Fréttablaðið - 22.04.2003, Page 8
SÝRLENDINGAR VILJA SAMVINNU
Utanríkisráðherra Sýrlendinga,
Farouq al-Sharaa, segist fagna
hugmyndum George Bush um
samvinnu Sýrlendinga og Banda-
ríkjamanna. „Við vonum að yfir-
lýsingar forsetans marki tíma-
mót og að við getum hafið gagn-
legar viðræður.“ Við páskamessu
í Texas sagðist Bush sannfærður
um að sýrlensk stjórnvöld vildu
samstarf við Bandaríkjamenn og
að Sýrlendingar tækju ekki á
móti „stríðsglæpamönnum“ frá
Írak.
EYDDU EFNAVOPNUM
Íraskur vísindamaður, sem ku
hafa starfað við efnavopnaáætl-
un stjórnvalda í Írak í rúm tíu
ár, hefur greint bandaríska her-
námsliðinu frá því að Írakar hafi
eytt efnavopnum örfáum dögum
áður en stríðið hófst. Þetta kem-
ur fram á netsíðu The New York
Times. Sömuleiðis segir hann
Íraka hafa á laun sent óhefð-
bundinn vopnabúnað til Sýrlands
á árunum 1990-2000 og að Írakar
hafi unnið með al Kaída-samtök-
unum.
8 22. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Erlent
Stjórnmál
Framsóknarflokkurinn – kjölfestan í íslenskum stjórnmálum
– ekki slagsmál
SVEFN Tveir af hverjum þremur
vinnandi Bretum ná sér í kríu í
vinnutímanum samkvæmt nýrri
könnun þar í landi. Sex af hverj-
um tíu sögðust fá sér nokkra mín-
útna blund daglega á baðherberg-
inu, bílastæðinu eða jafnvel við
skrifborðið.
Boots-verslanirnar spurðu
1.900 viðskiptavini hversu marga
tíma á nóttu þeir svæfu og 41%
sagðist sofa sjö tíma á nóttu, en
æskilegt meðaltal er sjö og hálf-
ur til átta tímar.
„Ef fólk þarf að fá sér blund
að deginum staðfestir það bara
að nætursvefninn er ekki nógu
góður,“ segir prófessor Chris
Idzikowski, sérfræðingur Boots í
svefnvenjum.
„Það er allt í lagi að fá sér kríu
í vinnunni, en fólk ætti að hafa
það hugfast að það tekur 20 mín-
útur fyrir heilann að hrökkva al-
mennilega í gang aftur,“ segir
Idzikowski. ■
STJÓRNMÁL „Ég hugsa að helsta
hliðstæðan væri Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna í kosning-
um 1971. Þeirra aðalmál var út-
færsla landhelginnar, á svipaðan
hátt og aðalmál Frjálslyndra er
breyting á kvótakerfinu,“ segir
Svanur Kristjánsson prófessor í
stjórnmálafræði, aðspurður um
það hvaða helstu hliðstæður hann
sjái í íslenskri stjórnmálasögu við
Frjálslynda flokkinn, en uppgang-
ur Frjálslyndra í skoðanakönnun-
um undanfarið hefur vakið þó
nokkra athygli.
Hann segir Frjáls-
lynda vera breyt-
ingaflokk, sem fari
fram með kröfu um
ákveðnar kerfis-
breytingar. Að því
leyti svipi þeim einnig nokkuð til
Bandalags jafnaðarmanna.
„Bandalag jafnaðarmanna lagði
mikla áherslu á stjórnarskrár-
breytingar,“ segir Svanur. „Frjáls-
lyndir eiga sér nokkra hliðstæðu
við flokka sem hafa boðað slíkar
kerfisbreytingar.“
Svanur vill þó ekki meina að
Frjálslyndir séu eins málefnis
framboð. „Mér finnst það oft
gleymast í þessari umræðu að þeir
eru með borgarfulltrúa í Reykja-
vík,“ segir Svanur. „Ekki eru þeir
með borgarfulltrúa í Reykjavík út
af kvótakerfinu. Þeir hafa mjög
markvisst talað um velferðarmál
og sérhæft sig í þeim.“ Að þessu
leyti til minna Frjálslyndir einnig
nokkuð á Borgaraflokkinn, að
mati Svans, því Borgaraflokkur-
inn lagði áherslu á velferðarmál,
var frjálslyndur og tók talsvert af
verkalýðsfylgi Sjálfstæðisflokks-
ins yfir til sín. Svanur telur ekki
loku fyrir það skotið að sama sé
uppi á teningnum nú í tilviki
Frjálslyndra.
Í samhengi íslenskrar stjórn-
málasögu er Frjálslyndi flokkur-
inn það sem kalla má fimmta
framboðið. Það kemur fram til
viðbótar við hina fjóra flokkana,
sem vissulega hafa tekið talsverð-
um breytingum á undanförnum
árum. Fimmta framboðinu, segir
Svanur, tekst nærri alltaf að afla
talsverðs fylgis. En erfitt er hins
vegar að segja til um framtíð
Frjálslyndra, að mati Svans. Örlög
svipaðara framboða hafa yfirleitt
verið þau að aðrir flokkar taka
upp málstað þeirra og framboðið
fjarar út. „Frjálslyndir geta
þannig orðið fórnarlömb eigin vel-
gengni,“ segir Svanur. Hann bend-
ir þó á eina stóra undantekningu
frá þessari venju, sem er Kvenna-
listinn. Hann bauð fram fyrst 1983
og hélt velli í margar kosningar,
og sameinaðist síðan öðrum flokk-
um á vinstri væng í Samfylking-
unni.
gs@frettabladid.is
Fegurð
í bílahöll
FEGURÐARSAMKEPPNI Ungfrú Ís-
land.is verður kjörin í beinni sjón-
varpsútsendingu á Skjá einum
föstudaginn 25. apríl. Keppnin fer
fram í höfuðstöðvum Bifreiða og
landbúnaðarvéla á Grjóthálsi í
Reykjavík en fyrstu verðlaun eru
einmitt Getz-bifreið frá umboð-
inu. Ungfrú Ísland.is leggur ekki
einvörðungu upp úr útliti kepp-
enda heldur skyggnist undir yfir-
borðið og metur innri mann að
jöfnu við þann ytri. Athygli hefur
vakið að tveir keppenda eru af er-
lendu bergi brotnir þó komnir séu
með íslenskan ríkisborgararétt.
Irena kemur frá Póllandi og Svetl-
ana er rússnesk. Báðar hafa stúlk-
urnar verið búsettar hér á landi
um nokkurra ára skeið. ■
VIÐSKIPTI „Þessi mikla sala er fyrst
og fremst út af háum raunvöxtum
hér á landi og þeirri staðreynd að
lánshæfismat íslenska ríkisins er
mjög hátt hjá alþjóðlegum stofn-
unum,“ segir Þórður Pálsson, yfir-
maður greiningardeildar hjá
Kaupþingi, en Kaupþing hefur
undanfarið selt mikið af íslensk-
um húsbréfum og öðrum skulda-
bréfum á erlendum markaði.
Mánaðarleg sala Kaupþings á ís-
lenskum skuldabréfum til útlanda
að undanförnu hefur numið um
fimm milljörðum króna. „Miðað
við það að bréfin eru verðtryggð
og í ríkisábyrgð,“ segir Þórður,
„þá eru þau hagstæðari en önnur
slík bréf annars staðar, vegna
þess að vextirnir annars staðar
eru lægri.“
Afföll á húsbréfum hafa horfið
undanfarið vegna mikillar sölu og
bréfin hafa farið í yfirverð. Þessi
mikla sala hefur haft áhrif til
lækkunar raunvaxta hér á landi,
segir Þórður. Aðspurður um það
af hverju Kaupþing hefur selt
mest af húsbréfum og öðrum
skuldabréfum á erlendum mark-
aði undanfarið segir hann það af-
rakstur mikils kynningarstarfs í
erlendum útibúum Kaupþings um
áraraðir. Hann vill ekkert segja
um ágóða Kaupþings af sölunni.
„Við erum að sjálfsögðu ekki að
tapa á þessu,“ segir Þórður. ■
Þreyttir Bretar.
Fá sér kríu í vinnunni
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON
Frjálslyndi flokkurinn hefur aukið verulega
við sig fylgi í skoðanakönnunum. Fimmta
framboðið hefur yfirleitt skilað árangri í
stjórnmálasögu undanfarinna áratuga.
Frjálslyndir
á siglingu
Uppgangur Frjálslynda flokksins eru ein
helstu stórtíðindi skoðanakannana undanfarið.
Flokkurinn á sér nokkrar hliðstæður í stjórn-
málasögunni, segir prófessor í stjórnmálafræði.
■
Ekki eru þeir
með borgarfull-
trúa í Reykjavík
út af kvótakerf-
inu.
KAUPÞING
Hefur selt útlendingum íslensk húsbréf og
önnur skuldabréf í stórum stíl undanfarið.
Mikið selt af íslenskum skuldabréfum til útlendinga:
Fimm milljarðar
á mánuði