Fréttablaðið - 22.04.2003, Qupperneq 29
Pondus eftir Frode Øverli
29ÞRIÐJUDAGUR 22. apríl 2003
■ Áhugamálið
ILMUR STEFÁNSDÓTTIR
Sýning hennar, Mobiler, stendur til 11. maí
á Kjarvalsstöðum.
Bíó, bar,
Búdda og
börnin
Ég hef verið búddisti í 13 ár, enþað er ekki beinlínis áhuga-
mál, heldur meira trúarbrögð,“
segir Ilmur Stefánsdóttir mynd-
listarkona. Hún segist ekki geta
nefnt neitt eitt sérstakt áhugamál
sem hún eigi sér, fyrir utan mynd-
listina, en það er heldur ekki bein-
línis áhugamál, heldur vinna.
Þannig að það er úr vöndu að ráða.
„Ég hef mikinn áhuga á börnunum
mínum,“ segir Ilmur. „Það má
segja að þau séu áhugamálið mitt.
En svo fer ég líka í bíó alltaf á
mánudögum og á bar á miðviku-
dögum. Þetta tvennt heyrir til
minna áhugamála.“
Allt í allt eru það því b-in fjög-
ur: bíó, barinn, Búdda og börnin,
sem eiga áhuga Ilmar. Ilmur segir
búddismann hafa gefið sér mikið
og hún kyrjar reglulega, bæði á
morgnana og á kvöldin. „Ég fæ út
úr búddismanum eins konar átta-
vita,“ segir Ilmur. „‘Ég veit betur
í hvaða átt ég stefni í lífinu.“ Hún
fékk upphaflega áhuga á búdd-
isma út af einskærri forvitni. Af
b-unum fjórum fékk hún fyrst
áhuga á bíóferðum, síðan kom
barinn, svo búddisminn og þar á
eftir börnin. Ilmur segist ekki
vilja missa neitt af þessu út úr
jöfnunni. Hvert styðji annað. Eitt
áhugamálið er þó enn ónefnt,
nefnilega Valur, eiginmaðurinn,
en hann byrjar ekki á b.
Sýning Ilmar, Mobiler, stendur
á Kjarvalsstöðum til 11. maí. ■
Próflaus
verðlaunahafi
FYRIRMYNDARBORGARI Þýskur ellilíf-
eyrisþegi, Wilibald Schmid, var á
leið til athafnar þar sem hann átti
að taka við verðlaunum fyrir 25 ára
fyrirmyndarakstur, þegar hann var
stöðvaður af lögreglu. Þá kom í ljós
að Schmid gamli var próflaus og
hafði einmitt misst prófið 25 árum
áður fyrir gáleysislegan akstur.
Hann lét þó prófleysið ekki á sig
fá og hélt áfram að keyra eins og
ekkert hefði í skorist. Talsmaður
bílaklúbbsins í Essen, sem ætlaði
að heiðra karlinn, var að vonum
frekar kindarlegur þegar upp
komst um prófleysið. „Við ætluð-
um að veita honum verðlaun fyrir
að vera öðrum góð fyrirmynd,“
sagði talsmaðurinn. ■
■ Andlát
María Stefanía Stefánsdóttir,
Hrafnagilsstræti 32, Akureyri,
lést 17. apríl.
Sigríður Helgadóttir, Safamýri 48,
Reykjavík, lést 17. apríl.
Steinunn Sigurðardóttir, Hösk-
uldsstöðum, Reykjadal, lést 16.
apríl.
Gréta Hermannsdóttir lést í Sví-
þjóð 10. apríl.
■ Jarðarfarir
13.30 Katrín Jónsdóttir frá Seyð-
isfirði verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík.
13.30 Vilhjálmur Vilhjálmsson,
Suðurhólum 16, verður jarðsung-
inn frá Háteigskirkju.
Ég átti geðveikt tíu gíra hjól þeg-
ar ég var strákur... Vá, hvað ég
elskaði þetta hjól! En það er eitt
sem hefur alltaf böggað mig...
Af hverju eru strákahjól
með stöng á milli sætis og
stýris, en ekki stelpuhjól?
Ég meina... þegar verða slys
þá er það jú við karlpening-
urinn sem þarf nauðsynlega
að hafa smá RÝMI, þú skil-
ur...
Ég þurfti meira að
segja að láta
skera mig upp
eftir slæmt
óhapp... annað
eistað kreistist
alveg í spað...
Trala
la! Er aðkoma!