Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 30
8. mars 2003 LAUGARDAGUR30 Einhvern veginn finnst manni aðbækurnar The Art of War eftir Sun Tzu og Furstinn eftir Niccolo Machiavelli hljóti að liggja á nátt- borðum margra andvaka manna um þessar mundir. Hannes Hólmsteinn Gissurarson þekkir vel til Machia- vellis og hefur meira að segja skrif- að ritgerð um þetta lykilrit hans um það hvernig best er að öðlast völd og ekki síður hvernig eigi að halda þeim, þannig að þeir sem á annað borð ætla í sjómann við bláu hönd- ina ættu að glugga í þessar bækur. Þeir sem nenna ekki að lesa geta svo þakkað sínum sæla fyrir það að Sjónvarpið er byrjað að sýna þætt- ina um Sópranó-fjölskylduna á ný. Þessir frábæru þættir eru eins og hraðnámskeið í blekkingum, svik- um og undirferli og líklega kunna flestir mafíósar þessar gömlu og góðu kenningar utanbókar. Veru- leiki ítölsku krimmanna er líka miklu harðari en sá drullupollur sem íslenskir pólitíkusar og við- skiptamógúlar busla í. Þarna skiptir æran minnstu máli og þetta er allt upp á líf og dauða. Vinir hika ekki við að vega vini og þegar tveir menn taka saman tal gengur aðeins einn lifandi af þeim fundi. Fé er hik- laust borið á ráðamenn til hægri og vinstri og kjaftaglöð vitni eru látin máta steypustígvél á hafsbotni áður en þau komast í blöðin. Þau vettlingatök sem notuð eru í þessum hráskinnaleik á Íslandi eru því frekar aumingjaleg í saman- burði við það hvernig menn bera sig að í útlandinu og þetta er skelfing hallærislegt, að minnsta kosti á meðan menn þora ekki að fara alla leið. Eigum við ekki bara að láta ítalskættuðu fagmennina um þetta í Sjónvarpinu á mánudagskvöldum og snúa okkur að einhverju upp- byggilegra hina daga vikunnar? ■ Við tækið ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON mælir með því að öll dýrin í íslenska skóginum verði vinir og slappi af fyr- ir framan sjónvarpið í stað þess að bera fé og slúður hvert á annað. Vinir eru vinum verstir 18.00 Robert Schuller 19.00 Jimmy Swaggart 20.00 Billy Graham 21.00 Praise the Lord Á Breiðbandinu má finna 28 erlendar sjónvarpsstöðvar sem seldar eru í áskrift og þar af eru 6 Norðurlandastöðvar. Að auki sendir Breiðbandið út flestar ís- lensku útvarpsrásirnar ásamt 10 erlendum tónlistarrásum með mismunandi tónlistarstefnum. 12.15 Skoski boltinn (Celtic - Rangers) 14.30 4-4-2 (Snorri Már og Þor- steinn J.) 15.30 Football Week UK (Vikan í enska boltanum) Nýjustu fréttirnar úr enska boltanum. 16.00 Trans World Sport (Íþróttir um allan heim) 17.00 Enski boltinn (Arsenal - Chelsea) 19.10 Lottó 19.15 Nash Bridges IV (5:24) (Lögregluforinginn Nash Bridges) 20.00 W. Klitschko - Sanders (Wladimir Klitschko - Corrie Sande) Bein útsending frá hnefaleika- keppni í Hannover í Þýskalandi. Á meðal þeirra sem mætast eru þungavigtarkapparnir Wladimir Klitschko frá Úkraínu og Corrie Sanders frá Suður-Afríku. 22.00 John Ruiz - Roy Jones Jr. Útsending frá hnefaleikakeppni í Las Vegas um síðustu helgi. Á meðal þeirra sem mættust voru John Ruiz og Roy Jones Jr., heims- meistari í léttþungavigt, sem færði sig upp í næsta þyngdarflokk. 0.00 Music From Another Room (Ást mín var ætluð þér) Rómantísk gamanmynd um ungan mann að nafni Danny sem er þess fullviss að honum hafi verið ætlað að gift- ast Önnu en hann aðstoðaði við fæðingu hennar þegar hann var fimm ára gamall. Danny vill sanna, þrátt fyrir ótal hindranir, að örlögin ráði lífi okkar. Aðalhlutverk: Jenni- fer Tilly, Martha Plimpton, Jude Law, Gretchen Mol. Leikstjóri: Charlie Peters. 1998. 1.45 Artemesia Erótísk kvik- mynd. Stranglega bönnuð börnum. 3.05 Dagskrárlok og skjáleikur 9.00 Morgunstundin okkar 9.02 Mummi bumba (10:65) 9.07 Andarteppa (10:26) 9.19 Bingur (10:13) (Binka) 9.26 Malla mús (50:52) (Maisy) 9.35 Engilbert (3:26) 9.43 Albertína ballerína (6:26) 10.00 Babar (65:65) 10.24 Harry og hrukkudýrin (3:8) 10.50 Viltu læra íslensku? (9:22) 11.10 Kastljósið 11.35 Geimskipið Enterprise (18:26) (Enterprise) e. 12.25 Formúla 1 Upptaka frá tímatöku fyrir fyrsta kappaksturinn á nýju keppnistímabili, í Mel- bourne í Ástralíu. 13.55 Snjókross (2:10) 14.25 Þýski fótboltinn Bein út- sending frá leik í þýsku úrvalsdeild- inni. 16.20 Íslandsmótið í handbolta Bein útsending frá leik í Essódeild karla. 17.05 Táknmálsfréttir 17.15 Íslandsmótið í handbolta 18.00 Smart spæjari (24:30) 18.25 Flugvöllurinn (8:16) 18.54 Lottó 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.40 Laugardagskvöld með Gísla Marteini 20.25 Spaugstofan 20.50 Vonir vakna (Hope Floats) Bandarísk bíómynd frá 1998 um konu sem snýr heim á æskuslóð- irnar með dóttur sína eftir erfiðan skilnað og þarf að takast á við heimafólkið. Aðalhlutverk: Sandra Bullock, Harry Connick og Gena Rowlands. 22.50 Horfin á 60 sekúndum (Gone in 60 Seconds). Aðalhlut- verk: Nicolas Cage, Giovanni Ribisi og Angelina Jolie. 0.45 Brautarstöðin (Central do Brasil). Aðalhlutverk: Fernanda Montenegro, Olivia Pera og Viníci- us de Olivera. e. 2.35 Formúla 1 Bein útsending frá kappakstrinum í Melbourne í Ástralíu. Umsjón: Gunnlaugur Rögnvaldsson. 5.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 8.00 Barnatími Stöðvar 2 9.55 Pokémon 3: The Movie 11.25 Yu Gi Oh (8:48) 11.50 Bold and the Beautiful 13.30 Viltu vinna milljón? 14.20 Tónlist 14.45 Enski boltinn - 1. deild (Ipswich - Stoke) Bein útsending frá leik Ipswich Town og Stoke City. 17.10 Sjálfstætt fólk (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.) 17.40 Oprah Winfrey (Victims’ Family Messages To The Governor) 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.55 Lottó 19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður 19.30 Hlustendaverðlaun FM 2003 20.50 The Animal (Dýri) Bráðskemmtileg kvikmynd. Marvin Manga er seinheppinn náungi en gæðablóð inn við beinið. Hann lendir í alvarlegu slysi en það verður honum til happs að læknir er nærstaddur. Bjargvætturinn græðir ný líffæri í Marvin sem er nú betri en nokkru sinni fyrr. Síðar kemur á daginn að líffærin er úr dýrum og þá koma ýmsar aukaverkanir í ljós. Aðalhlutverk: Rob Schneider, Colleen Haskell, John C. McGinley. 2001. 22.10 Get Carter (Gómum Carter) Alvöru glæpamynd. Jack Carter er kunnur fyrir störf sín í glæpaheimi Las Vegas. Hann er nú kominn heim á fornar slóðir í Seattle til að fylgja bróður sínum til grafar. Bróð- irinn er sagður hafa látist af slysför- um en Carter kemst að öðru og er staðráðinn í að koma fram hefnd- um. Aðalhlutverk: Sylvester Stallone, Miranda Richardson, Rachael Leigh Cook. Leikstjóri: Stephen T. Kay. 2000. Stranglega bönnuð börnum. 23.50 Blow (Í nös). Aðalhlutverk: Johnny Depp, Penélope Cruz, Franka Potente. 2001. Stranglega bönnuð börnum. 1.50 Desert Blue (Innilokuð) Aðalhlutverk: Brendan Sexton, Kate Hudson, Ethan Suplee, Casey Affleck. 1998. Bönnuð börnum. 3.15 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí 6.00 Since You Have Been Gone (Bekkjarmótið) 8.00 The Love Letter (Ástarbréf- ið) 10.00 Big Man on Campus (Skrímslið) 12.00 Where’s Marlowe? (Hvar er Marlowe?) 14.00 Since You Have Been Gone (Bekkjarmótið) 16.00 The Love Letter (Ástarbréf- ið) 18.00 Big Man on Campus (Skrímslið) 20.00 Where’s Marlowe? (Hvar er Marlowe?) 22.00 Titus 0.40 Halloween H20 (Aftur á hrekkjavöku) 2.05 Driftwood (Reki) 4.00 Titus 7.00 Meiri músík 12.00 Lúkkið 14.00 X-TV.. 16.00 Geim TV 17.00 Pepsí listinn 19.00 XY TV 20.00 Meiri músík 12.30 Mótor (e) 13.00 Dateline (e) 14.00 Jay Leno (e) 15.00 Yes, Dear (e) 15.30 Everybody Loves Raymond 16.00 Djúpa laugin (e) 17.00 Survivor Amazon (e) 18.00 Fólk með Sirrý (e) 19.00 Listin að lifa (e) 20.00 Leap Years Hæfileikarík ungmenni kynnast árið 1993 og halda vinskap sínum lifandi næstu ár. Rugla saman reytum og eiga (stundum óþarflega) náin kynni. Við fáum að líta inn til þeirra árin 1993, 2001 og 2008 og sjá hvernig samböndin hafa þróast. Leik- og söngkonan Athena berst við að ná frægð og frama, kemst á toppinn en hrynur síðan í hyldýpi eiturlyfja- neyslu. Vinir hennar Gregory gagn- rýnandi, Joe lögmaður og Ben rík- isbubbi reyna að hjálpa henni. 21.00 Box 23.00 Law & Order SVU (e) 23.50 Philly (e) Kathleen er fyrsta flokks verjandi, sannur riddari hringborðsins í leit að hinum heila- ga kaleik réttlætisins. Ásamt félaga sínum berst hún harðri baráttu við hrokafulla saksóknara og dómara í von um að fá kerfið til að virka. sjálfur aðalsaksóknari Fíladelfíu- borgar. Spennandi réttardrama. 0.40 Tvöfaldur Jay Leno (e) 1.40 Dagskrárlok Sjá nánar á www.s1.is Bíómyndin Vonin vaknar (Hope Floats) er frá 1998 og segir frá ungri konu, Birdee Calvert Pruitt, sem snýr heim á æsku- slóðir sínar í Smithville í Texas með dóttur sína eftir að hún kemst að því að maðurinn hennar hefur haldið við bestu vinkonu hennar. Allir bæjarbúar vita af hremmingum hennar og sumir smjatta á sögunni og sýna Birdee litla samúð. Hún reynir að skapa sér og dóttur sinni nýtt líf og nýtur við það hjálpar gam- als vinar. Leikstjóri er Forest Whitaker og aðalhlutverk leika Sandra Bullock, Harry Connick og Gena Rowlands. Sjónvarpið 20.50 Sýn 20.00 Box í beinni Wladimir Klitschko þykir ein bjartasta vonin í þungavigtinni. Þessi 26 ára Úkraínumaður stíg- ur í hringinn í kvöld og mætir Corrie Sanders. Bardaginn, sem er háður í Hannover í Þýska- landi, verður sýndur beint á Sýn en góð frammistaða Wladimirs eykur líkur hans á að mæta heimsmeistaranum Lennox Lew- is síðar á árinu. Wladimir, sem er yngri bróðir hins kunna Vitalis Klitschkos, á 40 bardaga að baki en flesta andstæðinga sína hef- ur hann afgreitt með rothöggi. Wladimir barðist þrisvar á síð- asta ári og vann sannfærandi sigra á Frans Botha, Ray Mercer og Jameel McCline. DAGSKRÁ LAUGARDAGSINS 8. MARS Vonin vaknar Eurovision 2003: Lettar ævareiðir út í Norðmenn TÓNLIST Á sama tíma og Eurovision- aðdáendur um heim allan lesa frétt- ir af því á netsíðum að íslenska lag- inu svipi mikið til Richard Marx- lagsins „Right Here Waiting“ eru Lettar ævareiðir út í framlag Nor- egs til keppninnar í ár. Ástandið er orðið slíkt að hópur Letta íhugar nú að sniðganga norskar vörur í versl- unum. Ástæðan er sú að í kynningar- myndbandi Noregs þar sem flytj- andinn Jostein Hasselgård syngur framlag landsins eru Lettar móðg- aðir illilega. Það virðist ekki hafa verið ásetningur Norðmanna að móðga landið heldur átti mynd- bandið að votta menningu þeirra virðingu. Það heppnaðist ekki betur en svo að í norska myndbandinu sjást kósakkar stíga dans. Þetta er afar móðgandi fyrir Letta þar sem kósakkadans er rússnesk hefð en ekki þeirra. Lettar eru ævareiðir og hafa ver- ið mikil skrif í blöð þar sem menn eru hreinlega hvattir til þess að gefa laginu ekki stig þann 24. maí næstkomandi. Norðmenn hafa svar- að fyrir sig og benda á að þeir hafi gefið sigurlagi þeirra frá því í fyrra fullt hús stiga. ■ BIRGITTA HAUKDAL Það er ekki bara íslenska lagið sem er um- talað á erlendum Eurovision heimasíðum því Lettar eru ævareiðir út í Norðmenn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.