Fréttablaðið - 22.04.2003, Page 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Snjóþunglyndi gerir vart við sig.Ekki einasta vegna þess að skíða-
vertíðinni er lokið áður en hún hófst
heldur líka þar sem snjóleysi gæti
haft áhrif á fiskveiðar sumarsins og
valdið vatnsleysi í ám og lækjum.
Vandinn sameinar skíða- og veiði-
menn um gjörvalla eyju. Í loforða-
hreti kosningavertíðar mun þessi
þrýstihópur ganga spjöldum vopnað-
ur að Stjórnarráðinu og krefjast
fannfergis á fjöllum. Loforðameist-
arar munu svo sannarlega grípa
þessa kröfu á lofti og heita svo sem
einu almennilegu hreti. Það er þó
loforð sem auðvelt ætti að vera að
efna miðað við mörg önnur sem
fljúga um loftin þessi dægur.
Dylgjur og hálfkveðnar vísur er
kostulegur kveðskapur og Blátoppur
hyggst ekki leggja þá vísnagerð fyr-
ir sig. Það mátti glögglega sjá í
Bolludagsfárinu forðum. Þar voru
nú ekki dylgjur þegar heilu starfs-
mannafélögin skyldu endurskoða sín
subbulegu skattframtöl og sviksam-
legar ráðagerðir. Fréttamenn fengu
á sig fullgerða kvæðabálka um slæ-
leg vinnubrögð og sviksemi við
flokksmálstaðinn. Einhver rogaðist
um með peningahauga og kastaði á
annan og þar var nú ekki hálfur
kveðskapur. Frambjóðendur reiða
sig á gullfiskaminni kjósenda og
kannanir sýna að 99,9 prósent kjós-
enda muna ekkert stundinni lengur.
Eyjarskeggjar sitja pikkfastir á
lista staðfastra og grátbiðja Bússa
um að fá að pússa skóna hans, vera
dyramotta, leika tré í garðinum hans
og styðja árásir á hvað sem er – bara
svo hann taki ekki saman á Miðnes-
heiði og fari með dótið sitt. Dugmik-
ill Dóri, útlandsmálastjóri, vill hjálpa
Ali litla handalausa eftir að hafa
staðfastur samþykkt loftárásir á
húsið hans í Bagdad. Þá er nú líkt og
við búum í Undralandi sjálfu.
Hollívúddstjörnur sem eru svo
skammsýnar að gagnrýna Bússa fá
ekki vinnu lengur. Þær geta í mesta
lagi fengið að kenna leiklist á grunn-
skólastigi á Sýrlandi eða leika stytt-
ur á götum Bagdadborgar. Menning-
arfrömuðir í Hvíta Húsinu segja af
sér í mótmælaskyni við það virðing-
arleysi sem Bandaríkjaher sýndi
fornminjum í Bagdad á sigurstundu,
en enginn segir af sér þar vestra
vegna sakleysingjanna sem féllu.
Þeir voru fórnir á altari frelsisins. ■
Vorvindar á
Undralandi
Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna-
eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt
lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign.
Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar Frjálsa fjárfestingarbankans
Fasteignalán
Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is
s: 554-5022 Nýbílavegi 20 Kóp.
Veitingahús
Súpa og 4réttir kr. 1390 á mann