Fréttablaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 30
Við reynum að lesa manneskj-urnar sem koma til okkar og lýsa þörfum þeirra á mannamáli,“ segir Valdimar Þorsteinsson hjá fasteignasölunni Bakka í Skeif- unni í Reykjavík, sem hefur tekið upp á því að auglýsa á nýstárleg- um nótum. Bakkamenn lýsa við- skipavinum sínum, væntingum þeirra og vonum þannig að ekki fari á milli mála að hverju verið er að leita. „Svo erum við að sjálf- sögðu að vekja á okkur athygli,“ segir Valdimar. Í dagblaðaauglýsingum auglýs- ir Bakki til dæmis svona: „Ingveldur er fullorðin kona og orðin þreytt á stigunum í sinni blokk. Hún vill helst komast á jarðhæð en ekki of niðurgrafið. Ekki væri verra ef strætó stopp- aði nálægt.“ Og önnur er svona: „Baldur er bjarthærður ungur sveinn sem er að hefja störf í einu af stóru kompaníunum í borginni og hans leið er bein og liggur beint upp. Hann vill búa í mið- bænum, helst nálægt bakaríi enda fátt betra en bökunarlykt að vakna við.“ Ekki fer sögum af því hvort Ingibjörg gamla eða Baldur ungi hafi fundið eign við hæfi en aug- lýsingarnar ættu ekki að skemma fyrir: „Við byrjuðum á þessu austur á Selfossi og auglýstum svona í Dagskránni sem er bæj- arblaðið á staðnum. Á Stokkseyri var okkur sagt að íbúarnir hefðu beðið eftir blaðinu til þess eins og skemmta sér yfir auglýsingun- um, sem oftar en ekki voru lýs- ingar á nágrönnum þeirra í fast- eignahugleiðingum,“ segir Valdi- mar í Bakka en fasteignasalan flutti frá Selfossi til Reykjavíkur fyrir um það bil hálfu ári. Áfram rekur Bakki þó fasteignasölu á Selfossi. Auglýsingar Bakka enda svo á eftirfarandi klausu sem ætlað er að glæða viðskiptin eins og annað: „Allir sem selja eða kaupa hjá Bakka lenda í Sól- hattinum og eiga þá möguleika á því að fara til Mallorca í haust en þar er, eins og allir vita, gott að djamma og djúsa – á sandölum og ermalausum bol.“ eir@frettabladid.is 21. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR Auglýsingar ■ Fasteignasalan Bakki fer ótroðnar slóð- ir þegar fyrirtækið auglýsir eignir á skrá. Meira er lagt upp úr að lýsa væntanleg- um kaupendum frekar en híbýlunum sjálfum. VALDIMAR ÞORSTEINSSON Hjá fasteignasölunni Bakka er manneskjan í fyrirrúmi. Fasteignasali á mannlegum nótum „When I’m 64“ 64 ÁRA „Þetta er dagur sem líður og ekkert merkilegri en aðrir,“ segir Sigurjón Jóhannsson leik- myndahöfundur, sem er 64 ára í dag. Hefur náð þeim merkilega aldri sem Bítlarnir gerðu óðdauð- legan í víðfrægu lagi sínu sem þeir ortu þegar Sigurjón og þeir voru miklu yngri: „Ég leita hugg- unar í textanum. Hann gefur fyr- irheit um að einhver ætli að líta til með manni í ellinni. Vonandi verður það ástkær eiginkona mín,“ segir afmælisbarnið og á þar við Ólöfu Karlsdóttur, sem lumar kannski á einhverju handa bónda sínum í tilefni dagsins þó Sigurjón viti ekki af því. „Ég tók hressilega á því þegar ég varð fimmtugur. Þá leigðum við veit- ingahús og höfðum það flott. Ég hét mér því þá að endurtaka ekki þann leik fyrr en ég verð sjötug- ur,“ segir Sigurjón, sem vinnur nú að leikmynd fyrir nýja upp- færslu Borgarleikhússins á Línu langsokki: „Það er barnaklassík sem stenst tímans tönn,“ segir leikmyndahöfundurinn um verk- efni sitt þessa dagana og gæti eins vel átt við sjálfan sig. ■ SIGURJÓN JÓHANNSSON Hélt hressilega upp á fimmtugsafmælið og ætlar ekki að endurtaka það fyrr en hann verður sjötugur. Afmæli SIGURJÓN JÓHANNSSON ■ leikmyndahöfundur er 64 ára í dag. Segir afmælisdaginn ekkert merkilegri en gerist og gengur. Hann líði eins og aðrir dagar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.