Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 6
8. mars 2003 LAUGARDAGUR VIÐSKIPTI Vika er síðan Fréttablað- ið sagði frá því að skelfing hefði ríkt í herbúðum stórfyrirtækisins Baugs í kjölfar þess að Hreinn Loftsson, stjórnarformaður fyrir- tækisins, kom heim eftir fund með Davíð Oddssyni forsætisráð- herra í Lundúnum og sagðist telja að þess væri að vænta að reynt yrði að koma höggi á Baug. Þetta byggði Hreinn á samtali hans og Davíðs á hótelherbergi ráðherr- ans. Hreinn bar að ráðherrann hefði þar lýst því að aðaleigendur Baugs, feðgarnir Jón Ásgeir Jó- hannesson og Jóhannes Jónsson, ættu í vafasömu bralli með Jóni nokkrum Gerhard sem ræki fyrir- tækið Nordica í Flórídafylki í Bandaríkjunum. Í frétt Frétta- blaðsins var því lýst að Hreinn Loftsson spurðist fyrir um það meðal stjórnenda Baugs hvaða maður þessi Jón Gerhard væri og hver tengsl Baugs og Nordica væru. Hann fékk þau svör að Nordica væri fyrirtæki sem keypti inn vörur fyrir Baug í Bandaríkjunum og að forráða- maðurinn væri Jón Gerald Sullen- berger. Fréttablaðið vitnaði einnig til fundargerðar frá stjórn- arfundi í Baugi í febrúar árið 2002 þar sem óttinn sveif yfir vötnum. Fram hefur komið hjá einstök- um stjórnarmönnum í fjölmiðlum, svo sem Guðfinnu Bjarnadóttur, rektor Háskólans í Reykjavík, að óttinn við aðgerðir forsætisráð- herra hafi ekki snúist um annað en það sem Davíð Oddsson sagði á Alþingi, þar sem hann gaf sterk- lega til kynna að til greina kæmi að skipta Baugi upp í því ljósi að 60 prósenta hlutdeild á matvöru- markaði væri alltof há. Þetta er afar einkennileg staðhæfing í því ljósi að Tryggvi Jónsson, aðstoð- arforstjóri Baugs, talaði á undan Guðfinnu og gerði þá sérstaklega grein fyrir Nordica, sem hann sagði að ætti í litlum viðskiptum við Baug. Engin rök eru til þess að Tryggvi færi að ræða sérstaklega um Nordica á fundinum af öðrum ástæðum en þeim að búið var að reifa það nafn í tengslum við meintar hótanir forsætisráðherra. Þorgeir Baldursson, forstjóri Prentsmiðjunnar Odda, tók til máls á eftir Guðfinnu og lýsti því að valdamikið fólk í viðskiptalíf- inu hefði áhyggjur af framgöngu forsætisráðherra. Stjórnarmenn- irnir Jón Ásgeir Jóhannesson, Jó- hannes Jónsson og Hreinn Lofts- son hafa síðan staðfest það opin- berlega að óttinn við aðgerðir for- sætisráðherra hafi komið í kjölfar þess að Hreinn lýsti Lundúna- fundinum og orðum forsætisráð- herra um Nordica og Baugsfeðga. Varnarræða um mútur Eftir að fréttin birtist á laugar- dag þagði forsætisráðherra í tvo sólarhringa. Síðan kom hann fram í útvarpsviðtali og hjó þar á báðar hendur í varnarræðu sinni. Um kvöldið mætti Davíð í spjallþætt- ina Ísland í dag og Kastljós, þar sem hann bar til baka að hann hefði minnst á Jón Gerhard Sull- enberger. Reyndar hafði Sullen- berger sjálfur verið kallaður til vitnis um það í fréttatímum ríkis- fjölmiðlanna á sunnudagskvöld að Davíð hefði ekki haft hugmynd um tilvist hans! En Lundúnafundurinn hélt áfram að vera aðalmál fjölmiðla og margir hjuggu eftir því í varn- arræðum forsætisráðherra að hann sagði Hrein Loftsson hafa sagt sér á einkafundinum í London að Jón Ásgeir Jóhannes- son, forstjóri Baugs, hefði ýjað að því að múta sjálfum forsætisráð- herra með 300 milljónum króna. Hreinn Loftsson kom þá fram í fjölmiðlum og sagði að þarna væri aðeins hálf sagan sögð því hann hefði verið að vara forsætisráð- herra við kjaftasögum og nefnt að sú svarta saga væri í gangi að Kári Stefánsson og Íslensk erfða- greining hefðu gefið forsætisráð- herra 300 milljónir króna til að tryggja góðvild hans. Í því sam- hengi hefði Jón Ásgeir sagt í hálf- kæringi að réttast væri að gera það sama og borga Davíð 300 milljónir króna til að fá frið fyrir honum. Jón Ásgeir hefur sagt að hann muni stefna forsætisráð- herra fyrir meiðyrði vegna þessa. Sullenberg kærir Hrein og Davíð greinir helst á um það hvort Jón Gerald hafi ver- ið nefndur. Í ágústmánuði síð- astliðnum réðst lögreglan til inn- göngu í Baug á grundvelli kæru Jóns Geralds, sem þá var skjól- stæðingur Jón Steinars Gunn- laugssonar lögmanns. Þá fyrst segir forsætisráðherra að hann hafi heyrt minnst á Sullenberger. En hann hefur þó staðfest að á Lundúnafundinum hafi hækkun í hafi borið á góma. Samkvæmt frá- sögn Davíðs í Kastljósi Sjónvarps- ins á mánudagskvöldið er stutt í Jón Gerald Sullenberger og Nord- ica. „...Ég hafði heyrt um það að slíkar vörur, menn flyttu þetta inn sjálfir, menn skömmtuðu sér heildsöluverðið. Jafnvel létu fyr- irtæki í eigin nafni eða sem þeir ættu í annarra manna nafni, selja þetta heim, tækju af því háa vexti og svo framvegis. Og reyndar vissi maður að slík mál hefðu ver- ið til afgreiðslu hjá skattinum og þess háttar...,“ sagði Davíð. Davíð hefur staðfastlega þrætt fyrir að hafa nefnt Jón Gerald Sullenberger eða fyrirtæki hans Nordica svo sem Hreinn vitnaði til eftir heimkomuna. Í Kastljós- viðtalinu sagði Davíð frá óform- legri verðkönnun sem hann gerði á vínberjum í Mayfair, einu dýrasta hverfi London. „...Steinlaus vínber í þessari dýru verslun kostuðu 500 eða 600 krónur á meðan þau kostuðu 1.100 krónur í mörkuðum heima. Og ég spurði kaupmanninn að því hvort hann væri nýbúinn að lækka eftir jólin..,“ sagði Davíð að hann hefði sagt Hreini Loftssyni. „Ég sagðist hafa heyrt um það sögur sem mér þættu trúverðugar og vildi heyra aðeins hljóðið,“ sagði Davíð í viðtalinu við Kast- ljós en þrætti enn einu sinni fyrir Sullenberger: „Vandamálið var það að Sullenberger hafði ég aldrei heyrt nefndan...,“ sagði Davíð m.a. en í því samhengi má nefna að Hreinn sagði að ráðherr- ann hefði talað um Jón Gerhard. Eftir stendur að upphafsfréttin stendur algjörlega óhögguð og hvergi hefur verið hrakið eitt orð. Helstu stjórnendur stórfyrirtæk- isins Baugs óttuðust að Davíð Oddsson forsætisráðherra myndi með einhverjum ráðum skaða fyr- irtækið. rt@frettabladid.is VIÐSKIPTI Stjórnarmennirnir Þor- geir Baldursson, framkvæmda- stjóri Prentsmiðjunnar Odda hf., og Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, sögðu sig í gær úr stjórn Baugs. Þetta var tilkynnt á aukafundi í stjórn félagsins. Þorgeir hættir í kjölfar þess að Fréttablaðið birti úrdrátt úr fundargerð stjórnar Baugs frá því í febrúar 2002 þar sem hann lýsti því að valdamiklir einstak- lingar í viðskiptalífinu hefðu áhyggjur vegna framgöngu Dav- íðs Oddssonar forsætisráðherra. Á sama fundi var fært til bókar að Guðfinna taldi að þrátt fyrir að forsætisráðherra væri valda- mikill þá styddi almenningur Baug. Í yfirlýsingu Þorgeirs og Guð- finnu í gær segir: „Við höfum í dag sagt okkur úr stjórn Baugur Group hf. (Baugs). Ástæðan er sá alvarlegi trúnaðarbrestur sem orðið hefur innan stjórnarinnar í kjölfar birtingar Fréttablaðsins sl. laugardag á trúnaðarupplýs- ingum stjórnar. Trúnaður og heil- indi eru forsendur fyrir sam- starfi manna, hvort sem er í stjórn fyrirtækja eða á öðrum vettvangi. Bresti sá trúnaður eru ekki lengur forsendur fyrir sam- starfi og því treystum við okkur ekki til að starfa áfram í stjórn- inni. Við hörmum þær erfiðu að- stæður sem upp hafa komið, þær geta ekki þjónað hagsmunum neins, allra síst hluthafa Baugs. Með þessari ákvörðun erum við ekki að taka afstöðu til neins annars en þess trúnaðarbrests sem orðið hefur og þess hvort við getum sætt okkur við að starfa við slíkar aðstæður. Baugur er öflugt fyrirtæki sem hefur yfir að ráða miklum fjölda frábærra starfsmanna bæði hér heima og erlendis. Við óskum fyrirtækinu og starfs- mönnum þess velfarnaðar á kom- andi árum,“ segir í yfirlýsingu þeirra Guðfinnu og Þorgeirs. Hreinn Loftsson, stjórnarfor- maður Baugs, segir söknuð af þeim úr stjórninni. ■ Frá fokheldu að fullbúnu Sími 897-7258, www.uppsprettan.is Þorgeir og Guðfinna: Hætta í stjórn Baugs DAVÍÐ ODDSSON Stjórnarmenn höfðu áhyggjur vegna óvildar hans í garð fyrirtækisins. HREINN LOFTSSON Lýsti því að menn skyldu vera á verði vegna Davíðs. Davíð og Hreinn: Ólíkar fullyrðingar Sammála Hreinn og Davíð eru sammála um að þeir hittust í London 26. janúar 2002. Ósammála Hreinn heldur því fram að Davíð hafi nefnt „Jón Gerhard“ og fyr- irtækið Nordica í sambandi við sögur um að eitthvað misjafnt væri á seyði hjá Baugi. Davíð neitar því að hafa á þessum tíma- punkti heyrt nafn Jóns Geralds Sullenberger eða vitað nokkuð um hann. Hann hafi fyrst heyrt hann nefndan eftir lögregluað- gerðir gegn Baugi vegna kæru hans. Ósammála Davíð segir Hrein hafa sagt að Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, hefði sagt við sig að greiða þyrfti forsætisráðherra 300 milljónir svo hann léti af ímyndaðri andstöðu við fyrirtæk- ið. Hreinn segist hafa svarað for- sætisráðherra, vegna þeirra sögusagna sem hann bar fram um Baug, að sögur væru í gangi um að forsætisráðherra hefði fengið 300 milljónir frá Íslenskri erfðagreiningu. Þá hefði hann sagt að Jón Ásgeir hefði sagt að réttast væri að láta Davíð hafa 300 milljónir til þess hann léti Baug í friði. Hann hefði tekið skýrt fram við Davíð að þessi orð væru sögð í hálfkæringi. Ósammála Davíð segir að Hreinn hafi tjáð sér að í sambandi við umræður um að bera fé á forsætisráðherra hafi Hreinn tjáð sér að á þeirri stundu hafi hann ákveðið að hætta sem stjórnarformaður Baugs. Hreinn segir þetta alrangt. Marg- ar ástæður hafi legið á bak við þá ákvörðun sína. Ósammála Davíð segir Illuga Gunnarsson hafa verið viðstaddan fund þeirra Hreins í London. Illugi staðfestir frásögn Davíðs. Hreinn segir Ill- uga hafa snætt með þeim kvöld- verð, en ekki verið á tveggja til þriggja tíma löngum fundi þeirra fyrr um daginn á hótelherbergi Davíðs, þar sem þau mál sem þá greinir á um voru rædd. Ósammála Hreinn segist hafa tilkynnt Davíð þegar þeir hittust í London að hann hygðist segja af sér sem for- maður framkvæmdanefndar um einkavæðingu. Davíð segir að af- sögn Hreins þremur dögum síðar hafi komið sér á óvart. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur svarið af sér Jón Gerald Sullen- berger en viðurkenndi þó að hafa rætt við Hrein Loftsson um erlend fyrirtæki sem hækkuðu vöruverð. Eftirmálar Lundúnafundar VÍNBER Vínberin í London þóttu mun ódýrari en á Íslandi. FRÉTTASKÝRING FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.