Fréttablaðið - 08.03.2003, Page 10
10 8. mars 2003 LAUGARDAGURHAFNABOLTI
MEÐ KYLFUNA Á LOFTI
Hideki Matsui, leikmaður hafnaboltaliðsins
New York Yankees, slær boltann af krafti í
leik gegn Toronto Blue Jays. Leikurinn var
háður í borginni Tampa í Flórída.
ENSKA BIKARKEPPNIN Leikir í átta
liða úrslitum ensku bikarkeppn-
innar fara fram um helgina. Stór-
leikur helgarinnar verður á High-
bury í dag þegar Chelsea heim-
sækir Arsenal.
Þar mætast félögin sem léku
til úrslita í bikarkeppninni í fyrra
en þá sigraði Arsenal 2-0.
Arsenal sigraði líka í viðureign
félaganna í 5. umferð bikar-
keppninnar vorið 2001 og veð-
bankar telja líklegast að Arsenal
vinni enn og aftur í dag. Mestar
líkur er taldar á 1-0 sigri heima-
manna en 1-0 sigur Chelsea er
talinn fjórðu líklegustu lokatöl-
urnar. Veðbankar telja einnig lík-
legast að Thierry Henry skori
fyrsta markið en Eiður Smári
Guðjohnsen er fjórði líklegastur
ásamt Sylvain Wiltord og Jimmy
Floyd Hasselbaink.
Gianfranco Zola er ákveðinn í
að setja mark sitt á leikinn en
hann á ekki margar góðar
minningar frá heimavelli Arsenal.
Hann hefur leikið átta leiki gegn
Arsenal á Highbury og tapað sjö
sinnum. Zola segir leikina gegn
Arsenal alltaf hafa verið jafnar
viðureignir og aldrei munað
meira en einu marki. Hann sækir
uppörvunina í leik gegn
Wimbledon á Highbury í undanúr-
slitum bikarkeppninnar árið 1997.
Þá skoraði Zola í 3-0 sigri og Chel-
sea vann bikarinn um vorið.
Claudio Ranieri getur teflt
fram sterkasta liði Chelsea því
Marcel Desailly, Emmanuel Petit
og Graeme Le Saux eru heilir af
meiðslunum sem hafa hrjáð þá
síðustu vikurnar. Arsenal verður
án Ashley Cole en auk þess gæti
mikilvægur leikur gegn AS Roma
í Meistaradeildinni á þriðjudag
haft áhrif á það hverjir leika gegn
Chelsea. Enskir fjölmiðlar telja
t.d. að Dennis Bergkamp og
Thierry Henry verði ekki í byrj-
unarliðnu í dag.
Á morgun leika Yorkshire-fé-
lögin Sheffield United og Leeds
United og 1. deildarfélögin
Watford og Burnley.
David Jones fer fyrir Úlfunum
sem heimsækja Southampton og
verða það fyrstu endurfundir
Jones og Dýrðlinganna síðan hann
var rekinn þaðan í janúar árið
2000.
obh@frettabladid.is
Zola vill sigur
Chelsea hefur aldrei unnið bikarleik á Highbury. Félögin sem léku
til úrslita í fyrra keppa í dag um sæti í undanúrslitum.
ZOLA
Gianfranco Zola hefur ekki
verið sigursæll á Highbury.
HANDBOLTI Grótta/KR leikur gegn
sænska félaginu Savehof í átta
liða úrslitum Áskorunarkeppn-
innar í handbolta á sunnudag.
Leikurinn verður í íþróttahúsinu
á Seltjarnarnesi og hefst kl. 20.
Svíarnir sigruðu 34:26 í fyrri
leik félaganna fyrir viku en Ágúst
Jóhannsson, þjálfari Gróttu/KR,
telur sitt lið engu að síður eiga
möguleika á að komast áfram í
keppninni.
Hann segir að verkefnið verði
erfitt en lykillinn að árangri sé
einbeittur og agaður leikur.
Grótta/KR verður að bæta
varnarleikinn og markvörsluna
frá leiknum í Svíþjóð og stöðva
Kim Andersson, sem skoraði 14
mörk í fyrri leiknum. Andersson
er sagður líklegur arftaki Ólafs
Stefánssonar hjá Magdeburg.
Ágúst er bjartsýnn á sigur
Gróttu/KR og vonar að með góð-
um stuðningi áhorfenda verði sig-
urinn nógu stór til að vinna upp
forskot Svíanna frá fyrri leikn-
um. ■
Evrópuleikur á sunnudag:
Grótta/KR
þarf agaðan leik
GRÓTTA KR
Búist er við hörkuleik á Seltjarnarnesi á morgun.