Fréttablaðið - 01.03.2003, Side 26
■ ■ VETRARHÁTÍÐ
12.00 Keppni erlendra meistara-
kokka um titilinn „Iceland Naturally
kokkur ársins 2003“ í Smáralind.
13.00 Þjóðleikhúsið og Háskóli Ís-
lands efna til dagskrár á Stóra sviði
Þjóðleikhússins sem kallast Er vit í
hlátri?. Fræðimenn Háskólans og lista-
menn Þjóðleikhússins fjalla um hlátur í
öllum sínum myndum.
14.00 Vetrarhátíðin í Reykjavík bað-
ar sig í ljósum á Stóra sviði Borgarleik-
hússins. Athyglinni verður beint að
samspili ljóss og skugga og ljósamenn
hússins framkvæma gjörning.
15.00 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
velur sína eftirlætis listamenn á sýning-
una Þetta vil ég sjá! í Gerðubergi. Á
sýningunni eru verk eftir 22 íslenska
listamenn. Verkin eru frá 1989-2003.
Sýningin er í tengslum við Vetrarhátíð í
Reykjavík og 20 ára afmæli Gerðubergs.
16.00 Rokkað á Loftinu í Hinu
húsinu.
17.00 Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar rís úr vetrardvala með tónleikum
þar sem Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari
og Anna Málfríður Sigurðardóttir pí-
anóleikari gefa gestum forsmekk að
sumartónleikum safnsins.
18.00 Galopið Bíó verður á Ing-
ólfstorgi í dag og á morgun. Dagskráin
stendur fram yfir miðnætti.
18.00 Páll Rósinkranz, Karlakór-
inn Stefnir og hljómsveit sýna á sér
rómantísku hliðina í Austurbæ við
Snorrabraut.
20.45 Gjörningaklúbburinn og
slökkvilið höfuðborgarsvæðisins taka
saman höndum skapa ógleymanlegt
sjónarspil í Öskjuhlíðinni fyrir alla fjöl-
skylduna. Herlegheitin sjást af svölum
Perlunnar.
21.00 Páll Rósinkranz, Karlakór-
inn Stefnir og hljómsveit sýna á sér
rómantísku hliðina í Austurbæ.
21.00 Gjörningahátíðin Ákveðin
ókyrrð er samvinna Listasafns Reykjavík-
ur og Listaháskóla Íslands í kjölfar sam-
starfs listamanna Brian Catling, Willem
de Ridder og Julian Maynard Smith með
nemendum Listaháskóla Íslands.
24.00 Miðnæturtónleikar hinnar
sérstæðu finnsku hljómsveitar Cleaning
Women verður í Iðnó í kvöld.
■ ■ ÚTIVIST
11.00 Gigtarfélag Íslands stendur
fyrir gönguferð um Laugardalinn. Hist
verður við inngang Gigtarfélagsins að
Ármúla 5. Gert er ráð fyrir fremur þægi-
legri klukkutíma göngu sem ætti að
henta flestum. Öllum er frjáls þátttaka.
Ekkert gjald.
13.00 Í tengslum við Vetrarhátíð í
Reykjavík býður Minjasafn Reykjavíkur
upp á menningargöngu í Viðey. Þar
verður gengið að Áföngum, útilistaverki
Richards Serra. Lagt verður af stað með
ferju frá Sundahöfn kl. 13 en farið til
baka kl. 16.
■ ■ FUNDIR
13.00 Aðalfundur Richard
Wagners félagsins verður haldinn í
Norræna húsinu. Að honum loknum,
kl.13.30 verður dagskrá tileinkuð Lúðvík
II konungi af Bæjaralandi. Selma Guð-
mundsdóttir formaður félagsins heldur
erindi og sýnt verður úr kvikmyndinni
Ludwig II eftir Luchino Visconti.
14.00 Opið hús hjá Ásatrúarfélag-
inu að Grandagarði 8. Haukur L. Hall-
dórsson heldur fræðsluerindi um prím-
rúnir og dagatal fornmanna. Allir eru
velkomnir
16.00 Magnús Diðrik Baldursson
heimspekingur kemur í heimsókn í hug-
myndasmiðjuna Eitthvað annað í Gall-
erí Hlemmi og ræðir um hvað gott líf
sé.
■ ■ OPNANIR
14.00 Davíð Art Sigurðsson
myndmenntakennari á Hornafirði opnar
málverkasýningu í Pakkhúsinu á Höfn.
Á sýningunni, sem hann nefnir „Land í
vöku og draumi“ sýnir hann tuttugu og
fimm olíumálverk frá síðastliðnu ári.
15.00 Finnbogi Pétursson mynd-
listarmaður opnar sýningu í Kúlunni í
Ásmundarsafni. Hann sýnir innsetningu
þar sem hann reynir að myndgera hljóð.
15.00 Benedikt S. Lafleur opnar
myndlistasýningu í Listasafni Borgar-
ness sem ber yfirskriftina Öld Vatnsber-
ans - minni konunnar. Listasafnið er til
húsa í Safnahúsi Borgarfjarðar, Bjarnar-
braut 4-6, Borgarnesi.
16.00 Franski myndlistarmaðurinn
Serge Comte opnar fyrstu einkasýningu
sína á Íslandi í Nýlistasafninu. Hann er
búsettur hérlendis en hefur að mestu
sýnt erlendis, einkum í París þar sem
hann hefur átt velgengni að fagna.
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Björn Steinar Sólbergsson
organisti hádegistónleika í Akureyrar-
kirkju. Á efnisskrá tónleikanna verða
verk eftir Pál Ísólfsson. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir.
20.00 Óperustjörnurnar Eteri
Gvazava sópran og Bjarni Thor Krist-
insson bassi gera stuttan stans á Fróni
og ásamt Jónasi Ingimundarsyni pí-
anóleikara bjóða þau áheyrendum í
Salnum í Kópavogi í söngferðalag frá
Rússlandi til Íslands.
■ ■ KVIKMYNDIR
16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýn-
ir hina frábæru spennumynd Alfreds
Hitchcock „Rear Window“ eða Glugg-
inn á bakhliðinni frá 1954. Myndin er
algjört meistarastykki sem þenur taugar
manns til hins ýtrasta. Sýnt verður í Bæj-
arbíói, Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði.
9.30 Félag íslenskra fræða stend-
ur fyrir málþingi um ævisögur Íslend-
inga. Málþingið verður haldið í Borgar-
túni 6, Rúgbrauðsgerðinni, og stendur
fram á kvöld.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Möguleikhúsið við Hlemm
sýnir Prumpuhólinn eftir Þorvald Þor-
steinsson.
14.00 Stígvélaði kötturinn fyrir
yngstu krakkana á Litla sviði Borgar-
leikhússins í samstarfi við Sjónleikhús-
ið. Allir fá ís á eftir.
17.00 Nemendaleikhúsið sýnir
Tattú eftir Sigurð Pálsson í Smiðjunni.
20.00 Söngleikurinn Með fullri
reisn eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson á Litla sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Söngleikurinn Sól og Máni
eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst
Úlfsson á Stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.00 Maðurinn sem hélt að kon-
an hans væri hattur eftir Peter Brook
og Marie-Hélène Estienne Nýja sviði
Borgarleikhússins.
20.00 Rómeó og Júlía eftir William
Shakespeare er sýnd á Litla sviði Borg-
arleikhússins í uppfærslu Vesturports.
20.00 Nemendaleikhúsið sýnir
Tattú eftir Sigurð Pálsson í Smiðjunni.
20.00 Hellisbúinn er mættur á ný
á svið Gamla bíós, á sama stað og
hann steig fyrstu skrefin fyrir fimm
árum.
20.00 Leikfélag Akureyrar sýnir
Uppistand um jafnréttismál eftir Sigur-
björgu Þrastardóttur, Guðmund Kr.
Oddsson og Hallgrím Oddsson.
20.00 Herranótt Menntaskólans í
Reykjavík sýnir Hundshjarta eftir Mik-
haíl Bulgakov í Tjarnarbíói.
21.00 Einleikurinn Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl. Þetta er hundraðasta sýningin.
21.00 Beyglur með öllu í Iðnó.
22.30 Leikfélag Akureyrar sýnir
Uppistand um jafnréttismál eftir Sigur-
björgu Þrastardóttur, Guðmund Kr.
Oddsson og Hallgrím Oddsson.
■ ■ VETRARHÁTÍÐ
12.00 Vetrarfjör í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum með andlitsmálun,
skautaleigu, hestvagnaferðum, lestar-
ferðum, plötusnúð, harmonikuleik og
Skólahljómsveit Kópavogs. Vísindaver-
öldin verður opin.
13.00 Menningardagskrá á Loft-
inu í Hinu húsinu við Pósthússtræti.
Sérsveit hins hússins kynnir starf sitt
og söghópurinn Blikandi stjörnur syng-
ur nokkur lög.
13.00 Sjónleikhúsið sýnir barna-
leikritið Stígvélaða köttinn í tjaldinu við
kaffihúsið í Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinum.
14.00 Kynning á Kvennasögusafni
Íslands með sýningu á munum og
minjum úr eigu Kvennalistans í Lands-
bókasafni Íslands.
15.00 Viktor Arnar Ingólfsson rit-
höfundur varpar ljósi á baksvið glæpa-
sögu sinnar Flateyjargátu í Borgarbóka-
safninu Grófarhúsi. Úlfhildur Dagsdóttir
bókmenntafræðingur spjallar.
16.00 Rósa G Erlingsdóttir stjórn-
málafræðingur kemur í heimsókn í hug-
myndasmiðjuna Eitthvað annað í Gall-
erí Hlemmi.
17.00 Kórinn Vox Feminae fagnar
tíu ára afmæli um þessar mundir. Í
Hafnarhúsinu flytur hann íslensk lög
ásamt sérstæðu verki sem nefnist
Snowforms. Stjórnandi kórsins er Mar-
grét Pálmadóttir.
18.00 Galopið Bíó verður á Ingólfs-
torgi fram eftir kvöldi. Sýndar eru bestu
stuttmyndir Bíó Reykjavíkur.
20.30 Í tengslum við Vetrarhátíð í
Reykjavík býður Minjasafn Reykjavíkur
upp á draugagöngu um Elliðaárdalinn
þar sem kannaðar verða slóðir drauga,
álfa og afbrotamanna undir leiðsögn
Helga M. Sigurðssonar sagnfræðings.
Lagt verður af stað frá stöðvarstjórabú-
stað Orkuveitunnar í Elliðaárdal.
21.00 Gjörningahátíðin Ákveðin
ókyrrð í Listasafni Reykjavíkur, Hafnar-
húsinu. Nemendur Listaháskóla Íslands
flytja gjörninga í samstarfi við þrjá er-
lenda listamenn.
■ ■ ÚTIVIST
10.00 Annar hluti raðgöngu Ferða-
félags Íslands um fornar hafnir á Suð-
vesturlandi hefst á Stafnesi. Þaðan verð-
ur gengið að Básenda að Þórshöfn og í
gamla Kirkjuvog. Frá Kirkjuvogi verður
gengið fyrir Ósabotna og út á Hafnarveg.
Lagt verður af stað frá BSÍ með viðkomu
í Mörkinni.
10.30 Dagsferð Útivistar. Gengið
26 1. mars 2003 LAUGARDAGUR
STÓRDANSLEIKUR
Dúndrandi harmonikuball í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima í
Reykjavík laugardagskvöld 1. mars frá kl. 22:00.
Fyrir dansi leika fimm hljómsveitir.
Söngkonur: Corina Cubid og Ragnheiður Hauksdóttir.
Fjölbreytt dansmúsik. Dansleikur fyrir alla. Miðaverð kr. 1.200.
Harmonikufélag Reykjavíkur.
Skemmtilegt, lærdómsríkt og
ódýr skyndinámskeið um
helgina 8-10 mars, fyrir fólk á
öllum aldri (þó ekki yngra en
16 ára)
Nemendur fá tilsögn í leik-
spuna,persónusköpun, radd-
beitingu, framsögn, tjáningu
og hreyfingum á leiksviði.
Möguleiki á að hæfileika-
fólki verði boðið að koma
fram á sýningum Light
Nights í sumar.
Nánari uppl. og bókun
í síma 551 9181
Leiklistarnámskeið
í Iðnó
Ferðaleikhúsið
Kristín G.Magnús
Keppt verður í matreiðslu ámatar- og skemmtihátíðinni
„Food & Fun“ í Smáralind bæði í
dag og á morgun.
Í dag keppa fjórtán erlendir
meistarakokkar um titilinn kokk-
ur ársins 2003. Þeir eru frá
Bandaríkjunum, Ítalíu, Frakk-
landi, Finnlandi, Rússlandi og
Þýskalandi.
Á morgun er svo röðin komin
að þjóðþekktum Íslendingum,
sem fá tvær klukkustundir til
þess að etja kappi í matreiðslu.
Þetta eru þau Guðlaug Halldórs-
dóttir, Örn Árnason, Sigríður Arn-
ardóttir, Ragnheiður Guðnadóttir,
Jóna Hrönn Bolladóttir, Bergþór
Pálsson, Sigurlaug M. Jónasdóttir,
Þorfinnur Ómarson, Spessi, Edda
Sverrisdóttir, Özur Lárusson og
Kormákur Geirharðsson.
„Maður segir bara já við svona
án þess að hugsa sig um,“ segir
Örn Árnason. „Ég veit svo sem
ekkert annað en að ég á að mæta
þarna og það verður fullt af fólki
að horfa á mig að elda mat.“ ■
Margir ættu að kannast viðrússnesku sópransöngkon-
una Eteri Gvazava úr sjónvarp-
inu. Hún söng og lék aðalhlutverk-
ið í frægri sjónvarpsuppfærslu
óperunnar La Traviata, sem sýnd
var hér á landi bæði um síðustu
jól og líka jólin þar áður.
Færri vita kannski að bassa-
söngvarinn Bjarni Thor Kristins-
son er hennar heittelskaði eigin-
maður. Þau búa í Berlín, skammt
frá nýja sendiherrabústaðnum ís-
lenska við Halensee, ásamt fimm
mánaða gamalli dóttur sinni.
Svo vel ber í veiði að þau eru
stödd hér á landi og ætla að
syngja í Salnum í Kópavogi í
kvöld. „Til þessa höfum við bara
einu sinni komið fram saman. Það
var í Töfraflautunni eftir Mozart,
þar sem við kynntumst reyndar,“
segir Bjarni Thor.
Tónleikarnir í Salnum eru tví-
skiptir. „Fyrir hlé förum við í
ljóðaferðalag frá Rússlandi til Ís-
lands, sem kemur til af því að hún
er rússnesk og ég er íslenskur. Við
ætlum að stoppa í fjórum löndum
á leiðinni og syngja ljóð sem
tengjast annað hvort landinu eða
þjóðarsálinni á hverjum stað,“
segir Bjarni Thor. Eftir hlé syngja
þau svo saman fjóra dúetta eftir
Tsjaíkovskí, Don-
izetti, Gershwin og
Richard Strauss.
Bjarni Thor byrj-
ar tónleikana á því
að syngja rúss-
nesk lög, meðal
annars Flóna eftir
Mussorgsky. „Á
rússnesku er til gíf-
urlega mikið af tón-
list fyrir djúpar
k a r l a r a d d i r ,
þannig að valið var
erfitt. Ég hlakka mjög til að takast
á við þessi lög seinna meir þegar
ég er búinn að ná tökum á rúss-
neskunni.“
Eteri Gvazava ætlar einnig að
spreyta sig á íslenskunni og syng-
ur bæði Draumalandið eftir Sig-
fús Einarsson og Kvöldsöng eftir
Markús Kristjánsson. ■
hvað?hvar?hvenær?
26 27 28 1 2 3 4
FEBRÚAR
Laugardagur hvað?hvar?hvenær?
27 28 1 2 3 4 5
FEBRÚAR
Sunnudagur
Þetta lístmér á!
Eva María Jónsdóttir dagskrár-gerðarkona ætlar að taka
Vetrarhátíðina með trompi um
helgina og velur aðallega atburði
sem þriggja ára dóttir hennar get-
ur notið með henni. „Við
mæðgurnar ætlum að skoða Þjóð-
sögur á þvottasnúrum einhvern
tíma á laugardaginn en við ætlum
líka í Menningargönguna í Viðey.
Þetta er þriggja klukkutíma
ganga og því dálítið ferðalag,
Food&Fun í Perlunni kemur svo
til greina um kvöldið ef ég fæ
pössun og get komið mér í ein-
hvern galakjól. Á sunnudaginn
ætla ég í barnamessu í Dómkirkj-
unni. Barnakórinn syngur þarna
þannig að þetta er aðallega fyrir
litlu kerlinguna. Klukkan þrjú
ætla ég í Borgarbókasafnið á fyr-
irlestur um Glæp framin í Viðey,
þar sem Úlfhildur Dagsdóttir
spjallar um Flateyjargátu og
glæpasögur almennt.“
Val Evu Maríu
EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR
Spreytir sig á íslenskunni
■ TÓNLEIKAR
■ MATREIÐSLA
BJÓÐA ÁHEYRENDUM
Í LJÓÐAFERÐALAG
Eteri Gvazava og Bjarni
Thor Kristinsson ásamt
Jónasi Ingimundarsyni
píanóleikara. Þau
verða með tónleika
í Salnum í Kópa-
vogi í kvöld.
Keppast um að elda
BERGÞÓR PÁLSSON
Einn þeirra sem keppa í eldamennsku í
Smáralind á sunnudag.
✓
✓
✓
✓