Fréttablaðið - 08.03.2003, Page 22
Pólski kvikmyndaleikstjórinnRoman Polanski hefur fyrir
löngu tryggt sér sess í kvik-
myndasögunni með sígildum
kvikmyndum á borð við
Repulsion, Rosemary’s Baby og
Chinatown. Það hefur farið minna
fyrir snilli hans síðustu árin og
þannig þótti til dæmis hryllings-
mynd hans, The Ninth Gate með
Johnny Depp, frekar mislukkuð.
Hann virðist þó aftur vera kominn
á beinu brautina og nýjasta mynd-
in hans, The Pianist, hefur gert
stormandi lukku undanfarið. Hún
hreppti Gullpálmann í Cannes í
fyrra og fékk BAFTA-verðlaunin
sem besta myndin á dögunum, var
tilnefnd til Golden Globe-verð-
launanna og Polanski er tilnefnd-
ur til Óskarsverðlauna fyrir leik-
stjórn auk þess sem myndin á
einnig möguleika á styttu sem
besta myndin. Polanski mun þó
varla mæta til Los Angeles til
þess að vera viðstaddur verð-
launaafhendinguna síðar í þessum
mánuði þar sem hann hefur verið
í útlegð frá Bandaríkjunum eftir
að hann var ákærður fyrir að hafa
samfarir við þrettán ára stúlku
árið 1977.
Gyðingaofsóknir og
móðurmissir
Kynlífshneykslið var síður en
svo fyrsta áfallið sem Polanski
varð fyrir en ævisaga hans er
nánast einn samfelldur harmleik-
ur og í gegnum tíðina hafa margir
freistast til þess að tengja drunga-
legt andrúmsloftið, geðveikina og
djöfulganginn í myndum hans við
dapurlegt lífshlaup hans.
Polanski fæddist í París árið
1933. Foreldrar hans voru pólskir
gyðingar og hröktust til heima-
landsins árið 1937 þegar andúð á
gyðingum fór vaxandi í Frakk-
landi. Þegar Þjóðverjar réðust inn
í Pólland lenti fjölskylda Pol-
anskis í gettói í Kraká. Foreldrar
hans voru síðan báðir fluttir í út-
rýmingarbúðir og móðir hans lést
í Auschwitz. Roman trúði því hins
vegar alltaf að hann myndi hitta
móður sína aftur enda hafði
drengurinn ekki hugmynd um
hina endanlegu lausn Þriðja ríkis-
ins.
Faðir hans borgaði kunningja-
fólki sínu fyrir að gæta hans og
hann var því á stöðugum þeytingi
undan nasistum og fékk hrylling
stríðsins beint í æð þar sem hann
þvældist um rústirnar í Kraká þar
sem þýskir hermenn gerðu sér
það að leik að skjóta á hann.
Ímyndunaraflið og kvikmyndahús
voru hans helsta athvarf í æsku
og þegar þeir feðgar hittust aftur
í stríðslok byrjaði Polanski að
leggja grunninn að ferli sínum í
kvikmyndum og var þá strax far-
inn að sýna af sér hegðun hins
sérlundaða og ráðríka snillings,
sem hefur einkennt hann allar
götur síðan.
Blóði drifinn harmleikur
Polanski vakti fyrst athygli á
alþjóðavettvangi með myndinni
Hnífurinn í vatninu sem hann
gerði í Póllandi árið 1962, en
myndin var meðal annars tilnefnd
til Óskarsverðlauna sem besta er-
lenda myndin. Myndin varð sú
síðasta sem hann gerði í heima-
landinu enda þótti strax ljóst að
hans biði glæstur ferill úti í hinum
stóra heimi. Hann lenti um þetta
leyti í alvarlegu bílslysi og eftir
langa sjúkrahúslegu hélt hann til
Bretlands þar sem hann gerði
þrjár athyglisverðar myndir:
Repulsion árið 1965, Cul-de-Sac
1966 og The Fearless Vampire
Killers árið 1967 en sú mynd er
lykilverk í sögu blóðsugumynd-
anna. Það lá því beint við að þessi
hæfileikaríki leikstjóri héldi til
Hollywood þar sem hann sló eftir-
minnilega í gegn með Rosemary’s
Baby, frumraun sinni í Bandaríkj-
unum, árið 1968. Myndin byggði á
skáldsögu Ira Levin um unga
konu sem gengur með barn djöf-
ulsins og ruddi brautina fyrir
myndir á borð við The Exorcist og
The Omen, sem báðar fjalla ein-
nig um veraldlegt brölt myrkra-
höfðingjans.
Polanski naut þó velgengninn-
ar ekki lengi þar sem snarbrjálað
hippagengið sem kennt er við
Charles Manson ruddist inn á
heimili hans í Hollywood-hæðum
árið 1969 og myrti eiginkonu
hans, leikkonuna Sharon Tate, og
aðra gestkomandi. Tate, sem lék
aðalkvenhlutverkið í The Fearless
Vampire Killers, var gengin átta
mánuði með barn þeirra hjóna
þegar hún var myrt.
Kenningarnar og sögusagnirn-
ar um aðdraganda morðanna eru
mýmargar og samkvæmt einni
þeirra vildi Manson refsa Pol-
anski fyrir að hafa móðgað
myrkrahöfðingjann með því að
láta vitleysinginn Anton La Vey,
stofnanda satanskirkjunnar í
Chicago, leika Lúsífer í Ros-
emary’s Baby. Fyrsta mynd Pol-
anskis eftir morðið var Macbeth,
sem hann gerði eftir samnefndu
leikriti Shakespeares árið 1971,
og fáum blandast hugur um að
persónulegur harmleikur leik-
stjórans hafi ráðið miklu um út-
færslu hans á ofbeldi og drunga í
myndinni.
Kynlífshneyksli
Árið 1974 leiddi kvikmynda-
framleiðandinn Robert Evans
saman þrjár skapstærstu mann-
eskjurnar í Hollywood, Polanski,
leikarann Jack Nicholson og
leikkonuna Faye Dunaway, til
þess að gera Chinatown. Það er
skemmst frá því að segja að þessi
einkaspæjaramynd, sem sækir
stíft í film noir hefðina sem var
runnin undan rifjum rithöfund-
anna Raymonds Chandler og
Dashiells Hammett, er vinsælasta
og sjálfsagt besta myndin sem
Polanski hefur gert. Það gekk á
ýmsu við gerð hennar og Polanski
sýndi það og sannaði að það er
ekki heiglum hent að starfa með
honum og afbera dynti hans og
æðisköst. Illindin breyttu þó engu
um það að myndin varð sígild
meistaraverk.
Árið 1976 gerði Polanski mynd-
ina The Tenant þar sem hann sótti
aftur á mið taugaveiklunar og
geðveiki eins og í Rosemary’s
Baby, þó það væri á gamansaman
hátt að þessu sinni. Örlaganorn-
irnar höfðu þó síður en svo gleymt
ógæfusama gyðingnum frá Pól-
landi og dembdu fleiri skakakföll-
um yfir hann en árið 1977 var
hann handtekinn fyrir að hafa
byrlað þrettán ára stúlku ólyfjan
og ginnt hana í framhaldinu til
ýmissa kynlífsleikja. Í málsgögn-
um kemur fram að hann hafi í
samráði við móður stúlkunnar
ákveðið að taka ljósmyndir af
henni fyrir frönsku útgáfuna af
Vogue. Myndatakan átti að fara
fram á heimili Jacks Nicholsons
og þar er Polanski gefið að sök að
hafa gefið stúlkunni kampavín og
deyfilyf til þess að gera hana með-
færilegri.
Barnaníðingur á flótta
Polanski var meðal annars
ákærður fyrir að misnota barn
kynferðislega og gekkst við
nokkrum ákæruatriðanna, aðal-
lega til þess að komast hjá gæslu-
varðhaldi. Hann byggði málsvörn
sína aðallega á því að allt hafi ver-
ið gert með samþykki og vitund
stúlkunnar sem hann sagði vera
„Lólítu sem vissi allt sem vita
þyrfti um kynlíf og eiturlyf.“ Dóm-
ari gaf lítið fyrir þessi rök þannig
að Polanski var gert að sæta 90
daga geðrannsókn og var gerð
grein fyrir því að hann gæti átt
yfir höfði sér allt að 50 ára fang-
elsi. Hæstaréttardómarinn
Laurence J. Rittenband, sem var
þá 83 ára og var kallaður „dómari
fræga fólksins“, hafði mál Pol-
anskis til meðferðar. Hann dæmdi
meðal annars í skilnaðarmáli Elvis
Presley og í barnsfaðernismáli
Marlons Brando. Hann minntist
Elvis og Priscillu Presley með hlý-
hug og sagði Elvis hafa verið „góð-
an mann“ og bætti því svo við að
minningar sínar um Polanski væru
síður en svo jafn góðar.
Rittenband gaf út handtökutil-
skipun á Polanski árið 1987 og leik-
stjórinn, sem þá gekk laus gegn
22 8. mars 2003 LAUGARDAGUR
Helför leikstjórans
Ógæfan hefur dunið á pólska leikstjóranum Roman Polanski frá því
hann var barn. Hann missti móður sína í útrýmingarbúðum nasista,
eiginkona hans var myrt af brjáluðum hippum og sjálfur hraktist hann
í útlegð frá Bandaríkjunum eftir að hafa táldregið stúlku á barnsaldri.
Roman Polanski þykir með ein-dæmum ráðríkur og illskeytt-
ur og í gegnum tíðina hafa safnast
saman ógrynnin öll af hryllings-
sögum um hann frá samstarfs-
fólki hans. Robert Evans fram-
leiddi eina frægustu og bestu
mynd Polanskis, Kínahverfið eða
Chinatown, og leiddi þar saman
hæfileikafólkið Faye Dunaway,
Jack Nicholson og Polanski.
Dunaway var fræg fyrir skapofsa
sinn og þegar Evans rifjaði sögu
Chinatown upp síðar sagði hann
einfaldlega: „Þann 28. september
1973 hófst þriðja heimsstyrjöld-
in“, en þann dag hófust tökur á
myndinni.
Þrándur Thoroddsen kvik-
myndagerðarmaður kynntist Pol-
anski þegar hann lærði kvik-
myndagerð í Lodz í Póllandi og ber
honum hins vegar vel söguna. „Ég
kynntist honum ágætlega og lenti
oft með honum í partíum. Hann
kom mér fyrir sjónir sem ákaflega
þægilegur maður sem vildi vera
vinur allra. Hann átti það þó til að
vera með ýmisleg undarleg uppá-
tæki. Hann fékk verðlaun í Belgíu
á þessum árum og notaði féð til að
kaupa Mercedes Benz-blæjubíl en
þeir þóttu voða fínir í Póllandi í þá
daga. Hann kom svo með bílinn til
Lodz og stundaði það að aka um
borgina og stýra með löppunum og
láta einhvern annan um bensín-
gjöfina. Ég man svo til dæmis eft-
ir því að einhvern tíma sátum við á
þessum frægu tröppum skólans og
þegar rektorinn birtist allt í einu á
ganginum fór Polanski á fjóra fæt-
ur, hljóp að honum eins og hund-
rakki og glefsaði í lappirnar á hon-
um.“
Polanski kom til Íslands sem
gestur Listahátíðar fyrir allmörg-
um árum og Þrándur hitti hann þá.
„Við rifjuðum upp fyrri kynni og
fórum saman út að borða og á krá-
arrölt. Hann hafði nú í hótunum
við mig um að við skyldum skrif-
ast á en það varð nú aldrei úr því,
kannski fyrir bréfleti mína.“ ■
ÞRÁNDUR THORODDSEN
Segir að Polanski hafi verið langt kominn
með skólann þegar hann kom þangað
1960 og það hafi því ekki farið mikið fyrir
honum þar. „Hann var alltaf á einhverjum
flækingi enda eru menn ekki mikið að
sækja tíma þegar þeir eru komnir þetta
langt í náminu.“
JACK NICHOLSON
„Roman er pirrandi manneskja, alveg óháð
því hvort hann er að gera kvikmynd eða
ekki. Það verður hins vegar að hafa það í
huga að hann kemur frá Póllandi en and-
spyrna er helsta dægradvöl þjóðarinnar.“
FAYE DUNAWAY
„Eftir kynni mín af Polanski fannst mér
hann fyrst og fremst vera ruddi“, lét
Dunaway hafa eftir sér og bætti svo við
„en eftir á að hyggja finnst mér það sem
hann gerði mér jaðra við að vera kynferð-
isleg áreitni.“
Stórstjörnurnar í Hollywood hafa margar borið sig illa undan Roman Polanski.
Þrándur Thoroddsen kvikmyndagerðarmaður kynntist honum á námsárunum og
segir hann hafa verið viðkunnanlegan mann sem hafi þó verið til alls líklegur.
Uppstökkt ólíkindatól
Höfum
opnað aftur
Konur - Try me buxur eru í miklu úrvali
verð frá kr. 3900
Hallveigarstíg 1 (Húsi iðnaðarmanna)