Fréttablaðið - 22.04.2003, Page 6
6 22. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.65 -0,73%
Sterlingspund 120.60 -0,58%
Dönsk króna 11.18 -0,09%
Evra 82.98 -0,13%
Gengisvístala krónu 119,38 -0,53%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 323
Velta 5.312 milljónir
ICEX-15 1.422 0,38%
Mestu viðskipti
Ísl. hugbúnaðarsj. hf. 680.937.538
Kaupþing banki hf. 609.337.063
Landsbanki Íslands hf. 372.640.541
Mesta hækkun
Síldarvinnslan hf. £3,30%
Grandi hf. 2,63%
Flugleiðir hf. 2,17%
Mesta lækkun
Landsbanki Íslands hf. -0,96%
Búnaðarbanki Íslands hf. -0,93%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8334,1 0,0%
Nasdaq*: 1424,6 -0,1%
FTSE: 3889,2 0,9%
DAX: 2899,8 2,7%
NIKKEI: 7969,1 1,9%
S&P*: 890,3 -0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Bráð lungnabólga herjar nú á heims-byggðina og má rekja uppruna hennar
til Kína. Hvað kallast faraldurinn?
2Árlegri skíðakeppni sem haldin er ár-lega á Akureyri hefur verið aflýst
vegna snjóleysis. Hvað kallast leikarnir?
3Ungfrú Ísland.is verður haldin áóvenjulegum stað. Hvaða staður er
það?
Svörin eru á bls. 30
SAKAMÁL Kviðdómur í Escambia-
sýslu í Flórída hefur ákveðið að
Sebastian „Dexter“ Young verði
ákærður fyrir
morð að yfir-
lögðu ráði.
Dexter er
grunaður um að
hafa myrt hina
íslensku Lucille
Mosco. Hann er
einnig ákærður
fyrir morðtil-
raun. Sonur Lucille, Jón Atli Júlí-
usson, slapp illa særður undan
næturárás Dexters um miðjan
mars síðastliðinn.
„Ég og Jón Atli bárum vitni
ásamt lögreglunni. Það varð til
þess að kviðdómurinn ákvað sig á
þremur mínútum,“ segir Robert
N. Mosco, bróðir Lucille og móð-
urbróðir Jóns Atla.
Robert segir kviðdóminn hafa
verið einróma í ákvörðun sinni.
David Rimmer saksóknari íhugi
nú að krefjast dauðarefsingar yfir
Dexter, eins og lög í Flórída heim-
ili.
„Sebastian stígur alla vega
ekki fæti í frelsið aftur,“ segir Ro-
bert um fyrrverandi mág sinn.
Að sögn Roberts neitar Dexter
alfarið að hafa myrt Lucille.
Einnig að hafa skotið Jón Atla í
bakið með haglabyssu og stungið
margsinnis með hnífi. Lucille var
eiginkona Dexters í fimm ár:
„Hann neitar þessu ennþá og
segir meðal annars að það sé ver-
ið að níðast á sér vegna þess að
hann er svartur. Lögreglan sagði
að frásögn hans tæki stöðugum
breytingum. Hann heldur að hann
sé svo miklu gáfaðri en allir í
kringum sig,“ segir Robert.
Fjölskylda Lucille er að sögn
Roberts mjög ánægð með ákvörð-
un kviðdómsins:
„Við hlökkum mikið til að koma
þessu af stað og ljúka málinu. Við
vonum bara að pólitíkin þvælist
ekki fyrir. Málið er að verða svo-
lítið stórt hérna í sýslunni,“ segir
Robert, sem biður að heilsa öllum
á Íslandi.
gar@frettabladid.
MÓTMÆLI „Mér ofbýður þessi ein-
hliða umfjöllun um ástandið í
Írak. Allt búið og gert og ekkert
þýði að sperra sig út af þessu
lengur? Það er nú ekki,“ segir Þor-
valdur Þorvaldsson andófsmaður,
sem ekki lætur deigan síga þó svo
að margir þykist sjá fyrir endann
á stríðinu í Íran. Aðspurður segir
Þorvaldur síður en svo mál að
hætta mótmælastöðu. Sama
stefna Bandaríkjanna sé uppi.
„Þau hafa lagt Írak í rúst, eyðilagt
fornminjar, hvatt til upplausnar
og skemmdarverka. Svo er ætlast
til þess að menn yppi bara öxlum
og sætti sig við orðinn hlut. Bar-
áttan heldur áfram í Írak og innan
landamæra þar eru fjölmörg sam-
tök sem berjast gegn hernáminu.
Mótmælin halda áfram enda full
ástæða til, Bandaríkjamenn ætla
ekki að láta þarna staðar numið.“
Þorvaldur segir bráða nauðsyn
á því að Íslendingar breyti stefnu
sinni í þessu máli. „Ótrúlegt er
hvað íslenskir ráðherrar hafa
komist upp með miklar rang-
færslur í fjölmiðlum. Davíð Odds-
son heldur því fram að 500 þúsund
börn hafi dáið af völdum Saddams
Hussein! En þarna er hann að tala
um þau börn sem hafa dáið af
völdum viðskiptabannsins sem
þessi sami Davíð hefur staðið að
og stutt. Dæmigert fyrir mann
sem er að reyna að koma eigin
glæpum yfir á aðra. Árás hafi
ekki verið umflúin, segir Halldór
Ásgrímsson. En þeir koma sér
alltaf undan því að svara grund-
vallarspurningu málsins: Á hvern
hátt ógnaði Írak Bandaríkjunum,
Bretlandi og umheiminum yfir-
leitt? Svo þegar þeir eru komnir í
rökþrot enda þeir alltaf með að
segja: En Saddam er svo vondur!“
segir Þorvaldur, hvergi nærri
hættur andófi. ■
Kosningabaráttan:
Vinir Dóra
STJÓRNMÁL „Jú, mér hefur svo
sannarlega borist þetta til eyrna
þó ekki hafi ég barið gripinn aug-
um sjálfur. Síminn stoppar ekki
og vinir mínir eru
að gera mér við-
vart,“ segir Halldór
Bragason, betur
þekktur sem Dóri
Braga, forsprakki
hljómsveitarinnar
Vinir Dóra.
F r a m s ó k n a r -
menn hafa látið
framleiða barm-
merki þar sem á
stendur letrað: Vin-
ir Dóra. „Þetta er
fínt barmmerki sem hugmynda-
ríkir ungir framsóknarmenn í
Reykjavík létu gera til heiðurs
oddvitanum í borginni. Merkið
þykir kjörgripur og eftirsóknar-
verður til eignar. Ekki spillir að
það felur í sér sögulega tilvísun í
tónlistarsöguna,“ segir Björn Ingi
Hrafnsson hjá Framsókn.
„Ég kýs að gefa ekki upp
hverja ég styð í komandi kosning-
um og á þeim forsendum finnst
mér rétt að taka fram að þetta
tengist ekki hljómsveitinni á einn
eða annan hátt,“ segir Dóri. ■
MEST ATVINNULEYSI HJÁ UNGU FÓLKI
Atvinnuleysið var mest meðal yngstu ald-
urshópanna, eða 8,5% meðal 16 til 24
ára. Atvinnuleysi karla í þessum aldurshópi
mældist 11,3% en 5,7% hjá konum.
Hagstofan:
Tæplega 4%
atvinnuleysi
ATVINNA Atvinnuleysi mældist
3,9% á fyrsta fjórðungi ársins,
samkvæmt vinnumarkaðsrann-
sókn Hagstofunnar. Alls voru
6.100 manns án vinnu og í atvinnu-
leit.
Atvinnuleysi var 4,5% hjá körl-
um en 3,2% hjá konum. Atvinnu-
leysið var mest meðal yngstu ald-
urshópanna, eða 8,5% meðal 16 til
24 ára. Atvinnuleysi karla í þess-
um aldurshópi mældist 11,3% en
5,7% hjá konum.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknarinnar voru 152 þúsund
manns starfandi á ársfjórðungn-
um. Á vinnumarkaði voru að með-
altali rúmlega 158 þúsund manns
sem jafngildir 80,2% atvinnuþátt-
töku. Atvinnuþátttaka karla var
83,5% en kvenna 76,8%.
Rannsóknin nær til fyrstu 13
vikna ársins, frá 30. desember
2002 til 30. mars 2003. Heildarúr-
takið var 3.944 manns á aldrinum
16-74 ára sem valdir voru af
handahófi úr þjóðskrá. ■
Þorskveiðar:
Bannaðar í
Eystrasalti
BRUSSEL, AP Evrópusambandið hef-
ur bannað sjómönnum að veiða
þorsk í Eystrasalti í von um að
stofninn nái að rétta aðeins úr kút-
num eftir áratugalanga ofveiði.
Bannið gildir fram í september.
„Þessi veiði er alvarleg ógn við
vernd og uppbyggingu þorsk-
stofnanna,“ sagði Franz Fischler,
sem fer með sjávarútvegsmál í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins.
Sambandið hyggur á viðræð-
ur við þau Eystrasaltsríki sem
ekki eiga aðild að Evrópusam-
bandinu. ■
LÖGREGLUMÁL Foreldrar þriggja
drengja á Ísafirði hafa krafist
leiðréttingar á bókun sem lögregl-
an á staðnum gerði um miðjan
febrúar og birti á lögregluvefn-
um. Þar sagði frá árás fjögurra
þrettán ára drengja á einn sjö ára
dreng. „Þó meiðsli hafi ekki verið
alvarleg er árásin engu að síður
alvarleg. Mál þetta var falið
Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísa-
fjarðarbæjar og foreldrum
drengjanna til meðferðar,“ segir
orðrétt í fyrrgreindri bókun lög-
reglunnar.
Foreldrarnir telja þessa bókun
ranga. Ungi drengurinn hafi orðið
fyrir aðkasti eins þrettán ára
drengs en hinir þrír hafi ekki átt
hlut að máli. Á vefsíðu bb.is segir
að lögregluyfirvöld á Ísafirði fall-
ist ekki á breytingu á bókuninni.
Bréfaskipti hafa verið vegna
málsins. Foreldrar eins af eldri
drengjunum hafa kært meðferð
lögreglunnar á Ísafirði á þessu
máli til embættis ríkislögreglu-
stjóra. „Við óskum eftir því að
embætti ríkislögreglustjóra hlut-
ist til um rannsókn á málinu og
leiðrétting verði gerð á fyrr-
greindri fréttatilkynningu,“ segir
í niðurlagi kærubréfsins. ■
HALLDÓR
BRAGASON
“Framsóknar-
menn verða að
eiga sinn blús í
friði fyrir mér.”
ÞORVALDUR ÞORVALDSSON
Andófsmaðurinn öflugi telur vert að halda
vöku sinni, Bandaríkjamenn séu hvergi
nærri hættir styrjaldarbrölti sínu.
Samtökin Átak gegn stríði halda sínu striki:
En Saddam er
svo vondur
ÓSÁTTIR VIÐ LÖGREGLU
Foreldrar þriggja drengja eru ósáttir við
lögregluyfirvöld á Ísafirði.
Foreldrar á Ísafirði:
Vilja breytta
bókun lögreglu
Þrjár mínútur að
gefa út morðákæru
Meintur banamaður íslenskrar konu hefur verið ákærður fyrir morð að
yfirlögðu ráði og morðtilraun gegn syni hennar. Hann segist saklaus.
Verið sé að níðast á honum vegna þess að hann sé blökkumaður. Sak-
sóknari íhugar kröfu um dauðarefsingu.
LUCILLE MOSCO
„Lögreglan sagði að frásögn hans tæki
stöðugum breytingum,“ segir Robert N.
Mosco, um meintan banamann systur
sinnar, Lucille Mosco.
„Dexter
heldur að
hann sé svo
miklu gáfaðri
en allir í
kringum sig.