Fréttablaðið - 08.03.2003, Page 23

Fréttablaðið - 08.03.2003, Page 23
23LAUGARDAGUR 8. mars 2003 ROMAN POLANSKI Kom til Íslands í boði Listahátíðar fyrir rúmum áratug og lét þá meðal annars þau orð falla að Reykjavík væri „grá og leiðin- leg borg“. Áður en hann kom til landsins komst sá kvittur á kreik að hann myndi ekki þora að láta sjá sig á Íslandi af ótta við að Bandaríkjamenn myndu taka hann höndum á Keflavíkurflugvelli en Þrándur Thoroddsen, kunningi hans, telur þó að aðeins hafi verið um kjaftasögu að ræða. tryggingu, sá sér þann kost vænst- an að stinga af úr landi en það hef- ur verið haft eftir vinum hans að geðrannsóknin hafi reynt mikið á hann. Minningarnar úr gettóinu ásóttu hann og hann gat ekki hugs- að sér að lenda aftur bak við víg- girðingar. Polanski hefur búið í Frakk- landi síðan og hefur ekki átt aftur- kvæmt til Bandaríkjanna enda er handtökutilskipunin enn í fullu gildi og hann yrði því væntanlega hnepptur umsvifalaust í varðhald. Brokkgengur ferill í útlegðinni Polanski gerði kvikmyndina Tess eftir sögu Thomas Hardy í Frakk- landi árið 1979 og átti um tíma í ást- arsambandi við aðalleikkonuna Nastössju Kinski sem þá var 17 ára. Myndin fékk mikið lof gagnrýnenda og gerði það einnig gott í miðasöl- unni. Árið 1986 tók Polanski hressi- lega dýfu með sjóræningjamynd- inni Pirates með Walter Matthau í aðalhlutverki. Gagnrýnendur rökk- uðu hana niður og almenningur hafði takmarkaðan áhuga á henni. Hann var öllu hressari í Frantic með stórstjörnunni Harrison Ford árið 1988 þar sem greint er frá ör- væntingarfullri leit Bandaríkja- manns að eiginkonu sinni sem týn- ist í París. Myndin þykir í anda meistara Hitchcocks og varð nokk- uð vinsæl. Ári síðar giftist Polanski aðalleikkonunni í Frantic, Emanu- elle Seigner, en hún lék einnig í hinni bráðvel heppnuðu Bitter Moon árið 1992 ásamt þeim Peter Coyote og Hugh Grant. Polanski fyl- gdi Bitter Moon eftir með Death and the Maiden, ágætis mynd um misþyrmingar stjórnvalda í Suður- Ameríku á þegnum sínum með Sigo- urney Weaver og Ben Kingsley. Honum fataðist svo aftur flugið í The Ninth Gate með Johnny Depp árið 1999. Þar var hann á gamal- kunnum slóðum þar sem sá í neðra spilar veigamikla rullu í myndinni og vonbrigði aðdáenda hans voru að sama skapi enn meiri. Polanski og Seigner lifa frekar rólegu lífi ásamt tveim börnum sín- um í Frakklandi og viðbrögð áhorf- enda og gagnrýnenda við The Pian- ist benda eindregið til þess að það hafi verið skynsamlegt hjá Polanski að gera kvikmynd á æskuslóðunum í Póllandi en þar virðist þessi ógæfusami leikstjóri hafa fundið hinn rétta tón eina ferðina enn. thorarinn@frettabladid.is Ég er búinn að vera í þessu í 33ár, þannig að ég er rétt nýbyrj- aður“, segir Torfi Geirmundsson hársnyrtir. Hann byrjaði að klippa á Rakarastofunni Klapparstíg árið 1970, kenndi svo hárskurð við Iðn- skólann um árabil og skellti sér síð- an út í eigin rekstur. Hann byrjaði með Papillu, hefur rekið þrjár stof- ur síðan og klippir nú á Hárhorninu við Hverfisgötu. Torfi segist aðspurður sjálfsagt hafa verið að byrja í bransanum á mesta umbrotatímanum í sögu hans þegar hippatískan var allsráðandi. „Sagan endurtekur sig auðvitað alltaf en ég byrjaði undir lok Bítla- tímabilsins og varð fljótt vinsæll hjá ungum mönnum af því að ég snoðaði ekki eins og gömlu karlarn- ir. Strákar þorðu helst ekki á rak- arastofur á hippatímanum og stærsta breytingin varð þegar fag- menn gerðu sér grein fyrir því að þeir þyrftu að læra meira. Hingað komu leiðbeinendur, fyrst frá Dan- mörku og síðan Noregi og Englandi. Ég man vel eftir Dana sem hafði mikið fyrir því að kenna körlunum, sem margir voru sérlundaðir, að þeir ættu alltaf að taka lítið í einu svo viðskiptavinurinn kæmi fljótt aftur.“ Torfi segir hárskurðinn vera heilmikinn fastakúnnabissniss og gerir ráð fyrir að um 80% við- skiptavina séu fastakúnnar. „Sam- kvæmt breskri könnun er hver ein- staklingur með sama rakarann í fimm til sex ár. Karlmenn eru svo íhaldssamari en konurnar og skipta enn síður. Sjálfur er ég með tvo til þrjá sem ég hef klippt í rúm 30 ár. Þeir elta mig hvert sem ég fer og ég má varla skreppa út í banka án þess að þeir byrji að kvarta yfir því að maður sé aldrei við.“ ■ Torfi Geirmundsson hársnyrtir: Hefur klippt sömu mennina áratugum saman Starfiðmitt TORFI GEIRMUNDSSON Byrjaði að klippa hár fyrir rúmum 30 árum þegar tískan hafði gert það að verkum að lokkar ungra manna voru nánast heilagir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.