Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 16
Mér líst mjög vel á þetta og ég ermjög spenntur. Það er búið að gjörbylta reglunum í Formúlunni og það kemur til með að breyta allri framsetningu á dæminu í heild sinni,“ segir Gunnlaugur. „Þetta skapar hausverk fyrir þá sem stjórna liðunum, hvernig þeir ætla að haga undibúningi og leik- skipulagi í keppninni sjálfri. Það eru líkur á því að efnaminni liðin og óreyndari ökumenn geti staðið sig betur en ella.“ Miklar breytingar hafa verið gerðar á reglum keppninnar fyrir þetta keppnistímabil. Að sögn Gunnlaugs er stærsta breytingin sú að í tímatöku fá menn einungis eitt tækifæri til að ná besta rás- tímanum í stað fjögurra áður. „Eftir að tímatöku lýkur mega menn ekki bæta bens- íni á tankana þannig að þeir verða að reikna út hvernig þeir vilja hafa bílinn bæði í tímatökunni og í keppninni sjálfri. Þeir geta ekki stillt bílunum sérstaklega upp fyrir tímatökuna, tekið þá svo alla í gegn, breytt þeim, sett bensín á og komið svo í raun með annan bíl í sjálfri keppninni. Þetta ætti að jafna leikinn mjög mikið,“ segir Gunnlaugur. Gunnlaugur telur að það lið sem beitir hvað mestri herkænsku muni ná bestum árangri í keppninni. „Í rauninni er þetta mjög flókið og ég held að það taki liðin tvö til fjögur mót að átta sig á því hvern- ig er best að haga skipulag- inu.“ Gunnlaugur spáir núver- andi meisturum Ferrari, McLaren og Williams bestu gengi á þessu keppnistíma- bili. „Síðan hafa nýir liðs- menn Jaguar verið að koma þeim á kortið á æfingum í vetur. Jordan er með nýja Ford-vél sem hefur skilað þeim vel áfram og svo er Toyota með mjög sterka ökumenn. Þeir eru með meistara úr bandarísku mótaröð- inni frá því í fyrra sem heitir Crist- iano da Matta. Ég held að hann geti komið mönnum á óvart. Hann hefur ekki ekið á mörgum brautum en hann er mjög stöðugur ökumaður og vann sjö mót í Bandaríkjunum í fyrra í mótaröð sem er sambærileg við Formúluna.“ Gunnlaugur á von á heimsmeist- arnum Michael Schumacher sterk- um sem endranær. „Þetta er frá- bær ökumaður en hann hefur sjálf- ur ekki trú á að það verði aftur sú einstefna sem var í fyrra. Ég á von á mun jafnari keppni en í fyrra enda þarf Formúlan á því að halda.“ freyr@frettabladid.is 16 8. mars 2003 LAUGARDAGUR Upplýsingar í síma 561 8585 og á www.gauilitli.is Allt þetta er innifalið: Yogaspuni 3 til 5 sinnum í viku, vikuleg vigtun, fitumæling, ummálsmælingar, ítarleg kennslugögn með mataruppskriftum, matardagbókum og leiðbeiningar varðandi fæðuval, eftirlit með mataræði, frír einkaþjálfari í tækjasal, fræðsludagur, vatnsbrúsi, bolur, vegleg verðlaun. Vikuna 10. – 15. mars Samanlagt höfum við misst 40 kg á 8 vikum Þetta getur þú líka! hefjast í World Class hin vinsælu 8-vikna aðhaldsnámskeið Gauja litla á aðeins 14.500 kr. Ný námskeið með breyttum áherslum. Í boði eru morgun- og kvöldtímar. Frír prufutími. Fagmennska í fyrirrúmi. Arthur -14,9 kg Sigurjón -11,7 kg Anna -13,4 kg Fyrsti kappaksturinn í Formúlu 1 hefst í Ástr- alíu í nótt. Gunnlaugur Rögnvaldsson, umsjón- armaður Formúlu 1 í Rík- issjónvarpinu, á von á jafnari keppni en áður. Herkænskan í fyrirrúmi SCHUMACHER Michael Schumacher segist alltaf vera jafn hungraður í sigur í Formúlunni. Michael Schumacher: Fæddur fyrir Formúluna Þjóðverjinn MichaelSchumacher, sem er fimmfald- ur heimsmeistari í Formúlu 1, seg- ist alltaf vera jafn hungraður í sig- ur. „Ef ég á að vera hreinskilinn þá hef ég tekið þátt í kappakstri í um þrjátíu ár og ég hef aldrei átt í vandræðum með að ná upp réttu stemningunni fyrir mót. Stundum fæ ég það á tilfinninguna að ég sé fæddur til að stunda þessa íþrótt. Hvert einasta skipti er sérstakt. Það grípur mann heljartökum og hefur alltaf hvetjandi áhrif á mig,“ segir Schumacher. „Hugsanlegur sjötti heimsmeistaratitill er ekki sú aukahvatning sem ég hugsa um og að tala um það núna áður en tíma- bilið hefst er ekki við hæfi.“ Þrátt fyrir að vera margfaldur heimsmeistari segist Schumacher alltaf finna fyrir ákveðnu stressi þegar hann undirbýr sig fyrir kappakstur á borð við þann sem hefst í nótt. „Á ákveðinn hátt er ég alltaf kvíðinn fyrir kappakstur, sér- staklega í upphafi keppnistímabils- ins. Þú veist aldrei hvað gerist á nýju ári því í Formúlu 1 geta hlut- irnir breyst mjög hratt. Að leyfa sér að finna til öryggis í upphafi leiktíðar er fyrsta skrefið í ranga átt.“ ■ BARRICHELLO Rubens Barrichello, ökuþór hjá Ferrari, varð fyrstur í fyrri hluta tíma- tökunnar í gær. Tímatakan í Formúlu 1: Barrichello fyrstur Rubens Barrichello, ökuþór hjáFerrari, varð fyrstur í fyrri hluta tímatökunnar fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Melbourne sem hefst í nótt. Heimsmeistarinn Michael Schumacher, félagi Barrichello hjá Ferrari, náði að- eins fjórða sæti. Barrichello mun fyrir vikið fara síðastur á braut- ina í síðari hluta tímatökunnar, sem hefst í dag. Kimi Raikkonen, ökumaður McLaren, varð í öðru sæti og Jacques Villeneuve hjá Bar lenti í því þriðja. ■ GUNNLAUGUR Gunnlaugur Rögnvaldsson er umsónarmaður Formúlu 1 í Ríkis- sjónvarpinu. KEPPNISLIÐIN TÍU OG ÖKUMENN Í FORMÚLUNNI Ferrari: Michael Schumacher og Rubens Barrichello Williams: Juan Pablo Montoya og Ralf Schumacher McLaren: David Coulthard og Kimi Raikkonen Renault: Jarno Trulli og Fernando Alonso Sauber: Nick Heidfeld og Heinz-Harald Frentzen Jordan: Giancarlo Fisichella og Ralph Firman Jaguar: Mark Webber og Antonio Pizzonia Bar: Jacques Villeneuve og Jenson Button Minardi: Justin Wilson og Jos Verstappen Toyota: Olivier Panis og Cristiano da Matto

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.