Fréttablaðið - 05.05.2003, Síða 2
2 5. maí 2003 MÁNUDAGUR
„Þetta var ljúfur sigur af því að félag-
ið skuldar svo mikla peninga. Þarna
komu óvæntar tekjur inn sem voru
ekki fyrirséðar snemma á leiktíðinni.
Sigurinn verður vonandi til þess að
United ber pínulitla virðingu fyrir
Leedsurum í framtíðinni.“
Arnar Björnsson, íþróttafréttamaður, er harður
Leeds-aðdáandi. Leeds tryggði Manchester United
enska meistaratitilinn í gær með 2:3 sigri og hélt
sjálft sæti sínu í úrvalsdeildinni. Leeds fékk einnig
120 milljónir króna aukalega vegna ákvæðis í
samningi eins leikmannsins.
Spurningdagsins
Var þetta súrsætur sigur?
Guðjón Pedersen leikhússtjóri um Borgarleikhúsið:
Barn sem enginn vill
LEIKHÚS Guðjón Pedersen leik-
hússtjóri hefur sagt upp 38
starfsmönnum sem samtals geg-
ndu 20 stöðugildum hjá öllum
deildum í Borgarleikhúsinu.
„Borgarráð sá ekki ástæðu að
sinni að veita meira fé í leikhús-
ið,“ segir Guðjón.
Halli hefur verið á rekstrin-
um í Borgarleikhúsinu undanfar-
in 13 ár. „Menn hafa ekki verið
tilbúnir að skoða í alvöru hvað
þyrfti til að reka þetta leikhús,“
segir Guðjón.
Á þessu ári nemur framlag
Reykjavíkurborgar til LR 231
milljón króna. Skili áætlaður 20
milljóna króna sparnaður vegna
uppsagnanna sér verður rekstr-
arhallinn um 25 milljónir króna í
ár.
Reykjavíkurborg segir LR
ekki hafa fylgt forsendum sem
lágu til grundvallar styrktar-
samningi frá 2001; laun hafi ver-
ið hækkuð umtalsvert en því lítt
mætt með hagræðingu og sparn-
aði.
„Við höfðum enga möguleika
á öðru en að hækka launin til
jafns við það sem hefur gerst úti
í samfélaginu. Við höfum líka
hagrætt og finnst við hafa sýnt
lit,“ segir Guðjón sem telur
Borgarleikhúsið í raun of stóra
byggingu:
„Það er dálítið eins og maður
sé með barn í höndunum sem
engin annar en við vill eiga.“ ■
BORGARLEIKHÚSIÐ
„Það er dálítið eins og maður sé með barn
í höndunum sem engin annar en við vill
eiga,“ segir Guðjón Pedersen leikhússtjóri
sem telur Reykjavíkurborg hafa byggt of
stórt þegar Borgarleikhúsið var reist.
Tímamót í lækningum:
Nýrna-
ígræðslur
á Íslandi
HEILBRIGÐISMÁL Mikil tímamót verða
í íslenskri læknasögu með því að
ákveðið hefur verið að framkvæma
nýrnaígræðslur hérlendis.
Til þess hafa íslenskir nýrnaþeg-
ar farið til útlanda í aðgerð. Því hef-
ur fylgt mikið álag fyrir sjúklinginn
og aðstandendur.
Í dag verður kynnt samkomulag
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytis, Tryggingastofnunar ríkisins
og Landspítala - háskólasjúkrahúss
um nýrnaígræðslu og stofnfrumu-
meðferð á Landspítalanum. ■
ÓLI H. ÞÓRÐARSON
Umræðan um nagladekkin kemur
upp á hverju ári
Er tími nagladekkja
liðinn?
Nagla-
dekkin eru
öryggistæki
UMFERÐARMÁL „Skyndileg hálka“ er
talin vera ein orsök þess að fjórir
bílar skullu saman á Hellisheiði um
helgina. Bílarnir voru á sumar-
dekkjum og vaknar því gamla
spurningin um hvort nagladekk
hefðu getað afstýrt árekstrinum?
„Tíðafarið hefur verið þannig und-
anfarið að um leið og komið er úr
fyrir borgarmörkin er hættan á ís-
ingu fyrir hendi,“ sagði Óli H. Þórð-
arson, framkvæmdastjóri Umferð-
arstofu.
„Við búum á Íslandi, sveiflur á
hitastigi gerast hratt og við getum
átt von á frosti allan ársins hring.
Reyndar hefur starfshópur á okkar
vegum lagt til að nagladekkjatíma-
bilið verði lengt frá 1. vetrardegi til
þess síðasta til að auðvelda fólki að
muna það og ég á von á að þessi leið
verði valin vegna þess að fólk er sí-
fellt að ruglast á núverandi tíma-
setningum. Umferðarráð getur hins
vegar ekki samþykkt skattlagningu
á nagladekk, eins og sumir aðilar
hafa farið fram á, þar sem þau eru
mikilvæg öryggistæki yfir hávetur-
inn.“
Nýlegar rannsóknir í Svíþjóð og
Noregi benda til að ávinningur af
notkun nagladekkja sé stórlega of-
metinn og að slysum hafi í raun
fækkað með vaxandi vinsældum
ónegldra vetrardekkja. Þörf er á
rannsóknum hér á landi til að meta
ástandið sérstaklega samkvæmt ís-
lenskum aðstæðum, segir í saman-
tekt Línuhönnunar hf. um notkun
nagladekkja hérlendis. ■
MJAÐMADANS VELDUR ÁHYGGJ-
UM Þrátt fyrir að Indónesía eigi
við alvarleg vandamál á borð við
hryðjuverkamenn, aðskilnaðar-
sinna og djúpa efnahagslægð að
stríða, þá virðast þeir þessa dag-
ana hafa mestar áhyggjur af vin-
sælli söngkonu sem dillar sér í
lendunum á frekar ögrandi hátt.
Inul Daratista heitir hún og vilja
margir banna henni að koma
fram opinberlega.
DULBJÓ SIG SEM SKÓLASTÚLKU
Lögreglan í Tókíó handtók í gær
23 ára mann, sem viðurkenndi að
hafa stolið handtöskum kvenna í
fimm skipti undanfarna tvo mán-
uði. Í öll skiptin var hann dulbú-
inn sem skólastúlka, klæddur í
blátt stuttpils og hvíta blússu.
Lögreglan kom auga á hann á
laugardaginn í múnderingunni
skammt frá járnbrautarstöð í
Tókíó. ■
■ Asía
Fylgið að setjast
Fylgi flokkanna að festa sig í sessi. Framsókn og Frjálslyndir bæta lítillega við sig fylgi.
Samfylkingin tapar svipuðu. Mikill munur á fylgi flokkanna eftir kjördæmum.
SKOÐANAKÖNNUN Fylgi flokkanna
virðist vera að festast í sessi sam-
kvæmt skoðanakönnun sem
Fréttablaðið gerði á laugardag.
N i ð u r s t ö ð u r
hennar eru ná-
lægt því þær
sömu og niður-
stöður skoðana-
könnunar sem
gerð var 1. maí.
F r j á l s l y n d i
flokkurinn og
Framsókn bæta
lítillega við sig
fylgi. Samfylk-
ing tapar að
sama skapi. Fylgi annarra flokka
breytist lítið sem ekkert.
Össur ofar Davíð
Samfylkingin nýtur mest fylg-
is af öllum flokkum í Reykjavík-
urkjördæmi norður. Gangi það
eftir í kosningunum á laugardag
gerist það í fyrsta skipti í áratugi
að fyrsti þingmaður Reykjavíkur-
kjördæmis kemur ekki úr röðum
Sjálfstæðismanna. Munurinn á
Samfylkingu (38%) og Sjálfstæð-
isflokki (36%) er þó lítill. Enn er
því langt í frá öruggt hvort Davíð
Oddsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, eða Össur Skarphéðins-
son, formaður Samfylkingar,
verður fyrsti þingmaður kjör-
dæmisins.
Ef fylgi flokkanna í Reykjavík
við síðustu kosningar er skipt
jafnt á milli kjördæma má sjá fyr-
ir sér að Samfylkingin sé að bæta
við sig níu prósentustigum, svip-
uðu fylgi og Sjálfstæðisflokkur-
inn tapar á sama tíma. Framsókn-
arflokkurinn tapar ekki miklu en
nægu til að formaður flokksins,
Halldór Ásgrímsson, nær ekki inn
nema sem uppbótarþingmaður.
Sjálfstæðisflokkur
langstærstur
Sjálfstæðisflokkurinn heldur
forystuhlutverki sínu í suðurhluta
borgarinnar. Þar fær hann um
40% kjósenda þó hann tapi fimm
prósentustigum frá síðustu kosn-
ingum. Næsti flokkur, Samfylk-
ingin fengi rúm 32%.
Frjálslyndi flokkurinn bætir
mestu fylgi við sig miðað við síð-
ustu kosningar, rúmlega tvöfaldar
fylgi sitt og fengi níu prósent.
Framsóknarflokkur og
Vinstrigrænir tapa báðir dálitlu
fylgi.
Halda forystunni
Þegar horft er til höfuðborgar-
svæðisins njóta Framsóknar-
flokkur og Frjálslyndi flokkurinn
mest fylgis í Suðvesturkjördæmi.
Þeir færast þó hvor í sína áttina
frá síðstu kosningum, Frjálslynd-
ir bæta við sig sjö prósentustig-
um, Framsókn tapar fimm. Taka
verður fram að fylgi flokkanna í
gamla Reykjaneskjördæminu
þarf ekki að hafa skipst jafnt inn-
an kjördæmisins, þó er gengið út
frá því við samanburðinn.
Sjálfstæðisflokkurinn er allra
flokka stærstur í kjördæminu og
fengi fjóra af níu kjördæmakjörn-
um þingmönnum þrátt fyrir að
tapa nær sex prósentustigum frá
síðustu kosningum. Samfylkingin
stendur í stað frá síðustu kosning-
um. Fylgi flokkanna í kjördæminu
hefur lítið breyst síðust vikur að
því er fram kemur í könnunum
blaðsins.
Frjálslyndir blómstra
Síðasta haust efuðust margir
um að Frjálslyndi flokkurinn
næði manni inn í Norðvesturkjör-
dæmi. Þó Guðjón A. Kristjánsson
nyti mikils fylgis á Vestfjörðum
var talið vafasamt að það dygði
langt í nýju, stærra kjördæmi.
Flokkurinn virðist þó ætla að þre-
falda fylgi sitt í kjördæminu frá
síðustu kosningum. Er þá miðað
við fylgið í Vesturlandi, á Vest-
fjörðum og Norðurlandi vestra.
Flokkurinn fengi fimmta hvert at-
kvæði samkvæmt nýjustu könn-
unum Fréttablaðsins.
Allir aðrir flokkar tapa fylgi í
kjördæminu, Framsóknarflokkur-
inn sýnu mestu eða átta prósentu-
stigum. Flokkurinn fékk þrjá
þingmenn síðast en fengi tvo nú.
Aðrir flokkar tapa sýnu minna
fylgi.
Framsókn stærst
Framsóknarmenn geta brosað
breitt í einu kjördæmi. Þeir njóta
31% fylgis í Norðausturkjör-
dæmi, litlu minna en í kosningun-
um fyrir fjórum árum. Þar eins og
í Norðvesturkjördæmi tapa allir
flokkar nema Frjálslyndir, fáir þó
neinu að ráði nema Vinstri-grænir
sem tapa tæpum fjórum prósentu-
stigum. Vinstri-grænir sækja þó í
sig veðrið síðustu vikurnar sam-
kvæmt könnunum.
Frjálslyndi flokkurinn fengi
sex prósentustigum meira fylgi í
Norðausturkjördæmi en Norður-
landi eystra og Austurlandi fyrir
fjórum árum. Þá var flokkurinn
langt frá því að ná inn manni, nú
er næsti maður inn Frjálslyndur
samkvæmt könnun blaðsins.
Sjálfstæðismenn tapa
Sjálfstæðisflokkurinn lenti í
miklum vandræðum með að upp-
röðun á lista sína. Fylgistap
flokksins upp á tíu prósentustig
milli kosninga virðist þó frekar
mega rekja til sterkari innkomu
Frjálslynda flokksins sem bætir
jafn miklu fylgi við sig. Sjálfstæð-
isflokkurinn er þó eftir sem áður
stærsti flokkurinn í kjördæminu,
hefur naumt forskot á Framsókn-
arflokkinn sem hefur sótt veru-
lega í sig veðrið undanfarnar vik-
ur ef skoðanakannanir, 1. og 3.
maí eru borgar saman við kannan-
ir 19. apríl og sumardaginn fyrsta.
T-listi Kristjáns Pálssonar er
langt frá því að ná inn þingmanni.
brynjolfur@frettabladid.is
REYKJAVÍK NORÐUR
1. Össur Skarphéðinsson, S
2. Davíð Oddsson, D
3. Bryndís Hlöðversdóttir, S
4. Björn Bjarnason, D
5. Guðrún Ögmundsdóttir, S
6. Guðlaugur Þór Þórðarson, D
7. Kolbrún Halldórsdóttir, U
8. Helgi Hjörvar, S
9. Sigurður Kári Kristjánsson, D
––––
Halldór Ásgrímsson, B
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, S
Uppbótarþingmenn:
Halldór Ásgrímsson, B
Sigurður Ingi Jónsson, F
REYKJAVÍK SUÐUR
1. Geir H. Haarde, D
2. Jóhanna Sigurðardóttir, S
3. Pétur Blöndal, D
4. Ásta R. Jóhannesdóttir, S
5 .Sólveig Pétursdóttir, D
6. Mörður Árnason, S
7. Guðmundur Hallvarðsson, D
8. Margrét K. Sverrisdóttir, F
9. Birgir Ármannsson, S
––––
Ágúst Ólafur Ágústsson, S
Ögmundur Jónasson, U
Jónína Bjartmarz, B
Uppbótarþingmenn:
Ágúst Ólafur Ágústsson, S
Ögmundur Jónasson, U
SUÐVESTURKJÖRDÆMI
1. Árni M. Mathiesen, D
2. Guðmundur Árni Stefánsson, S
3. Gunnar I. Birgisson, D
4. Rannveig Guðmundsdóttir, S
5 .Sigríður A. Þórðardóttir, D
6. Gunnar Örlygsson, F
7 .Siv Friðleifsdóttir, B
8. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, D
9. Þórunn Sveinbjarnardóttir, S
––––
Jóhanna B. Magnúsdóttir, U
Bjarni Benediktsson, D
Uppbótarþingmenn:
Bjarni Benediktsson, D
Jóhanna B. Magnúsdóttir, U
NORÐVESTURKJÖRDÆMI
1. Sturla Böðvarsson, D
2. Jóhann Ársælsson, S
3. Guðjón A. Kristjánsson, F
4. Magnús Stefánsson, B
5. Einar K. Guðfinnsson, D
6. Anna Kristín Gunnarsdóttir, S
7. Sigurjón Þórðarson, F
8. Einar Oddur Kristjánsson, D
9. Kristinn H. Gunnarsson, B
––––
Guðjón Guðmundsson, D
Gísli S. Einarsson, S
Uppbótarþingmaður
Jón Bjarnason, U
NORÐAUSTURKJÖRDÆMI
1. Valgerður Sverrisdóttir, B
2. Halldór Blöndal, D
3. Kristján L. Möller, S
4. Jón Kristjánsson, B
5. Steingrímur J. Sigfússon, U
6. Tómas Ingi Olrich, D
7. Dagný Jónsdóttir, B
8. Arnbjörg Sveinsdóttir, D
9 .Einar Már Sigurðarson, S
––––
Brynjar S. Sigurðsson, F
Birkir Jón Jónsson, B
Uppbótarþingmaður:
Brynjar S. Sigurðsson, F
SUÐURKJÖRDÆMI
1. Árni Ragnar Árnason, D
2. Guðni Ágústsson, D
3. Margrét Frímannsdóttir, S
4. Drífa Hjartardóttir, D
5. Magnús Þór Hafsteinsson, F
6. Hjálmar W. Árnason, B
7. Lúðvík Bergvinsson, S
8. Guðjón Hjörleifsson, B
9. Ísólfur Gylfi Pálmason, S
––––
Björgvin G. Sigurðsson, S
Kjartan Ólafsson, D
Uppbótarþingmaður
Kjartan Ólafsson, D
▼
▼ ▼
▼
▼ ▼
▼
▼ ▼
▼
▼ ▼
▼
▼ ▼
▼
▼ ▼
SKOÐANA-
KÖNNUN
1. OG 3. MAÍ
B 15,6%
D 35,0%
F 10,7%
N 1,0%
S 28,8%
T 0,2%
U 8,7%
Um könnunina
Umfjöllunin að ofan bætir á skoðana-
könnunum sem framkvæmdar voru 1. og
3. maí. 2.400 manns voru spurðir hvaða
flokk þeir hygðust kjósa. Þeir sem ekki
svöruðu voru spurðir hvaða flokk væri lík-
legast að þeir kysu. 82,2% tóku afstöðu.
Þegar niðurstöður könnunarinnar eru
bornar saman við síðustu kosningar eru
úrslitin þá umreiknuð yfir á nýju kjör-
dæmin eftir því hvernig íbúar gömlu kjör-
dæmanna skiptast á þau nýju.