Fréttablaðið - 08.03.2003, Page 8
Árás á öryggisvörð:
Fimmtán
ára sleppur
refsilaust
DÓMSMÁL Drengur sem var nýorð-
inn fimmtán ára þegar hann í janú-
ar 2001 greiddi öryggisverði í
Kringlunni hnefahögg sleppur við
refsingu að sinni. Þetta er ákvörð-
un Héraðsdóms Reykjavíkur.
Öryggisvörðurinn ætlaði að vísa
drengnum út úr Kringlunni en
drengurinn veitti honum þá höggið.
Andlitsbein brotnuðu í verðinum.
Hann hafði viðvarandi verki, eink-
um þegar hann opnaði munninn, og
gat ekki borðað.
Héraðsdómur leit meðal annars
til ungs aldurs drengsins og þess
að hann hafi upplifað framkomu
öryggisvarðarins sem óréttláta. ■
8 8. mars 2003 LAUGARDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Ég sat í bílnum með IngibjörguSólrúnu og Össuri og öðru
fólki frá Samfylkingunni. Við vor-
um á leið á kosningafund fyrir
norðan og einhver kveikti á út-
varpinu. Þar var verið að fjalla
um „mútumálið“ og allt í einu
rann upp fyrir mér ljós. Ég sat
þarna innan um þá einstaklinga
sem höfðu bruggað launráð gagn-
vart forsætisráðherra og skipu-
lagt samsæri með Fréttablaðinu
og Baugi og þessi ekkisens ræða í
Borgarnesi sem Ingibjörg flutti
var upphafið af þessu öllu saman.
Ég leit í kringum mig. Hvers
konar félagsskapur var þetta eig-
inlega, sem ég var búinn að koma
mér í? Var ég orðinn að fórnar-
lambi fólks, sem með samantekn-
um ráðum var í miðju plottinu
búið að shanghæja mig til að taka
þátt í þessari svívirðulegu aðför?
Mig, blásaklausan manninn, sem
aldrei hef búið í Mayfair og aldrei
hugleitt hvað vínberin eru ódýr í
London og mundi aldrei fatta þótt
einhverjum kynni að detta í hug
að múta mér fyrir þrjú hundruð
milljónir. Enda dettur það víst
engum í hug gagnvart manni sem
er ekki einu sinni þúsund króna
virði.
En ég sá samhengið í þessu,
þarna í bílnum, þar sem þau sátu,
Ingibjörg og Össur og allir hinir
og veltu fyrir sér hvort þau gætu
keypt sér pylsu í næstu sjoppu.
Sátu þarna í dulargervi hins mis-
kunnsama Samverja og þóttust
vera að berjast fyrir lítilmagn-
ann, þegar þau voru í rauninni á
mála hjá stórgrósserum, sem
selja vínber á okurprís. Og svo
leit Ingibjörg á mig, þessum ein-
lægu og húsmóðurlegu augum og
spurði: viltu lakkrís, Ellert?
Og ég hrökk við. Var þessi
lakkrís kannske keyptur eða gef-
inn í Bónus? Var þetta kannske
hluti af þeim mútum, sem fengust
fyrir að flytja þessa Borgar-
nesræðu, þar sem plottið hófst,
þar sem Ingibjörg vissi allt um
fundinn hjá Davíð og Hreini í
London, fyrir rúmu ári, vegna
þess að hún vissi að Baugsfeðgar
höfðu sent Hrein til að bera mútur
á Davíð!
Allt að undirlagi Samfylkingar-
innar. Ég afþakkaði lakkrísinn, ég
tek enga áhættu um mútuþægni
frekar en Davíð, enda afþakkaði
Davíð múturnar og skildi strax að
hér var enginn hálfkæringur í
gangi, hér var verið að bera á
hann fé.
Ég er eins og Smart spæjari, ég
sé í gegnum svona hluti. Ég sé í
gegnum Jón Ásgeir, sem sagði
Ingibjörgu að flytja ræðuna í
Borgarnesi, (gott ef hann samdi
ekki ræðuna) og sé í gegnum
Gunnar Smára og Reyni Trausta á
Fréttablaðinu, sem létu segja sér
að birta fréttina, sem hleypti
þessu öllu af stað, og ég sé í gegn-
um Hrein Loftsson, sem tók að sér
að bjóða Davíð múturnar, með því
að þykjast vera stuðningsmaður
hans, en var þó á mála hjá Sam-
fylkingunni og segir nú að hann sé
stuðningsmaður Davíðs, til að
koma í veg fyrir að menn haldi að
hann sé stuðningsmaður Samfylk-
ingarinnar. Sem hann er þó ekki,
enda væri það arfavitlaust að fá
Samfylkingarmann til að bjóða
Davíð mútur, því þá vissu allir að
Samfylkingin stæði á bak við
þetta.
Ég sé í gegnum þá alla og ég sé
líka, hvernig þeir Hreinn og Dav-
íð ákváðu að láta Jón Ásgeir segja
Ingibjörgu að halda Borgar-
nesræðuna, til að varpa ljósi á til-
boð Hreins í London til Davíðs,
fyrir ári, til að Davíð gæti svip
hulunni af þessu mútutilboði, til
að koma upp um plottið hjá Sam-
fylkingunni, til að geta sýnt fram
á að það var ekki Jón Ásgeir og
ekki Hreinn, heldur Samfylking-
in, sem var að múta Davíð. Smart
spæjari sér í gegnum svona sam-
særi og það geri ég líka.
Þannig að Ingibjörg varð að
borða lakkrísinn ein og líka pyls-
una og ég sat fastur í bíl með
þessu fólki, þessu samsærisfólki,
sem er í framboði til að plata bæði
Davíð og fjölmiðla og þjóðina og
mig í þokkabót. Og lætur sem það
viti ekkert um sitt eigið samsæri!
Sjá ekki allir í gegnum þetta með
okkur Smart spæjara? Sjá ekki
allir að þetta er ekki neinn hálf-
kæringur? ■
ELLERT B.
SCHRAM
Hugsað
upp á nýtt
skrifar um
samsærið mikla.
Samsæris-
kenningin
Hundruð gefa blóð:
Sameinast
um að
bjarga barni
KÝPUR, AP Hundruð grískra og
tyrkneskra Kýpverja mættu á
hótel á hlutlausu svæði í tvískiptri
höfuðborg landsins til þess að
gefa blóð og reyna þannig að
bjarga lífi fimm ára gamallar
tyrkneskrar stúlku sem þjáist af
hvítblæði. Verið er að leita að
heppilegum beinmergsgjafa fyrir
stúlkuna en hún á litla lífsvon ef
enginn slíkur finnst.
Samvinna af þessu tagi milli
tyrkneskra og grískra íbúa eyj-
unnar er ákaflega sjaldgæf enda
eru samfélögin tvö með öllu að-
skilin. Það eru samtökin Læknar
án landamæra sem standa fyrir
söfnuninni en hún fer fram á hót-
eli sem notað er af friðargæslu-
sveitum Sameinuðu þjóðanna. ■
Forsætisráðherra Serbíu:
Vill skipta
Kosovo upp
BELGRAD, AP Andúð Serba og
Kosovo-Albana á hvorum öðrum er
það mikil að eina lausnin er að skip-
ta Kosovo í tvennt, segir Zoran
Djindjic, forsætisráðherra Serbíu.
Hann vill að Kosovo verði breytt í
ríkjasamband þar sem Serbar ráða
öðru ríkinu en Kosovo-Albanar hin-
um hlutanum.
Djindjic er fyrsti serbneski
ráðamaðurinn sem opnar fyrir að
hluti Kosovo verði gefinn eftir.
Hingað til hafa Serbar lagt áherslu
á að Kosovo heyri undir Serbíu. ■
Leiðarahöfundur The Independ-
ent heldur áfram að skamma
bresk stjórnvöld fyrir að beita
harðneskjulegum refsingum fyrir
afbrot til að sýnast vera að gera
eitthvað í málum frekar en að
gera eitthvað gagnlegt.
Harkalega er ráðist gegn vænt-
anlegri stefnuyfirlýsingu um að-
gerðir til að berjast gegn hvers
kyns óáran. Meðal þess sem inn-
anríkisráðherrann leggur til er að
betl verði gert ólöglegt og að hægt
verði að sekta fólk á staðnum fyr-
ir hvers konar afbrot, allt niður í
tíu ára aldur.
Að mati leiðarahöfundar hafa
þessar tillögur og fleiri frá innan-
ríkisráðherranum fyrst og fremst
þann tilgang að friða þau blöð sem
hafa haft hæst um að taka harka-
lega á afbrotum. Árangurinn
verði hins vegar í besta falli eng-
inn en líklega sá að skapa of mik-
ið álag á dómskerfið. Ríkisstjórn-
in, sem komst til valda meðal ann-
ars með því að lofa að taka glæpi
og orsakir glæpa föstum tökum,
gleymi því í raun að ráðast gegn
orsökum glæpa.
Í The New York Times furðar leið-
arahöfundur sig á þeirri ákvörðun
Hæstaréttar Bandaríkjanna að
staðfesta lög Kaliforníufylkis um
að afbrotamenn skuli sjálfkrafa
dæmdir til minnst 25 ára fangels-
isvistar ef þeir eru fundnir sekir
um glæp í þriðja sinn. Hæstirétt-
ur staðfesti um leið 25 ára fang-
elsisdóm yfir manni sem reyndi
að stela golfkylfum og hálfrar ald-
ar fangavist manns sem stal
nokkrum myndböndum.
Leiðarahöfundur vísar til 8.
greinar bandarísku stjórnarskrár-
innar sem kveður á um að refsing-
in hæfi glæpnum. Þessu hafi þó
tveir hæstaréttardómarar and-
mælt þegar þeir staðfestu lögin.
Þrír dómarar hafi sagt þetta eiga
við en ekki þótt 50 ára fangelsi of
hörð refsing fyrir að stela mynd-
böndum að andvirði tæpra 12.000
króna. Með ákvörðun sinni hafi
Hæstiréttur snúið baki við hug-
myndinni um að refsingin hæfi
glæpnum og um leið mönnunum
tveimur sem höfðu áfrýjað máli
sínu til dómstólsins. ■
Bresk stjórnvöld og Hæstiréttur
Bandaríkjanna eru gagnrýnd fyrir að
beita of mikilli hörku til að berjast
gegn glæpum og óæskilegri hegðun.
Úr leiðurum
Glæpur og refsing
Vetur:
Bretar til
Mývatns
FERÐAMENN Hótel Reynihlíð við
Mývatn hefur tekist að laða um
hundrað breska ferðalanga hing-
að til lands yfir vetrartímann í
samvinnu við breska ferðaskrif-
stofu. Ferðir þessar eru tiltölu-
lega dýrar, kosta um 80 þúsund
krónur, og eru svar við helgar-
ferðum til stórborga sem víða eru
boðnar.
Að sögn hótelstjórans í Reyni-
hlíð er hér um þakklátan gestahóp
að ræða sem fær persónulega
þjónustu, fer í gönguferðir, á
skíði, í jeppaferðir og á hestbak.
Flogið er með gestina til Keflavík-
ur þaðan sem ekið er til Reykja-
víkur og flogið norður til Akur-
eyrar. Þar er tekið á móti gestun-
um og ekið með þá til Mývatns. Er
von hótelhaldara í Reynihlíð að
unnt reynist að auka þennan
ferðamannastraum yfir vetrar-
mánuðina. ■
Styð Árna
Skúli skrifar:
Mig undrar að fólk finni að þvíað Árni Johnsen hafi með
krafti sínum og dugnaði haft frum-
kvæði af því að skipt hafi verið um
rúm í fangelsinu að Kvíabryggju.
Ef satt er að þau sem fyrir voru
hafi verið orðin átján ára gömul
ætti að vera óumdeilt að þörf var
fyrir ný rúm. Ég var undrandi þeg-
ar ég heyrði í forstjóra Fangelsis-
málastofnunar þar sem hann sýndi
vanþóknun sína á frumkvæði Árna.
Það er nóg að geyma menn í fang-
elsum þó þeir séu ekki á útslitnum
rúmum að auki. ■