Fréttablaðið - 22.04.2003, Side 30
Guðbergur Bergsson gerir hiðmagnaða málverkafölsunar-
mál að umfjöllunarefni í pistli á
heimasíðu JPV-Út-
gáfu og segist skil-
ja jafn lítið í því og
kvótamálinu. „Það
fyrrnefnda virðist
vera þrjótslega ís-
lenskt með lævísu,
dönsku ívafi hvað
varðar lög, rétt og
fagurfræði. Kvótamálið er aftur
á móti laust við hana, enda
rammíslenskt, kolruglað og ljótt
klúður frá upphafi.“ Þá botnar
Guðbergur ekkert í því að „Thor
Vilhjálmsson skuli hafa verið
kallaður sem vitni um málverk
en verið stöðvaður í miðjum klíð-
um, þegar hann var að fara „á
kostum“, eins og sagt var í frétt-
inni“. Guðbergur spyr í fram-
haldinu hvers Thor eigi að gjalda
„að dómari, sem þekkir eflaust
ekki mun á málverki eftir Tiziano
og Kjarval, skuli stinga upp í
hann og reka úr réttarsalnum?“
Guðbergur vottar „skáldbróður“
sínum að sjálfsögðu samúð sína
og skeggræðir svo falsanir á sinn
sérstaka hátt.
Framsóknarmenn slá hvergi afí kosningabaráttunni og reyna
hvað þeir geta að höfða til unga
fólksins. Þannig
gerði Guðni Ágústs-
son landbúnaðar-
ráðherra sér lítið
fyrir og mætti í 70
Mínútur á PoppTíVí
og skellti hinum
margrómaða ógeðs-
drykk í sig og gerði
gott betur með því að færa
Sveppa og félögum brodd til að
bergja á. Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra tók lagið svo eft-
ir verður munað hjá Gísla Mart-
eini og Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra fór í yfirhaln-
ingu í Ísland í bítið og lét breyta
sér í svaka skutlu. Þá hafa ung-
æðislegar sjónvarpsauglýsingar
framsóknar vakið athygli og síð-
an hefur flokkurinn komið merki
sínu á auglýsingar nýjustu Al
Pacino-myndarinnar, The
Recruit. Glöggir menn draga það
að vísu í efa að framsóknarmenn
hafi séð myndina áður en þeir
kýldu á hana þar sem einkunnar-
orð hennar eru „traust, svik og
blekkingar“.
Hrósið 30 22. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
STÉTTARFÉLÖG „Ég hef nefnilega
aldrei unnið í banka,“ segir Friðbert
Traustason, formaður Sambands
íslenskra bankamanna. Friðbert er
kerfisfræðingur og hóf störf hjá
Reiknistofu bankanna árið 1978.
„Við vorum ennþá að nota gata-
spjöld til að forrita tölvur þegar ég
byrjaði.“
Friðbert var varaformaður
félagsins frá 1989 og tók við for-
mennsku árið 1995. Miklar breyt-
ingar hafa orðið í fjármálageiranum
á þeim tíma. Skömmu áður en Frið-
bert tók við varaformennsku sam-
einuðust nokkrir viðskiptabankar í
Íslandsbanka. Félagsmönnum
fækkaði á því tímabili, en fjölgaði
síðan aftur þegar verðbréfamarkað-
ur þróaðist hér á landi. Nú standa
aðrar sameiningar fyrir dyrum.
Friðbert segir að slíkar breytingar
gangi best þegar Samband banka-
manna hefur verið með í ráðum.
Utan vinnutíma er tvennt sem
hefur tekið hug og tíma Friðberts.
Annað er golf. „Ég er mikill
íþróttafíkill, keppti í blaki með ÍS í
gamla daga og hef þjálfað og spil-
að,“ segir Friðbert og viðurkennir
að golfið hafi heltekið hann strax.
Golfvellir eru orðnir iðagrænir og
hann segist hafa notað tímann um
páskana til að sveifla kylfunum.
„Svo hef ég líka leikið í keilu og við
hjá Reiknistofunni höfum verið
með lið. Golfið á nú samt hug minn
þessa dagana.”
Hitt áhugamálið er menntun.
„Ég byrjaði aftur í skóla.“ Friðbert
fór í rekstrarnám í endurmenntun
háskólans og lauk því. „Mér fannst
ég ennþá geta lært, þannig að ég
innritaði mig í hagfræði og lauk því
2001.“ Friðbert stundar nú masters-
nám í hagfræði. Hann segir að
vegna anna hafi hann stundum átt
erfitt með tímasókn. „Þá hefur ver-
ið gott að hafa eignast góða vini í
náminu af yngri kynslóðinni sem
hafa tekið fyrir mann glósur.“ Frið-
bert segir endurmenntun lífsnauð-
synlega fyrir bankamenn. „Ég hef
verið að predika þetta yfir fólki og
því eins gott að ganga á undan með
góðu fordæmi.“ ■
Persónan
FRIÐBERT
TRAUSTASON
■ formaður Sambands íslenskra
bankamanna hefur aldrei unnið í
banka. Hann er kominn með golfbakt-
eríuna og varð hagfræðingur fyrir
tveimur árum.
...fær Íþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur fyrir að hafa sund-
staði höfuðborgarinnar opna um
páskana. Meira að segja á föstu-
daginn langa. Veitti ekki af að
skola af sér súkkulaðið.
Fréttiraf fólki
Hagfræðingur og aldrei unnið í banka
Aðstandendur Jackass-sýn-ingarinnar í Háskólabíói á
dögunum segja að sögusagnir
um að Steve-O og félagar hafi
verið ofurölvi í beinni útsend-
ingu í Djúpu lauginni á Skjá ein-
um séu út í hött. Steve-O hafi
hins vegar verið illa sofinn eftir
annasama tvo daga, flug yfir
Atlantshafið og upptökur á
áhættuatriðum á Íslandi. Daginn
fyrir þáttinn fór hann og spókaði
sig í miðbæ Reykjavíkur og
heillaði að sögn alla í kringum
sig með gríni og glensi, ekki síst
konur sem fylgdu honum í hópi á
hótelið þar sem gamanið hélt
áfram. Morgun-
inn eftir var
hann mættur
klukkan níu í
ýmiss konar
kynningarvinnu
– viðtöl, upptök-
ur og fleira –
þannig að þegar
það kom að Djúpu lauginni
klukkan fimm var hann út-
keyrður.
!" #$"%$"
!"#$$%&%%'()(*+,-,./-,0-
(1-.!+!-2..!2.3,.'4 5550-,0-6-'#7'
Þríburar þurfa meira
„Það tekur ekkert yngra systkini
við stígvélunum þegar þau verða of
lítil og alltaf þarf að kaupa þrennt af
öllu,“ segir Guðbjörg Gunnarsdótt-
ir, formaður Félags þríburafor-
eldra, en félagið hefur látið í sér
heyra í framhaldi af
fréttum um baráttu
þríburaforeldra í
Hveragerði um af-
slátt af leikskóla-
gjöldum. Sú barátta
hefur enn ekki ár-
angur borið. Félag
þríburaforeldra hef-
ur sent blaðinu bréf
þar sem segir meðal
annars:
„Oft er fjallað um þessi mál á
þann hátt að þeir sem ekki þekkja
til geta varla á nokkurn hatt skilið
hvers vegna eigi að aðstoða þríbura
umfram þá sem eiga kannski þrjú
börn með stuttu millibili. Stundum
er nefnt að flestir þríburar séu
glasabörn og hvort fólk hefði ekki
átt að hugsa sinn gang áður en það
fór út í þessa vitleysu,“ segir meðal
annars í bréfi þríburaforeldrana.
Og svo er komið að kjarna málsins:
„Fyrst má nefna að þríburar eru
alltaf fyrirburar og það er áhyggju-
efni í hverri þríburameðgöngu
hversu langt móðirin nái að ganga
með börnin. Dæmin hjá okkar fé-
lagi sýna að þetta getur verið frá 26
vikum til 37 vikna en full meðganga
er 40 vikur.“ Og um fæðingarorlofið
segir í bréfinu: „Í dag er fæðingar-
orlofi þannig háttað að móðir fær 6
mánuði með fyrsta barni og 3 mán-
uði með hverju barni umfram það.
Samtals 12 mánuði með þríburum.
Feðraorlof þríburaforeldra er 3
mánuðir. Ef sömu foreldrar hefðu
eignast þrjú börn með stuttu milli-
bili fengi móðirin samtals 18 mán-
uði og faðirinn 9 mánuði.“
Á fjölmörgu öðru er tæpt í bréfi
þríburaforeldrana og ljóst að það er
ekki alltaf tekið út með sældinni að
eiga svo mörg börn í einu. Til dæm-
is verða þríburaforeldrar að bíða
með börnin heima þar til þau ná
leikskólaaldri því fæstir þeirra hafi
efni á því að borga hundrað þúsund
krónur á mánuði fyrir gæslu hjá
dagmömmu:
„Við erum ekki að kvarta. Aðeins
að benda á að stundum mætti taka
tillit til stöðu okkar, sem er augljós-
lega önnur en flestra annara fjöl-
skyldna,“ segir Guðbjörg Gunnars-
dóttir. ■
■
BARNALÁN
Í Félagi þrí-
buraforeldra
eru nú 42 fjöl-
skyldur og því
126 börn. Að
gefnu tilefni
láta þeir nú í
sér heyra því
ekki er allt sem
sýnist.
MÓÐIR MEÐ ÞRÍBURA
Guðbjörg Gunnarsdóttir með þríburana
Kjartan, Sverri og Hákon. Þeir eru 9 ára.
FRIÐBERT TRAUSTASON
Hvetur félagsmenn sína til endurmenntun-
ar og gengur sjálfur á undan með góðu
fordæmi.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
HABL-faraldurinn.
Andrésar Andar leikarnir.
Höfuðstöðvar B&L, Grjóthálsi.