Fréttablaðið - 09.05.2003, Side 12
12 9. maí 2003 FÖSTUDAGUR
■ Vestfirðir
HÁTÍÐARHÖLD Í ÍSRAEL
Mikið var um dýrðir þegar Ísraelar héldu
upp á 55 ára afmæli Íraelsríkis á dögun-
um. Í þorpinu Alon Shvut á Vesturbakkan-
um var boðið upp á hersýningu og fékk
þessi unga stúlka að sitja ofan á fallbyssu
á ísraelskum skriðdreka.
KOSNINGAR Kosningabaráttan hefur
verið mjög skemmtileg og spenn-
andi, að sögn Margrétar Sverris-
dóttur, frambjóðanda Frjálslynda
flokksins í Reykjavíkurkjördæmi
suður.
„Við reynum að vera úti á með-
al fólks daginn fyrir kosningar,“
segir Margrét, sem hyggst heim-
sækja félagsmiðstöðvar, hjúkrun-
arheimili og fyrirtæki í dag. „Það
er enn þó nokkuð af fólki sem er
óákveðið og það er mikilvægt að
tala við það, enda hefur fólk gam-
an af því að tala við frambjóðend-
ur og kynna sér málin.“
Margrét segir kosningabarátt-
una hafa verið spennandi. Fyrir
Frjálslynda flokkinn hafi hún verið
miklu markvissari nú en fyrir fjór-
um árum, þegar flokkurinn hafi
verið nýr. Nú sé búið að móta innra
starf flokksins og hann því verið
vel í stakk búinn til að taka þátt í
kosningabaráttunni af fullum
krafti.
„Mér finnst reyndar eins og
fleirum að baráttan hafi kannski
snúist of mikið um persónur frekar
en málefni. Þetta hefur samt alls
ekki verið ódrengileg kosningabar-
átta. Það sem hefur einna helst far-
ið fyrir brjóstið á mér er auglýs-
ingaflóðið. Við höfum ekki getað
tekið þátt í þessu auglýsingastríði,
en þó við hefðum getað það þá er ég
ekki viss um að við hefðum viljað
það, þetta er svo yfirþyrmandi.“
Margrét segist líta bjartsýnum
augum til morgundagsins. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum virðist
flokkurinn vera búinn að festa sig í
10 prósentum og ef það verði niður-
staða kosninganna verði það mikill
sigur. Upphaflega hafi markmiðið
verið að tvöfalda fylgi flokksins og
svo virðist sem það markmið sé að
nást.
„Okkar helsta kosningamál,
kvótamálið, hefur verið ofarlega á
dagskrá í þessum kosningum og
það út af fyrir sig er sigur fyrir
okkur. Fólk hefur samt séð að við
erum ekki bara eins málefnis flokk-
ur. Það hefur séð að við erum með
breiðan og góðan málefnagrund-
völl.“
Margrét segir að í kvöld verði
kosningavakan annað kvöld undir-
búin. Hún verði haldin á Hótel Borg
og hvetur hún alla stuðningsmenn
flokksins að láta sjá sig.
trausti@frettabladid.is
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR, FRAM-
BJÓÐANDI FRJÁLSLYNDRA
„Okkar helsta kosningamál, kvótamálið,
hefur verið ofarlega á dagskrá í þessum
kosningum og það út af fyrir sig er sigur
fyrir okkur,“ segir Margrét.
Sannfærir óákveðna
á lokasprettinum
Margrét Sverrisdóttir, frambjóðandi Frjálslynda flokksins, verður úti á
meðal fólks í dag. Hún segir kosningabaráttuna hafa verið drengilega.
Auglýsingaflóðið hafi hins vegar verið yfirþyrmandi.
SAMNINGUR Gengið hefur verið
frá samningi í Frakklandi við
ráðgjafafyrirtækið Hecla um
ráðgjöf við styrkingu á flutn-
ingskerfi raforku þar í landi.
Hecla er tveggja ára gamalt,
með aðsetur í París, og er sér-
hæft í ráðgjöf á raforkusviðinu.
Það er í eigu Línuhönnunar,
Landsvirkjunar, Verkfræðistof-
unnar Afls og Frakkans Jean
Chauveau.
Raflínur í Frakklandi
skemmdust víða í miklu óveðri
1999 og voru hlutar landsins án
rafmagns í nokkurn tíma.
Styrkja þarf og endurbyggja
möstur og undirstöður í 52 þúsund
kílómetrum af raflínum en heild-
arlengd lína í kerfinu öllu er 110
þúsund kílómetrar. Íslendingar
hafa mikla reynslu af hönnun raf-
lína þar sem aðstæður eru erfiðar,
t.d. vegna hvassviðra og ísingar.
Samningurinn við Hecla er til
þriggja ára og að hljóðar upp á
rúmar 230 milljón krónur.
Líklega er samningurinn
stærsti ráðgjafasamningur Ís-
lendinga á sviði raforkukerfa er-
lendis til þessa ef litið er til
þriggja ára samningstímans. ■
SAMNINGUR UM HÖNNUN RAFLÍNA
Samningurinn við Frakkana hljóðar upp á 230 milljónir.
Styrkja raflínur í Frakklandi:
Digur samningur
MESSUVÍNI STOLIÐ
Brotist var inn í kirkjuna í Súðavík
í síðustu viku og messuvíni stolið.
Önundur Jónsson, yfirlögreglu-
þjónn á Ísafirði, sagði við bb.is að
einskis væri saknað utan messu-
vínsins. „Menn átta sig greinilega
ekki á því að besta brennivínið er
ekki í kirkjum. Núorðið er messu-
vínið mjög lítið áfengt og í sumum
tilvikum óáfengt.“
ELDUR Í BÁTI
Eldur kom upp í báti sem lá í Súð-
arvíkurhöfn klukkan fjögur í gær-
dag. Skemmdir urðu vegna brun-
ans. Kallað var á slökkviliðið á
staðnum og eins var óskað eftir að-
stoð frá Ísafirði. Að sögn lögreglu
lá báturinn ekki nálægt öðrum og
því stafaði engin hætta af.
ÍRAK, AP Framtíðin hefur aldrei
verið bjartari, segir Salwa al-
Baghdadi, 23 ára gömul mennta-
kona frá Bagdad. Eins og svo
margar kynsystur hennar í Írak
bindur hún vonir við það að fall
Saddam Hussein muni færa
íröskum konum meira frelsi og
aukin réttindi.
En þó Salwa líti björtum aug-
um til framtíðar viðurkennir
hún að undir niðri búi óttinn við
það að komið verði á fót stjórn-
kerfi þar sem öfgasinnar fari
með völdin og konum verði ýtt
út af vinnumarkaðnum. Margir
vilja að stofnað verði íslamskt
ríki í Írak. Í því felst að farið
yrði eftir sharia, lögum múslíma,
sem skerða rétt kvenna verulega.
Íraskar konur hafa fram að þessu
haft fremur sterka stöðu miðað við
það sem tíðkast í nágrannalöndun-
um og hafa þær því miklu að tapa.
Yfir 55 prósent írösku þjóðar-
innar eru konur og margar þeirra
eru hámenntaðar. Undir ríkis-
stjórn Saddam Hussein nutu kon-
ur lengi vel mikils frelsis og rétt-
inda og gegndu jafnvel valdastöð-
um í þjóðfélaginu. Á síðustu árum
hafði staða konunnar þó veikst
umtalsvert samfara örvæntingar-
fullum tilraunum Saddam
Hussein til að vinna bókstafs-
trúarmenn á sitt band. ■
ÍRASKAR STÚDÍNUR
Íraskir háskólanemar ræðast við fyrir utan
Háskólann í Bagdad. Mikil óvissa ríkir um
framtíð íraskra kvenna og óttast margar
þeirra að þær muni missa réttinn til að
sækja sér menntun og taka þátt í atvinnu-
lífinu.
Óvissa ríkir um stöðu konunnar í Írak:
Óttast að glata réttindum sínum
ALLIR VILJA ÓDÝRT Í SÓLINA
Sumarferðir selja vikulega ódýrar ferðir til
Alicante í sumar.
Sumarferðir:
Meira eða
minna full-
bókað
FERÐALÖG Mikið er bókað í ferðir
til Alicante í sumar, að sögn Jó-
hönnu Hauksdóttur hjá Sumar-
ferðum. Hún segir að að það sé að
verða meira eða minna fullbókað í
flestar ferðir í sumar. Í margar
ferðir eru aðeins örfá sæti laus en
flogið er vikulega frá 22. maí
fram í september. Fólk getur bók-
að sjálft á Netinu og það hafa
margir notfært sér. „Við erum
farin að taka niður á biðlista í
margar ferðir og ég á ekki von á
að ferðum verði fjölgað.“ ■