Fréttablaðið - 01.03.2003, Qupperneq 27
frá Kolviðarhóli með Húsamúla að
Draugatjörn og að Litlu Kaffistofunni.
Kjörin ferð fyrir fjölskylduna. Brottför frá
BSÍ. Verð kr. 1700/1900.
13.00 Vettvangsfræðsla Fugla-
verndarfélags Íslands verður við Hval-
eyrarlón, Hafnarfirði. Þar er oft mikið af
fuglum á þessum tíma. Hist verður á
uppfyllingunni við rennuna inní lónið,
bakvið dælustöðina.
■ ■ SÝNINGARLOK
Á Kjarvalsstöðum lýkur samsýningu
ungra íslenskra og breskra listamanna.
Sýningin ber heitið “then ...hluti 4 -
minni forma“.
Síðasti dagur hugmyndasmiðju Ósk-
ar Vilhjálmsdóttur í Gallerí Hlemmi.
Umræðufundir bæði laugardag og
sunnudag.
Samsýning sjö málara í Húsi málar-
anna, Eiðistorgi, lýkur í dag. Þar sýna
verk sín þau Bragi Ásgeirsson, Einar Há-
konarson, Einar Þorláksson, Guðmundur
Ármann, Kjartan Guðjónsson, Jóhanna
Bogadóttir og Óli G. Jóhannsson.
■ ■ KVIKMYNDIR
15.00 Ballettkvikmynd um Ívan
grimma verður í bíósal MÍR að Vatns-
stíg 10, að þessu sinni ballettkvikmynd
byggð á sýningu Bolshoj-leikhússins í
Moskvu við tónlist Sergeijs Prokofievs.
■ ■ TÓNLEIKAR
14.00 Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu-
leikari og Anna Málfríður Sigurðardótt-
ir píanóleikari leika létta skemmtitónlist
fyrir gesti Listasafns Sigurjóns Ólafs-
sonar.
16.00 Þorsteinn Gauti Sigurðar-
son píanóleikari flytur alþekkt píanólög í
tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð.
16.00 Háskólakórinn og Vox
Academica blása til stórtónleika í Lang-
holtskirkju með Sigrúnu Hjálmtýsdótt-
ur og Sesselju Kristjánsdóttur. Flutt
verður hið þekkta og fallega verk Gloria
eftir Antoni Vivaldi.
■ ■ ÓPERA
20.00 Íslenska óperan sýnir sjálf-
an Macbeth eftir Guiseppe Verdi með
Elínu Ósk Óskarsdóttur og Ólafi Kjartani
Sigurðarsyni í aðalhlutverkum.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Benedikt Búálfur eftir Ólaf
Gunnar Guðlaugsson í Loftkastalanum.
14.00 Karíus og Baktus eftir Thor-
björn Egner á Litla sviði Þjóðleikhúss-
ins.
14.00 Honk! Ljóti andarunginn
eftir George Stiles og Anthony Drewe á
Stóra sviði Borgarleikhússins.
16.00 Möguleikhúsið við Hlemm
sýnir barnaleikritið Heiðarsnældu eftir
leikhópinn.
20.00 Á Nýja sviði Borgarleik-
hússins verður sýnt spunaleikritið Hann
eftir Dalvíkinginn Júlíus Júlíusson. Sjö
leikarar Borgarleikhússins taka þátt í
verkefninu, en þeir vita ekki hver af öðr-
um fyrr en fimm mínútum fyrir sýningu.
20.00 Söngleikurinn Með fullri
reisn eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Íslenski dansflokkurinn
sýnir Lát hjartað ráða för, þrjú ný verk
eftir Katrínu Hall, Itzik Galili og Ed
Wubbe, á Stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.00 Hinar einu sönnu Píkusögur
eftir Eve Ensler á Þriðju hæð Borgar-
leikhússins.
20.00 Hin smyrjandi jómfrú, ein-
leikur eftir Charlotte Bøving, sýnt í Iðnó.
Tilkynningar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is
LAUGARDAGUR 1. mars 2003
Bæjarlind 14-16 | 201 Kópavogi | Sími 564 4400 | Fax 564 4435 | tekk@tekk.is | www.tekk.is
H
R
IN
GDU EÐA
K
O
M
D
U
S
E
M
F Y R S T
N‡ sending af
glæsilegum eikarhúsgögnum
frá Ethnicraft
bor›stofubor› | bekkir | skápar | hillur | lampar
Stiklur úrskemmtireisu
Skemmtistaðir segið þið... Sko,ég er fæddur árið 1963 og bú-
settur á Akureyri þegar ég hef
minn feril í djamminu. Var svo
heppinn að kynnast áfenginu
snemma. Og þar til ég hafði aldur
til að fara á vínveitingastaði sótti
ég félagsheimilin grimmt. Allt frá
Skúlagarði í austri til Húnavers í
vestri. Þetta var alvöru tími,“ seg-
ir Ragnar „sót“ Gunnarsson,
poppstjarna og rithöfundur.
H-100
Svo smeygði maður sér í
diskógallann. Frá 18 ára aldri til
25 er það H-100. Mígandi diskó
sem dró mig þangað og náttúrlega
kerlingarnar gullfallegar.
Sjallinn
Um 25 ára aldurinn er ég meira
kominn yfir í Sjallann.
Þórskaffi
Ég flyt svo suður 27 ára. Ég var
mikið að spila þá, en Þórskaffi var
þá vinsælt þar sem Jöklarnir spil-
uðu fyrir dansi og troðfylltu þar
allt.
Amma Lú
Þar var ég á góðum díl, söng sex
lög á kvöldi og fékk frítt að
drekka.
Kaffi Reykjavík
Þá tekur við Kaffi Reykjavík. Í
miðri viku var helst að fá sér
nokkra öllara á Vitabarnum,
Championskaffi og Wall Street.
Ég er svo mikill sportisti, sjáiði
til.
Næsti bar
Sá staður sem ég sæki núna ... tja,
það vantar stað! Ég hef ekki þurft
að búa við það eins og margir að
félagarnir hafi heltst úr lestinni.
Iðnir við kolann enn. Jú, núorðið
kem ég reglulega til Gumma ríka,
á Næsta bar.
RAGGI SÓT