Fréttablaðið - 22.04.2003, Qupperneq 28
STJÓRNMÁL „Ég hef alltaf haft mik-
inn áhuga á stjórnmálum og ákvað
því að fjalla um stjórnmál og al-
mannatengsl í lokaverkefninu,“
segir Björn Árni Ólafsson, sem er
að leggja lokahönd á BS-ritgerð
sína í viðskiptafræði við Við-
skiptaháskólann á Bifröst. „Ég
legg mesta áherslu á samskipti
stjórnmálamanna við fjölmiðla en
skoða líka ræðutíma þingmanna.
Þar má finna margt athyglisvert
sem tengist heildarmyndinni en
mér sýnist til dæmis að á báðum
þessum vígstöðvum horfi stjórn-
málamenn meira á magnið en
gæðin.“
Ræðustóll Alþingis er vett-
vangur sem þingmenn geta notað
til að kynna sjálfa sig og baráttu-
mál sín og sá tími sem þeir eyða í
stólnum gefur ákveðnar vísbend-
ingar um slíkt. „Ögmundur Jónas-
son er ræðukóngur síðasta þings.
Hann talaði í 24 klukkutíma og 29
mínútur, sem er um 8,7% af heild-
arræðutíma þingsins, og náði þar
með titlinum af flokksformanni
sínum og ræðukóngi síðustu
þriggja þinga, Steingrími J. Sig-
fússyni. Ögmundur barðist hart
gegn Kárahnjúkavirkjun og ál-
verinu á Reyðarfirði á síðasta
þingi. Hann hafði ekki sigur í því
máli en landaði þó ræðukóngstitl-
inum. Það má ætla að Steingrímur
hafi kosið að beita sér minna í
virkjunarmálinu. Afstaða hans
hefur vissulega legið ljós fyrir en
þar sem framkvæmdirnar eru í
nýja kjördæminu hans hefur það
líklega ekki þjónað hagsmunum
hans að hjakka mikið á því.“
Formaðurinn þagnar og
fylgið eykst
„Það er athyglisvert hversu lít-
ið Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingarinnar, talaði á síð-
asta þingi miðað við önnur þing
kjörtímabilsins. Þá vekur það
einnig athygli að fylgi Samfylk-
ingarinnar hefur stóraukist á
sama tíma. Á meðan flestir tala
hlutfallslega meira talar Össur
minna. Hjálmar Árnason, Þor-
gerður Katrín, Guðjón Arnar og
Kristján Möller töluðu áberandi
meira á þessu þingi en áður.
„Kristján þurfti að gera sig sýni-
legan hjá fjölda kjósenda í nýju
kjördæmi og notaði þingið vel því
hann talaði nánast jafnlengi nú og
á þinginu á undan, sem var þó
töluvert lengra í dögum talið. Þá
er Guðjón Arnar búinn að sækja í
sig veðrið allt kjörtímabilið og tal-
aði í sextán og hálfa klukkustund
á síðasta þingi.“
Stjórnarandstaðan talar
meira
Björn bendir á að þótt stjórn-
arandstæðingar tali lengur þýði
það ekki að stjórnarþingmen hafi
ekkert til málanna að leggja. „Hér
koma nokkrar ástæður til greina.
Meðal annars sú að stjórnarand-
stöðuflokkarnir bera eingöngu
ábyrgð á stefnu og aðgerðum síns
flokks en ríkisstjórnarflokkarnir
bera í raun ábyrgð á stefnu
flokksins og stefnu ríkisstjórnar-
innar. Þar af leiðandi eiga þing-
menn Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks oft á tíðum erfiðara
með að tjá skoðanir sínar í ræðum
og gera það frekar á lokuðum
þingflokksfundum.“
thorarinn@frettabladid.is
36 ÁRA „Ætli dagurinn fari ekki
bara í vinnu hjá mér,“ segir
Matthías Hemstock trommuleik-
ari, sem er þrjátíu og sex ára í
dag. „Við héldum upp á fimm ára
afmæli fóstursonar míns, Ýmis
Gíslasonar, á laugardaginn og
Gyða móðir hans verður þrítug
þann þriðja maí, þannig að það er
skammt stórra högga á milli.“
Matthías og Gyða gengu í það
heilaga síðasta sumar og hann tel-
ur meiri líkur á að þau hjónin geri
eitthvað sérstakt á afmæli frúar-
innar. „Mínir eigin afmælisdagar
verða oft útundan þó ég hafi alveg
gaman af því að halda veislur.“
Matthías segist aðspurður ekki
hafa gert neitt sérstakt þegar
hann varð þrítugur. „Ég held ég
hafi ekki haldið upp á það en ef ég
gerði það þá var það greinilega
ekki mjög minnisstætt.“
Það hefur vitaskuld ekkert upp
á sig að spyrja Matthías hvernig
aldurinn leggst í hann enda „er
þetta ekki neinn aldur“, eins og
hann orðar það. Hann er á kafi í
tónlistinni og það eru spennandi
hlutir fram undan. „Ég er nýkom-
inn út úr smá skafli og seint í maí
ætlum við að koma saman Skúli
Sverrisson, Hilmar Jensson og
Eyvind Knag. Við tókum upp plöt-
una Napoli 23 fyrir tveimur árum
og þetta verður í fyrsta skipti sem
við hittumst aftur allir síðan þá.
Við ætlum að halda tónleika hér
heima og förum svo og spilum í
London á hátíð á vegum Smekk-
leysu.“
Tónlistin er tímafrekt starf og
áhugamál og því er ekki mikið
svigrúm til að sinna öðrum hugð-
arefnum. „Það er helst að ég reyni
að grípa í bækur og svo er ágætt
að gera við bílinn öðru hvoru,“
segir Matthías dasaður eftir
barnaafmæli og á kafi í vinnu. ■
28 22. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Ræðuhöld
BJÖRN ÁRNI
ÓLAFSSON
■ fjallar meðal annars um ræðutíma
þingmanna í lokaverkefni sínu við Há-
skólann á Bifröst. Hann telur stjórnmála-
menn oft horfa frekar á magnið en gæð-
in á þessum vettvangi og bendir á að
þeir sem tali minna hafi þó oft heilmikið
til málanna að leggja.
Afmæli
MATTHÍAS HEMSTOCK
■ trommuleikari er 36 ára í dag. Hann
er að slappa af eftir að hafa haldið upp á
5 ára afmæli fóstursonar síns á laugar-
daginn og ætlar ekki að gera neitt sér-
stakt í dag.
#
6
# 6
# 6
!
789:)$;'""()<=:
"#$%&"&'(
)*+,-++
7
$>')?@* +//5
$
++ + A
MATTHÍAS HEMSTOCK
„Mínir eigin afmælisdagar verða oft útund-
an þó ég hafi alveg gaman af því að halda
veislur.“
Enginn aldur
HJÁLMAR ÁRNASON
Hann er formaður Iðnaðarnefndar og tal-
aði einnig mikið 1999-2000 þegar Eyja-
bakkaumræðan var í hámarki. Hann talaði
öllu minna á næstu tveim þingum en kom
fílefldur til leiks á síðasta þingi þegar Kára-
hnjúkaumræðan fór af stað með látum.
Hann talaði í 5 klukkustundir og 43 mínút-
ur. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra
er eini framsóknarmaðurinn sem talaði
lengur en Hjálmar en hún eyddi alls 10
klukkustundum og 40 mínútum í ræðu-
stóli.
BJÖRN BJARNASON
Það fór lítið fyrir honum á nýloknu þingi.
Hann talaði samtals í 39 mínútur, sem er
stysti tíminn hjá þeim þingmönnum sem
sátu allt þingið. „Það er þó ekki hægt að
túlka þetta þannig að Björn hafi ekki skoð-
anir á málunum eða hann sé eitthvað sér-
staklega feiminn. Hann heldur úti mjög
öflugri vefsíðu og skrifar mikið af greinum.
Það má segja að hann hafi tileinkað sér
aðra tækni, þurfi síður á ræðustólnum að
halda og sé trúlega í betra sambandi við
kjósendur en þeir sem tala til þeirra úr
ræðustóli þingsins,” segir Björn Árni.
Áherslan á magnið
frekar en gæðin
BJÖRN ÁRNI
ÓLAFSSON
„Þingmenn stjórnarand-
stöðunnar tala áberandi
meira en stjórnarþing-
mennirnir og ef við skoð-
um meðaltal heildartíma
eftir flokkum kemur í ljós
að þingmenn Vinstri
grænna töluðu lang-
lengst. Hver þeirra talaði
að meðaltali í 16 klukku-
tíma.“