Fréttablaðið - 08.03.2003, Side 18

Fréttablaðið - 08.03.2003, Side 18
Fimm nemendur ljúka námi íhljóðfæraleik frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík í vor og halda burtfaratónleika í Salnum í Kópavogi næstu vikurnar. Burtfararpróf þreyta þau Em- ilía Rós Sigfúsdóttir þver- flautuleikari og Sturlaugur Jón Björnsson hornleikari. Einleik- arapróf þreyta Matthías Birgir Nardeau óbóleikari, Ella Vala Ár- mannsdóttir hornleikari og Vil- hjálmur Ingi Sigurðarson trompetleikari. Þegar blaðamaður spjallaði við þau kom í ljós að þau eiga meira sameiginlegt en þau gerðu sér grein fyrir. Öll eru þau til dæmis blásarar, þótt þau hafi lært hvert á sitt hljóðfærið. Öll eru þau á leiðinni í framhalds- nám til útlanda, en hvert í sitt heimshornið. Og öll hafa þau al- varlega velt því fyrir sér að taka stefnuna á eitthvað annað í lífinu en tónlistina. Ætlaði í læknisfræði „Þetta kemur stundum inn á millli þegar maður verður þreytt- ur á hljóðfæraleiknum,“ segir Em- ilía. „Ég ætlaði til dæmis í læknis- fræði.“ „Ég man að ég ætlaði einu sinni í húsgagnasmíði í Iðnskólanum,“ segir Ella Vala. „Svo í eitt skiptið þegar flugumferðarstjórar fóru í verkfall, þá tók ég ákvörðun um að læra flugumferðarstjórn.“ Vilhjálmur var mikið að velta fyrir sér að fara í stjórnmálafræði og þeir Sturlaugur og Matthías voru mikið með hugann við raun- vísindi. „Ég er ekki einu sinni búinn að útiloka það ennþá. Maður er nátt- úrlega hræddur um fjárhagslegt öryggi í framtíðinni,“ segir Matth- ías. „Tónlistin reynir líka á svo margt í manni, maður þarf að vera í góðu líkamlegu formi og hvað- eina.“ „En svo kallar tónlistin bara svo sterkt í mann. Ég held alla vega að ég geti aldrei hætt,“ segir Emilía. „Og svo er þetta náttúrlega svo mikil árátta hjá manni að ég gæti aldrei spilað bara heima hjá mér. Maður verður alltaf að bæta sig og fara eins langt og maður getur.“ „Svo getum við alltaf kennt. Og kannski borgar sig að læra eitt- hvað annað líka til að hafa með tón- listinni,“ segir Ella Vala. Vart kemur á óvart að tónlistin hafi verið í hávegum höfð heima hjá þeim öllum. Í fjölskyldum þeir- ra allra er mikið sungið og spilað, hjá sumum eru meira að segja at- vinnumenn í tónlist á hverju strái. Með tónlistina í blóðinu Vilhjálmur segir að bæði móðir sín og systir séu mikið í tónlist, þótt ekki séu þær atvinnumenn. „Það varð til þess að maður fór út í þetta.“ Mikið tónlistarlíf var einnig í fjölskyldum þeirra Emilíu og Ellu Völu. „Það var alltaf mikið sungið og spilað, þótt það séu engir at- vinutónlistarmenn,“ segir Ella Vala. „Ég held samt að ég hafi leitað mikið í þetta sjálf,“ segir Emilía og vill ekki kenna fjölskyldunni alfarið um. „Ég er aftur á móti úr algerri tónlistarfjölskyldu,“ segir Matthí- as. Báðir foreldrar hans eru flautuleikarar að atvinnu og syst- kyni þeirra beggja eru líka at- vinnutónlistarmenn. „Ég get sagt það sama,“ segir Sturlaugur. „Mamma mín er hljóð- færaleikari og tónlistarkennari og margir í fjölskyldu hennar spila á hljóðfæri, ýmist sem atvinnumenn eða áhugamenn.“ Í dag verða burtfarartónleikar þeirra Emilíu og Sturlaugs í Saln- um, tónlistarhúsi Kópavogs. Emil- ía ætlar meðal annars að spila á þverflautuna sína partítu í c-moll eftir Johann Sebastian Bach, auk þess sem Sigríður Ósk Kristjáns- dóttir sópran syngur með henni lög eftir Handel og Ravel. Sturlaugur ætlar að flytja verk eftir Sigurd Berge, Mozart, Eugene Bozza og Paul Hindemith. Næstu vikurnar verða svo á sama stað einleiksprófstónleikar þeirra Matthíasar, Ellu Völu og Vil- hjálms. Eftir þessa eldskírn standa þau svo öll standa frammi fyrir því að velja sér framhaldsnám. Reyndar eru þau búin að ákveða að halda til útlanda strax í sumar eða haust. Ella Vala ætlar til London, Emil- ía til Þýskalands, Vilhjálmur til Noregs, Matthías til Frakklands og Sturlaugur til Bandaríkjanna. Hvert ferðinni er heitið ræðst ekki síst af þeim kennurum sem þau vita af á hverjum stað. „Við höfum ýmist heyrt í þess- um kennurum eða heyrt um þá,“ segir Sturlaugur. „Jafnvel farið í námskeið til þeirra á sumrin,“ bætir Emilía við. Spilað af fingrum fram „Ég er að öllum líkindum á leið til Parísar,“ segir Matthías. „Það er svo margt sem spilar þar inn í, bæði umhverfið, sagan og tónlist- in. Svo gæti það breyst. Ég gæti al- veg endað í Þýskalandi til dæmis.“ „Maður verður bara að spila þetta af fingrum fram,“ segir Ella Vala. „Næstu árin verður maður í námi. Það veit maður að minnsta kosti. Svo fær maður kannski ein- hverja vinnu úti, eða kannski enga vinnu.“ Samkeppnin er hörð, líka hér á landi, eins og sjá má af því að hér eru haldnir margir tónleikar í hverri einustu viku. Þau benda þó á að viss kostur sé að vera ungur þegar sam- keppnin er annars vegar. Framtíð- in blasir við og möguleikarnir virðast óþrjótandi. gudsteinn@frettabladid.is 18 8. mars 2003 LAUGARDAGUR FIMM SPRÆKIR BLÁSARAR Emilía Rós Sigfúsdóttir, Sturlaugur Jón Björnsson, Ella Vala Ármannsdóttir, Matthí- as Birgir Nardeau og Vilhjálmur Ingi Sig- urðsson með hljóðfæri sín. Þverflauta, horn, óbó og trompett eru hljóð- færin sem hljóma á burtfarartónleikum Tónlistarskólans í Reykjavík á næstu vikum. Hljóðfæraleik- arar framtíðarinnar eru að stíga fram á sjónarsviðið. Tónlistin kallar svo sterkt í mann GAGGALAGÚ Nefnist nýtt barnaleikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson sem Hafnarfjarðarleikhúsið er að æfa þessa dagana. Leikritið fjallar um níu ára dreng sem heitir Nonni og lendir í þeim hremm- ingum að dvelja sumarlangt í sveit. Þetta er í annað sinn sem Ólafur Haukur vinnur með Hafnarfjarðarleikhúsinu en hann hefur áður skrifað verkið Vitleysingana, sem sló hressi- lega í gegn, fyrir leikhúsið. Leikstjóri Gaggalagú er Erling Jóhannesson en leikararnir eru þrír: Halla Margrét Jónsdóttir, Jón Páll Eyjólfsson og Vala Þórsdóttir. Frumsýning verður um mánaðamótin mars-apríl. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.