Fréttablaðið - 22.04.2003, Blaðsíða 4
4 22. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Fórstu í kirkju um páskana?
Spurning dagsins í dag:
Er vorið komið?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
50,4%
49,6%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
SKOÐANAKÖNNUN Fleiri kjósendur
vilja að núverandi stjórnarand-
staða myndi næstu ríkisstjórn en
að ríkisstjórn sitji áfram. Þetta
kemur fram í skoðanakönnun
Fréttablaðsins sem gerð var á
laugardag.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks sögðust 42,0
prósent vilja hafa áfram en 46,8
prósent segjast vilja ríkisstjórn
stjórnarandstöðuflokka, það er
Samfylkingar, Frjálslynda flokks-
ins og Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs.
Rúmlega tíu prósent sögðust
óákveðin þegar spurt var hvort
fólk væri fylgjandi eða andvígt
því að núverandi ríkisstjórn sitji
áfram eftir kosningar. 37,6 pró-
sent sögðust vilja sömu ríkisstjórn
en 52,0 prósent vildu hana ekki. Ef
aðeins er litið til þeirra sem tóku
afstöðu sést að 42 prósent eru
fylgjandi ríkisstjórninni en 58 pró-
sent eru andvíg henni.
Hugsanleg ríkisstjórn stjórnar-
andstöðunnar nýtur stuðnings 38,1
prósents svarenda, 43,3 prósent
vilja ekki slíka ríkisstjórn en 18,6
prósent taka ekki afstöðu til henn-
ar. Af þeim sem taka afstöðu segj-
ast 46,8 prósent vilja ríkisstjórn
stjórnarandstöðunnar og 53,2 pró-
sent ekki.
Hringt var til 1.200 kjósenda
sem skiptast jafnt milli kynja og
landsbyggðar og þéttbýlis sam-
kvæmt hluföllum í kjörskrá. Spurt
var annars vegar: ertu fylgjandi
eða andvíg(ur) því að núverandi
ríkisstjórn sitji áfram eftir kosn-
ingar? 1,8 prósent svöruðu ekki.
Hins vegar var spurt: ertu fylgj-
andi eða andvíg(ur) því að núver-
andi stjórnarandstöðuflokkar
myndi ríkisstjórn eftir kosningar?
2,3 prósent svöruðu ekki. ■
KLIFRAÐI UPP Í KRANA
Kona klifraði upp í byggingar-
krana við Aðalstræti klukkan sex
í gærmorgun. Konan, sem er um
tvítugt, hafði klifrað efst upp í
kranann. Var hún á leiðinni niður
þegar lögreglu bar að garði og
þótti ráðlegast að stöðva hana og
bíða eftir körfubíl frá slökkvilið-
inu sem flutti hana niður heilu og
höldnu.
KVEIKT Í NÚMERALAUSUM BÍLUM
Mikill erill var hjá lögreglunni á
Selfossi um helgina. Kveikt var í
þremur númeralausum bílum á
Selfossi um helgina og var
slökkvilið staðarins kallað út. Þá
voru tveir menn handteknir. Ann-
ar þeirra reyndi að hlaupa í veg
fyrir bíla í suðurhluta bæjarins.
Þegar lögreglan reyndi að stoppa
manninn kom annar að og reyndi
að hindra störf lögreglu.
LÖGREGLUMÁL Nokkur fíkniefna-
mál komu til kasta lögreglunnar
víða um land um páskahelgina.
Tveir menn voru handteknir í
Keflavík eftir að þrjátíu grömm
af amfetamíni og fimmtán
grömm af hassi fundust. Hafði
lögregla stöðvað þá þar sem þeir
óku um bæinn. Tók lögregla eft-
ir að annar maðurinn fleygði
umslagi aftur inn í bílinn eftir að
þeir voru nýstignir út. Reyndist
fyrrgreint fíkniefni vera í um-
slaginu. Mennirnir, sem eru um
þrítugt og fertugt, viðurkenndu
að eiga fíkniefnin. Báðir hafa
áður komið við sögu lögreglu
vegna fíkniefnamála.
Í Borgarnesi voru sex ung-
menni handtekin eftir að nokkur
grömm af hassi og neysluáhöld
fundust. Þremur ungmennanna
var sleppt en þrjú voru í haldi
yfir nóttina. Málið kom upp eftir
að nokkrir bílar voru stöðvaðir
og húsleit gerð í kjölfarið. Málið
telst upplýst.
Tvö fíkniefnamál komu upp í
tengslum við dansleik í
Neskaupstað. Í báðum tilvikum
var um að ræða nokkurt magn af
e-töflum. Lögreglan handtók tvo
karlmenn sem báðir játuðu að
eiga efnið. Málin eru upplýst. ■
Forstjóri Samherja
sakaður um rasisma
Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður sakar Þorstein Má Baldvins-
son um kynþáttafordóma, lygar, hroka og svik. Þorsteinn Már svarar
fullum hálsi.
SJÁVARÚTVEGUR „Fæst þessi orð koma
mér á óvart frá Kristni og ég hef
heyrt þau áður. Ég mun hins vegar
ekki sitja undir þeirri ásökun, sem
er ný af nálinni, að ég sé rasisti,“
segir Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja. Kristinn H.
Gunnarsson alþingismaður ritaði
grein í Morgunblaðið á skírdag þar
sem hann sakar Þorstein Má um
kynþáttafordóma, hroka, lygar og
svik. Tilefni greinarinnar er um-
mæli Þorsteins Más í sjónvarpsvið-
tali nýverið. Þar lýsti hann andstöðu
við það að veiðiheimildir yrðu færð-
ar til Vestfjarða með sértækum að-
gerðum, m.a. frá Eyjafirði, á þeim
forsendum að fiskvinnslur á Vest-
fjörðum væru einkum mannaðar út-
lendingum.
„Ég benti á ákveðna staðreynd,“
segir Þorsteinn Már. „Það hefur
þurft að fá fólk að utan til þess að
vinna í fiski fyrir vestan. Það er
ákveðin vísbending um það að at-
vinnuástand fyrir vestan hefur víð-
ast hvar verið gott og það sé því
ekki nauðsynlegt að færa veiði- heimildir þangað frá Eyjafirði. Í
Eyjafirði hefur skipum og sjó-
mannsstörfum fækkað. Ég er reiðu-
búinn að ræða þessi mál og fara yfir
þessar tölur. Þetta hefur ekkert með
kynþáttahatur að gera.“
Í greininni rekur Kristinn tvö
dæmi um það sem hann kallar svik
Þorsteins Más og Samherja á gefn-
um loforðum, annars vegar þegar
Samherji seldi Guðbjörgina úr
landi, frá Ísafirði, eftir sameiningu
útgerðarfélagsins Hrannar og Sam-
herja, og hins vegar þegar skip
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar voru
skráð á Akureyri eftir kaup Sam-
herjamanna á útgerðinni árið 1985.
„Ég hef fengið þessar ávirðingar á
mig áður,“ segir Þorsteinn. „En ef
við lítum á Hafnarfjörð þá hefur
verið mikil gróska þar. Ég held að
Samherji landi um 70 prósentum af
afla á suðvesturhorninu. Ég held því
að við höfum skapað þar mikla at-
vinnu.“
Varðandi Ísafjörð segir Þor-
steinn ástæðuna fyrir því að Guð-
björgin hafi verið seld úr landi hafa
verið þá að aflaheimildir hafi dreg-
ist saman. „Við þurftum að bregðast
við því eins og aðrir,“ segir hann.
Þorsteinn segir ásakanir Krist-
ins koma illa við tæplega 800 starfs-
menn Samherja. „Ég hef góðan hóp
af fólki sem vinnur sem ein heild og
ég ætla ekki að láta Kristin H.
Gunnarsson eyðileggja það.“
gs@frettabladid.is
LÖGREGLAN
Lögreglan viðhafði strangt eftirlit víða um
land um páskahelgina. Í kjölfarið komst
upp um nokkur fíkniefnamál.
KRISTINN H. GUNNARSSON
Sakar Þorstein Má um svik við Ísafjörð og Hafnarfjörð og fordóma gagnvart erlendu
vinnuafli.
ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON
Ætlar að funda með starfsmönnum allra deil-
da Samherja og fara yfir ásakanir Kristins.
Kristinn H. Gunnarsson:
Stendur við
orð sín
SJÁVARÚTVEGUR „Ég stend við allt
þetta sem ég segi. Ég var að
bregðast við orðum sem Þorsteinn
Már lét falla í Kastljósþætti á dög-
unum,“ segir Kristinn H. Gunn-
arsson alþingismaður um blaða-
grein sína á skírdag, þar sem hann
sakar Þorstein Má Baldvinsson,
forstjóra Samherja, m.a. um kyn-
þáttafordóma. Kristinn H. túlkar
umrædd ummæli Þorsteins
þannig að hann hafi beðið fólk um
að gera sér grein fyrir því hvort
það vildi frekar halda uppi fisk-
vinnslu með útlendingum vestur á
fjörðum eða með Íslendingum á
Eyjafjarðarsvæðinu. Hann hafi
því hafnað tilfærslu veiðiheimilda
til Vestfjarða á grundvelli kyn-
þáttafordóma. „Þetta vakti mikla
reiði hér fyrir vestan,“ segir
Kristinn. ■
Páskahelgin:
Fíkniefni víða
um land
■ Lögreglufréttir
■ Lögreglufréttir
VILDU SELJA 15 LÍTRA AF LANDA
Tveir sautján ára drengir voru
handteknir í Hafnarfirði um helg-
ina með fimmtán lítra af landa.
Skoðanakönnun um ríkisstjórn:
Ríkisstjórn fær 42
prósenta stuðning
Núverandi ríkisstjórn Ríkisstjórn stjórnarandstöðuflokkanna
RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS
Fleiri vilja að hún starfi ekki að loknum kosningum.
Féll sjö metra niður:
Haldið
sofandi
SLYS Karlmaður um tvítugt slasað-
ist alvarlega þegar hann féll sjö
og hálfan metra niður á malbikað
bílastæði við Hafnarstræti á Ak-
ureyri rétt eftir miðnætti aðfara-
nótt mánudagsins. Maðurinn féll
fram af svölum á þriðju hæð.
Hann hlaut slæm beinbrot í and-
liti og á útlimum og var fluttur
með sjúkraflugi á Landspítala –
háskólasjúkrahús í Fossvogi. Að
sögn vakthafandi læknis á gjör-
gæsludeild er maðurinn ekki í
lífshættu en alvarlega slasaður.
Honum hefur verið haldið sofandi
síðan og var ráðgert að hann færi
í aðgerð í gær.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri stóð yfir samkvæmi í íbúð-
inni sem svalirnar sem maðurinn
féll niður af tilheyrðu. Verið er að
rannsaka orsök slyssins. ■
Hlaup í Súlu:
Í jafnvægi
HLAUP Hlaup hófst í Súlu á Skeið-
arársandi á sunnudag. Síðdegis í
gær virtist sem vatnsmagnið væri
komið í jafnvægi, að sögn Gylfa
Júlíussonar, vegaverkstjóra hjá
Vegagerðinni í Vík. Vatnið náði að
ryðja niður varnargörðum sem
brúarsmiðir höfðu ýtt upp á
sunnudagskvöld. Fyrr um kvöldið
tókst brúarvinnuflokki úr Vík að
bjarga tækjum þegar hlaupið kom
í ána um sjöleytið. Var verið að
bæta við miðstöpli í brúna yfir
Núpsvötn til að gera hana hæfari
til að þola hlaup.
Súluhlaup kemur úr Grænalóni
við Skeiðarárjökul. Þrívegis varð
hlaup í fyrrasumar. ■