Fréttablaðið - 21.05.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 14
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
KÆRA
Fyrsta
eineltismálið
FÓTBOLTI
Ávísun á
gott Íslandsmót
MIÐVIKUDAGUR
21. maí 2003 – 115. tölublað – 3. árgangur
bls. 14bls. 2
PERSÓNAN
Keypti
olíufélag
bls. 31
TÓNLEIKAR Kammerkór Reykjavíkur
er einn af yngri kórum landsins.
Fyrstu tónleikar hans fara fram í
Laugarneskirkju í kvöld og hefjast
klukkan 20. Meðal annars verða
flutt lög eftir Hjálmar H. Ragnars-
son, Hallgrím Helgason og Hildi-
gunni Rúnarsdóttur. Bjarni Jóna-
tansson leikur á píanó og Hugrún
Sif Hallgrímsdóttir á þverflautu.
Stjórnandi kórsins er Sigurður
Bragason.
Fyrstu tónleikarnir
STJÓRNMÁL Þingflokkar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks koma
til fundar um samkomulag sem for-
menn flokkanna hafa komist að um
áframhaldandi ríkisstjórnarsam-
starf. Ekki er búist við öðru en að
þingflokkarnir samþykki það sem
formennirnir leggja fyrir þá.
Stjórnarsáttmáli
samþykktur
LEIKHÚS Nemendaleikhúsið sýnir
verkið Tvö hús eftir Federico
Garcia Lorca. Um er að ræða út-
skriftarsýningu Leiklistardeildar
Listaháskólans og er verkið í leik-
stjórn Kjartans Ragnarssonar. Sýn-
ingin hefst klukkan 20.
Útskriftarsýning
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
REYKJAVÍK Hæg breytileg átt
og bjart með köflum. Hiti
7 til 14 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-5 Léttskýjað 8
Akureyri 3-8 Léttskýjað 10
Egilsstaðir 3-8 Skýjað 11
Vestmannaeyjar 3-5 Bjartviðri 10
➜
➜
➜
+
+
STJÓRNARMYNDUN Davíð Oddsson
forsætisráðherra segist gera ráð
fyrir breytingum á sínum póli-
tísku högum á kjörtímabilinu. Að-
spurður vill
hann hins vegar
ekki svara því
hvort hann
hyggist hætta í
stjórnmálum.
„Ég skal ekki
segja hvort ég
hætti í stjórn-
málum eða
hvort ég verð í
framboði eftir
fjögur ár, það
veit Guð einn,“ sagði Davíð við
blaðamenn eftir að hafa fundað
með Ólafi Ragnari Grímssyni, for-
seta Íslands, á Bessastöðum í há-
deginu í gær. „En það verða ör-
ugglega pólitískar breytingar á
mínum högum á kjörtímabilinu.“
Fundur Davíðs og Ólafs Ragn-
ars stóð í um einn og hálfan tíma.
Að fundinum loknum sagðist Dav-
íð hafa gert forsetanum grein fyr-
ir stöðu mála í stjórnarmyndunar-
viðræðunum. Hann sagðist einnig
hafa gert Ólafi Ragnari grein fyr-
ir innihaldi stjórnarsáttmálans í
öllum meginatriðum, sem og
þeim breytingum sem kynnu að
vera uppi. Aðspurður hverjar
breytingarnar kynnu að verða
sagðist hann ekki vilja fara ná-
kvæmlega út í það. Fyrst yrði að
kynna stjórnarsáttmálann fyrir
þingmönnum flokkanna, en það
verður gert á þingflokksfundum
þeirra í dag.
Davíð sagði að búið væri að
ákveða hvernig flokkarnir
skiptu ráðuneytunum á milli sín
og að þar gæti ýmislegt komið á
óvart. Hann sagði að ekki væri
búið að ákveða hverjir kæmu til
með að gegna ráðherraembætt-
unum. Hvað Sjálfstæðisflokkinn
varðar yrði það ákveðið eftir
flokksráðsfund, sem hefst
klukkan 18 á morgun.
Ríkisráðsfundur verður hald-
inn á föstudaginn klukkan 11, en
þá kemur fráfarandi ríkisstjórn
saman.
Ný ríkisstjórn mun síðan
koma saman klukkan 13.30. Dav-
íð sagði að ákveðið hefði verið
að Alþingi kæmi saman til starfa
á mánudaginn.
trausti@frettabladid.is
Boðar breytingar á
pólitískum högum
Davíð Oddsson forsætisráðherra hitti forseta Íslands á Bessastöðum. Ný
ríkisstjórn kemur saman á föstudaginn. Flokkarnir eru búnir að skipta
ráðuneytunum. Alþingi tekur til starfa á mánudaginn.
NOREGUR, AP Sjálfsmynd hollenska
listmálarans Vincent Van Gogh
sem hangir uppi í norska lista-
safninu í Osló er kannski fölsuð en
það tekur ekki brosið af forráða-
mönnum safnsins.
Myndin, sem er ein af fáum
sjálfsmyndum sem málarinn teikn-
aði eftir að hann skar af sér annað
eyrað, hefur vakið mikla athygli og
eru gestir safnsins orðnir langtum
fleiri en vonast var eftir. Merkileg-
asta mynd safnsins, Ópið eftir
Munch, sem hefur gegnum tíðina
verið það verk sem flestir koma að
sjá, hefur fallið í skuggann.
Ástæður vinsældanna má rekja
til mikilla vangaveltna um hvort
verkið sé ekta. Norski listfræð-
ingurinn Johannes Roed hélt því
fram eftir rannsókn að um fölsun
væri að ræða.
Listasafnið er nú að rannsaka
málið á eigin spýtur en á meðan
mun sjálfsmyndin prýða veggi
safnsins. „Það vilja allir sjá
verkið,“ sagði Frode Haver-
kamp safnvörður. „Ef þeir sjá
hin verkin í leiðinni þá er það
frábært.“ ■
Metaðsókn að norsku listasafni:
Falskur Van Gogh trekkir að
LISTASAFN
Viðtökur við verki Van Gogh
hafa verið frábærar.
AFMÆLI
bls. 16
20 ára bið
ÍÞRÓTTIR
bls. 30
Fylkir
eða KR?
Manni bjargað:
Lenti í
sjálfheldu
BJÖRGUN Karlmaður á fertugsaldri
komst í hann krappan í gær eftir
að hafa lent í sjálfheldu á fjallinu
Stóra-Meitli sem er gegnt Skíða-
skálanum í Hveradölum.
Maðurinn var á klettasyllu í
fjallinu og gat sig lítið hreyft án
þess að lenda í hættu að falla fram
af. Óskaði hann sjálfur eftir að-
stoð og var Hjálparsveit skáta í
Hveragerði kölluð út klukkan
14.30. Var manninum hjálpað að
komast niður og að sögn björgun-
arsveitarmanna sakaði hann ekki
við þessar hrakfarir. ■
UNNIÐ AÐ BÆJARHLIÐI
Áætlað er að nýtt bæjarhlið Seltirninga
verði tilbúið í lok mánaðarins.
Bæjarmörk:
Nýtt bæjar-
hlið rís
SELTJARNARNES Nýtt bæjarhlið
Seltirninga er óðum að taka á sig
mynd. „Þetta er steingarður sem
markar bæjarmörk Reykjavíkur
og Seltjarnarness,“ segir Jón-
mundur Guðmarsson bæjarstjóri.
Að sögn Jónmundar hafa fram-
kvæmdirnar staðið yfir í um það
bil mánuð og er áætlað að þeim
ljúki í lok mánaðarins.
Hliðið verður hið myndarleg-
asta, mannhæðarhátt og upplýst
frá öllum hliðum. „Þetta ber
vitni um stórhug okkar Seltirn-
inga,“ segir Jónmundur, „og
vilja til að vera sjálfstæðir um
ókomna tíð.“ ■
FORSETI ÍSLANDS OG FORSÆTISRÁÐHERRANN HITTUST Á BESSASTÖÐUM
Davíð Oddsson forsætisráðherra hitti Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á Bessastöðum í hádeginu í gær. Þar gerði Davíð forsetanum
grein fyrir stöðu mála í stjórnarmyndunarviðræðunum.
„Það verða
örugglega
pólitískar
breytingar á
mínum hög-
um á kjör-
tímabilinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M