Fréttablaðið - 01.03.2003, Side 24

Fréttablaðið - 01.03.2003, Side 24
Svo virðist vera að fólk vilji frek-ar skera sig úr hópnum í dag en að hverfa inn í hann. Föt í áberandi litum eru að verða vinsælli og breiddin í klæðaburði að aukast. Lit- ir hafa ekki verið svona skærir síð- an á miðjum níunda áratugnum, á þeim tíma þegar diskótek með útfjólublárri lýsingu voru það skemmtilegasta sem til var. Svartur, grár og pastellitirnir eru á undanhaldi og svo virðist vera að kaupandinn geri auknar kröfur um að föt séu einstök og ekki fjölda- framleidd í massavís. Íslensk ungmennatíska er að fyllast af áhrifum frá Bandaríkjun- um eins og sést best í auknum „götuklæðnaði“ fatabúðanna. Hettupeysur, hermannaföt og íþróttaskór sem eiga rætur sínar að rekja til hiphopmenningarinnar á strætum New York borgar eru orðnin daglegt brauð á þröngu litlu göngustígunum við lágu húsin í Reykjavík. Tískan virðist vera að færast nær uppruna sínum því svitabönd, á borð við þau er voru vinsæl á meðal breakdansara á ní- unda áratugnum, eru komin aftur í tísku. Converse-skór eru skyldu- eign í sumar. Dökkar gallabuxur, litríkir skór og toppur Í verslunina Deres í Kringl- una sækja aðallega unglingar og fólk upp að þrítugu. Elstu kúnn- arnir muna því vel eftir jogging- göllum, svitaböndum og Con- verse-skóm breaktímabilsins. Í dag ganga menn sjálfviljug- ir í bómullarhettupeysum, con- verse-skóm og íhuga jafnvel að renna svitabandi upp á úlnliðinn. „Hingað til hefur það bara ver- ið viss hópur sem klæddi sig svona,“ segir Valþór R. Sverrisson, aðstoðarverslunarstjóri Deres. „Í dag eru allir komnir í þetta. En þetta eru ekki svona stórar og miklar hettupeysur eins og áður fyrr, heldur litlar og þröngar. Þeim svipar líka til gamla breaktíma- bilsins.“ Í skóm segir Valþór að gömlu Converse-skórnir séu hvað vinsæl- astir þessa dagana. „Kvenskórnir eru svo með oddatá og eru flestir í skærum litum. Það eru aðallega lágir skór og þeir koma í bleikum og jafnvel appelsínugulum.“ Þegar vel er að gáð virðist af- greiðslufólk í fatabúðum sammála því að sumarið verði óvenju litríkt í ár. Valþór segir að í Deres séu þeir toppar sem berast inn í skær- um, æpandi litum. Neonblár, rauð- ur, appelsínugulur og grænn. Með því standa gallabuxurnar enn fyrir sínu. Deres státar af því að hafa stærsta úrval gallabuxna á landinu. Í búðinni fást buxur frá Levi’s, Diesel, Wrangler og Lee. Snjáðar buxur virðast ætla að vera vinsælar áfram út sumarið og seg- ir Valþór að erfitt sé að fá buxur í dag sem eru ekki fyrirfram snjáð- ar. „Sniðin eru lág í mitti, í herra- og sérstaklega í dömusniðunum,“ útskýrir hann. „Sniðin eru samt að breytast. Þær hafa alltaf verið út- víðar en nú eru dömusniðin að verða þrengri að neðan. Svartur og dökkblár er mjög vinsæll núna í gallabuxum.“ Þegar Valþór er beðinn um að spá fyrir um hvert straumar tísk- unnar beinist í sumar segir hann að hvítur og rauður verði áber- andi. „Hjá dömunum eru svo minipils að koma aftur,“ segir hann og greina má tilhlökkun í tón hans. „Það er fínt.“ „50’s“ kjólar, tírólajakkar og „80’s“ krumpustígvél Verslunin Spúútnik er nú á tveimur stöðum í Reykjavík; á Laugaveginum og í Kringlunni. Búðin leggur, ólíkt flestum öðrum búðum á landinu, ekki áherslu á að vera með þekktar merkjavörur. Hún hefur byggt upp sinn kúnnahóp í gegnum árin með því að bjóða upp á fjölbreyttar „second-hand“ vörur auk þess að selja hönnun sjálf- stæðra fatahönnuða. Spúútnik hefur verið með fremur traustan kúnna- hóp í gegnum árin sem er aðallega samansettur af fólki á aldrinum 12 - 40 ára. Í síðustu viku kom fyrsta send- ing vorsins. Meðal nýmæla í henni voru sokkabuxur, minipils, leður- stuttbuxur og kjólar í anda sjötta áratugarins sem Heiða Agnarsdótt- ir innkaupastjóri segir minna svolít- ið á „Sex and the City“ þættina. „Í sumar erum við að reyna að hressa aðeins upp á mannlífið,“ út- skýrir Heiða. „Það er búið að vera svolítið mikið af því sama í öllum búðum upp á síðkastið. Það var þess vegna ógeðslega gaman að fara út og finna hluti sem fást ekki annars staðar. Við viljum gefa okkar kúnn- um tækifæri til að hafa sjálfstæða hugsun og kaupa föt sem ekki fást annars staðar. Og við leggjum metn- að okkar í það að vera með nýjung- ar. Flestir okkar kúnnar gera það sem þeir vilja. Við erum ekki að reyna að leiða þá.“ Orðið „hallærislegt“ finnst ekki í orðabók Spúútnik. Búðin hefur í gegnum árin verið þekkt fyrir að blása á móti tískustraumum líðandi stundar í von um að meginstraum- urinn kvarnist í nýjar áttir. Oft með góðum árangri. Þetta þýðir að ann- að slagið hanga á slám föt sem þykja kannski framandi við fyrstu sýn. Dæmi um slíkt eru jakkar sem hafa fengið viðurnefnið „Tíróla- jakkar“ í búðinni. „Þeir minna svo- lítið á svissneska jóðlarajakka,“ út- skýrir Heiða, hér er sjón líklega sögu ríkari. Annað sem fæst líklegast ein- ungis í Spúútnik er fyrirbæri sem kallað er „krumpustígvél“ af búðar- fólki. „Þetta eru hælastígvél úr leðri, frá níunda áratugnum,“ út- skýrir Heiða. „Þau eru yfirleitt með lágum hæl og támjó. Þau ná rétt upp á miðjan kálfa og krumpast svo nið- ur. Við erum búin að leita að þessu í hundrað ár og fengum þetta loksins núna.“ Á meðal flíkna sem detta aldrei úr tísku og eru alltaf vinsælar úr búðinni má nefna háskóla- og hettu- peysur, UFO- og hermannabuxur og strigaskó. „Í „second hand“-fötunum tökum við inn hluti frá öllum tímum. Ef við sjáum flott „80’s“ föt þá rennur það inn og ef við sjáum flotta „60’s“ kjóla þá tökum við þá inn. Við ein- beitum okkur ekkert að einum ára- tug, bjóðum bara upp á blöndu frá þeim öllum,“ segir Heiða að lokum. Í Spúútnik á Laugaveginum opn- ar kílómarkaður í dag sem stendur yfir í tvær vikur. Kílóið af fötum kostar þar 3.000 kr. „Artí“ er að verða hversdagslegt Kventímaritið „Orðlaus“ gæti hæglega orðið leiðandi afl í tísku- straumum. Lesandahópur þess er sá sami og þræðir fataverslanirnar í frítíma sínum í leit að spennandi flíkum. Blaðið hefur hingað til lagt metnað í tískuþætti og reynt að gefa lesendum sínum einhvers konar þverskurð á því sem er í boði úti í fatalandi. Hrefna Björk Sverrisdóttir, markaðsstjóri blaðsins, segist halda að fólk sé orðið leitt á hversdags- leikanum og þrái breytingu. Hún segir það eina helstu ástæðu þess að sumarið verði litríkt. „Því meiri litir, því betra,“ eru lykilorð spádóms Hrefnu um sum- artískuna. „Það lífgar náttúrlega upp á tilveruna ef allir verða í rosa- legum litum. Þá verður skemmti- legt að labba í bænum. Áhrif frá Asíu verða líka mikil og föt úr satíni verða vinsæl. Buxnasnið eru svo að verða innvíðari en áður. Ég held að það verði mikið um stuttar buxur sem þrengjast niður.“ Hrefna segist finna fyrir því að stelpur í dag vilji frekar skera sig úr hópnum en að falla beint inn í hann. Hún segir að því fleiri sem klæði sig ævintýralega, því meira rými skap- ist fyrir tilraunastarfsemi í klæðn- aði. „Fólk vill geta klætt sig eins og það vill án þess að það verði eins eft- irtektarvert. Fólk vill geta farið í öðruvísi föt án þess að aðrir pæli of mikið í því. Áður fyrr litu allir við og horfðu á eftir þér. Þetta er orðið miklu frjálslegra.“ Þetta segir hún að geti leitt til 24 1. mars 2003 LAUGARDAGUR Það er allt útlit fyrir að Íslendingar verði litaglaðir í ár. Toppar og skór í neon- skærum litum einkenna nú hillur fatabúðanna. Pils eru að styttast, hermanna- mynstrin og gallabuxurnar halda sínum vinsældum áfram en sniðin verða inn- víðari. Götutískan verður ríkjandi og ungmenni eru sólgin í hettupeysur og gam- aldags íþróttaskó á borð við Converse og Adidas. Litríkt sumar í Converse skóm og mínípilsum SPÚÚTNIK Innkaupastjórar Spúútnik segjast leggja áherslu á að gefa kúnnum sínum tækifæri til þess að móta sinn eigin stíl. Hér sjást dæmi um fastakúnna Spúútnik. ORÐLAUS HREFNA Hrefna Björk Sverrisdóttir spáir litríku sumri og austurlenskum áhrifum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T DERES Sígildar gallabuxur, skærir bolir og Con- verse-skór. Götutískan lifir enn góðu lífi. ZARA Sterkir litir, hvítur leðurjakki og fyrirtækja- snjáðar gallabuxur er það sem koma skal. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.