Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 36
36 8. mars 2003 LAUGARDAGUR Ungfemínistar blása til baráttufundar: Breytingarnar allt allt allt of hægar FUNDUR „Við völdum spurninguna: Vantar fleiri konur á þing eða fleiri femínista? sem þema vegna þess að það eru að koma kosning- ar og okkur finnst þarft að ræða þetta frekar,“ segir Kristbjörg Kristjánsdóttir. Hún er félagi í ungfemínista- hreyfingunni Bríeti, sem boðar til mikils fagnaðar og fundahalda á veitingastaðnum 22 í kvöld í til- efni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. „Þetta er auðvitað margslungið mál en að mínu viti vantar samstöðu meðal kvenna á þingi um aðgerðir til að bæta stöðu kvenna og reyndar kynj- anna beggja. Við hvetjum einnig karla til þátttöku því þetta er allt eins mikið baráttumál þeirra. Bæta þetta í eitt skipti fyrir öll. Við viljum aðgerðir sem stuðla að breytingum. Tuggan með að þetta taki tíma og gerist með kynslóða- skiptum virkar ekki. Breytingarn- ar eru allt allt allt of hægar.“ Kristbjörg nefnir sem dæmi að árið 1961 voru samþykkt lög á þingi þess efnis að jafna bæri launamun. Þessar breytingar áttu að eiga sér stað á árunum 1962 til 1967. Fátt eitt hefur gerst. Skemmtun Bríetanna á að stan- da frá klukkan átta til miðnættis. Eftir erindi sem Svanfríður Jón- asdóttir alþingismaður og Hug- rún Hjaltadóttir flytja tekur rokk- ið við. „Kvöldið mun verða stút- fullt af rokkandi baráttukonum þar sem Rokkslæðan tekur nokk- ur lög og plötusnældan (plötu- snúðurinn) Kvennarokk sér um tónlistina,“ segir Kristbjörg. ■ Pondus eftir Frode Øverli KRISTBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR Tuggan um að breytingar taki tíma virkar ekki. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Heyrðu... hvað er að gerast? Ég er að uppskera, kallinn minn! Komdu heim, elskan! Ég vil gjarnan sjá þig í einhverju þægilegra... eins og engu! Ha ha! Þú ert skemmtilegur! Hvað á ég að fara úr miklu? Eins miklu og hægt er? Á ég að halda áfram, elskan? Nei... í guðanna bænum... þetta er nóg...

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.