Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 8. mars 2003 37 LEIÐRÉTTING NÝJAR BÆKUR FRÉTTIR AF FÓLKI * Takmarkaður sætafjöldi. Sjá nánari upplýsingar á flugfelag.is. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S -F LU 2 04 73 03 /2 00 3 10. - 16. mars, hvert á land sem er á 999 kr.* aðra leiðina. flugfelag.is Það er alltaf góð tilfinning að eiga ánægjulegt og áhyggjulaust ferðalag í vændum . Með Flugfélagi Íslands kemstu á skammri stundu hvert á land sem er - og hefur það notalegt rétt á meðan. Tískan 2003 á Broadway á morgun: Keppt í tísku TÍSKA Hin árlega Íslandsmeistara- keppni tímaritsins Hár & Fegurð, „Tískan“, verður haldin á morgun á Broadway. Keppt verður í eftir- töldum flokkum: frístælkeppni, tískulínukeppni, litakeppni, fant- asíuförðun, leikhúsförðun, ljós- myndaförðun, tísku- og samkvæm- isförðun, dagförðun, ásetningu gervinagla, fantasíunöglum, kvöld- og samkvæmisklæðnaði, tískuráð- gjöf, tískuskartgripum og frjálsum stíl. Slagorð keppninnar í ár er „Sýn- um samúð og sanngirni í mannleg- um samskiptum og þjóða á milli“. Húsið opnar kl. 9 í fyrramálið og stendur keppnin yfir til kl. 23. ■ Landvinningar: Gæludýrin fara til Spánar BÆKUR Bókaútgáfan Bjartur hef- ur í samstarfi við breska um- boðsskrifstofu samið um útgáfu á Gæludýrunum, eftir Braga Ólafsson, á spænsku. Verkið kemur út hjá forlaginu Emece, sem er hluti af spænska út- gáfurisanum Planeta Group, sem er einn stærsti bókaútgef- andi Spánar. Gæludýrin koma út í bóka- flokknum Del Bronce, þar sem Bragi verður í góðum félagsskap höfunda á borð við Jhumpa Lahiri, Barböru Kingsolver og Ben Okri. Þá gefur Emece einnig út bækur Jorge Luis Borges, Bioy Casares og fleiri höfunda. ■ TÍSKAN 2003 Áhugasamir geta heimsótt www.fas- hiontv.is og skoðað þátt að lokinni keppni sem endurspeglar það besta sem fram fór. BRAGI ÓLAFSSON Bókin er nýkomin út í Danmörku og hefur bæði fengið „rífandi fína dóma og einnig aðra sem ekki voru jafn upplífgandi“ eins og þeir orða það hjá Bjarti. Í fimmtudagsblaðinu var rang- lega sagt að Verslunarskóli Ís- lands væri kominn í átta liða úr- slit Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Hið rétta er að Menntaskólinn í Hamrahlíð tryggði sér sæti í úrslitum með því að leggja Versló að velli. Stóra kynlífsbókin eftir SuziGodson og Mel Agace er kom- inn út hjá PP Forlagi í þýðingu Ágústs Sverrisson- ar. Bókin er sögð lýsa kynlífi á skefjalausan og djarfan hátt án þess þó að missa sig í smekkleysi eða klámi og þykir til marks um raun- verulega viðhorfsbreytingu til kynlífs. Bókin tekur á flestu því sem kemur kynlífi við, meðal annars kynsjúkdómum, hjálpartækjum og tækni í rúminu. Þá eru per- sónulegar reynslusögur einstak- linga birtar á hverri síðu og bókin er skreytt með myndum sem eru gerðar með tölvugrafík og eru sagðar sýna hlutina eins og þeir eru án þess að misbjóða nokkrum. Guðbergur Bergsson gefurekki mikið fyrir upphlaup lið- inna daga í pólitíkinni í grein á vef JPV-Útgáfu þar sem hann spyr hvort hvor höndin sé „betri, sú bláa eða blábjánalega?“. Hann bætir því við að því sé oft þannig farið í lífinu og oftar í stjórnmál- unum „að ef einhver heldur stöðugt áfram að djöflast á sama hátt gegn öðrum, verður hann að lokum verri en andstæðingur- inn“. Guðbergur minnir í þessu sambandi á að æsingurinn „gegn þeirri bláu náði hámarki þegar forsætisráðherraefni flokks, sem ég nenni ekki að nefna, gaf í skyn í ræðu að það væri með fyrir- tækjavænni fingur“. Þá telur Guðbergur þá „blábjánalegu“ ör- væntingu við að koma Davíð Oddssyni frá völdum vera orðna svo þorpslega reykvíska að „Hallgrímur Helgason, rithöfund- ur, gæti harmað að hafa verið „fyrstur“ í að vera svo sniðugur að gera tveggja manna tal sitt við höndina að fjölmiðlamat“. Guð- bergur bindur þó vonir við að iðr- unin verði ekki svo mikil að Hall- grímur hætti að „skrifa snilldar- verk“. Súlustaðurinn Óðal hefur reyntað vekja athygli á því að starf- semi klúbbsins er í fullum gangi með því að auglýsa sérstök þema- kvöld á fimmtudögum. Fyrir hálfum mánuði var haldið kúrekakvöld, fyrir viku síðan var Rómarkvöld en á fimmtudaginn færði staðurinn sig fram í sam- tímann og auglýsti svokallað „hjúkkukvöld“. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur mót- mælt harðlega „þessari afskræm- ingu á hjúkrunarfræðingum og hlutverki þeirra“ og segir aug- lýsandann með þessu uppátæki sínu hafa hlutgert konur í ein- stakri stétt og kynnt þær sem „kynlífsviðföng karla“ og við það verði ekki unað.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.