Fréttablaðið - 26.03.2003, Síða 22
22 26. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
LORD OF THE RINGS b.i. 12 kl. 4 LÚXUSSPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50
GANGS OF NEW YORK b.i. 16 kl. 10.20
DAREDEVIL b.i. 16 kl. 3.40 og 8
THE RING kl. 8 og 10.10 b.i. 16 ára
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6
TWO WEEKS NOTICE kl. 6 og 8
TRAPPED b.i. 12 ára kl. 5.50, 8, 10.10
GULLPLÁNETAN m/ísl. tali kl. 4Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd í lúxus kl. 8
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 b.i. 14 ára
kl. 6, 8 og 10NÓI ALBINÓI
kl. 5.50, 8 og 10.108 FEMMES
MAN WITHOUT A PAST kl. 6 og 8
NORRÆNIR BÍÓDAGAR
Sýnd kl. 4, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára
Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 8 og 10.10 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i. 12 ára
THUNDERPANTS kl. 4 og 6
kl. 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 5, 8 og 10 b.i. 14 ára
CHICAGO Sýnd í lúxus kl. 5.45 og 10.20
Eftir að hiphoppið var að mestukæft með eigendaskiptum út-
varpsstöðvarinnar Muzik hefur
myndast tómarúm í hiphoppheim-
um. Eini þátturinn þar sem
hiphopp er allsráðandi hefur verið
þáttur Robba „Chronic“ á X-inu
97,7, þar til nú. Rás 2, útvarp allra
landsmanna, hefur ákveðið að
sinna menningarskyldu sinni og
gefa tónlistarstefnunni pláss í
kvölddagskrá sinni. Þátturinn
„Óskalög sjúklinga“, sem verður í
umsjón Erps Eyvindarsonar og
Ágústar Bents, fer því í loftið ann-
að kvöld í staðinn fyrir „Alætu“
Dr. Gunna sem færði sig yfir á X-
ið fyrir stuttu.
„Það sem er svolítið áberandi
hér á Íslandi er að hiphoppsenan er
svo einhæf,“ segir Erpur, eða Pró-
fessor Blazroca eins og hann gæti
hæglega kallað sig vegna fræðslu-
starfsseminnar sem hann ætlar að
standa fyrir í þættinum ásamt
Bent. „Hér á Íslandi heyrum við að-
allega hiphopp frá einum stað og
það fer minna fyrir öllu hinu. Ríkis-
fjölmiðill ber ábyrgð á því að fræða
og gera hluti sem einkareknir miðl-
ar geta ekki. Rás 2 er ekki háð
styrkjum frá einhverri smjörlíkis-
gerð. Þess vegna ætlum við að hafa
þetta sem fjölbreyttast.“
Straumar, stefnur og rætur
hiphoppsins verða því í hávegum
höfð í þættinum. Erpur segir einnig
að boðaðir verða gestir í þættina og
jafnvel rímur látnar flæða í beinni
útsendingu. Einnig sé hugsanlegt
að þættirnir verði þematengdir.
Þannig geti einn þáttur sem dæmi
verið tileinkaður stelpum í hiphop-
pi og sá næsti neðanjarðarsenunni í
New York.
Þeir félagar ætla að leggja sitt
fram til þess að fylla upp í gatið
sem myndaðist við breytingarnar á
Muzik. Hann segir að gamlar
gremjur á milli íslenskra rappara
verði lagðar til hliðar til þess að
hægt verði að fjalla um senuna hér
á sem óhlutdrægastan hátt.
„Þetta er allt byggt á einhverju
bulli hvort eð er. Það er bara hluti
af menningunni að vera að vesen-
ast í einhverjum öðrum. Það er yf-
irleitt ekki persónulegt. Ég held að
það sé enginn sem hefur verið í
hiphoppi á Íslandi sem er algjör-
lega laus við það að hafa verið að
vesenast í einhverjum. Maður fær
ekki viðurkenninguna fyrr en mað-
ur byrjar að bulla í einhverju liði,“
segir hann og flissar.
Þættirnir verða á dagskrá Rásar
2 á fimmtudögum frá 22.10 til mið-
nættis.
biggi@frettabladid.is
■ ÚTVARPFréttiraf fólki Rás 2 styður
hiphoppið
Annað kvöld opnast ný
gátt fyrir hiphopp á Ís-
landi þegar þátturinn
„Óskalög sjúklinga“ fer í
loftið á Rás 2. Rottweiler-
hundarnir Erpur „Blaz-
roca“ og Bent ætla að
leiða hlustendur ofan í
djúpan brunn hiphopps-
ins.
BENT OG BLAZROCA
Erpur segist vita til þess að það sé smá pirringur í rappheimum á milli Öryrkjabanda-
lagsins (Bæjarins Bestu, Elvar, Bent og fleiri) og Grænna fingra (Móri, Mezzías og fleiri).
„Þetta skiptir engu máli fyrir þáttinn. Við sinnum öllu, það er bara geðveikt ánægjulegt
að Rás 2 sé að gera þetta.“
Laugavegi 32 561 0075
Það þarf meira til að gera góðabíómynd en að hóa saman
tveimur frábærum leikurum og
leikstjóra sem var upp á sitt besta
fyrir þrjátíu árum. The Hunted er
frekar dapurleg staðfesting á
þessu en hér eiga þeir allir slæman
dag óskarsverðlaunahafarnir
Tommy Lee Jones, Benicio Del
Toro og leikstjórinn William Fried-
kin (The French Connection, The
Exorcist).
Del Toro leikur hermann sem er
sérþjálfaður í manndrápum og er
einfaldlega sá besti í sínu fagi.
Hann er svona Rambó síns tíma en
í stað þess að vera skemmdur eftir
Víetnamstríðið flippar hann eftir
allan viðbjóðinn í Kosovo. Hann
fer svo í framhaldinu að nota þekk-
ingu sína til að kála veiðimönnum
úti í skógi í Bandaríkjunum. Það
gengur ekki og maðurinn sem ken-
ndi honum að drepa, náttúruunn-
andinn Jones, er fenginn til að elta
sköpunarverk sitt uppi og taka úr
umferð.
Framan af minnir þetta allt
saman á First Blood nema Rambó
var auðvitað ekki vondur og það er
auðvitað spurning hvort Del Toro
sé illmenni en tvöfeldni persónu
hans er átakanlega illa unnin. Þar
fyrir utan er þetta allt svo sam-
hengislaust og brotakennt að
spennan helst aldrei og hraðinn er
ekki nógu mikill til að breiða yfir
allar brotalamirnar í handritinu.
Stallone er enginn Del Toro og
Richard Crenna er enginn Tommy
Lee Jones en First Blood er samt
mikið betri mynd en The Hunted.
Þórarinn Þórarinsson
Umfjöllunkvikmynd
Þá er nú
Rambó betri
Rithöfundurinn J.K Rowling ogeiginmaður hennar eignuðust
sitt fyrsta barn á
sunnudag. Hjónin
eignuðust strák og
heilsast móður og
barni vel. Þetta er
fyrsta barn hjón-
anna en Rowling á
eina níu ára gamla
dóttur fyrir. Fjölskyldan er nú
komin heim með nýja drenginn.
Ætli hann komi til með að heita
Harry?
Stúlkurnar í lesbíudúettnumTatu, sem keppir á móti
Birgittu Haukdal í Eurovision,
segjast elskast allt að þrisvar sinn-
um á dag. Lena og Julia segjast
gera það þegar þær vakna á
morgnana, einu sinni á eftirmið-
daginn og svo á kvöldin. Eftir tón-
leika segjast þær iðulega taka
nokkrar sætar stelpur með sér
upp á hótelherbergi til þess að
leika sér saman. Þær segjast
einnig stunda
kynlíf með karl-
mönnum en það
sé bara ekki
næstum því eins
skemmtilegt.
Sigurlíkur
Birgittu Hauk-
dal fara því
minnkandi með degi hverjum.
„Sofa hjá? Þú átt það alltaf skilið.“
Framleiðsla þriðju Harry Pottermyndarinnar gæti verið í
hættu vegna yfirvofandi verkfalls
verkamanna á tökustað. Nú er ver-
ið að byggja upp nýjan hluta sviðs-
myndarinnar og gæti sú fram-
kvæmd stöðvast á föstudag þegar
verkfallið á að byrja ef samningar
nást ekki. Verkamenn vildu 8%
kauphækkun en Warner Brothers
þvertók fyrir það. Tökur eiga að
hefjast eftir nokkrar vikur. Verka-
mennirnir hafa verið á sömu laun-
um frá því að þeir voru ráðnir fyr-
ir fyrstu myndina fyrir
þremur árum síðan.
Aldrei hafafærri Banda-
ríkjamenn horft á
Óskarsverðlauna-
hátíðina síðan mæl-
ingar hófust. Aðeins
um 33 milljónir
Bandaríkjamanna
fylgdust með hátíðar-
höldunum en það eru
víst 20% færri en í
fyrra. Hingað til
hefur verðlauna-
hátíðin verið eitt
vinsælasta sjón-
varpsefni ársins,
fyrir utan úr-
slitaleikinn í
bandarískum fótbolta. Í ár er talið
að margir hafi frekar verið að
fylgjast með fréttastöðvunum til
þess að fylgjast með stöðu mála í
Írak.
Talsmenn Reneé Zellwegersegja að hún hafi ekki tekið
þátt í söngatriðinu
á Óskarsverðlaun-
unum vegna gífur-
legrar sviðs-
hræðslu sinnar.
Stúlkan er ekki vön
því að koma fram á
sviði enda hefur
hún alla sína tíð
einungis leikið í kvikmyndum.
Um leið og leikkonan NicoleKidman kveikti aftur á far-
símanum sínum að Óskarsverð-
launahátíðinni
lokinni fékk hún
víst símtal frá
Tom Cruise,
fyrrum eigin-
manni hennar.
Hann var stadd-
ur á Nýja-Sjá-
landi við tökur
myndarinnar
„The Last
Samurai“ og fylgdist með hátíðinni
í sjónvarpinu. Þeir sem sáu til
sögðu að stúlkan hefði verið ná-
lægt því að bresta í grát.
CHICAGO b.i. 12 kl. 5.45, 8 og 10.20
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
H
O
R
ST
EN