Jökull. „Á leiðinni þurftum við að fara yfir nokkurs konar skál sem var um 20 metrar á breidd og 20 metr- ar á hæð. Mér leist ekki á skaflinn sem var þar og bað félaga mína að hinkra á meðan ég athugaði hversu traustur hann væri. Snjórinn náði mér upp að hnjám og ég var búinn að taka nokkur skref inn á skaflinn þegar hann fór af stað,“ segir Jök- ull. Snjórinn var blautur og þungur og var á skömmum tíma kominn á mikla ferð. Jökull gat sig hvergi hrært og þaut niður með skaflin- um. Lítill snjór var á svæðinu og fór hann 400 metra yfir urð og grjót. „Þegar ég loks stöðvaðist fann ég að ég var hálsbrotinn, snúinn á báðum ökklum, ísöxin á kafi í löpp- inni á mér, ég var rifbeinsbrotinn, viðbeinsbrotinn, handleggs- og oln- bogabrotinn og blæddi eins og stungnum grís. Höfuðleðrið flettist líka nánast af mér. Sigurbjörn fé- lagi minn er sem betur fer með lít- ið höfuð þannig að hann tók húfuna af sér, slétti höfuðleðrið á mér og setti húfuna á. Það voru fyrstu sárabindin sem ég fékk.“ Félagi Jökuls útbjó einnig kraga um hálsinn á honum. Hann ákvað að ganga niður fjallið með aðstoð félaga sinna. Þegar þeir voru komnir langleiðina niður mættu þeir björgunarsveitinni frá Dalvík sem flutti hann á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri. Þaðan var flogið með hann til Reykjavíkur. Þótt ótrúlegt megi virðast tók það Jökul ekki nema þrjá mánuði að jafna sig. Að þeim tíma loknum var hann aftur farinn að renna sér á skíðum og klífa fjöll. „Batahraðinn hjá mér er ógn- vænlegur. Hálf furðulegur. Margir vilja meina að ég sé einhvers konar leyniverkefni hjá Kára Stefáns- syni,“ segir Jökull hlæjandi. Ekki fjölskylduvænt starf Jökull hóf nám við Menntaskól- ann í Hamrahlíð en lauk ekki prófi þaðan. Hann var þegar búinn að ákveða að hefðbundið bóknám ætti ekki við hann og tók fjallamennsk- una fram yfir. Jökull hefur í gegnum tíðina verið laus og liðugur. Hann segir það hvorki einfalt né auðvelt að vera náinn aðstandandi fjallaklif- ursmanns. Móðir hans hefur þó alltaf sýnt honum skilning og hvatt hann til dáða. „Ég varð nú þeirrar gæfu að- njótandi að kynn- ast afskaplega yndislegri mann- eskju rétt áður en ég hálsbrotnaði. Það vildi svo vel til að hún er sjúkra- liði. Ég fékk því mjög fagmannlega umönnun á meðan ég var að jafna mig,“ segir Jökull um kærustu sína, Sunnu Björk Bragadóttur, sem er Dalvíkingur. „Hún fékk þetta beint í æð þegar við vorum að kynnast þannig að hún er ekkert að stressa sig þó ég fari að klifra. Hún er búin að sjá það versta.“ kristjan@frettabladid.is 22 1. mars 2003 LAUGARDAGUR Jökull Bergmann hefur lifað af tvö alvarleg slys. Hann féll niður 40 metra, mölbraut á sér fótinn og þurfti að bíða í tólf tíma eftir hjálp. Seinna hálsbrotnaði hann í snjóflóði en gekk til byggða. * Koffín Eykur orku og fitubrennslu. * Hýdroxísítrussýra Minnkar framleiðslu fitu. * Sítrusárantíum Breytir fitu í orku. * Króm pikkólínat Jafnar blóðsykur og minnkar nart. * Eplapektín Minnkar lyst. * L-Carnitine Gengur á fituforða. BYLTING Í FITUBRENNSLU! - ÖFLUGAR BRENNSLUTÖFLUR Perfect bu rner töflu r 90 stk. Hagkvæm ustu kaup in! Söluaðilar: Hagkaupsverslanir, Heilsuhúsið, Hreysti, Lyfjuverslanir og helstu líkamsræktarstöðvar. Perfect burner er því lausnin á því að tapa þyngd á árangursríkan, skynsaman og endingagóðan hátt. WWW.ISALP.IS Jökull hefur stundað fjallaklifur í rúm tíu ár. Hann lítur ekki lengur á það sem áhugamál heldur lífsstíl. MÓTMÆLI Jökull er harður andstæðingur virkjun- ar við Kárahnjúka. Hann á erfitt með að þola hvað Íslendingar láta vaða yfir sig enda hefur hann kynnst róttækum mótmælaaðgerðum í Frakklandi. JÖKULL BERGMANN Jökull hefur staðið að uppbyggingu ferða- þjónustu á Tröllaskaga í samvinnu við ferðaskrifstof- una Fjallabak. Þar rekur hann gistiheimili ásamt móð- ur sinni Önnu Dóru Hermanns- dóttur og manni hennar Erni Arngrímssyni. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELMHálsbrotinn með hangandi höfuðleður

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.